Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Side 9
PRISMA
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
Menriing
Gull-
fiðrildi á
Þorsteinn Stefánsson heitir íslenskur rithöfundur sem búiö hefur í
Danmörku frá unga aldri. Hann á að baki allnokkum rithöfundarferil
en er nú orðinn áttræður. Skjaldborg gefur út á afmælisári Þorsteins
skáldsögu sem heitir Horft til lands og hefur undirtitilinn Úr sjóði bern-
skuminninga höfundar.
Þetta er stytt saga -140 blaðsíður
- en alllipurlega skrifuð og á góðu
máli þrátt fyrir langa útivist höf-
undar. Á undan sögunni er formáh
Sigrúnar Klöru Hannesdóttur um
höfundinn. Þar er vakin með les-
endum hugmynd um feril Þor-
steins og vitnað tii ummæla um
ritverk hans.
Formáh þessi hefði mátt vera
miklu greinarbetri því flestir ís-
lendingar vita ekkert um Þorstein
og varla meira en aö fólk hafi heyrt
hans getið. Sigrún vitnar til orða
Halldórs Laxness um Jón Sveins-
son - Nonna - þegar honum þótti
landar hans sýna verkum hans
tómlæti: „Hér eigum við íslending-
ar gulifiðrildi á flögri suður í lönd-
um,“ sagði skáldiö.
Hrós frá Oxford
Þorsteinn Stefánsson hefur búið í
Danmörku frá árinum 1935 og
fengist við ritstörf.
Þorsteinn fór til Danmerkur árið 1935 eftir að hafa gefið út eina bók hér
á landi. Sú heitir Frá öðrum hnetti. Hann fékk H.C. Andersen verðlaunin
árið 1942 fyrir skáldsöguna Dalinn, sem kom út tveimur árum síðar í
íslenskri þýðingu.
Þorsteinn hefur jöfnum höndum fengist við skáldskap, þýðingar og
kennslu. Bækur hans hafa komið út á ýmsum tungumálum og m.a. gaf
háskólaforlagið í Oxford út tvær bækur hans í enskum þýðingum árið
1974 og 1976. Þar fékk Þorsteinn loflega dóma hjá aðalritstjóra forlagsins.
Bókmenntir
Gísli Kristjánsson
Hér heima virðist Kristmann Guðmundsson einkum hafa reynt að halda
nafni Þorsteins á lofti. Hann vissi á sínum tíma vart hvort fremur ætti
að líkja honum við Hamsun eða Hemingway. Ekki koma þessir höfundar
þó upp í hugann við lestur nýjustu bókarinnar. Hún er ósköp dæmigerð
íslensk minningabók og raunar vandséð hvers vegna höfundur kýs að
skrifa skáldsögu um æskuár sín.
Þríeinn bróðir
Mannanöfnum er breytt en staðanöfn halda sér. Ég sé ekki af hverju
fólkið má ekki halda nöfnum sínum líka. Sagan gerist öll á Austfjöröum,
í Loðmundarfirði og Reyðarfirði. Minningar höfundar eru alfajafna ljúfar
ef frá er tekið hugarangur móður hans sem nær kostaði hana heilsuna.
Aðalpersónurnar eru þrír bræður og er höfundur sýnilega sá sem kallað-
ur er Þorvaldur. Sagan er sögð til skiptis út frá sjónarhomi þeirra bræðra
á víxl þannig að lengi vel renna þeir eins og saman í eina persónu. Það
er rétt í lokin að leiðir skilja. Móðirin í sögunni heitir Halla. Ég veit ekki
hvort það var nafn hennar sem olli þvi að mér kom Jón Trausti í hug
við lesturinn fremur en þeir Hamsun og Hemingway.
Þorsteinn Stefánsson:
Horft til lands
Skjaldborg 1992
159 blaðsiður
PERLUFESTAR
Hinar þekktu japönsku
Namida perlufestar, sem
búnar eru til úr skeljum sem
perlur eru ræktaðar í.
Þær fást í lengdum: 42 cm,
45 cm, 50 cm, 60 cm,
70 cm, 80 cm og 90 cm
bæði í 6 mm og 7 mm perl-
um, verðið er frá 4.600 til
10.700 kr. Allar festarnar
eru með silfurlás.
Einnig armbönd, einföld og
tvöföld, á verði frá kr. 3.200
til 9.700.
Einnig eyrnalokkar með silf-
urpinna á 1.550 og 1.700
kr.
LAUGAVEGI 49
SÍMI 17742 OG 617740
UR & KLUKKUR
GJAFIH SEM QLEÐJA OQ GERA GAGN
PIERPOÍIT CASIO. CITIZEN ÆEO
i J L-j citizen kvenúr, gylltur kassi,
-J*—' U t hert gler. Kr. 20.765
Citizen eldhúskl., nýtt útlit.
Kr. 1.837
rvn
t
í H ^ i \
». «9* sé
5.
Citizen tölvuúr, 50 m
vatnsþétt m/vekjara og
skeiðklukku. Kr. 3.200
2.
Rhythm hilluklukka, gyllt.
Kr. 5.880
4.
Citizen klukka
m/pendúl, falleg
gjöf, svört og gyllt.
Kr. 5.865
<1 Citizen gullhúðað kvenúr
‘s«' m/skýrri skífu. Kr. 9.355
Opið í dag frá 9-22 - Sunnudag frá 13-17
Ur & skartgripir
Strandgötu 37 - S. 650590 - Hafnarfirði
NYJAR BÆKUR
iíuúiácela luUunda;
Theresa Charles
Barbara Cartland
Erik Nerlöe SKUGCSjá
BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF.