Alþýðublaðið - 17.03.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 17.03.1967, Blaðsíða 3
27 BÁTAR TEKNIR LANDHELGIIÁR Rvík, SJÓ. Um hádcgisbilið sl. rniðvikudag voru 6 bátar teknir að ólöglegum veiðum í landhelgi við Vestmanna eyjar. Var það þyrla landhelgis- gæzlunnar, sem. fyrst veitti bát- unum athygli. Fimm þessara báta voru frá Vestmannaeyjum og einn frá ísafirði. Mislingarnir aukast enn Hvík—AKB. Alþýðublaðið hafði í gær sam- band við Braga Ólafsson, aðstoð- arborgarlækni og spurðist fyrir um mislingafaraldurinn, sem nú gengur yfir hér, en í vikunni frá 26. febr. til 4. marz urðu mislinga- tilfelli 195 samkv. skýrslum 19 lækna, en voru vikuna áður 125. Sagði Bragi, að þetta væri mesta aukning á mislingatilfellum, sem enn hefði orðið á einni viku og virtist svo sem mislingatilfellum fjölgaði enn. Bragi sagði, að yfir- leitt væru mislingarnir ekki svæsnir núna og ekki mikið um fylgikvilla, alltaf væri þó eitthvað um kvefiungnabólga eftir misl- inga og sérstök ástæða væri til að fara mjög vel með sig eftir sjúkdóminn. Nokkuð langt er síðan misling- Framhald á 14. síðu. Þessir bátar, sem teknir voru í landhelgi eru Magnús Magnússon VE 112, Gylfi VE 201, Heimir VE 38, Sævar VE 19, Haförn VE 23 og Páll Pálsson ÍS 101. Hafa þá bátar alls verið teknir 27 sinnum innan landhelgi það sem af er þessu ári og sumir þeirra oftar en einu sinni, t.d. Gylfi VE 201 þrisvar sinnum og Magnús VE 112 tvisvar sinnum. Fjórir voru teknir í janúar, 10 í febrúar og 13 það sem af er þess- um mánuði. Enginn togari hefur enn verið tekinn í landhelgi, á þessu ári. Bátar þessir hafa að- allega verið teknir í landhelgi í Faxaflóa og fyrir sunnan land. Eftir þrjá fyrstu mánuðina í Tra höfðu 18 bátar verið tekn- 'r í landhelgi, 8 í febrúar og 10 marz, en enginn í janúar. Samtök Svarf- dælinga 10 ára Svarfdælingar í Reykjavík minnast þess um þessar mundir, að liðin eru 10 ár frá því að stofn- að var til félagsskapar þeirra, sem þeir nefna Samtök Svarfdælinga í Reykjavík. Það var 22. maí 1957 að boðað var til stofnfundar og tilgangur félagsins kynntur. Snorri Sigfússon námsstjóri var helzti hvatamaður að stofnun sam- Framhald á 15. síðu. Frá gatnagerð á Akranesi (Mynd: Hdan) Samþykkt áætlun á fjárhags- Akranesi Reykjavík — Hdan . Á fundi bæjarstjórnar Akraness 3. marz sl. var samþykkt fjárhags áætlun Akranesskauþstaðar fyrir árið 1967. Niðurstöðutölur fjárhagsáætlun ar bæjarsjóðs eru kr.-38.140>000.00 en voru á sl. ári 34.800.000.00 og hafa því hækkað um 10.9%. Helztu tekjuliðir eru: (tölurnar í svigunum eru sambærilegar töl ur frá 1966.) F *r Alit framkvæmdanefndar hægri umferðar: Slysahættan minnkar Framkvæmdanefnd liæjri um- ferðar á íslandi boðaði blaða menn á sinn fund og kom þar m. a. fram, að' breytingin úr vinstri umferð yfir í liægri mundi þýða raunvcrulegan sparnað til lengri tíma og jafnframt draga úr slysa hættunni, þar eð fólk myndi yfir leiltt verða ^arjicáraraj, er þessi breyting kæmi til. Framkvæmda stjórn þessarar nefndar er Bene dikt Gunnarsson, tæknifræðingur. Valgarð Briem hafði orð fyrir nefndinni og sagði að mikil gagn rýni hefði komið fram á þessa breytingu nú síðustu daga. Sagði hann, að þar eð þessi mótmæli kæmu helzti of seint mundu þau litlu ráða um gang mála. Gat