Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Síða 5
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1992.
29
>stic, ÍA. Skagastúlkur urðu bikarmeistarar og Luka og félagar urðu sem kunnugt
DV-myndir GS
Lokahóf knattspymumanna var
haldið á Hótel íslandi á laugardags-
kvöld að viðstöddu fjölmenni. Hófið
var með hefðbundnu sniði og eftir
borðhald og skemmtiatriði voru
verðlaun afhent þeim sem skarað
hafa fram úr í knattspyrnunni í sum-
ar.
DV hefur fylgst grannt með Sam-
skipadeildinni í sumar og verðlaun-
að mánaðarlega þá sem upp úr hafa
staðið, í samvinnu við Samskip og
NIKE. í lokahófinu var tilkynnt val
á hði ársins, bæði karla og kvenna,
og þáðu hðsmenn gjöf frá þessum
aðilum, auk viðurkenningarskjals
þessu til staðfestingar. í hði ársins
eru markvörður, þrír vamarmenn,
fimm miðvaharleikmenn og tveir
sóknarmenn.
Þá fór fram val á efnilegustu leik-
mönnum Samskipadeildar og 1.
deildar kvenna. Skagamaðurinn
ungi og markakóngur deiidarinnar,
Amai' Gunnlaugsson, varð fyrir val-
inu í SamskipadeUdinni og Ásthildur
Helgadóttir, Breiðabliki, í 1. deUd
kvenna. Bæði fengu þau eignarbik-
ara, en Arnar fékk Flugleiðahornið
tU varðveislu næsta árið.
Hápunktur kvöldsins var val á
bestu leikmönnum deildarinnar. Það
kom fáum á óvart að fyrirhði íslands-
meistara ÍA yrði fyrir valinu sem
besti leikmaður Samskipadeildar-
innar en hann lék mjög vel í sumar.
Það var líka Skagamaður sem
hreppti titihnn besti leikmaður 1.
deUdar kvenna, Jónína Víglunds-
dóttir, en ÍA varð bikarmeistari í
sumar og Jónína er fyrirhði hðsins.
Veglegir eignarbikarar fylgja nafn-
bótinni en Luka fékk einnig Flug-
i jafnframt er markakóngur deildarinnar, leiðahorn tU varðveislu í eitt ár.
um sínum. -BL
íþróttir
Lið ársins í Samskipadeildinni fékk verðlaun frá DV, Samskipum og NIKE. Aftari röö frá vinstri: Erlendur Eysteins-
son frá NIKE, Hlynur Birgisson, Þór, Luka Kostik, ÍA, Andri Marteinsson, FH, Bjarki Gunnlaugsson, ÍA, Rúnar
Kristinsson, KR, Arnar Gunnlaugsson, ÍA og Baldur Guðnason frá Samskipum. Fremri röð frá vinstri: Óskar Hrafn
Þorvaldsson, KR, Salid Porca, Val, Bjarni Sveinbjörnsson, Þór, Lárus Sigurðsson, Þór og Sveinbjörn Hákonarson,
Þór.
Lið ársins í 1. deild kvenna ásamt fulltrúum frá NIKE og Samskipum. Efri röð frá vinstri: Erlendur Eysteinsson frá
NIKE, Steindóra Steinsdóttir, ÍA, Sigurlín Jónsdóttir, ÍA, Ragna Lóa Stefánsdóttir, Stjörnunni, Halldóra Gylfadóttir,
ÍA, Ásthildur Helgadóttir, Breiðabliki, Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Breiðabliki og Baldur Guðnason frá Samskipum.
Fremri röð frá vinstri: Guðrún Sæmundsdóttir, Val, Ólína Halldórsdóttir, sem tók við viðurkenningunni fyrir Auði
Skúladóttur, Stjörnunni, Jónína Víglundsdóttir, ÍA, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir KR og Guðný Guðnadóttir, Stjörnunni.
Byrjenda- og framhaldsnámskeið hefjast 22. september
UDOFÉIAG
kVÍKUR
húsakynnum
Þjálfari verður Michal Vachun, 6. dan.
Æfingar verða í æfingasal félagsins í
Sundlauga Reykjavíkur í Laugardal.
Innritun fer fram á staðnum milli kl. 17 og 19 þriðjudaga
og fimmtudaga.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 31976 milli kl.
17 og 19.