Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992. Forsetahjónin bandarísku reyna allt til að snúa á Bill Clinton: Kynlíf ógiftra er sama og dauðinn - sagði Barbara Bush 1 sjónvarpsþætti með Larry King Utlönd___________________ Opinberir slarfs- menniFæreyj- umiverkfall Opinberir starfsmenn í Færeyj- um hafa skipulagt fimm daga mótmælaverklall gegn launa- stefhu stjórnvalda. Verkfallið hefst þann 12. október, sama dag og færeysku haustfríin. Búist er við að það raski umferð millieyj- anna. Landstjómin hefur þröngvað opinberum starfsmönnum á ein- staka vinnustöðum til að taka launalaust frí í allt að eina viku til að spara launaútgjöldin. „Margir félaga okkar eru neyddir til aö biðja um launa- laust leyfi. í kjarasamningunum eru vinnutími og laun fastákveð- in og það á að fara efitir samning- unum,“ segir Jakup Danielsen, formaður verkalýðsfélags opin- berra starfsmanna. Landstjórnarmenn hafa ekki áhyggjur af verkfallinu en eru þegar famir að telja miIUónimar sem sparast í launaútgjöldum við það. Belgareiga Evr- ópumetiðium- ferðarslysum Hvergi í öllu Evrópubandalag- inu eru umferðarslys fleiri en i Belgiu. Beigíska fréttastofan Belga sagöi um helgina að saro- kvæmt upplýsingum frá frönsk- um tryggingaaöilum létu 203 iíflð eða slösuöust á hverja tíu þúsund bíla í Belgíu. Slysatíönin er meira en þrisvar sinnum hærri en í Danmörku, þar sem hættuminnst er að keyra af öllum löndum EB. Þar era að- eins 59 dauðsfoll eða slys á hveija tiu þúsund bila. Frakkiand og It- aiia koma þar á eftir með 83 hvort land. Siysatíðni er tiltölulega há í Portúgai, Þýskalandi og Bret- landi þar sem á annað hundrað farast eða slasast, miðað viö tíu þúsund bíla-. TervygíslAnder- sonhættirí blaðamennsku Bandariski blaöamaðurinn Terry Anderson, sem var í haldi íslamskra mannræningja í Li- banon í nærfellt sjö ár, sagöi fyr- ir helgi að hann heföí sagt upp starfi sínu hjá fréttastofunni Assoeiated Press. Anderson, sem var látinn laus í desember, skýrði frá þessu á fundi með 200 blaðaútgefendum á austurströnd Bandaríkjanna. Talsmaður AP staðfesti að And- erson heföi sagt upp. Anderson var aðalfréttaritari AP i Miðausturlöndum. Hann er nú að skrífa bók um þrekraun sína Efnahagsástand setti svip á þing- setningu Efnahagsástandið á Grænlandi setti svip á ræðu Lars Emils Jo- hansens, formanns grænlensku landstjórnarinnar, viö setningu landsþingsins á föstudag. For- maðurinn sagöi að afturkippur værí merkjanlegur í öllum þátt- um samfélagsins og að kreppan í fiskvinnslunni væri su alvarleg- asta tíi þessa. Lars Emil upplýsti að þaö væri stefha landstjómarinnar að koma Grænlandi út úr kreppunni með því aö lækka tilkostnað. Það yrði því ekki gripið til hækkunar á sköttum og öðrum álögum, að undanskilinni lítilli hækkun á bifreíöagjaldinu. Ritzau og Heuter „Mér finnst aö við ættum að gera ungmennum þessa lands það ljóst að kynlíf fyrir hjónaband er sama og dauðinn. Slíkt kynlíf á ekki að þekkj- ast,“ sagði Barbara Bush forsetafrú í sjónvarpsþætti hjá Larry King í gær. Hún var þar gestur ásamt Ge- orge manni sínum. Ummæh Barböra þóttu undarleg og lýsa íhaldssamri afstöðu hennar til fjölskyldumála. Málefni af þessu tagi era afar viðkvæm vestra og þótti forsetafrúin sýna mikinn kjark með því að tala hreint