Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR12. FEBRÚAR1993
FÖSTUDAGUR12. FEBRÚAR1993
25
Íþróttír
Sigurhjá Mexíkó
Mexikó vann sigur á Rúmeníu,
2-D, í vináttulandsleík í knatt-
spyrnu í Monterrey í Mexikó í
gær. Benjamin Galindo og Cruz
gerðu mörkin hvort í sínum hálf-
leik.
-GH
Papinferhvergi
Jean-Pierre Papin, sem skorar
nú í hvetjum leik með AC Milan,
segist _ekki vera á leið frá félag-
inu, „Ég hef aldrei sagt að ég vilji
fara frá Milan. Þetta kom frá fólki
í Frakklandi sem vill fá mig heim.
Ég ætla aö klára samninginn
enda búinn að leggj'a hart aö mér
til að komast í liöiö og ég gefst
ekki upp núna.
-GH
Papinjá-Cantona nei
Þjálfari franska landsliðsins
hefur gefið Papin leyfi til að ieika
með AC Milan á sunnudaginn
gegn Atalanta þrátt fyrir að
franska landsliðið eigi leik í HM
gegn ísrael á miðvikudaginn.
Eric Cantona fær hins vegar ekki
að leika meö Man. Utd sem leikur
gegn Sheffield United í bikar-
keppninni á sunnudaginn.
-GH
Lékeinsoghundur
Allt gengur á afturfótunum hjá
spænska kylfingnum Severiano
Ballesteros. Eftir fyrsta hring á
opna Hong Kong mótinu er Ball-
esteros 11 höggum á eftir nær
óþekktum kylfingi, Brian Watts
frá Bandaríkjunum, sem Ieiðir.
„Ég lék eins og hundur. Ég er
þreyttur og þarfhast hvíldar,"
sagði Baiiesteros sem hefur verið
langt sínu besta að undanförnu.
-GH
JafntáNesinu
Þrír leikir voru í 2. deild karla
á íslandsmótinu í handknattleik
í gær og uröu úrslít þessi:
Grótta-Afturelding 23-23, Fylk-
ir-UBK 23-25 og Fjölnir - Ögri
27-15.
-GH
Hörku borðtennismót
Landsbankamótið í borðtennis
fer fram í íþróttahúsi Kennarahá-
skólans á laugardaginn. Alit
besta borðtennisfólk landsins
veröur á meðal keppenda auk
tveggja erlendra, Breta og Svia,
sem hafa unniö til affeka á mót-
umerlendis, Mótið hefst klukkan
13.30 en úrslit klukkan 16,30.
-GH
Mikílvægur ÍR-sigur
ÍR sigraði ÍS, 69-57, í 1. deild
karla í körfuknattleik í gær. Meö
þessum sigri treystu ÍR-ingar
stööu sína í 2. sæti B-riðils en tvö
efstu liðin úr hvorum riöii kom-
ast í úrslitakeppni um úrvals-
deildarsæti. -GH
Haukar (31) 80
Skallagr. (49) 90
0-5,4-14,8-22,12-31,16-37,23-39,
25-46, (31-49), 41-53, 48-60, 54-60,
62-67, 68-77, 76-80, 80-83, 80-90.
Stig Hauka: Rhodes 25, Pétur
Ingvarsson 17, Jón Örn 12, Bragi
10, Jón Amar 7, Sigfús 5, Sveinn 4.
Fráköst Hauka: 21 í vöm, 15 í
sókn, Rhodes 16 (+ 3 blokk).
Stig Skallagríms: Birgir 31, Alex-
andr Ermolinskij 25, Henning 9,
Elvar 8, Gunnar 7, Eggert 5, Bjarki
3, Skúli 2.
Fráköst Skallagríms: 17 í vöm,
12 í sókn, Ermolinskij 9 (1 blokk).
3ja stiga körfur: Haukar 2,
Skallagrímur 5.
Vítanýting: Haukar 63,6%
(22/14), Skallagrímur 80,6% (31/25).
