Alþýðublaðið - 17.03.1967, Síða 11
t=Ritsfióri Öm Eidsson
Frá íeik Ilauka og: Fram, Stefán Jónsson Ilaukum er liindraður
grófiega á línu og vítakast dæmt.
Hermannsmótið fer
fram 18.-19. marz
Hið árlega Hermannsmót verð-
ur haldið við Skíðahótelið í Hlíð
arfjalli við Akureyri um næstu
helgi, en því var frestað, sem
kunnugt er, síðustu helgi í febr
úar vegna óhagstæðs veðurs. Mót
þetta er haldið til heiðurs Her
manni Stefánssyni íþróttakennara
á Akureyri.
Keppt verður í alpagreinum
karla og verðlaunin eru geysimik
ill farandgripur, sem nú er keppt
um í annað sinn, en í fyrra hlaut
hann ívar Sigmundsson frá Ak-
ureyri.
Búizt er við mikilli þátttöku
víðs vegar að af landinu, því að
Landsmótið á Siglufirði hefst
tveim dögum eftir að þessu móti
lýkur,- og er því alveg í leiðinni
að koma við á Akureyri og taka
bátt i Hermannsmótinu 1967.
Myndin er af verðlaunabikarnum.
- jr.
Innanfélagsmót
ÍRog KRámorgun
Frjálsíþróttadeildir ÍR og KR
efna til samfélagsmóts í Laugar
dalshöll á morgun kl. 15.50. Keppt
verður í langstökki, hástökki og
þristökki án atrennu, stanga-
stökki og hástökki með atrennu.
Stjórnim.
Baráttan um Islandsmeistara-
titilinn er milli FH og Fram
Staðan í
FH
Fram
Valur
Haukar
Víkingur
Ármann
Lokasprettur 1. deildakeppn-
innar er óvenju spennandi
1. deild er nú þessi:
8 6 0 2 183-133 12
8 6 0 2 177-121 12
9 5 0 4 184-164 10
9 5 0 4 183-184 10
9 4 0 5 156-164 8
9 0 0 9 135-254 0
ÞAÐ VAR heldur betur líf í
leikjunum í 1. deild í fyrrakvöld.
Tveir hörkuspennandi leikir voru
háðir, áhorfendur voru margir og
þeir hvöttu liðin ákaflega.
Fyrri leikurinn milli FH og Vík
ings varð óvænt að aðalleik kvölds
ins. Þó að ávallt sé óvarlegt að
spá liði öruggum sigri, hafa þeir
vafalaust verið mun færri, sem
fyrirfram trúðu á sigur Víkings,
en svo fór þó, eins og skýrt var
frá í blaðinu í gær. Víkingur var
sterkari aðilinn og yngri mennirn-
ir í liðinu, Jón Hjaltalín, Einar
Magnússon og Gunnar Gunnars-
son ásamt hinum reynda Þórarni
Ólafssyni áttu einn sinn bezta
leik í vetur og vissulega var sig-
urinn ánægjulegur fyrir Víking.
Eftir þessi úrslit og sigur Fram
yfir Haukum í leiknum á eftir eru
það aðeins FH eða Fram, sem geta
hlotið íslandsmeistaratitilinn að
þessu sinni.
Rvíkurúrval-
varnarliöið
í kvöld
Friðþjófur
Óskarsson, ÍKF
Friðþjófur er 23ja ára
bankastarfsmaður í Kefla_
vík, 185 cm á hæð. Ilann er
miðherji ÍKF liðsins og- sá
maður, sem mest mæðir á,
því hann er aðal driffjöð
ur liðsins, bæði í vörn og
sókn. Ilann byrjaði að æfa
körfuknattleik 13 ára og
hefur leikið með meistara-
flokki ÍKF síðan 1961.
, Næstu leikir verða á sunnudags-
kvöld. Þá leika Valur og FH og
síðan Fram og Víkingur. Leikirn-
ir verða vafalaust hinir skemmti-
legustu á að horfa.
Að þeim leikjum loknum eru
aðeins eftir úrslitaleikur Fram og
FH og leikur Ármanns og Hauka.
Ármenningar eru þegar fallnir í
2. deild, þeir hafa ekkert stig
hlotið.
í KVÖLD fer fram þriðji leik-
urinn í keppni Reykjavíkurúrvals
ins og varnarliðsmanna. Leikið
verður í íþróttahúsinu á Keflavík
urflugvelli og hefst leikurinn kl.
9.00.
Keppnin stendur nú þannig, að
hvort liðið um sig hefur unnið
einn leik, Reykjavíkurúrvalið
vann með 54:51 í Laugardalnum
og varnarliðsmenn unnu með 66:
65 á Keflavíkurflugvelli sl. föstu
dag.
Næsti leikur verður svo n.k.
mánudag og fer hann fram í
íþróttahúsinu á Keflavíkurflug-
velli.
Á EM x frjálsíþróttum innan-
húss var árangur sem hér segir:
í langstökki sigraði Davies, Eng-
landi stökk 7,85 m. Riissinn Borko
vskij stökk einnig 7,85 m. Bert-
helsen, Noregi sigraði í langstökki
kvenna 6,51 m. 'Wallgren, Svíþjóð
varð meistari í 400 m. hlaupi
kvenna, hljóp á 55,7 sek., en Kind-
er, Vestur-Þýzkalandi í 400 m.
hlaupi karla á 48,4 sek. Moroz,
Sovét varð meistari í hástökki með
2,14 m. Elliott, Frakklandi og
Baudis, Tékkóslómkíu stukku
báðir 2,11 m. Carroll, írlandi sigr-
Framhald á 14. síðu.
Frá leik FH og Víkings. Páll Eiríksson. FH fær óblíðar móttökuf
á Iínunni. Myndir BB.
17. marz 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