Alþýðublaðið - 14.03.1967, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 14.03.1967, Blaðsíða 9
félags er fátæktin. Á yfirborS inu virðist hún böl, en i raun og veru er hún ágæt. Fátækt in krefst umbreytinga, athafna og byltingar. Á pappírunum er allt mögulegt: maður getur skrifað hvað sem vera skal, bæði nýtt og fallegt.“ Um byltinguna segir í kveri Maos: „Byltingin er ekki eins og hver annar miðdegisverður, né bókmenntanlegt afrek eða ísaumur. Hún getur ekki orð ið til með glæsimennsku, ró eða friði; hún getur ekki verið kurteis, vinaleg, hæglát né göf uglynd. Byltingin er uppreist, voldug stétt, sem byltir mátt annarrar ítéttar". *• •» Kvikmyndaleikkonan Natalie Wood mun hafa í hyggju að gifta sig bráðurn í annað sinn 0g sá útvaldi er Richard Greg son, tordðir ensHJi leikarahs Michael Craig. Natalie og Rich ard hafa undanfarið verið í vetr arfríi í Skotlandi, Natalie Wood liefur einn skilnað að baki, hún var gift leikaranum Bob Wagn er. Stálu hormónumí stað kókaíns Rannsóknarlögreglan í Massy rétt utan Parísarborgar er sannfærð um það, að innan skamms muni lögreglan finna nokkra þjófa, sem að því er virðist voru að leita að kóka- íni í efnaverksmiðju nokkurri, en tóku í misgripum 12 kg. af kvenhormónum, en þá átti að nota til að auka varp hjá hæn- um. Þetta efni hefur líka ver- ið notað til að breyta svo- köiluðum hermafródítum (tví- kynja manneskjum) í konur. Ef karlmenn taka inn kven- hormóna taka að vaxa á þá brjóst og röddin breytist. Svo að nú bíður bara rannsóknar- lögreglan í Massy eftir því, að heyra frá eiturlyfjaneytendum sem kvarti um, að það hljóti að vera eitthvað athugavert við sig, þeir séu allt í einu að verða eitthvað svo undarlegir. Byggt niður á við AÐALSTÖÐVAR UNESCO í París þarfnast stöðugt meira rýmis fyrir starfsemi sína, en þegar UNESCO óskaði eftir að fá að byggja, neitaði borgar- stjóri Parísar því um að byggja háhýsi. En UNESCO mátti byggja niður á við eins langt og óskað væri eftir — og hér á myndinni sést árangur- inn. Brazilíski arkitektinn Burle Marz teiknaði þessar frumlegu byggingar. zkalandi. Kurt Giinter Möller - eftirlýstur morð- Elke Kempf - fannst í Vestur-Þýzkalandi. ingi á dönsku sjúkrahúsi. hann muni liggja slasaður á einhverju dönsku sjúkrahúsi. Kurt fór sl. desembermánuð frá Frankfurt með 21 árs gamalli þjónustustúlku, Maria Hagl, til Austur-Þýzkalands. Þar kynntist hann hinni 17 ára Elke Kempf og fór með henni til baka til Frankfurt. Hins vegar hvarf Maria Hagl sporlaust. Lögreglan í Austur- og Vest ur-Þýzkalandi hófu síðan víð- tæka leit í sameiningu og bar hún loks árangur, er þeir aust ur-þýzku fundu lík nakinnar konu. Reyndist það vera Maria Hagl. Austur-þýzka ríkislögreglan komst svo nýlega að því, að Kurt Giinter væri meðlimur í vest.ur-þýzkum félagsskap, sem hafði það að markmiði, að smygla fólki frá Austur-Berlín til Vestur-Berlínar. í því skyni höfðu pappirarnir, sem Maria var með, verið notaðir til að smygla Elke Kemph yfir til Vestur-Þýzkalands. Þegar vestur-þýzka lögreglan ætlaði að yfirheyra Kurt, var hann horfinn. Það liggur ekki ljóst fyrir, hvers vegna hann er nú allt í einu kominn á danskt sjúkrahús. GLÆSILEGT ÚRVAL AF ÍSLENZKUM-DÖNSKUM NORSKUM Borðstofuhúsgögnum VIÐART. PALISANDER-EIK-TEKK SKEIFAN KJÖRGAR©! AÐALFUNDUR STYRKTARFÉLAGS VANGEFINNA verður haldi'nn að dagheimilinu Lyngási á Pálmasunnudag 19. marz kl. 2 e. h. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnarinnar. 2. Reikningar félagsins. 3. Stjórnarkosning. Kosnir 2 menn í að- alstjórn og 2 í varastjórn. 4. Kosning endurskoðanda og vara- manns hans til 3ja ára. 5. Önnur anál. S T J ÓRNIN. LEIKSÝNING FYRIR MEÐLIMI VERKALÝÐS FÉLAGA Þjóðleikhúsið sýnir MARAT / SADE fyrir félagsmenn verkalýðsfélaga n.k. miðvikudag kl. 8 s.d. Aðgöngumiða- sala í skrifstofu Dagsbrúnar. Tekið á móti aðgöngumiða. pöntunum í skrifstofu félaganna. Verkamannafélagið Dagsbrún. Sjómannafélag Reykja- víkur. Verkakvennafélagið Framsókn. A.F.B..félag afgreiðslustúlkna í brauð- og mjólkurbúðum. Bók- bindarafélag íslands. Iðja, félag verksmiðjufólks. Félag íslenzkra rafvirkja. Félag járniðnaðarmanna. Starf- stúlknafélagið Sókn. Trésmíðafélag Reykjavíkux-. 14. marz 1967 = ALÞÝÐUBLAÐIÐ $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.