Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Síða 21
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
Bridge
21
Cap Gemini heimskeppnin 1993:
íslensku
heimsmeistar-
arnir ekki með
Látum bíla ekki
vera í gangi aö óþörfu!
Útblástur bitnar verst
á börnunum
tönn.
Handsaumaðir skór, standast
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Algengur árangur á spilið var sjö
hjörtu dobluð, tveir niður eöa al-
slemmur í n-s sem töpuðust vegna
slæmrar legu.
Þar sem Forrester og Robson sátu
n-s ög Aðalsteinn Jörgensen og Jón
Baldursson a-v gengu sagnir á
þessa leið:
Vestur Norður Austur Suður
21auf pass 2grönd pass
3hjörtu 4hjörtu dobl pass
pass 4grönd dobl pass
pass 51auf pass pass
5 hjörtu dobl pass pass
pass
Jón sýndi hönd með hálitunum
meðan Forrester gerði sitt besta til
að sýna sterka þriggja lita hönd.
Robson var vantrúaður á slem-
muna en það versta við spilið var
að engin leið var til þess að bana
fimm hjörtum.
Efst á óskalistanum hans!
HANZ
KRINGLUN N I
HAGKAUP
gceði úrval þjónusta
Að venju býður hollenska tölvu-
fyrirtækið Cap Gemini sextán
heimsþekktum pörum til tvímenn-
ingskeppni dagana 14.-17. janúar
nk. Eins og áður er vel til vandað
í mannavali en athygli vekur að
enginn íslensku heimsmeistaranna
er meðal þátttakenda.
Við skulum fara yfir þátttakenda-
listann. Zia Mahmood og Michael
Rosenberg frá Bandaríkjunum en
þeir unnu keppnina í fyrra. Jeff
Mekstroth og Eric Rodwell frá
Bandaríkjunum en þeir unnu silfr-
ið á ólympíumótinu í haust. Paul
Chemla og Michel Perron frá
Frakklandi, nýbakaðir ólympíu-
meistarar. Gabriel Chagas og
Marcelo Branco frá Brasilíu, marg-
faldir heimsmeistarar þótt þeir hafi
valdið vonbrigðum á ólympíumót-
inu í haust. Bobby Wolff og Gaylor
Kassle frá Bandaríkjunum, sá fyrr-
nefndi vann silfrið á ólympíumót-
inu. Bjöm Fallenius og Mats Nils-
land frá Svíþjóð en þeir unnu
bronsið í Yokohama. Enri Lauf-
kens og Barry Westra frá Hollandi
en þeir unnu bronsið á ólympíu-
mótinu og urðu í öðru sæti í Cap
Gemini í fyrra. Bauke Muller og
Wubbo de Boer voru í bronsliðinu
á ólympíumótinu. Lars og Knut
Blakset frá Danmörku en þeir
misstu naumlega af sæti í úrslitum
ólympíumótsins.
Melih Özdil og Mezih Kubac frá
Tyrklandi en Tyrkir komu mjög á
óvart á ólympíumótinu í haust með
góðri frammistöðu. Phihppe Co-
enraets og Zwi Engel frá Belgíu en
þeir leiddu sinn riðil á ólympíu-
mótinu um skeið en urðu að láta
undan síga að lokum.
Tony Forrester og Andrew Rob-
son frá Englandi, eitt af betri pör-
um heimsins, þótt frammistaða
þeirra undanfarið hafi valdið von-
brigðum. Henri Svarc og Marc
Bonpis frá Frakklandi, sá fyrr-
nefndi er einn af frægustu spilur-
um heimsins, margfaldur Evrópu-
og heimsmeistari. Krzysztof Mart-
ens og Marek Szymanowski frá
Póllandi, þeir unnu silfriö í Yoko-
hama. Benito Garozzo og Billy Eis-
enberg frá Bandaríkjunum, þeir
unnu Cap Gemini fyrir tveimur
árum og allir þekkja ítalann
Garozzo. Sabine Zenkel og Daniela
Von Amim frá Þýskalandi en
þýska kvennalandsliöið hefur átt
góðu gengi að fagna undanfarin ár.
Við skulum skoða eitt skemmti-
legt spil frá keppninni í fyrra.
V/O
♦ 98753
V K109632
♦ 84
+ -
* ÁK106
V -
♦ ÁG97
4» ÁKD102
* -
V ÁDG87
♦ D653
+ G865
* DG42
V 54
♦ K102
+ 9743