Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Side 27
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992.
39
Merming
Úr kvikmyndinni Tvöfalt lif Verónfku.
Tónlistin við Tvö-
falt líf Veróníku
Þeir eru margir sem muna eftir ágætri kvikmynd
pólska leikstjórans Krzystofs Kieslowskis, Tvöfalt líf
Veróníku, sem sýnd var hér á landi við góða aösókn
síðastliðið haust, og þá ekki síst eftir seiðmagnaðri
tónlistinni í myndinni sem gerði sér dælt við þann sem
þetta ritar, og sjálfsagt einhveija fleiri, löngu eftir að
ljósin kviknuðu í sýningarsalnúm.
Þessi tónlist, sem samin er af ungu pólsku tón-
skáldi, Zbigniew Preisner, er nú komin út á geisla-
diski hjá alls óþekktu frönsku útgáfufyrirtæki, Sider-
al, sem Skífan hefur umboð íyrir. Hefur hún engu
tapað af þeim þokka sem hún öðlaðist í minningunni.
Þessi tónhst er í átján stuttum köflum, sem vara
allt frá hálfri mínútu upp í rúmar fimm mínútur, þar
sem koma við sögu kór og hljómsveit, en einnig ein-
leiksflauta, píanó og harpa. Tónskáldið leitar fanga
víða í tónlistarsögunni, í fomum kirkjusöng jafnt sem
flautuleik Perúindíána, barokktónlist og nútíma poppi
og samræmir fóng sín af mikilh kunnáttu. Því virkar
þessi tónhst eins og margbrotin en þó heildstæð svíta
með skýrt afmörkuðu upphafi, risi og niðurlagi. Senni-
lega er þetta sú tónlist sem Mike Oldfield vildi samið
hafa hér forðum daga. Blæbrigði hægferðugrar heild-
arinnar eru tignarleg, angurvær og ljóðræn, sem er í
fyhsta samræmi við þann örlagavef sem Kieslowski
Tónlist
Aðalsteinn Ingólfsson
spinnur í mynd sinni.
Hljóðfæraleikur er fyrsta flokks og upptakan lýta-
laus. Eini gahi við diskinn er að hann inniheldur ekki
nema 31 mínútu af tónhst, sem er eiginiega í það
minnsta miðað við verð.
Zbigniew Preisner - La Double Vie de Véronique,
Sinfóníuhljómsveitin i Katowice & Filharmóniukór Silesiu,
Stjórnandi: Antoni Wit
SID 001
i^rslafengin böm þurfa sterk rúm.
Bamakojumar okkar em sterkar, fallegar,
afar vandaðar og á góðu verði.
Komdu til okkar og þú finnur kojuna
sem þig vantar.
Sérsmíðum ef óskað er.
Suðurlandsbraut 16
Bridge
íslandsmót í einmenningi
-23.-24. október
Eins og kemur fram í útgefinni mótaskrá var ákveðiö að endurvekja
íslandsmótið í einmenningi á þessu hausti. Upphaflega var áætlað að
hafa þetta mót 30. og 31. október en þar sem hætt var við að halda opið
mót á Akureyri helgina á imdan var ákveðið að færa þetta mót tíl um
eina helgi. íslandsmótið í einmenningi 1992 verður því haldið í Sigtúni 9
dagana 23. og 24. október nk. og árshátíðin færist líka fram um eina helgi
og verður laugardaginn 24. október á L.A. Café.
Skráning er hafin á skrifstofu BSÍ (s. 91-689360) og eru allir sem ætla
að taka þátt beðnir að skrá sig eins fljótt og hægt er. Skrárúngarfrestur
er til fóstudagsins 16. október. Allir þátttakendur fá síðan send keppnis-
kort með kerfinu sem verður sphað og þeim sagnvenjum sem nota má.
Þátttökugjald er kr. 2.500 á mann. Keppnisstjóri veröur Kristján Hauks-
son og sphaö verður í Sigtúni 9.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Mánudaghm 28. september hófst tveggja kvölda minningarmót um tvo
fyrrum félaga B.H., þá Kristmund Þorsteinsson og Þórarinn Andrewsson.
Sphaður er tvímenningur með Mitcheh sniði í tveimur riðlum, annar
ætlaður byijendum eingöngu. Úrsht kvöldsins í A-riðh urðu eftirfarandi
ÍNS:
1. Ársæll Vignisson - Trausti Harðarson 319
2. Þorsteinn Kristjánsson - Rafn Kristjánsson 313
3. Kristófer Magnússon - Guðbrandur Sigurbergsson 311
4. Erla Sigurjónsdóttir - Hulda Hjálmarsdóttir 310
Úrsht í AV urðu:
1. Ingvar Ingvarsson - Kristján Hauksson 326
2. Friðþjófur Einarsson - Þórarinn Sófusson 307
3. Björn Amórsson - Kristín Guðbjömsdóttir 295
4. Valdimar Sveinsson - Friðjón Margeirsson 289
í B-riðh urðu úrsht eftirfarandi í NS:
1. Bjöm Höskuldsson - Sigrún Amórsdóttir 123
2. Páll Sigurösson - Helen Gunnarsdóttir 115
3. Þorvarður Ólafsson - Amar Ægisson 95
Og efstu skor í AV urðu:
1. lVIaría Guðnadóttir - Kristín Andrewsdóttir 111
2. Haraldur Magnússon - Margrét Pálsdóttir 107
3. Steinþórunn Kristjánsdóttir - Anna Hreinsdóttir 100
Næstkomandi mánudag verður sphuð seinni umferðin í minningarmótinu
og hefst spilamennskan kl. 19.301 íþróttahúsinu við Standgötu.
FAXAFENI 14 • SÍMI 68 74 80
Skemmtileg og þroskandi námsfzeið
fiefíast í nœstu viftu fyrir stúlkur og pilta
I. Snyrting, framkoma, kurteisisvenjur, tjáning og sviðs-
framkoma. Verð kr. 7.300.
II. Ganga, sviðsframkoma og tjáning. Verð kr. 4.500. Fram-
haldsnámskeið í göngu, sviðsframkomu, tjáningu o.fl.
Verðkr. 4.500.
III. Herranámskeið í framkomu, kurteisisvenjum, göngu,
sviðsframkomu o.fl. Verð kr. 4.500.
Tískusýning og prófverkefni í lok námskeiðsins.
Ath.: Allir þeir sem hafa spurt um námskeið-
in hafi samband sem fyrst.
J Gjafakort
Innritun daglega frá kl. 17-19 í síma 643340 og 37878.