Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Blaðsíða 38
46
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
Helgarpopp
Egill Ólafsson um sólóplötuna sína, Bláttblátt:
Eg sem ekki
fyrir
markhópa
- hyggst segja skiliö við rokktónlist fyrir fullt og allt
Tæpir tveir áratugir eru liðnir síð-
an EgUl Ólafsson kom fyrst fram á
hljómplötu. Síðan hefur hann verið
iðinn við kolann. Með Stuðmönnum,
Spilverkinu, Þursum og fleirum.
Fyrsta sólóplata Egils, Tifa tifa, kom
þó ekki út fyrr en í fyrra og á dögun-
um kom sólóplata númer tvö út. Hún
hlaut nafnið Blátt blátt. Egill tekur
dræmt í að stífla sé brostin og hér
eftir einskorði hann sig við sólóplöt-
urnar.
„Ég hef þó fullan hug á að gera
aðra á næsta ári ef fólk tekur þessari
vel,“ segir hann. „Mig langar að
halda áfram að þróa vissa hluti sem
ég fit|a upp á á nýju plötunni. Það
er að segja að halda áfram með leik-
hústónlistina, þessa revíu- og kaba-
retttónlist sem ég er með dálítið af
að þessu sinni. AUt ræðst þó af við-
tökunum. Ef vel gengur get ég haldið
mínu striki. Ef ekki, ja, þá verð ég
að athuga minn gang.“
Egill er fyrst og fremst leikari. Tón-
hstin er aukabúgrein.
„Hún er hobbíið mitt, frístundaiðj-
an. Það er ekkert upp úr tónlistinni
að hafa nema ofurlítil stefgjöld. Ef
stund er milli stríöa er gott að setjast
niður og slappa af við að semja lög
og texta. Eg hef þetta svipað og þeir
sem dunda við frímerkjasafnið sitt.
Hugmyndimar koma víða að. Stund-
um skrifa ég niður eitthvað sem ég
heyri fólk segja eða sem mér dettur
sjálfum í hug. Svo smákemur lagið
og textinn. Oft þarf ég að nudda efni-
viðinn dálítið áður en ég verð ánægð-
Umsjón
Ásgeir Tómasson
ur með útkomuna. Og stundum
stekkur þetta alskapað fram í dags-
ljósið eins og því hafi aldrei verið
ætlað að verða öðmvísi. Þá virka ég
bara eins og einhvers konar milli-
stykki. Hef ekki hugmynd um hvað-
an lag og ljóð kemur. Það er sem sé
allur gangur á þessari tónlistarsköp-
un.“
Hverjirhlusta?
Egill Ólafsson hefur farið víða und-
anfarna daga og áritað Blátt blátt.
Hann hefur gaman af að sjá framan
í kaupendurna.
„Mér sýnist meiri hlutinn vera á
mínum aldri og ívið yngra fólk,“ seg-
ir hann. „Annars er ég búinn að árita
plötur fyrir fólk á öllum aldri. Ég var
spurður að því fyrir skömmu hver
markhópurinn minn væri. Ég læt
slíkt lönd og leið. Ég hef það fyrst
og fremst að markmiði að vera ég
sjálfur og bjóða upp á tónlist sem ég
hef gaman af. Ég hef aldrei neinn
ákveðinn hóp fólks í huga öðrum
fremur þegar ég er að semja og vinna
tónlistina mína. Ég veit ekkert um
hvort aðrir tónlistarmenn semja fyr-
ir markhópa eða eftir hvaða leikregl-
um þeir fara í sinni sköpun. Ég hef
bara ekki áhuga á að kynna mér það.
„Auðvitað er maður misánægður
með endanlega útkomu platnanna,“
heldur Egill áfram. „Manni tekst
aldrei að ljúka plötunni alveg. Yfir-
leitt verður maður að skilja við hana
áður en allt er fullklárað. Daginn sem
ég verð fullkomlega ánægður með
plötu sem ég vinn að þá...ja, þá
held ég að ég geti hætt og pakkað
saman fyrir fullt og allt! Ég er ánægð-
ur með sumt á Blátt blátt og óánægð-
ur með annað eins og gengur. Platan
er dálítið ólík Tifa tifa að því leyti
að nú leyfi ég mér dálitlar tilrauxúr.
Egill Ólafsson. Tónlistin er fristundaiðjan hans.
Þar á ég við leikhústónlistina og
einnig kórinn, Kór Langholtskirkju,
sem syngur með mér í nokkrum lög-
um. A Tifa tifa fór ég öruggu, hefð-
bundnu leiðimar. Enda var hún
fyrsta sólóplatan mín. Þar sem henni
var tekið vel gat ég leyft mér dálitla
tilraunastarfsemi að þessu sinni.“
Rokkið kvatt
Á Blátt blátt eru ellefu lög. Vel
þekktir tónhstarmenn leika þau með
Agh. Ásgeir Óskarsson sér um slag-
verk og forritun. Björgvin Gíslason
leikur á gítar, Haraldur Þorsteinsson
á bassa og einnig spha Jónas Þórir,
Ohvier Monoury og Richard Korn á
plötunni. Berglind Björk Jónasdóttir
og Guðrún Gunnarsdóttir syngja
með Agh ásamt Langholtskirkju-
kómum. Ríkarður Öm Pálsson ann-
aðist útsetningar fyrir kórinn sem
og annan söng. Egill segir að vissu-
lega þyki sér vænna um sum lög en
önnur á plötunni.
„Ég get nefnt Jómfrúin gleður. Þar
skírskota ég til gamalla hefða, ítal-
skra madrígala, danskvæða og fleiri
þátta. Ég er ánægður með Hvers
vegna? sem myndbandið var gert við.