Villur: Haukar 25 (Jón Amar 5,
Rhodes 5), Skallagrímur 20.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Kristinn Óskarsson, ágætir.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Birgir Mikaels-
son, Skallagrími.
Enn von hjá
Skallagrími
eftir óvæntan sigur á Haukum, 80-90
Skallagrímur eygir enn von um að
komaSt í úrslitakeppnina um ís-
landsmeistaratitilinn í körfuknatt-
leik eftir óvæntan sigur á Haukum í
Hafnarfirði í gærkvöldi, 80-90.
Borgnesingar voru yfir frá fyrstu
mínútu og náöu ótrúlegri stöðu í
fyrri hálfleik, 21 stigs forskoti. Hauk-
arnir vöknuðu í seinni hálfleik og
minnkuðu muninn í þrjú stig þegar
tvær mínútur voru eftir en Borgnes-
ingar gerðu síðustu sjö stigin.
„Þetta var sætur sigur, sérstaklega
fyrir mig, og þaö sýndi sig aö viö
vorum tilþúnir í leikinn en þeir ekki.
Viö þurftum að vinna, með tapi hefð-
um við verið úr leik, en þetta þýðir
að við erum áfram í þaráttunni. Mér
fannst jaðra viö vanmat hjá Haukun-
um, enda telja þeir sig örugga í úr-
slitakeppnina en þeir þurfa enn að
vinna tvo leiki,“ sagði Henning
Henningsson, leikstjórnandi Skalla-
gríms og fyrrum Haukamaður, með
bros á vör viö DV eftir leikinn.
Birgir Mikaelsson og Alexandr Er-
mohnskij léku stórvel meö Skalla-
grími, einkum Birgir sem sýndi gíf-
urlegt öryggi. Gunnar Þorsteinsson
var einnig óhemjugrimmur undir
körfunni og í heild skiluðu Borgnes-
ingar mjög góöum leik og héldu haus
þó á móti blési í seinni hálfleik.
Fyrri hálfleikur var sjálfsagt það
lélegasta sem Haukar hafa sýnt í
vetur en þeir tóku sig á eftir hlé.
Þeir verða að leika mun betur ætli
þeir sér einhvern hlut í úrslitakeppn-
inni. John Rhodes var þeirra lang-
besti maður.
Stórleikur Jóns
- þegar Keflavík vann sigur á KR
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Ég held aö dagskipunin hjá þeim
hafi verið að spila fast og jafnvel gróft
til aö koma okkur úr jafnvægi. Það
tókst hjá þeim, við létum þetta fara
í skapið á okkur en náðum að hemja
það á góðum tíma,“ sagði Jón Kr.
Gíslason, þjálfari og leikmaður ÍBK,
við DV eftir sigur sinna manna á KR,
108-103, og réðust úrslit ekki fyrr en
á lokasekúndum leiksins.
KR byrjaði leikinn vel og kom ný-
krýndum bikarmeisturum í opna
skjöldu með því að skora 6 fyrstu
stigin. Keflvíkingar voru fljótir að
jafna metin og leikurinn var í járnum
allan hálfleikinn.
Þegar líða tók á síðari hálfleikinn
lentu KR-1ngar í villuvandræðum og
misstu Friðrik Ragnarsson út af með
5 villur. Stuttu síðar voru allir bak-
verðir liðsins komnir með 4 villur.
Keflvíkingar pýttu sér það og náðu 11
stiga forskoti og héldu þá flestir að
eftirleikurinn yrði auðveldur fyrir
heimamenn. KR-ingar náðu upp mik-
illi stemningu og náðu að jafna metin
þegar 2 mínútur voru eftir. Þegar 36
sekúndur voru eftir var staðan 105-103
fyrir ÍBK en KR-ingar misstu boltann
á klaufalegan hátt og Guðjón Skúlason
innsiglaði sigur bikarmeistaranna.
