Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Page 56
64
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
Andlát
Eiríkur Sigurðsson, Garðarsvegi 4,
Seyðisfirði, andaðist aö heimili sínu
' aðfaranótt 17. desember.
Emil Bogason lést fimmtudaginn 17.
desember.
Kristjana Alexandersdóttir, Stiga-
hlíð 36, lést í Borgarspítalanum 17.
desember.
Þórhallur Jónsson, Hauksstöðum,
Vopnafirði, andaðist að Sundabúð,
Vopnafirði, fimmtudaginn 17. des-
ember.
Tilkyrmingar
Sólstöðugangan á vetrar-
sólstöðum
Að venju verður Náttúruvemdarráð
Suðvesturlands með sólstöðugöngu á
vetrarsólstöðum en þær ber upp á mánu-
daginn 21. desember. Gangan hefst við
sólampprás kl. 11.22 í Víkurgarði (Fó-
getagarðinum). Gengið verður upp á
Landakotshæðina, síðan niður að Höfn
og upp á Amarhól, þaðan upp á Skóla-
vöröuholt og yfir á þær slóðir sem gamla
þjóðleiðin lá til og frá Reykjavík í gegnum
aldimar suður í skarðið á milh Öskju-
hhðanna og síðan vestur á Stóm-Öskju-
hUð og áfram um Vatnsmýrina og Hljóm-
skálagarðinn. Sólstöðugöngunni lýkur
við sólarlag kl. 15.30 í Víkurgarði. Útsýn-
isins af hæðunum verður notið í turni
Landakotsspítala, Seðlabankanum, Hall-
grimskirkjutumi og Periunni. Sólstöðu-
mínútunnar veröur minnst í Perlunni en
hún er kl. 14.43.
Friðarstund hjá unglinga-
deild CISV
CISV era alþjóðlegar sumarbúðir bama
og verður friðarstund á Lækjartorgi á
morgun, laugardag, kl. 15. KveUít verður
á friðarkertum til að minnast vina víðs
vegar um heiminn og um leið til vekja
athygli á að öll erum við eins og enginn
ætti að þurfa að liða vegna styijalda.
CISV (Childrens Intemational Summer
Villages) er alþjóðahreyfing sem tengist
Sameinuðu þjóðunum gegn Unesco og
heldur sumarbúðir víðs vegar um heim-
inn ár hvert fyrir 11 ára böm, með það
markmið aö stuðla að auknum skilningi
milli þjóða heimsins og alheimsfriði.
Jólasveinninn heimsækir
Þjóðminjasafnið
Sunnudaginn 20. desember kl. 11.15 kem-
ur Bjúgnakrækir, sem klifrar upp í ijáfur
eftir bjúgum, í heimsókn. Mánudaginn
21. desember kl. 11.15 og 13 kemur
Gluggagægir sem kíkir á glugga hjá fólki.
Teiknisamkeppni í
Garðabæ
Kiwanisklúbburinn Setberg í Garðabæ
stóð fyrir teiknisamkeppni í 3. og 4. bekk
skólanna í Garðabæ um mynd á jóla-
kort. Áhugi nemenda og kennara var
ipjög mikill og bámst inn 190 myndir.
Dómnefnd fór yfir allar myndimar sem
bárust og af mjög mörgum góðum mynd-
um var mynd Áma Kristjánssonar 4. H
G í Flataskóla valin og er hún nú á jóla-
korti Kiwanisklúbbsins Setbergs. Ama
var færður áritaður skjöldur frá Kiwan-
isklúbbnum fyrir góða frammistöðu í
samkeppninni. Á svona keppni að vera
árviss viðburður í framtíðinni. Allur
ágóði af sölu jólakortanna rann í styrkt-
arsjóð Setbergs en úr honum hefur veriö
veitt til margvíslegra líknarmála í
Garðabæ og víðar.
Svar við syipmyndinni
SIGMUND FREUD, faöir sál-
greiningarinnar. Hann hafði mik-
inn áhuga á sambandi ástar og
haturs, bama og foreldra, ödipus-
ar-duldinni, kynhverfu og öðrum
álíka viðfangsefnum.
