Alþýðublaðið - 14.03.1967, Qupperneq 6
ós
BORGARALEG SAMVI
TILHEYRIR FORTÍÐ
:
NÆSTU dagar verða afdrifa-
ríkir í dönskum stjórnmálum
og geta ráðið úrslitum um sam-
starf minnihlutastjórnar jafn-
a'ðarmanna og hins sósíalist-
'íska þjóðarflokks Aksel Lar-
sens, sem stutt hefur stjórn-
ina síðan í kosningunum 22.
nóvember í fyrra.
Það eru kjaramálin sem efst
eru á baugi. Kjarasamningarn-
ir eru uppsegjanlegir í vor og
vofir yfir hætta á stórfelldri
vinnudeilu, sem þegar í stað
'mun ná til 200.000 launþega og
ígetur smám saman snert 800.-
800 lauiiþega til viðbótar og
fjölskyldur þeirra. Ríkissátta-
semjarinn hefur lagt bann við
vinnustöðvun fyrir 15. marz og
reynir að finna lausn á síðustu
stundu. Tilraunir hans hafa
staðið yfir í margar vikur. Nú
hefur verið lögð fram sáttatil-
laga, en verður hún samþykkt?
Þá valda skattmálin erfið-
leikum. Stjórn jafnaðarmanna
hefur á prjónunum áætlanir
um að breyta skattalöggjöfinni
og á það að gerast í þremur
áföngum. Fyrst er ætlunin að
koma á staðgreiðslukerfi. Þá á
að breyta niðurjöfnun útsvara
og setja nýjar reglur um
skattafrádrátt til þess að létta
byrði þeirra, sém hafa lágar
eða meðalstórar tekjur og loks
á að koma á 10% verðauka-
skatti. Stjórnin hefur gefið
frest til 20. marz til þess að
hægt verði að komast að sam-
komulagi.
í viðtali við Arbeiderbladet
norska segir Jens Otto Krag
forsætisráðherra, að nauðsyn-
legt sé að koma lagi á skatta-
málin. Danska skattakerfið er
fyrir löngu orðið úrelt, og í
kosningunum í fyrra veittu
kjósendur stjórninni umboð til
að endurskipuleggja skatta-
málin.
Þó að ef til vill takist að fá
borgaraflokkana til samvinnu
um lausn þessara erfiðu mála
þá er mikið komið undir af-
stöðu Sósíalistíska þjóðar-
flokksins (SF). Fréttaritari
Arbeiderbladets hefur því haft
; eftirfarandi viðtal við Jens
Otto Krag, forsætisráðherra
um efnið: Hvemig er sam-
'skiptum SF og jafnaðarmanna
í Danmörku háttað?
★ HÖFNUÐU SAM-
1 VINNU.
í byrjun viðtalsins minnti
Krag á að kosningaúrslitin
liefðu komið borgaraflokkun-
um mjög á óvart og þeir hefðu
heldur ekki átt von á því að
þing yrði rofið og efnt yrði til
nýrra kosninga. Ég tel, að borg-
araflokkarnir hafi gert sér von-
ir um og trúað á „norska
lausn,” sagði Krag. En þvert
á móti fengu verkalýðsflokkar
hreinan þingmeirihluta í fyrsta
skipti í sögu Danmerkur.
Arbeiderbladet: — Hvernig
munduð þér lýsa sambúð jafn-
aðarmanna og SF eins og mál-
in hafa þróazt?
Krag: Við tókum afleiðing-
um kosninganna og buðum SF
þátttöku i ríkisstjórn. Þetta
tilboð var sett fram í fullri
einlægni. Þetta segi ég til að
leiðrétta þann misskilning að
liér hafi verið um herbragð af
okkar háifu að ræða. Við hörm-
uðum það, að tilboð okkar fékk
ekki hljómgrunn. Þar sem jafn-
aðarmenn og SF hafa saman-
lagt meirihluta teljum við að
báðir flokkarnir verði að taka
á sig ábyrgð þannig, að hún
komi jafnt niður á báða flokk-
ana.
Arb(: — Án tillits til fyrri
afstöðu flokkanna í stjórn-
málum?
Krag: Já, án tillits til fyrri
afstöðu flokkanna. Og bezta og
sanngjarnasta lausnin og sú
lausn sem komið hefði jafnast
niður á flokkana hefði verið sú,
að þeir hefðu gengið til stjórn-
arsamvinnu. En það tókst ekki
Krag og Larsen cftir kosningarnar.
Larsen.
að koma því til leiðar.
Arb.: Hvers vegna? Strand
aði það á. Aksel Larsen per-
sónulega? Eða fékk hann ekki
stuðning í flokknum?
Krag: Ég tel að það hafi ekki
strandað á persónulegum mót-
þróa Aksel Larsens. Ég tel, að
hann hafi meint af einlægni
að koma á stjórnarsamvinnu.