„Ég er mjög óánægður með að tapa
þessum leik. Sigurinn gat lent hvor-
um megin sem var en þeir voru
heppnari undir lokin og við gerðum
örlagarík mistök. Bæði liöin léku fast
en leikurinn var örugglega skemmti-
legur á að horfa,“ sagði Friðrik Rún-
arsson, þjálfari KR, eftir leikinn.
Jón Kr. Gíslason átti stórleik í hði
Keflvíkinga. Hann dreif lið sitt áfram
með gríðarlegri baráttu, skoraði
grimmt og átti 13 glæsilegar stoð-
sendingar.
Góður sigur hjá KR
Fjögur liö beijast um þijú sæti í
úrslitakeppni 1. deildar kvenna í
körfuknattleik. Aðeins Keflavík er
öruggt með sæti en liðið hefur ekki
tapað leik í vetur og er löngu búið
aö tryggja sér sigur í undankeppn-
inni.
í gærkvöldi mætti ÍR KR í Selja-
skóla og sigraði KR með tíu stiga
mun, 74-64. KR-ingar voru greini-
lega búnar að jafna sig eftir bikar-
úrslitaleikinn á laugardag og tóku
strax forystu í leiknum. ÍR-ingar
náöi aldrei að jafna og lentu í stöð-
ugum eltingaleik, léku langt undir
getu og var leikur þeirra tilviljana-
kenndur og óagaður. Það er ljóst
að liðið þarf að taka sig verulega á
ætli það sér stóra hluti í úrslita-
keppninni. KR-ingar hafa hins veg-
ar stööugt verið að bæta sig og
hafa vænlega stöðu í deildinni. Hin
liðin, sem berjast um sæti í úrslita-
keppninni, eru Grindavík og ÍS.
Guðbjörg Norðfjörö var best aö
venju í liöi KR en hún skoraði 25
stig í leiknum. Hjá ÍR voru Hildi-
gunnur Hilmarsdóttir og Linda
Stefánsdóttir bestar, Hildigunnur
skoraði24stigogLinda20. -ih
Keflavlk (47) 108
KR (46) 103
0-6,6-6,21-19,30-25,34-35,40-42,
44-46, (47-46), 61-55, 61-60, 82-71,
86 80, 88 88, 99-99, 103-101,
108-103.
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 28,
Jonathan Bow 19, Guðjón Skúla-
son 19, Hjörtur Harðarson 11,
Kristinn Friðriksson 10, Nökkvi
Jónsson 9, Albert Óskarsson 8, Sig-
urður Ingimundarson 4.
Stig KR: Keith Nelsou 29, Guðni
Guðnason 29, Hermann Hauksson
22, Friðrik Ragnarsson 8, Sígurður
Jónsson 6, Lárus Ámason 4, Hraih
Kristjánsson 3, Óskar Krisijáns-
son 2.
Fráköst: ÍBK 28, KR 42.
3ja stiga körfur: ÍBK 6, KR 3.
Dómarar: Bergur Steingrímsson
og Víglundur Sverrisson. Áttu
meira en slakan dag og misstu tök
á leiknum strax í byrjun.
Áhorfendur: 400.
Maður leiksins: Jón Kr. Gisla-
son, ÍBK.
Staðan
Haukar - Skallagr.....80-90
Keflavík - KR.........108-103
A-riðill:
Keflavík..19 17 2 1972-1704 34
Haukar....19 14 5 1700-1566 28
Njarðvík..18 8 10 1673-1651 16
Tindastóll... 19 6 13 1602-1774 12
UBK.......18 2 16 1588-1767 4
B-riðill:
Snæfell...19 12 7 1654-1679 22
Valur.....18 10 8 1469-1454 20
Grindavík... 18 9 9 1515-1464 18
Skallagr..19 8 11 1576-1604 16
KR .......19 7 12 1558-1634 14
• í kvöld eru tveir leikir. UBK
og Grindavík leika í Kópavogi og
í Njarðvík taka heimamenn á móti
Val. Báðir leikimir hefjast klukk-
an 20. Á þriðjudag leika síðan
Grindavík-Keflavík og Valur-
Tindastóll.
