Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
Svipmyndin
Hver var hann?
Allir sýna áhuga á ástinni. Það
átti ekki síður við þann sem svip-
myndin er af heldur en aðra. Hann
hafði mikinn áhuga á ástinni í öll-
um hennar myndum.
Þess vegna varð hann skelfdur
yfir tillögu sem ungur rússneskur
aðalsmaöur kom með. Hann vildi
eiga við hann samfarir í endaþarm
en losa síðar hægðir í andhtið á
honum.
Ungi aðalsmaðurinn hét Sergei
Konstantínóvítsj Pankejéff. Hann
var forríkur. En hann var ekki
hamingjusamur. Þess vegna leitaði
hann til þess sem hér er lýst.
Þeir hittust á þeim tíma þegar sá
sem svipmyndin er af var að öölast
frægð. Og hann hafði mikið gagn
af þessum fundi síöar á starfsævi
sinni.
Sá sem hér er lýst fæddist í htla
bænum Freiberg þar sem veriö
hefur Tékkóslóvakía. Faðir hans
var ullarsölumaður og fjölskyldan
bjó við kröpp kjör.
Sá sem svipmyndin er af var mjög
duglegur í skóla. Hann lauk
menntaskólanámi með hárri ein-
kunn og þeim vitnisburði að hann
hefði verið besti nemandi skólans.
í fyrstu hafði hann í huga að lesa
lög. Síðan gældi hann við þá hug-
mynd að gerast stjórnmálamaöur.
En loks valdi hann sér annað fag.
Hann fór aö lesa læknisfræði og
varð læknir.
Sá sem svipmyndin er af ferðað-
ist til marga landa. Hann fór til
Englands, Frakklands, ítahu og
Grikklands. Á þessum árum þjáöist
hann af fælni sem gerði honum
erfitt að ferðast.
Einn af þeim mönnum sem hann
dáði hvað mest var herforinginn
Hannibal. Og eins og Hannibal
dreymdi hann um að fara til Róm-
ar. En vandinn, sem hann hélt
leyndum, hindraði hann í aö kom-
ast þangað.
Það var fyrst eftir margar til-
raunir að honum tókst það.
Hann skrifaðist
á við Einstein
Sá sem svipmyndin er af kvænt-
ist og varð sex bama faðir. En hann
tók aldrei konuna sína með í ferða-
lög. Þess í stað fékk systir konunn-
ar, Minna, oft að fara með honum.
Þeir sem kynnt hafa sér ævi
mannsins sem hér er lýst hafa lengi
velt því fyrir sér hvað hér hafi búið
að baki.
Árið 1909 fékk hann tilboð um aö
halda fyrirlestur í Bandaríkjunum.
Þar var hann útnefndur heiöurs-
doktor við Clark-háskólann í
Massachusetts. En honum leist
ekki á það sem fyrir augun bar í
Bandaríkjunum. Hann fékk andúð
á Bandaríkjunum og gætti hennar
aUt til ævUoka.
„Bandarikin eru gífurleg mis-
tök,“ sagði hann.
Sá sem svipmyndin er af var mjög
starfsamur og skrifaði margar
bækur.
Hann skrifaðist einnig á við Ein-
stein. Bréfm, sem þeim fóru á mUli,
urðu síðar að bók sem fékk nafnið
„Hvers vegna stríð?“
Sá sem hér er lýst fékk þá hug-
mynd að senda Mussolini eintak
af henni. í hana skrifaði hann: „Frá
gömlum manni sem sendir menn-
ingarhetjunni kveðju sína.“
Arið 1933 komust nasistar til
valda í Þýskalandi. Þeim leist ekki
á þann sem hér er lýst og starf
hans. Bækur hans urðu með þeim
fyrstu sem lentu á bókabrennun-
um.
Hættkominn
í tíð nasista
Nokkrum árum síöar komust
nasistar til valda í landi því þar sem
sá sem svipmyndin er af starfaði.
Nú var Ula komið fyrir honum.
Einungis fyrir eindregin tilmæU
njálsmetandi manna erlendis tókst
honum að komast úr landi með fjöl-
skyldu sína og bjarga þannig lífinu.
Fyrst varö hann þó að þola mjög
erfiðar yfirheyrslur hjá Gestapo.
Nasistamir vUdu komast yfir fé
hans. Var honum loks gert að
greiða háa upphæö í svonefndan
flóttaskatt til ríkisins.
Þá varð hann að gefa um það
skriflega yfirlýsingu að þýsk yfir-
völd hefðu farið vel með hann.
Lauk meðmælum hans með þess-
um orðum: „Ég get af einlægni
mælt með Gestapo viö hvern og
einn.“
Sá sem svipmyndin er af fékk að
fara til London. Þá var hann orðinn
gamail og sjúkur. Alla ævi sína
hafði hann gUmt við að komast að
því hvenær hann yrði aUur.
Honum tókst margt. En svarið
við þessari spumingu fann hann
aldrei.
Fyrst hélt hann að hann dæi fer-
tugur. Síðan reiknaði hann sig
fram til 51 árs aldurs með stærð-
fræðUegri formúlu. En hann varð
eldri en það og hélt áfram aö verða
enn eldri. Hann varð því stöðugt
að breyta þeirri tölu sem hann hélt
sig hafa fundið.
Loks taldi hann sig myndu deyja
áttatíu og eins og hálfs árs. Svo
gamaU hafði faöir hans orðið. Þótt-
ist hann nú viss um aö eldri yrði
hann ekki.
En þessi útreikningur stóðst
heldur ekki. Sá sem svipmyndin er
af lést 23. september 1939, áttatíu
og þriggja ára og fjögurra mánaða.
Hann er mjög þekktur. Komið
hefur verið upp söfnum á heimUum
hans, bæði í Vín og London.
Hver var hann?
Svar á bls. 64
Kjúklingaréttur
„Tortilla"
„Þetta er mjög góður og auðveld-
ur réttur sem hentar vel þegar von
er á gestum. Réttinn er hægt að
útbúa með góðum fyrirvara. Þá er
hægt að stinga honum beint í ofn-
inn þegar gestirnir koma og sitja
síðan óstressaður og spjalla við
þá,“ segir Sesselja Pétursdóttir í
Grindavík sem er matgæðingur
vikunnar. Hún býður lesendum
upp á mjög góðan kjúkUngarétt.
í réttinn þarf
1 kjúkhng eða unghænu
1-1 /i poka Tortilla Chips
1 dós Cream of Chicken Soup
1 dós Cream of Mushroom Soup
(Campbells)
1 lauk
1 stóra rauða papriku (eða 2 Utiar
sína í hvorum Utnum)
200 g ferska sveppi eða hálfdós af
niöursoðnum
1 tsk. salt
Vi tsk. pipar
karrí á hnífsoddi
1 poka mozzareUa ost (eða annan
rifinn ost)
KjúkUngurinn (unghænan) er
soðinn, kældur og brytjaður niöur.
TortiUa Chips er sett í soðið eftir
að það hefur verið kælt og vætt þar
um stund, sigtað úr og sett í botn
á eldfostu móti. KjúkUngurinn er
settur yfir.
Þá er laukurinn, sveppirnir og
paprikan steikt á pönnu þar tU
grænmetið er orðið mjúkt. Súpun-
um er blandað saman og síðan er
grænmetið sett út í. Blöndunni er
síðan hellt yfir kjúkhnginn og ost-
inum stráö yfir.
Rétturinn er bakaður í ofni við
175 gráður í 30 mínútur. Með hon-
um eru borin fram hrísgrjón, Tor-
tUla Chips og heitt hvitiauksbrauð.
Sesselja ætiar að skora á Frí-
mann Ólafsson, kennara í Grinda-
vík, að vera næsti matgæðingur.
Hún vonar síðan aö aUt gangi vel
og óskar lesendum gleðUegra jóla.
-ELA
Sesselja Pétursdóttir, matgæöingur vikunnar.
DV-mynd Ægir Már
Hinhliöin
Gott að lesa bók
í heitu baði
- segir Helga Gudrún Johnson, einn af metsöluhöfundum jólabókanna
Jónsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Egill Ólafsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Á
engan.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hermann.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Laga-
flækjuþættir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég vUdi
óska að hér þyrfti ekki að vera
vamarlið - hvorki fjárhagslega né
vegna öryggisástands.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég hlusta bæði á Bylgjuna og
rás tvö.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Hulda
Gunnarsdóttir.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Get
ekki gert upp á miUi fyrrverandi
kollega minna en tel þó að Hulda
Gunnarsdóttir sé efni í frábæran
sjónvarpsmann.
Uppáhaldsskemmtistaður: Enginn
í augnablikinu.
Uppáhaldsmatsölustaður: Gejas er
frábær fondue-staður í Chicago.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtiðinni? Fyrir utan að gera
Lífsgöngu Lydiu að metsölubók
stefni ég að því að gefa dóttur minni
gott uppeldi.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Við
hjónin fórum um Vesturland og
Vestfirði. Næsta sumar ætium við
að skoða okkur betur um á Vest-
fjörðum og ferðast um Norðurland.
-ELA
Einn af metsöluhöfundum nú
fyrir jólin er Helga Guðrún John-
son. Hún hefur skrifað bókina Lífs-
ganga Lydiu sem er byggð á ævi-
minningum Lydiu Einarsson sem
giftist listamanninum Guðmundi
frá Miðdai. Helga Guörún er best
þekkt sem sjónvarpsfréttamaður á
Stöð 2 en hún er hætt störfum þar.
Hún segir að eftir áramótin sé
ýmislegt í deiglunni hjá sér. Hvort
hún skrifi aðra bók ráðist af viötök-
um á Lífsgöngu Lydiu. Það er Helga
Guðrún Johnson sem sýnir hina
hliðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Helga Guðrún Johnson
með oi en margir vilja kenna mig
við Áma Johnsen.
Fæðingardagur og ár: 27. ágúst
1963.
Maki: Kristinn Gylfi Jónsson.
Börn: Auöur sem er sextán mán-
aöa.
Bifreið: Mazda 323F, árgerð 1991.
Starf: Ýmis fjölmiðlastörf.
Laun: Mjög mismunandi.
Áhugamál: Uppeldi dóttur minnar,
laxveiði, feröalög og aö lesa góða
bók í heitu baði.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég hef fengið þrjár
tölur mest sem gáfu fimm hundruð
krónur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Fylgjast með viðbrögðum
dóttur minnar þegar hún uppgöt-
var eitthvað nýtt, eins og til dæmis
jólin núna.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Taka til.
Uppáhaldsmatur: Svínakjöt að
Helga Guðrún Johnson.
sjálfsögðu, við erum með svínabú.
Uppáhaldsdrykkur: Kaaber-kaffi
og heitt súkkulaði með rjóma.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Hef ekki
hugmynd um það en hann hlýtur
að vera KR-ingur.
Uppáhaldstímarit: Ég hef gaman
af flestum tímaritum, jafnt inn-
lendum sem erlendum.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan eiginmanninn? Ég
veit ekki, nema ef vera skyldi tvíf-
ari Kristins ef hann er til.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? No comment.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Ommu mína sem er látin.
Uppáhaldsleikari: Örn Ámason.
Uppáhaldsleikkona: Ólafía Hrönn