út um málið. Þau Að minnsta kosti fjórir létust þegar skýstrokkar og gífurlegt þrumuveð- ur fóra yfir vesturströnd Flórída á laugardag og ollu miklum skemmd- um. Skýstrokkamir og þrumuveðrið gerðu mikinn usla í hjólhýsabyggð, skemmdu verslananúðstöð, rifu þak- iö af eínni kirkju að minnsta kosti og ollu flóðum í' mörgum íbúðar- hverfum. Að sögn bandarísku veðurstofunn- ar fóra fimm skýstrokkar yfir bæinn Radovan Karadzic, leiðtogi Serba í Bosníu, hefur hótað að hætta að taka þátt í alþjóðlegri viðleitni til að koma á friði í lýðveldinu ef Vesturlönd reyna að stöðva aðgerðir serbneskra flugvéla. í bréfi til Boutros Boutros-Ghalis, framkvæmdasljóra Sameinuðu þjóð- anna, sagði hann að loftferðabann mundi styrkja stöðu íslamstrúar- manna í Bosníu og „særðir Serbar ættu enga undankomuleið og margir óbreyttir borgarar yrðu matarlaus- ir.“ Bandarísk stjómvöld, sem saka hjónin leita nú allra leiða til að snúa á Bill Clinton og hindra um leið að Ross Perot nái til sín fylgi íhaldss- amra kjósenda. 1 daglegri skoðanakönnun USA Today og CNN kemur berlega í ljós að Clinton heldur öruggri forystu á Bush. í könnuninni í gær reyndist Chnton hafa 49% fylgi en Bush 36%. Aðeins 8% aðspurðra segist ætla að kjósa Perot og er það mun minna fylgi en hann haföi í sumar áður en hann hætti við framboð sitt. Svo virðist sem hringlandaháttur Perots Pinellas Park, nærri St. Petersburg, þar sem margt eldra fólk býr í hjól- hýsum. Tæplega níutíu heimhi eyði- lögðust og tvö hundruð urðu fyrir skemmdum. Þetta er í annað sinn á rúmum mánuði sem óveður veldur tjóni á Flórída. í ágúst fórast 40 manns þeg- ar felhbylurinn Andrés fór yfir aust- urströnd Flórída. Rafmagnsveitur Flórída sögðu að þrjátíu þúsund manns væra án raf- magns á Pinehas svæðinu og ein Serba um að gera loftárásir á bæi á valdi íslama, hafa beitt sér fyrir því að Öryggisráð SÞ lýsi yfir loftferða- banni yfir Bosníu nema hvað flug með hjálpargögn yrði heimhaö. En í yfirlýsingu með bréfi sínu sagði Karadzic að bosnískir Serbar myndu þegar í stað draga sig út úr friöarviðræðum SÞ og Evrópubanda- lagsins ef slík thlaga yrði samþykkt. Hjálparflug með matvæh og lyf th Sarajevo, höfuðborgar Bosníu, hófst aftur á laugardag. Stöðva varð aht flug skömmu eftir hádegi í gær vegna veðurs og þykir það vísbending um á síöustu vikum hafi kostað hann fjölda stuðningsmanna. í sjónvarpþættinum gerði Bush mikið úr því að Clinton hefði fyrir rúmum sex árum hitt sendiherra ír- aka að máli. Vhdi Bush meina að Clinton hefði aha tíð viljað friðmæl- ast við íraka og selja þeim kom. Hann gaf í skyn að Clinton hefði ekki tekið einarða afstöðu gegn írökum eftir að þeir réðust inn í Kúveit. stofnæð hið minnsta væri óvirk. Mike McCord var uppi í stiga að gera við símahnu þegar einn ský- strokkanna kom niður. „Ég var úti áður en skýstrokkurinn kom. Hann lyfti mér upp, sneri mér við og þeytti mér þangað," sagði hann og benti á auða lóð hinum megin götunnar. Sendibifreiö hans fauk einnig th eins og leikfang. Reuter erfiðleikana framundan þegar vetur gengur í garð. Að sögn talsmanns flóttamanna- stofnunar SÞ í Genf er spáð slæmu veðri í Sarajevo í dag en vonast er th að hægt verði að fljúga með hjálp- argögn. Ef veður leyfir er gert ráð fyrir að tvær franskar flugvélar