Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992.
5
Fréttir
Hla útlltandi bílageymslur í Hamraborg 1 Kópavogi:
Þetta er eins og Harlem
- segir talsmaður íbúa en flókin samningamál hafa hamlað viðgerðum
„Það þarf illilcga að halda þessu
viö því þetta er eins og í Harlem.
Bílageymslurnar eru rétt fokheld-
ar og búnar að vera það síðan 1975,“'
segir Þórir Steingrímsson, tals-
maður íbúðareigenda í Hambra-
borginni í Kópavogi.
Samningur var á sínum tíma
undirritaður á miUi íbúðareigenda
og byggingaraðila Hamraborgar-
innar og Kópavogskaupstaðar en
flókin samningamál hafa hamlað
lúkningu og viðgerð á bílageymsl-
unum.
„Við íbúar höfum aldrei getað
gert nokkum skapaðan hlut því
það hefur alltaf vantað lögaðila
sem gæti samið fyrir hönd hinna
213 íbúðareigenda í Hamraborg-
inni. Það lítur út fyrir að nú sé að
nást samstaða meðal íbúa um þessi
mál og þá verður stofnað sérstakt
sambandsfélag íbúðareigenda í
Hamraborg sem getur gerst lögað-
ili og samið við bæjaryfirvöld," seg-
ir Þórir.
Kópavogsbær hefur lagt fram
grófa áætlun um lagfæringu á bíla-
geymslunum og svokölluðu Geisla-
hlaði fyrir ofan bílastæðin. Áætlað-
ur kostnaður viðgerðarinnar er í
kringum 40 mUljónir króna. Bær-
inn á um 60 bílastæði af um 200
undir Hamraborginni.
„Það liggur fyrir samningur um
þetta mál sem er orðinn úreltur og
þarf að endurskoða. Þar segir að
Ástandið i bílageymslum undir Hamraborginni í Kópavogi er slæmt og það er ófögur sjón sem blasir við vegfarendum sem eiga þar leið um.
DV-mynd Brynjar Gauti
bæjarsjóður eigi aö leggja út fyrir bæjarsjóður að ná upp í kostnaðinn Við höfum því verið í viðræðum framkvæmdastjóri Framkvæmda-
viðgerðum og eigendur eigi svo að í gegnum gjaldtöku á bílastæðun- við fulltrúa íbúa um hvernig og tæknisviðs í Kópavogi.
borga ákveðinn hluta til baka. um en það er alls ekki raunhæft greiðsla verði tryggð af hálfu -ból
Samkvæmt þessum samningi á og myndi ekki standa undir sér. þeirra," segir Þórarinn Hjaltason,
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA SAMEINAR KOSTINA
TAKTU SKYNSAMLEGAÁKVÖRÐUN í FJÁRMÁLUM.
Við bjóðum einstaklingum og fyrirtækjum alhliða fjármálaþjónustu eins og hún gerist best og hraðvirkust
á okkar dögum. Jafnframt kostum við kapps um að halda hinu persónulega og hlýlega andrúmslofti sem
hefur auðkennt sparisjóðina alla tíð.
• innlánsreikningar • sparisjóðsbréf • viðskiptaþjónusta innan- og utanlands • greiðslukortaþjónusta
• almenn gjaldeyrisþjónusta • fjármálaráðgjöf • lán til lengri eða skemmri tíma
st
SPARISJÓÐIMNN
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
Borgartúni 18, Síðumúla 1, Rofabæ 39