Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
51
- segir Jón Skaptason sýslumaður sem nú á einkennisbúning í fyrsta skipti
veröur sjötugur. „Ég ætía þó ekki aö
vera svo lengi í embætti en nákvæm-
lega hve lengi veit ég ekki ennþá.“
Að heiman um jólin
Jón jánkar því aö árið sem er aö
líöa sé ár mikilla breytinga hjá
honum.
„Það hafa verið talsvert miklar
breytingar hjá manni á þessu ári
og þær hafa ekki allar veriö jafn
skemmtilegar. Þannig hefur gengið
illa meö tölvumar hjá embættinu.
Það var ljótt og leiðinlegt mál,“ seg-
ir Jón.
Fyrst viö erum aö tala um breyt-
ingar ekki nóg meö aö Jón sé farinn
aö gifta fólk nánast annan hvern
dag heldur ætíar hann aö vera að
heiman um þessi jól, nokkuð sem
aldrei hefur gerst áður.
„Við hjónin ætlum að eyða jólun-
um í Bandaríkjunum, hjá tveimur
barna okkar og sex bamabömum.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég eyði
jólunum annars staðar en heima
hjá mér. Það er bæði tilhlökkun og
tregi yfir því að breyta svona til en
hins vegar má líta svo á að við
höldum jól á okkar öðra heimili
þar sem helmingurinn af börnum
og bamabömum er ytra.“ -hlh
„Ég hef gaman af að gifta. Það
er ein skemmtilegasta embættisat-
höfn sem ég hef afskipti af hér hjá
embættinu. Mig óraði aldrei fyrir
að ég mundi þurfa að setja mig í
þær stellingar að gifta fólk en þegar
ég var ungur sagði mér einhver að
ég ætti að verða prestur. Mér leist
ekkert á þau orð en nú er ég hins
vegar orðinn hálfur prestur, ég er
búinn aö gifta svo mikið,“ segir Jón
Skaptason, sýslumaður í Reykja-
vík.
Við dómskerfisbreytingamar 1.
júlí, með lögum um aðskilnað
dóms- og umboðsvalds, var emb-
ætti borgarfógeta lagt niður og til
varð sýslumannsembætti Reykja-
vikur. Jón Skaptason, yfirborgar-
fógeti síðastiðin 13 ár, er nú sýslu-
maður í Reykjavík.
Við þessar breytingar urðu einn-
ig breytingar á starfssviði sýslu-
manns. Kom stór málallokkur inn
á borð hans, sifjamál. Þau vora
áður til meðferðar á nokkmm stöð-
um: í dómsmálaráðuneytinu, borg-
ardómi og sakadómi. Giftingarnar
.em einn angi þessa nýja mála-
flokks sem Jón segir mjög um-
fangsmikinn hjá embættinu.
„Það hefur verið mikið um gift-
ingar hjá embættinu síðan í sumar.
Ég er búinn að gifta 56 pör á þessum
tíma,“ segir Jón.
Hátíóarbúningur
-starfsbúningur
Jón segist almennt vera lítið hrif-
inn af miklum formlegheitum, hon-
um leiðast þau. Hins vegar hefur
dómskerfisbreytingin haft í för
með sér að hann hefur þurft að
útvega sér tvo einkennisbúninga,
hátíðarbúning og starfsbúning.
„Þrátt fyrir að ég hafi verið yfir-
borgarfógeti og síðan sýslumaður í
nær 14 ár hef ég aldrei átt einkenn-
isbúning fyrr en nú. Hátíðarbúning-
urinn er ætíaður fyrir móttöku
þjóðhöfðingja og svipuð tækifæri en
starfsbúninginn, sem er ekki eins
mikið skreyttur, nota ég alltaf við
giftingar. Ég set mig ekki í neinar
preststellingar við giftingamar en
þetta em það miklar athafhir að
mér finnst viöeigandi að klæðast
starfsbúningi mínum við þær.“
En starf sýslumanns snýst ekki
einungis um þá hamingju að gifta
fólk, skilnaðir era margir og mörg
erfið mál vegna þeirra í gangi.
„Það væri best að geta gift svo
vel að hjónabandið entist almenni-
lega. En því miður verður manni
ekki alltaf að ósk sinni.“
Jón er 66 ára gamall og aðspurður
hve lengi hann muni gegna embætti
sýslumanns segist hann geta verið í
embætti út þann mánuð sem hann
JOF
JEPPAEIGANDANS
„Þrátt fyrir að ég hafi verið yfirborgarfogeti og siðan sýslumaöur i nær
14 ár hef ég aldrei átt einkennisbúning fyrr en nú,“ segir Jón Skaptason
sem hér sést í hátiðarbúningi sýslumannsins í Reykjavík.
DV-mynd GVA
kl. 22
1
laugardag
OG NYTSAMAR
GJAFIR FÁST HJÁ BENNA
U VERÐI
Þokuljósasett
Verð frá kr. 3.980,-
Vönduðu IPF
ljósin komin aftur
Verb frá kr. 7.900,-
Kastarar
Verð frá
kr. 2.600,-
Vagnhöföa 23 • Sími 91-685825
GÆÐI Á GÓÐU VERÐI
Fyrrum borgarfógeti farinn að gifta af fullum krafti:
Ég er orðinn
hálfur prestur