1. deild karla í handknattleik:
Víkingurinn Friðleifur Friðleifsson fær hér heldur betur að finna fyrir því hjá Eyjamönnum í vörninni í leik liðanna í Víkinni í
gær. Vikingar höfðu betur og möguleikar þeirra að komast í úrslitakeppnina eru góðar. DV-mynd Brynjar Gauti
Tvö langþráð stig
- sagði Ami Friðleifsson eftir sigur Víkinga a Eyjamönnum
Eftir fjórar frestanir mættust Vík-
ingar og Eyjamenn loksins í gær-
kvöld í Víkinni í 1. deild handbolt-
Víkingur (14) 27
IBV (13) 25
1-0, 4-0, 6-6, 8-8, 10-8, 12-12,
(14-13), 14-15, 17-17, 19-17, 22-21,
24-21, 25-24, 26 25, 27-25.
Mörk Víkings: Árni Friðleifsson
9, Bjarki Sigurösson 8/2, Gunnar
Gunnarsson 4/3, Lárus Sigvalda-
son 3, Helgi Bragason 2, Friðleifur
Friðleifsson X.
Varin skot: Alexander Revine
14/1, þar af 2 til mótherja.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍBV: Sigurður Gunnarsson
7/3, Björgvin Rúnarsson 6, Sig-
björn Óskarsson 4, Erlingur Ric-
hardsson 3, Zoitan Bclányi 3, Guð-
finnur Kristroannsson 2.
Varin skot: Sigmar Þröstur Ósk-
arsson 9, þar af 2 til mótherja.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Gunnar Kjartansson
og Óli P. Ólsen. Dæmdu vel en Óli
var aðeins of strangur.
Áhorfendur: Um 280.
Maður ieiksins: Ámi Friðleifs-
son, Víkingi.
ans. Víkingar höfðu betur í hörku-
leik, 27-25. Svo sannarlega fór um
heimamenn þegar tveir Víkingar
Staðan
Stjarnan.18 12 4 2 448-419 28
FH ...18 12 2 4 483-436 26
Valur ... 18 10 6 2 431-388 26
Selfoss.... ...18 9 3 6 466-448 21
Haukar... ...18 9 1 8 482^45 19
Víkingur ...18 9 1 8 424-423 19
KA ...18 7 3 8 415-421 17
ÍR ...18 7 3 8 427^436 17
ÍBV ...18 5 3 10 425-453 13
Þór ...18 5 2 11 430-474 12
Fram ...18 3 3 12 433-465 9
HK ...18 4 1 13 420-476 9
• Markahæstir:
Sigurður Sveinsson, Selfossi 141/50
Petr Baumruk, Haukum......128/45
Sigurpáll Aðalsteinss, Þór.„. 126/56
Michal Tonar, HK..........121/25
Páll Þórólfsson, Fram.....118/50
Magnús Sigurðsson, Stjömu 114/45
Valdimar Grímsson, Val....113/35
ZoltánBelánýi, ÍBV........107/46
fengu brottrekstur þegar tæp mínúta var eftir
en Eyjamönnum tókst ekki aö nýta sér liðsmun-
inn.
Fjörið byijaði á því að leiknum var frestað
um hálftíma vegna seinkunar Eyjamanna með
fluginu. Sannkölluð frestuð viðureign! Víkingar
byrjuðu betur, komust í 4-0, og engu líkara en
Eyjamenn væru ekki lentir. En þeir komust
fljótlega inn í leikinn og fyrri hálfleikur varð
hnífjafn. Víkingar höfðu þó smáforskot í hléinu.
Baráttan hélt áfram í seinni hálfleik en Vík-
ingar ætíð skrefinu á undan. Munaði þar mest
um fallbyssuskot Áma Friðleifssonar auk þess
sem Bjarki var dijúgur.