fljúgi tvær ferðir hvor með hjálpargögn frá króatísku hafnarborginni Spht. Tvær bandarískar flugvélar eiga að fara frá Frankfurt í Þýskalandi og ein kanadísk vél frá Zagreb í Króatíu. Reuter Reuter Fjórir létust og miklar skemmdir urðu á húsum þegar skýstrokkar fóru yfir bæinn Pinellas Park á vesturströnd Flórída um helgina. Simamynd Reuter Fjórir farast í óveðri á Flórída: „Skýstrokkur lyfti mér og þeytti yf ir götuna“ Serbar í Bosníu óhressir með tillögur um loftferðabann: Hóta að slíta friðarviðræðum Kveiktiíkirkju vegnatrúrækni Suður-Kóreumaður, sem var reiður vegna þess að konan hans neitaði að hætta að sækja kirkju, kveíkti í gær í guðshúsinu með þeím afleiðingum að þrettán létu lífið og yfir tuttugu slösuðust. Um niutíu manns voruí tveggja hæöa kirkjunni í bænum Wonju í gær. Margir stukku út um glugga á annarri hæð th að kom- ast undan logunum. Sumir eru alvarlega slasaðir og er tahð að dánartalan kunni að hækka. Brennuvargurinn kveðst hafa farið til kirkjunnar til að ná i konu sína en kirkjuverðir vísuðu honum frá. Hann hellti þá tíu lítr- um af bensíni inn í anddyri kirkj- unnar og kveikti síðan í með kveikjara. Fangarflýjaí Þrír fangar komust undan i þyrlu er þeir brutust út úr fang- elsi skammt frá París í gær. Þyrl- an flaug til íþróttasvæðis í ná- grenni fangelsisins þar sem fang- arnir stálu bh og héldu áfram flóttanum. Vopnaður maður tók þyrluna á leigu og neyddi flug- manninn th að lenda í fangelsis- garðinum er veriö var aö viðra fangana. Tugir fanga gerðu uppreisn eft- ir hóttann og neituðu að snúa aftur til klefa sinna. Mikh spenna ríkti í fangelsum í Frakklandi í síðasthðnum máiruði er fanga- verðir fóru í verkfall til aö leggia áherslu á meira öryggi. Verkfaihð fylgdi í kjölfar dauða fangavaröar í tengslum við flótta frá ramm- gerðu fangelsi. ÞyrstirSvíar gera innrás Um eitt þúsund sænskir ungl- ingar, sem frétt höfðu af ódýrum dönskum bjór, settu allt á annan endann í Helsingör á föstudags- kvöld. Þar var lögreglan alveg óviöbúin innrásinni og varð aö kalla út aukalið frá nálægum bæjum. Um fimm hundruð unglingar voru fluttir th baka til Helsing- borg í Svíþjóð í fylgd lögreglu. Ekki kora th harðra átaka mhli lögreglunnar og unglinganna sem voru á aldrinum 12 th 20 ára en talsvert var um skemmdar- verk á bílum og brotnar voru rúður í verslunum. Jólatrémeðrótum Umhverfisverndarsinnar í Mexíkóborg fara þess nú á leit við almenning að tréð sem hann setur upp í stofunni sinni um jól- in verði með rótum svo hægt verði að gróðursetja það á ný. Benda umhverfisverndarsinn- ar á að draga verði úr skógar- höggi því trén séu nauðsynleg til að hreinsa loftiö en mengun er gífurlegt vandamál í Mexíkóborg. Með186falsaða Lögreglan í Rosendaal í Hol- landi handtók Nígeríumann sem hafói í fórum sínum 186 falsaöa pappíra, að því er hohenskt dag- blað skýröi frá um helgina. Maðurinn, sem er rúmlega tví- tugur, hafði 29 nígerisk vegabréf, 30 bresk vegabréf, 74 hollensk atvinnuieyfi, 12 bresk ökuskír- teini, 18 fæðingar- eða dánarvott- orð, 2 bresk námsskírteini, al- þjóðlegt ökuskírteini og 20 falsað- ar ávísanir. Lögreglan kveðst enn ekki vera 100 prósent. viss um hver maður- inn sé í raun og veru. Reuter og Rltssau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.