Freud fæddist 6. maí 1856. í raun
var hann skírður Sigismund. Hann
fluttist til Vínar árið 1860. Hann
varö læknir árið 1881 og prófessor
árið 1902.
Sergei PankajéfT varð frægasti
sjúklingur hans.
Borgin Freiberg er í Mæri og heit-
ir í dag Pribor.
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviöiö kl. 20.00.
MY FAIR LADYeftir Alan Jay
Lerner og Frederick Loewe.
Frumsýning annan dag jóia kl. 20.00,
uppselt.
2. sýn. sun. 27/12, uppselt-3. sýn. þri.
29/12, uppselt -4. sýn. mið. 30/12, upp-
selt, 5. sýn. lau. 2. jan., 6. sýn. miö. 6.
jan., örfá sæti laus, 7. sýn. fim. 7. jan.,
nokkur sæti laus, 8. sýn. fös. 8. jan., örfá
sæti laus.
HAFIÐ eftir Ólaf Hauk Simonar-
son.
Lau. 9. jan. kl. 20.00.
DÝRIN í HÁLSASKÓGI eftir
Thorbjörn Egner.
Þri. 29/12 kl. 13.00, uppselt, ath. breyttan
sýningartíma, mið. 30/12 kl. 13.00, upp-
selt, ath. breyttan sýnlngartima, sun. 3/1
kl. 14.00, fáein sæti laus, sun. 3/1 kl.
17.00, fáein sæti laus, lau. 9/1 kl. 14.00,
fáein sæti laus, sun. 10/1 kl. 14.00, fáein
sæti laus, sun. 10/1 kl. 17.00.
Smiðaverkstæðið kl. 20.00.
STRÆTI eftir Jim Cartwright.
Sun. 27/12, þri. 29/12, lau. 2/1, lau. 9/1,
sun. 10/1.
Ath. að sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn
eftir aö sýning hefst.
Litla sviöiökl. 20.30.
RÍTA GENGUR MENNTA-
VEGINN eftir Willy Russel.
Sun. 27/12, þrl. 29/12, lau 2/1, fös. 8/1,
lau.9/1.
Ekki er unnt að hleypa gestum inn i sal-
inn eftir að sýning hefst.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Aðgöngumiðar greiðist viku fyrir sýningu
ella seldlröðrum.
Miðasala Þjóðieikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13-18 ogfram
að sýningu sýningardaga.
Mlöapantanirfrá kl. 10 virka daga i sima
11200.
Greiðslukortaþj. - Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Þjóölelkhúsið -góða skemmtun.
Sijt*rún Bjiirg\'jns<,iórtir
PERLA
Draumnr um hest
Perla, draumur
um hest
Út er komin bókin Perla, draumur um
hest, eftir Sigrúnu Björgvinsdóttur, saga
fyrir böm á öllum aldri. Þetta er fyrsta
bók Sigrúnar en áður hafa birst eftir
hana nokkrar smásögur og greinar í bók-
um og tímaritum. Hér er lítil stúlka, sú
yngsta í systkinahópnum, látin segja frá
hryssunni Perlu sem varð hennar besti
vinur og hvernig hún eignaðist hana vet-
urgamla. Höfundur gefúr bókina út.
Fleiri bílastæði
við Kringluna
Að undanfómu hefur veriö mikil aðsókn
í Kringluna og þó að bílastæðin séu rúm-
lega 2.000 hefur komið fyrir á mestu
álagstímum að erfitt hafi verið að finna
bílastæði. Til að bæta úr þessu hefur bíla-
stæðum í nágrenni Kringlunnar verið
fjölgað um 900 nú ffarn til jóla. Þessi viö-
bótarstæði em starfsmannastæðin bak
við Kringluna en þau em nú einungis
nýtt fyrir viðskiptavini. Heimilt er að
leggja á lóð Verslunarskólans og á nýja
bílastæðinu bak við Sjóvá-Almennar hf.
