Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1992, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992.
9
Utlönd
Rússlandsforseti lét undan þrýstingi íhaldsmanna:
Borís Jeltsín rak Gajdar
Borís Jeltsín Rússlandsforseti lét
loks undan þrýstingi íhaldsmanna
vegna efnahagsumbóta sinna og rak
Jegor Gajdar forsætisráðherra.
Jeltsín dró tilnefningu Gajdars í
embætti forsætisráðherra til baka í
gær og stakk þess í stað upp á Vikt-
ori Tsjemómyrdín orkumálaráð-
herra. Þingmenn á fuiltrúaþinginu,
þar sem íhaldsmenn ráða lögum og
lofum, féllust á tilnefninguna með
yfirgnæfandi meirihluta.
Tsjemómyrdín, sem var tekinn inn
í ríkisstjómina síðasthðið sumar til
að friða iðnframleiðendur, boðaði
þegar stefnubreytingu í efnahagsum-
bótunum og sagði að Rússland ætti
að einbeita sér að því að koma í veg
fyrir frekari samdrátt í framleiðslu.
„Ég tel að umbætumar eigi að taka
á sig aðeins aðra mynd,“ sagði hann
við fréttamenn eftir fyrsta ríkis-
stjómarfund sinn.
Uppgjöf Jeltsíns var bæði skyndi-
leg og óvænt og hefur hún vakið
spumingar um framtíð efnahagsmn-
bótanna sem hafa verið lofaðar mjög
á Vesturlöndum en óvinsælar heima-
fyrir.
Það var einnig ólíkt Jeltsín að gefa
eftir þar sem hann er þekktur fyrir
að standa fast á sínu.
„Þetta er gífurlegt áfall. Jeltsín hef-
ur látið undan. Hann hefði ekki átt
Viktor Tsjernómyrdín, nýskipaður
forsætisráðherra Rússlands.
Simamynd Reuter
að fóma Gajdar," sagði vestrænn
erindreki.
Jascques Attali, yfirmaður evr-
ópska þróunarbankans, sagði í Lon-
don að það hefði mjög alvarlegar af-
leiðingar fyrir Rússland ef hætt yrði
við efnahagsumbætumar eða dregið
verulega úr þeim.
Svo virtist sem Jeltsín hefði bjarg-
að Gajdar undan þinginu á laugardag
þegar hann samdi um vopnahlé við
Khasbulatov þingforseta. En í ræðu
í gær sagðist hann ætla að tilnefna
Tsjemómyrdin í embætti forsætis-
ráðherra þótt Gajdar væri líklega
betri kostur.
Reuter
Við framleióum
KEDJUR
G.Á. Pétursson hf
snjókeðjumarkaðurinn
Nútiðinni Faxafeni 14. simi 68 55 80
Höfrungar
fremja sjálfs-
morð í saédýra-
söfnum
Breskir vísindamenn halda því
fram að höfrungar fremji sjálfsmorð
leiðist þeim vistin í sædýrasöfnum.
Að sögn láta höfrungarnir sig
drukkna í kerum sínum.
í gærkvöldi var sýndur í Bretlandi
sjónvarpsþáttur þar sem þessu var
haldið fram. Sögð var saga af nafn-
kunnum sirkushöfrungi sem
drukknaði af ókunnum orsökum.
Sagt var að hann hefði látið sig falla
til botns í keri sínu og hætt að anda.
TT
Tveirjóla-
sveinarrændu
veitingahús
Tveir menn í jólasveinabúningum
rændu í gær veitingahúsið Mama
Rosa í Ósló. Þeir réðust inn á skrif-
stofu staðarins og höfðu þaðan á
brott með sér 100 þúsund norskar
krónur. Það eru um 900 þúsund ís-
lenskra krónur.
Trúlega eru jólaveinamir útlendir
því þeir töluðu bjagaða norsku. Ann-
að veit lögreglan ekki um mennina
fyrir utan það að þeir eru jólasveinar
og óku á brott í stolnum Chevrolet.
Á Mama Rosa eru bakaðar pitsur.
NTB
LaToya Jackson
rekinúrvinnuí
LasVegas
Búið er að reka LaToyu Jackson,
systur stórpopparans Michaels, úr
vinnu við söngskemmtan á. hóteh í
Las Vegas. LaToya hafði komið fram
sex kvöld í röð áður en stjómendur
sýningarinnar gáfust upp á henni.
LaToya hefur nú höfðað mál á
hendur hótelinu og krefst 2,3 mihj-
óna Bandaríkjadala í skaðabætur
fyrir áhtshnekkinn sem hún hefur
orðið fyrir. Það er jafnvirði um 140
mihjóna íslenskra lo-óna.
Kusufyrirfjar-
staddaþingmenn
Ákveðið er að láta kjósa að nýju
um fjárlög næsta árs á pólska þing-
inu. Ástæðan er að sjónvarpsupptök-
ur sýna að margir þingmenn svindl-
uðu við atkvæðagreiðsluna.
Upptakan sýnir svo ekki verður um
vihst að kosið var fyrir fjarstadda
þingmenn og mátti sjá hikandi fingur
teygja sig yfir á auð borð og styðja
þar á hnappa.
Reuter
Bækur
og blöð
framleidd á Islandi
skapa störf í landinu
H Nú hriktir í stoðum íslensks atvinnulífs,
atvinnuleysi er verulegt og fer vaxandi.
■ Við þurfum að sína samstöðu og velja
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLU.
■ Bækur og blöð, sem unnin eru á íslandi,
skapa störf í landinu.
íslensk bók
er meira en góð gjöf
VELJUM ISLENSKT!
Félag bókagerðarmanna / Félag íslenska prentiðnaðarins