Alþýðublaðið - 14.03.1967, Síða 4
1
ílOEKSttD
Ritstjóri: Benetiikt Gröndal. Simar 14000 — 14903. — Auglýsingasíml:
14906. — Aðsetur: Alþýðuliúsið við Hveríisgötu, Rvik. — Prentsmiðja
Alþ.vðublaðsins, Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausa-
sölu kr. 7.00 eintakið. — ÚtgeXandi: Alþýöuíiokkurijui.
J---------------------------------.......
; Um valdið
KOSNINGABARÁTTA er hafin hér á landi og mun
nú fara vaxandi með hverri viku fram til kjördags —
eftir þrjá mánuði. Átök um framboð einstakra manna
hafa verið með mesta móti, og nokkur eftirvænting
virðist um það, hvort kjósendur muni enn fylgja hin-
um troðnu slóðum síðasta aldarfjórðungs, eða gera
toreytingar á íslenzkum stjórnmálum, sem um munar.
!É>að er athyglisvert, að mörg umræðuefni, sem fram
hafa komið í upphafi kosningahríðarinnar, eru ný.
Alþýðublaðið talaði síðastliðinn sunnudag um aukinn
þátt unga fólksins í stjórnmálum og lækkun kosninga
aldurs. Þjóðviljinn réðist á þá tegund ungra stjórn-
málamanna, sem blaðið kall'ar atvinnupólitíkusa og
telur þá óþarfa nýjung. Morgunblaðið veltir vöngum
yfir „valdafrekju“ og tilgangi manna, flokka og ríkja
i stjórnmálabaráttu. Loks fjallar Tíminn um hina nýju
fjöldamiðla og ræðst á misnotkun þeirra hér á landi.
Af öllu þessu má sjá, að ýmsar breytingar eru að
gerast í íslenzkum stjórnmálum, hvort sem áhrif
þeirra verða meiri eða minni í alþingiskosningunum
í vor. Ungt i'ólk dagsins í dag er af árgöngum, sem
fæddust á stríðsárunum eða eftir þau. Það þekkir
ekki kreppu, fátækt, atvinnuleysi. Þessi kynslóð er
vel menntuð og myndarleg, en hvernig skyldi hún
Jbeita þeim völdum, sem hún nú fær í landinu?
Ýmislegt er til í gagnrýni Þjóðviljans á ungum póli
.tíkusum. En þó verður varla komizt hjá því, að menn
leggi pólitík fyrir sig eins og önnur fög, enda þótt
það hafi verið óhugsandi hér á landi fyrir nokkrum
áratugum. Og meðal atvinnupólitíkusa eru formenn
og mestu valdamenn ALLRA núverandi flokka, nokkr
ir tugir manna. En hvernig á að tryggja, að fjárhag-
ur stjórnmálamanna hafi ekki áhrif á stefnu þeirra?
Iivernig á 'að forða flokkum og flokksblöðum frá ó-
eðlilegum áhrifum aðila, sem vilja leggja þeim til fé?
Þetta eru vandamál, sem krefjast úrlausnar, áður en
langt um líður. Skyldi hin nýja kynslóð skilja þenn
an vanda betur en þær eldri?
Umræður um valdafrekju eru nýstárlegar hér á
landi, af því að tiltölulega lítið hefur verið reynt að
skilgreina valdið í íslenzku nútímaþjóðfélagi, finna
hvar það er og hver uppspretta þess er, hverjir ná
því í sínar hendur og hvað þeir gera við það. Stundum
hefur það verið sagt, að vegna smæðar og menntunar
séu íslendingar ágæt tilraunadýr í félagslegum efn-
um. Ætti því að vera unnt að finna valdið og athuga,
hvort því er beitt af frekju eða hroka eins og um er
talað í öðrum löndum.
Alþingi er án efa helzta miðstöð valdsins á íslandi,
enda þótt mikið vald sé víðar en í húsinu við Austur-
völl. Þess vegna er vel við eigandi að slíkar umræður
eigi sér stað fyrir þingkosningar.
14. marz 1967 == ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÚTSALA
á
karlmannaskóm
Geysifjölbreytt úrval
Verð frá kr. 398.-
Skóbúð Austnrbæjar
Laugavegi 100.
á krossgötum
★ ÍSLENZKAN BÆTTI
MYNDINA.
Mér varð ósjálfrátt á að brosa,
skrifar V. K., þegar ég heyrði blessaðan þjóð-
leikhússtjórann okkar lýsa því yfir í sjónvarpinu
síðastliðinn sunnudag í fúlustu alvöru, að Danir
héldu þvi fram, að kvikmyndin Rauða skikkjan
liefði batnað við það, að við hana var sett íslenzkt
tal! Danir eru þekktir fyrir sína ágætu kímni-
gáfu, en líklega verðum við íslendingar aldrei
þekktir fyrir slíkt. Að minnsta kosti ekki meðan
menn misskilja svonalagað.
Annars datt mér í hug, að við ís-
lendingar ættum lireinlega að bjóða Dönum að
hressa upp á kvikmyndagerð þeirra með því að
lána þeim slangur af íslenzkum leikurum. Eins
og allir vita framleiða Danir talsvert mikið af
kvikmyndum og eru þær ekki allar góðar.
Nu hefur hins vegar fundizt
heillaráð til þess að bæta þessar myndir. Það er
ekki annað en setja bara við þær íslenzkt tal.
Þá hætta Danir að skilja vitleysuna og úr verða
ágætis kvikmyndir.
Þá þótti mér sannarlega ekki
verra, að nú skuli þjóðleikhússtjóri vera búinn
að skrifa kvikmyndahandrit eftir Njálu. Það verð-
ur líklega ekki kvikmynd af verri endanum og
allra sízt, ef myndin á að kosta heilar tuttugu
milljónir króna.
Ég held ég hafi þetta bréf til
ykkar þá ekki lengra, en ég vona bara, að ekki
þurfi til þess að koma að setja þurfi danskt tal
við þá mynd, þegar hún verður sýnd hér 1
Reykjavik. — V. K.
★ LÍF í LI.STUM.
Það væri sannarlega ekki satt,
ef reynt væri að halda því til streitu, að starf-
semi íslenzka sjónvarpsins hefði á einhvern
hátt lamað listalíf í höfuðborginni í vetur. Mál-
verkasýningar eru hver á fætur annarri og met>
aðsókn að sumum. Uppselt er á margar sýning-
ar fram í tímann lijá Leikfélagi Reykjavíkur.
Þjóðleikhúsið sýnir nú við mikla aðsókn Marat
/Sade, sem vakið hefur verðskuldaða athygli.
Það er næstum engu líkara, en
óvenjulega mikið líf sé í lista- og menningar-
starfsemi allri um þetta leyti. Hafa hrakspár þær
sem sjónvarpsandstæðingar lengi höfðu uppl
síður en svo rætzt, en sumir þeirra virtust þeirr-
ar skoðunar, að ef íslenzkt sjónvarp yrði sett á
stofn, mælti næstum leggja niður leikhúsin ís-
lenzku, og ekki þyrfti meira að hugsa um bóka-
útgáfu. Raunin hefur orðið önnur. — K a r 1.
Auglýsið í Alþýðublaðinu
Aglýsingasími AiþýðublaÖsins er 14906