Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Page 29
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
29
>v_______________Meiming
Hvemig á að lifa?
Setrið er ein af ættarsögum Isaacs Singer. Þessar
sögur fjalla um örlög pólskra gyðinga á 19. og 20. öld.
Setrið er skrifað á jiddísku á árunum 1953-1955 og er
merkilegasta og mikilvægasta skáldsagan sem kemur
út á íslensku fyrir þessi jól. Verkið er á borð við stór-
virki eins og Sjálfstætt fólk, Sölku Völku og Gerplu.
Singer er pólskur gyðingur sem fluttist til Ameríku.
Hann fékk bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1978, ekki
síst fyrir hinar margslungnu ættarsögur sínar.
Setrið segir frá gyðingnum Kalman Jakob, afkom-
endum hans og tengdafólki. Kalman er bóndi og at-
vinnurekandi í pólsku sveitaþorpi og efnast vel.
Setrið skiptist í þrjá hluta og eru Kalman og Ezríel,
tengdasonur hans, mest áberandi i fyrsta hlutanum
og svo einnig í niðurlagi sögunnar. Efasemdir Ezríels
eru hugmyndafræðilegs eðlis og snerta ekki síst trúar-
brögð.
Framhjáhald og heilindi
Sagan sem sögð er i Setrinu gerist á árunum 1864
til 1890. Skáldsagan sem leiðir Setrið til lykta, Eignin
- sem ekki hefur komið út á íslensku - gerist svo á
síðasta áratug 19. aldar. Þegar Setrið hefst er Kalman
39 ára og hefur eignast íjórar dætur með fyrri konu
sinni. Þegar kona hans deyr er hann hvekktastur yfir
því að hafa ekki eignast með henni son. Kona hans
var kynköld og það er ekki síst þess vegna sem Kal-
man velur sér kynsterka konu sem hentar óstýrilátum
kynkrafti hans sjálfs. Með síðari konu sinni, Klöru,
eignast hann langþráðan son sem reynist svo vera
hálfgerður vilhmaður og því rökrétt afleiöing af éfn-
hliöa holdlegum girndum í hjónabandinu.
En Klara reynist þurfa meiri útrás fýsna sinna en
rúmast innan hjónabandsins og fær sér því viðhald í
Varsjá stúdent að nafni Zipkin. Þegar hún verður ólétt
í annað sinn veit hún ekki með vissu hvort Zipkin eða
Kalman er faðirinn.
Annar hluti Setursins, sá lengsti og sísti, fjallar að
Bókmenntir
Árni Blandon
miklu leyti um Klöru og svo Lucjan, greifasoninn sem
strauk með Miiju, dóttur Kalmans, til Parísar. Þar lifa
þau lífi fátæklinga í lítilli íbúð ásamt rottum og kakkal-
ökkum. Eftir misheppnaöa uppreisn Pólveija gegn
Rússum árið 1863 „voru margir pólskir aðalsmenn
hengdir" eins og segir í upphafsmálsgrein sögunnar.
Lucjan var dæmdur til dauða og fór huldu höfði til
að halda lífi. Kona sem skaut þá yfir hann skjólshúsi
varð ástkona hans eins og Kasja, dóttir hennar, síðar.
Lucjan getur „stjúpdóttur" .sinni barn þegar hún er
fimmtán ára og heldur framhjá konu sinni, Mirjam,
með Kösju.
Hugmyndafræði
í þriðja hluta Setursins segir m.a. frá því hvemig
Lucjan heldur framhjá viðhaldi sínu og draumum
hans um að mega sænga með viðhöldunum báðum í
einu. Lucjan fremur Mka morð og er þannig lifandi
sönnun máltækis sem kemur fram í verkinu: Aidrei
verður svínseyra aö silkipyngju.
Meginhugmyndafræðilegur þungi verksins er í
næstsíðasta kaflanum, hinum tuttugasta og sjöunda
(heilög tala í þriðja veldi). Þar er annar tengdasonur
Kalmans, geðlæknirinn Ezríel orðinn brokkgengur í
ástamálum. Það er e.t.v. ekki neitt undarlegt því „Eig-
inlega var heihnn í honum lítið geðveikrahæh, alveg
Isaac Bashevis Singer. Flókið og margslungið verk.