hann þess, að þeir sem skrifuðu um þessi mál almennt skorti nægi legar upplýsingar til að taka raun verulega afstöðu til þeirra. Sagði 'hann, að þessar breytingar mundu koma til í apríl — júní 1968. Einn ig gat Valgarð þess, að einkum Kappræöufundi frestaö Fyrirhuguðum kappræðufundi Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og Heimdallar um fundarefnið „Þjóðnýting, opin ber rckstur og verðgæzla“ verður frestað vegna ófyrirsjáan- Iegra ástæðna til 2. apríl. Ræðumenn fundarinn verða til- kynntir að nokkrum dögum liðnum. væru það tvö atriði. sem notuð væru til að mótmæla þessari breyt ingu; annars vegar að miklu fé yrði kastað á glæ og í öðru lagi að fjölmörg slys mundu fylgja í kjölfar þessarar breytingar. Einar Pálsson, vfi(rkfr‘ætl|i'ngur ræddi um þá hlið málsins er við kæmi kostnaðinum og vildi hann undirstrika það, sem komið hefði fram hjá FÍB, að þessi breyting þýddi raunverulegan sparnað til lengri tíma. Sagði hann, að kostn aður við breytingu úr vinstri um ferð í hægri næmi alls 49 millj. og 400 þús. kr. Breytingar á al menningsbifreiðum verða % þess kostnaðar. Þessir peningar verða síðan fengnir á fjórum árum, 1967 — 1970 með því að sérstakur skatt ur verði tékin af bifreiðum og lagð ur í ríkissjóð og mundi nema á fólksbifreiðum 1104 kr. á þessum fjórum árum, fyrsta árið 240 kr. og færi síðan lækkandi. Framhald á 15. síðu. Útsvör kr. 25,5 m. (23.0 millj.) Framl. jöfnunarsj. 5,5 m. (5,1 m.) Aðstöðugjöld 4,1 m. (3,8 m.) Fasteignaskattur 2,1 m. (2.0 m.) Útsvarsupphæðin hækkar nú um 11.1% fná í fyrra. Helztu rekstrargjöld bæjarsjóðs eru: Lýðtr. og framf. kr. 8,062 þús. Menntamál 5.334 þús. Stjórn kaups. 1.998 þús. Þrifnaður 1,285 þús. Löggæzla 1.125 þús. Til framkvæmda er áætlað: Til varanlegrar gatnagerðar og holræsa kr. 4.500 þús. Til sjúkrahúss 2.000 þús. Til íþróttahúss 2.000 þús. Til Akraneshafnar 1.000 þús. Til jarðliitarannsókna 1.000 þús. auk smærri liða 2.110 þús. Til viðbótar þessum framlögum koma mótframlög ríkissjóðs og lántökur svo helidarframkvæmdir eru ráðgerðar meiri m.a. við vatns veitu og höfnina. Á fundinum var einnig sam- þykkt ítarleg áætlun um fram- kvæmdir á árinu 1967, þar sem nánar er kveðið á um hvernig verja skuli framkvæmdafénu í ein stökum atriðum. Er þar helzt að geta: a) Gagnfræðaskóli. Hafin verði bygging 2. áfanga skólans skv. samþykkt bæjar- stjórnar frá 4. nóv. 1966 og við það miðað að taka megi í notk un hluta hans árið 1968, en áfang inn verði fullgerður haustið 19 69. b) Sjúkrahús: Áfram verði unnið við smíði sjúkrahússins og kappkostað að Framhald á 15. síðu. Nýr bankastjóri Dómur í póst- mannadeilunni í gærmorgun féll úrskurður í félagsdómi um yfirvinnu- skyldu póstmanna, og var nið urstaða dómsins sú, að þeir skyldu lúta sömu ákvæðúm um yfirvinnu og( aðrir opinberir starfsmenn, en ekki vera háðir ákvæðum um skyldu til að vinna 5 yfirvinnutíma á viku eins og gilt hefur til þessa. Á fundi bankaráðs Útvegsbanka íslands 16. þ.m. var Jónas G.' Rafn ar ráðinn bankastjóri Útvegsbanka íslands í stað Jóhanns HafSteins, sem hefir nú sagt starfinu lausu. Jónas G. Rafhar hefir tvívegis verið settur bankastjóri Útvegs- banka íslands í forföRum Jóhanns Haftseins. 17. marz 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.