En það voru nokkrir menn í
flokknum, sem voru honum til
trafala. Sumir þeirra eru ung-
ir og óreyndir og þekkja ekki
hvernig unnið er í pólitík. Og
þeir eru með öllu óvanir því að
taka á sig ábyrgð. Ég er ekki að
reyna að verja þá, en ég skil
mjög vel þessa erfiðleika, sem
SF átti við að stríða.
Arb. — Hvað munu stjórnin
og jafnaðarmenn taka til
bragðs, ef ekki tekst að koma
á sáttum í launadeilunni? .
Krag: Það veit ég ekki. Enn
er allt reynt til að koma á
sættum. Á meðan vonar maður
það bezta.
Arb. — Hefur SF að yðar
dómi áhuga á verkalýðsmálum
og gætir áhrifa SF-manna á
vinnustöðum?
Krag: Ég held að það sé
mjög mismunandi. Á sumum
vinnustöðum taka þeir þátt í
verkalýðsbaráttunni, á öðrum
ekki.
Arb. — Rejma jafnaðarmenn
að koma sér í mjúkinn hjá SF-
mönnum eða halda þeir uppi
andróðri gegn þeim?
Krag. Ég held að jafnaðar-
menn reyni ekki að koma sér
í mjúkinn hjá þeim. Hér er
um að ræða menn, sem vinna
á sama stað og eru starfsbræð-
ur og félagar. Að sjálfsögðu
ræða þeir saman um hlutina.
En einnig í þessu er þetta mjög
mismunandi á hinum ýmsu
vinnustöðum. Sums staðar er
háð barátta um trúnaðarstöð-
ur. Hvernig þetta þróast í fram
tíðinni er að miklu leyti kom-
ið undir allri stjórnmálaþró-
uninni.
Arb. — Teljið þér SF sam-
stæðan flokk?
Krag. Nei, við vitum til-
tölulega lítið um uppbyggingu
SF og þjóðfélagslegan upp-
runa stuðningsmanna flokks-
ins. Það er ljóst, að þar sem
jafnaðarmenn töpuðu 7 þing- i.
sætum og SF vann 10 þing-
sæti hljóta nokkrir af kjósend-
um okkar að hafa kosið SF. En
ekki er eins ljóst hvort fylgi
SF stendur á breiðum grund-
velii. í SF eru friðarins menn,
sem eru á móti herþjónustu,
fólk, sem er á móti kjarnorku-
sprengjunni, fólk, sem er á
móti Atlantshafsbandalaginu.
Arb. — Þetta er þá kannski
aðallega neikvætt fólk, sem er
á móti öllu?
Krag. Já, einmitt. Þetta er
þessi flögrandi hópur óá-
nægðra kjósenda, sem oft
stendur utangarðs, sem í svip-
inn hefur fengið athvarf til
bráðabirgða hjá SF.
Arb. - Teljið þér, að SF sé
stundarfyrirbrigði i dönskum
stjórnmálum? Sameinast SF
kannski jafnaðarmönnum?
Krag. Það held ég að sé of
mikið sagt. Ég þori að minnsta
kosti ekki að hafa nokkra jskoð-
un á því í dag.
Arb. — Teljið þér að SF hafi
nokkra möguleika á að þróast
úr mótmælaflokki í ábyrgan
stjórnmálaflokk?
Krag. SF er nú á slíku að-
lögunarskeiði. Hvað sem ö'ðru
líður er það skylda flokksins
gagnvart hinum sósíalistíska
þingmeirihluta að fara þá
braut. Síðan lieimsstyrjöldinni
lauk hafa risið upp nokkrir
smáflokkar í Danmörku, fyrst
kommúnistar, síðan til dæmis
Réttarsambandið, en báðir
þessir flokkar áttu stutt blóma-
skeið — sumpart á kostnað
okkar. Nú eru þeir gersamlega
horfnir og rísa varla upp á ný.
Lengst til hægri höfum við séð
Óháða flokkinn blómgast og
síðan deyja út. Um framtíð SF
er engu hægt aö spá, en að
minnsta kosti einhver hluti
stuðningsmanna flokksins kem-
ur frá þessum óánægðu hóp-
um.
Arb. — Er SF og Aksel Lar-
sen eitt og hið sama eða held-
ur SF áfram að þróast án þess
að Aksel Larsen hafi þar nokk-
ur áhrif á?
Krag. Ég tel að SF gæti
komizt af án Aksel Larsens.
Hins vegar hefur Aksel Larsen
átt mikinn þátt í þeirri vel-
gengni, sem flokkurinn á að
fagna í svipinn.
Arb. — Hvaða framtíð á
Jafnaðarmannaflokkuriun í
Krag.
vændum í Danmörku að yðar
dómi?
Krag. Jafnaðarmannaflokk-
urinn stendur traustum fótum
sem stærsti stjórnmálaflokkur
landsins. Hann gætir í hyí-
Framhald á 10. síðu.
^%-%%-%>%*%>%'W%-%«%-%-%-%-%-%^%-%-%-%-%>«
£ 14. marz 1967 = ALÞÝÐUBLAÐIÐ