Einnig hefur verið útbúið bfiastæði á tún-
inu fyrir norðan Hús verslunarinnar og
verður það nýtt fyrir viðskiptavini ef
frost er í jörðu. Þá hefur Kringlan afnot
af bílastæði norðan við Útvarpshúsið við
Efstaleiti og verður sérstakur bíll í ferð-
um afian daginn frá stæðinu norðan Út-
varpsins og að Kringlunni. Verslanir í
Kringlunni verða opnar til kl. 22 í dag og
á sunnudag kl. 13-17. Veitingastaðir
Kringlunnar em opnir lengur en verslan-
imar.
Leikfélag Akureyrar
ÚTLENDINGURINN
Gamanleikur
ettir Larry Shue.
Þýðandi: BöðvarGuðmundsson.
Leikstjóri: Sunna Borg.
Leikmyndarhöiundar: Hallmundur Krist-
insson.
Búningahöfundur: Freygerður Magnús-
dóttir.
Ljósahönnuður: Ingvar Björnsson.
Sýningastjóri: Hreinn Skagfjörð.
Leikarar i þeirri röð sem þeir birtast:
Aðalsteinn Bergdal.
Þráinn Karlsson.
Sigurveig Jónsdóttir.
Jón Bjarni Guðmundsson.
Bryndis Petra Bragadóttir.
Björn Karlsson.
Sigurþór Albert Heimisson.
og ónefndir meðlimir Ku Klux Klan.
Sun. 27. des. kl. 20.30, frumsýning.
Mán. 28. des. kl. 20.30.
Þri. 29. des. kl. 20.30.
Mið. 30. des. kl. 20.30.
og síðan sýningahlé til
fös. 8.jan.kl. 20.30.
Gjafakort og áskriftarkort á Útlendinginn
og Leðurblökuna
Skemmtileg jólagjöf!
Saga leiklistar á Akureyri
1860-1992
Glæsileg jólagjöf!
Miðasala er í Samkomuhúsinu, Hafn-
arstræti 57, alla virka daga kl. 14-18.
Laugardaga og sunnudaga kl. 13-18.
Símsvari allan sólarhringinn.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími í miðasölu: (96) 24073.
7UIIII
ISLENSKA OPERAN
__iiiii
eftir Gaetano Donizetti
MUNŒ) GJAFAKORTIN OKKAR!
Þau eiu nú seld á skrifstofu fslensku
óperunar, simi 27033.
Sunnud. 27. des. kl. 20.00.
Uppselt.
Laugard. 2. jan. kl. 20.00.
Uppselt.
Miðasalan er nú lokuð en þann 27.
desember hefst sala á sýningar:
Föstudaginn 8. jan. kl. 20.00.
Sunudaginn 10. jan. kl. 20.00.
Síðasta sýningarhelgi.
Símsvari í miðasölu 11475.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
LEKHÚSLÍNAN 99-1015.
Kvenfélagið Freyja
í Kópavogi
Félagsvist verður á sunnudag kl. 15 að
Digranesvegi 12. Spilaverðlaun og veit-
ingar.
Jólasýning Fimleika-
deildar Ármanns
verður í Laugardalshöll sunnudaginn 20.
desember kl. 14-15. Allir em velkomnir.
Aögangseyrir kr. 400 fyrir fullorðna en
fritt fyrir 12 ára og yngri. Allir nemendur
deildarinnar taka þátt í sýningunni.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stórasviðiðkl. 20.00.
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
eftir Astrid Lindgren
Tónlist: Sebastian.
Þýðendur: Þorleifur Hauksson og Böðvar
Guðmundsson.
Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir.
Dansahöfundur: Auður Bjarnadóttir.
Tónlistarstjóri: Margrét Pálmadóttir.
Brúðugerð: Helga Arnalds.
Lýsing: Elfar Bjarnason.
Leikstjóri: Ásdis Skúladóttir.
Leikarar: Ronja: Sigrún Edda Björnsdóttir.