út af fyrir sig“ (bls. 348). Einnig segir á sömu blaðsíöu:
„Sami óskapnaðurinn hafði alltaf verið fylgifiskur lífs-
ins; sjálfið hafði ætíð heimtað aht fyrir sig - peninga,
frægð, kynnautn, völd, ódauðleik.“ Þegar Ezríel rekst
síðan á hest úti á götu, verður honum á að hugsa á
svipaðan hátt og Nietzsche gerði líklega þegar hann
gekk inn í geðveikina faðmandi hest: „Hesturinn stans-
aði „Dásamlegar eru skepnur, bomar saman við menn!
Allt er þeim gefið, - undirgefni, alvara, tryggð, innri
skilningur og hleypidómaleysi..(367).
Setrið er margfalt flóknara og margslungnara verk
en þessi yfirborðslegi útdráttur gefur til kynna og er
ekki annað til ráða en að vísa fólki á lesa þetta meist-
araverk.
Þýðing og frágangur
Hjörtur Pálsson þýðir Setrið á nær óaðfinnanlega
íslensku. Þetta er tíunda verk Singers sem Hjörtur
þýðir á íslensku og Setberg gefur út. Lofsvert menning-
arframtak. Þýðingin er gefin út með styrk úr þýðingar-
sjóði og hefði þurft að lesa eina prófórk í viðbót til
þess að prentvúlur yrðu innan við tuginn. Ekki er síst
til vansa að tvær prentvillur eru á hlífðarkápu. Ef
Eignin kemur út á íslensku væri góð þjónusta við les-
endur að láta fylgja orðalista eða stutta ritgerð með,
þar sem óútskýröum orðum og hugtökum í gyðing-
dómnum eru útskýrð.
í Setrinu svarar Singer ekki spumingunni um það
hvemig á að lifa. En eins og allir góðir rithöfundar
svarar hann spurningunni Hvernig á að skrifa?. Á
honum brenna mál sem honum tekst að koma til skila
með list sinni. Hann setur sál sína í verk sitt. Loka-
málsgreinar Setursins lýsa þessu á táknrænan hátt:
„Innan um þessar hillur með helgiritunum fannst
Kalman hann njóta vemdar. Yfir hveiju bindi sveif
sál höfundarins. Á þessum stað vakti Guð yfir hon-
um.“
Setrið, 390 bls.
Isaac Ðashevis Singer.
Þýðandi: Hjörtur Pálsson.
Setberg, 1992.
Opið 10 til 10
- Allar almennar matvörur.
- Kjötvörur beint á pönnuna,
einnig vörurnar góðu frá Fjallalambi.
- Allt konfekt á sérstöku jólatilboði.
- Úrval gjafavara og leikfanga.
Rennið í Rangá
Sagan sem markaði
UPPHAFIÐ AÐ ENDALOKUM
HJÓNABANDS
DÍÖNU OG KARLS
Það er engum blöðum um það að fletta að höfundurinn Andrew Morton
vissi lengra nefi sínu! __________________________^
/ Úrbreska blaðinu Daily Telegraph: „Svo virðistað bókAndrews Mortons um
ævi Díönu, sem gefin varútfyrrá árinu, hafiráðið úrslitum um hjónabandið.
Orðrómur komst á kreik um að Díana hefði sjálf heimilað útgáfu bókarínnar og
varhann staðfestur aðeins þremurdögum eftirað fyrsti útdrátturínn varbirturí
breskum dagblöðum... Fáireiginmenn hefðu getað þolað þá auðmýkingu sem
þessi bók var fyrír Karl, hvað þá tilvonandl konungur. “
Díana - óþœgilega sönn saga!
'é
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ HF
-góð bók um jólin!
Stafahálsmen
Þessi skemmtílegu stafahálsmen fást i Gullhöllinni,
Laugavegi 49. Þau eru úr 14 karata gulli með dem-
anti sem er 0,01 'A ct. Verð án festar er 4.600,-
<$uU
Plötur tíl að grafa á
1 Gullhöllinni fást plötur úr gulli og sílfri sem tílvalið
er að grafa á. Verðíð á gullplötunum er 3.700,- til
20.000,- og silfurplötunum 1.200,- til 2.500,- með
festum.
<$uU
Hálsmen
Þessi hálsmen eru með áletruninni, ,Ég elska þig' ‘
og eru bæði til úr 9 karata gulli og silfri. GuIIhálsmen-
in kosta 3.400,- til 5.990,- með festi. Silfurhálsmenin
kosta 1.300,- til 1.800,-
cQdl
oilin
LAUGAVEGI 49, SÍM117742 OG 617740
ollin
oiun
LAUGAVEGI49, SÍM117742 OG 617740
LAUGAVEGI49, SÍM117742 OG 617740