Einnig þykir mér vænt um Ég horfi
niður. Þaö er í kabarett- eða revíust-
ílnum sem höfðar svo mjög til mín
um þessar mundir. Ef ég fæ ein-
hveiju um ráðið vonast ég til að geta
unnið áfram í þeim stíl. Ég er að slíta
mig lausan frá þeim rokk- og ry-
þmablúsþáttum sem hafa verið mjög
ráðandi í tónlist minni á undanforn-
um árum. Ég er orðinn þreyttur á
þess háttar tónlist og finnst tími
kominn til að kveðja hana.“
Síðan skein sól gefur út blað
Hljómsveitin Síðan skein sól
sendi í vikunni frá sér blað. Tutt-
ugu og átta blaðsíður að stærð í
dagblaðsbroti. Og hverju eintaki
fylgir geislaplata með tveimur lög-
um hljómsveitarinnar.
„Þetta er ekki blað um Síðan
skein sól,“ segir Helgi Bjömsson
söngvari. „Við komum reyndar
aðeins við sögu. Fyrr á árinu
áskotnaðist okkur nefnilega titih
sem okkur þykir mjög vænt um.
Við vorum útnefndir verst klædda
hljómsveitin í skoðanakönnun í
Pressunni. Því komum við fram á
myndum í tískuþætti blaðsins og
erum að sjálfsögðu í fötum sem
hæfa titlinum."
Ýmsir skrifarar láta ljós sitt skína
í blaði Sólarinnar. Gunnar Hjálm-
arsson, tónhstarmaður og gagn-
rýnandi, leggur tíl smásögu. Birt
em verk eftir Sindra Freysson,
Kristínu Ómarsdóttur og fleiri
skáld af yngri kynslóðinni. Þá era
í blaðinu greinar um ýmis málefni.
Lögin tvö á diskinum era Toppur-
inn að vera í teinóttu og Blómin
þau sofa. Fyrmefnda lagið er í
rappstfl, hið síðara hefðbundiö
rokk.
„Okkur datt í hug að gefa út blað
tU að minna á okkur. Við höfum
lítið haft okkur í frammi undan-
fama mánuði. ÖU okkar orka og
einbeiting hefur farið í að vekja á
okkur athygh á erlendum mark-
aði,“ segir Helgi. „Við höfðum ekki
tíma til að taka upp lög á stóra plötu
og fannst spennandi að útvíkka
hljómsveitarformið með því að ger-
ast blaðaútgefendur. Við hefðum
getað vahð eitthvað annað og hefð-
bundnara eins og myndband, bækl-
ing um hljómsveitina, plakat eða
boli. En okkur fannst skynsam-
legra að bjóða upp á eitthvað upp-
lýsandi og fróðlegt frekar en að láta
mynda naflana á okkur og rass-
kinnamar aö hætti Madonnu og
gefa út í bók. Blaðið verður aðeins
gefið út í þxjú þúsund eintökum og
selt á 'gjafverði. Því er ætlað að
verða virkUegur safngripur í fram-
tíðinni."
Erlend
útgáfa framundan
Síðan skein sól hefur átt annríkt
síðustu mánuði við að vinna að
nýjum lögum með enskum textum.
Áformað er að gefa tónhstina út á
næsta ári. Fyrst smáskífu í febrúar
eða mars. Hljómsveitin hefur gert
samning við óháð útgáfufyrirtæki
í Englandi, Diva Records. Til stend-
ur að gera dreifmgarsamning eða
jafnvel útgáfusammng við stórt
fyrirtæki á næstunm. Það er hins
vegar á umræðustiginu ennþá.
„Við höfum verið að vinna að tíu
lögum. Þxjú til fjögur þeirra eru
tílbúin og þeir sem heyrt hafa ytra
era ánægðir með útkomuna," segir
Helgi. Ásamt hljómsveitinni vinna
að verkinu þrír Bretar, upptöku-
stjóri, textahöfundur og umboðs-
maður sem jafnframt er upptöku-
stjóranum til aðstoðar auk þess
sem hann er í fullu starfi við að
koma hljómsveitinni á framfæri
erlendis.
„Við höfum tekið þessi nýju lög
upp hér á landi. Hluti þeirra varð
til ytra. Einnig fórum við aUir sjö
í vinnubúðir að Hótel Búðum á
Snæfellsnesi og sömdum og æfðum
eftir því sem andinn blés okkur í
bijóst. Við vorum einir á hótelinu
og gátum hagað vinnuhraðanum
eins og okkur sýndist. Þarna hrist-
umst við saman ef svo má segja og
dagarnir á Búðum skiluðu mjög
góðum árangri."
Helgi Björnsson leggur áherslu á
að margir endar eru enn óhnýttir
í Bretlandi hvað varðar útgáfu á
efni Sólarinnar. Hljómsveitin ætlar
hins vegar að taka hljómleikarispu
hér á landi á fyrstu mánuðum
næsta árs, fara í skóla og víðar og
spUa fyrir þá sem heyra vUja.
„Fyrstu tvö ár hljómsveitarinnar
spUuðum við nær eingöngu á
hljómleikum. Seinni árin tvö sner-
ist dæmið við og dansleikirnir urðu
aðalatriðið hjá okkur,“ segir Helgi.
„Það er hljómsveitunum hættulegt
þegar þær hafa starfað í nokkur
ár að festast á vissum brautum:
gefa út plötu, fylgja henni eftir,
koma svo aftur með plötu og kynna
hana. Okkur langar að ijúfa þenn-
an hring með því að leita út fyrir
landsteinana - já, og gefa út blað í
staðinn fyrir plötu. Það er hverri
hljómsveit hoUt að hjakka ekki í
sama farinu."