Aðrir: Árni Pétur Guðjónsson, Björn Ingi
Hilmarsson, Ellert A. Ingimundarson,
Gunnar Helgason, Guðmundur Ólafsson,
Jón Hjartarson, Jón Stefán Kristjánsson,
Jakob Þór Einarsson, Karl Guðmundsson,
Margrét Ákadóttir, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Pétur
Einarsson, Soffia Jakobsdóttir, Theodór
Júliusson, Valgerður Dan og Þröstur Leó
Gunnarsson.
Frumsýning: laugardaginn 26. des. kl.
15.00,
uppselt.
Sunnud. 27. des. kl. 14.00,
uppselt, þriðjud. 29. des, uppselt, mið-
vikud. 30. des. kl. 14.00, fáein sæti laus,
laugard. 2. jan. kl. 14.00, fáein sæti laus,
sunnud. 3. jan. kl. 14.00, fáeln sæti laus,
sunnud. 10. jan. kl. 14.00.
Miðaverð kr. 1.100, sama verð fyrir börn
ogfullorðna.
Skemmtilegar jólagjafir: Ronju-gjafakort,
Ronju-bolir o.fl.
BLÓÐBRÆÐURsöngleikur eftir
Willy Russell.
Frumsýning föstud. 22. janúar kl. 20.00.
HEIMA HJÁ ÖMMU eftirNeil
Simon.
Sunnud. 27. des.
Laugard. 2. jan, iaugard. 9. jan. fáar sýn-
ingar eftir.
Litla sviðiö
Sögur úr sveitinni:
eftir Anton Tsjékov
PLATANOV OG VANJA
FRÆNDI
PLATANOV
Þriðjud. 29. des., laugard. 2. jan. kl. 20.00,
laugard. 9. jan. kl. 17.00, laugard. 16. jan
kl. 17.00.
Fáarsýningar eftir.
VANJA FRÆNDI
Miðvikud. 30. des kl. 20.00.
Sunnud. 3. jan. kl. 20.00, laugard. 9. jan.,
laugard. 16. jan.
Fáar sýningar eftir.
Verð á báðar sýningarnar saman aðeins
kr. 2.400.
KORTAGESTIR, ATH. AÐ PANTA ÞARF
MIÐA Á LITLA SVIÐIÐ.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn
eftir að sýning er hafin.
GJAFAKORT, GJAFAKORT
ÖÐRUVÉIOG SKEMMTILEG JÓLAGJÖF!
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir i sima 680680 alla virka
dagafrá kl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta -
Faxnúmer 680383.
Leikhúslinan, sími 991015.
Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem
dögumfyrirsýn.
Leikfélag Reykjavikur —
Borgarleikhús.
Tónleikar
Lipstick Lovers
á Púlsinum
Lipstick Lovers, rokksveitin, heldur tón-
leika á Púlsinum sunnudaginn 20. des-
ember nk. Tónleikarnir hefjast kl. 22.30
og kostar 500 kr. inn.
Fyrirlestrar
Heimsfriðarsamband kvenna
heldur fyrirlestur um hlutverk kvenna í
heimsfriöi sunnudaginn 20. desember á
Hótel Loftleiðum kl. 20. Þátttökugjald er
300 kr.
Tapad fimdiö
Næla frá Dublin
í einni af ferðum Samvinnuferða-Land-
sýnar til Dublin í október sl. varð kona
í hópnum fyrir því að glata verðmætri
nælu sem hún var með. Var gerð mikil
leit að nælunni í rútum og víðar en án
árangurs. Nælan kom síðar í leitimar og
er í fórum fararstjóra sem vom í ferð-
inni. Konunni láðist aftur á móti aö skilja
eftir nafn og símanúmer hjá þeim og vilja
þeir nú gjaman ná tali af af henni svo
þessi fallega næla komist aftur í réttar
hendur. Er konan því beðin að hafa sam-
band við skrifstofu Samvinnuferða-
Landsýnar í Austurstræti.