Ámi og Bjarki hafa verið nefndir sem fremst-
ir Víkinga en Alexander Revine var frábær í
markinu. Sigurður þjálfari Gunnarsson og
Björgvin Rúnarsson voru skástir Eyjamanna
og Sigmar Þröstur varði ágætlega.
„Við gáfum Víkingum boltann nokkrum sinn-
um í lokin og vorum skreflnu á eftir. Árni var
í ham og Revine varði vel. Annars heföi þetta
getað endað hvernig sem er,“ sagði Sigmar
Þröstur, fyrirliði Eyjamanna, eftir leikinn.
„Annaðhvort er maður kóngur eða skunkur.
Núna var það kóngur enda hef ég æft skotin
vel að undanfórnu. Eyjamenn em alltaf erflðir
en við ætluðum okkur langþráð tvö stig úr þess-
um leik,“ sagði hetja Víkinga, Árni Friðleifs-
son, við DV.
-bjb
Öllufrestað
íMorioka
Ekkert var hægt að keppa á
heimsmeistaramótinu á skíðum í
Morioka í Japan í morgun vegna
veöm-s. Keppni í risastórsvigi
karla og kvenna var frestað
vegna roks og þaö voru mikil
vonbrigði fy rir Anitu Wachter frá
Austurríki, sem hafði stefnt að
því að halda upp á 26. afmæiis-
dagimi með þriðju verðlaunum
sínum á mótinu.
Tennisstjömumar Monika Se-
les frá Júgóslavíu og Jim Courier
frá Bandaríkjunum komust í
hann krappan á stórmótum vest-
anhafs í nótt, Seles vann nauman
sigur á Brendu Schulz frá Hol-
iandi, 4-6, 7-6, 6-4, á Virginia
Siims stórmótinu í Chicago og
Jim Courier marði Brett Steven
frá Nýja-Sjálandi, 6-4,1-6, 7-6, á
Stjude-mótinu sem fram fer í
Memphis í Tennessee.
MrdísEdwald
verðurmeð
Þórdís Edwald, fyrrum íslands-
meistari í badminton, er komin
íil landsins frá Bandaríkjunum
til að taka þátt í íslandsmótinu
sem fram fer í Laugardalshöllinni
um helgina.
Þó er óvíst hvort hún verður í
fullu fjöri því Þórdís veiktist við
heimkomuna og hefur legið rúm-
fóst síðustu daga.
Nánar er íjallað um íslands-
mótið á bls. 23 í dag.
Það verða 35 þátttökulið í 4.
deildarkeppninni í knattspymu í
surnar, þreinur fleiri en a síðasta
ári, og þau leika í fjoruin riölum.
Að þessu sinni komast tvö efstu
liöin í hveijum riðli í úrslita-
keppnina en til þessa hefur að-
eins eitt komist áfram.
Ekkert lið, sem var með í fyrra,
hefur hætt þátttöku en tvö lið á
Austurlandi hafa reyndar veriö
sameinuð í eitt. Það eru Leiknii-
á Fáskrúðsfiröi og KSH frá Stöðv-
arfiröi og Breíödalsvík, sem
senda sameiginlegt lið undir
nafninu KBS.
Riðlarnir 4 eru þannig skipaðir:
A-riðill:
Hamar (Hveragerði), Afturelding
(Mosfellsbæ), Léttir (Reykjavík),
Amor (Vestmannaeyjum), HB
(Hvolsvelli), Víkingur (Ölafsvík),
Snæfell (Stykkishóimi), Fjölnir
(Reykjavík), Árvakur (Reykja-
B-riðill:
; Víkveiji (Reykjavík), Boiungar-
vík, / Hafnir (Keflarik), Leiknir
(Reykjavík), Njarð\'ik, Ægir (Þor-
lákshöfn/Eyrarbakka), Amann
(Reykjavik), Hvatberar (Seltjarn-
amesi), Emir (Selfossi).
C-riðill:
Kormákur (Hvanunstanga), KS
(Siglufirði), Neisti (Hofsósi), SM
(Eyjafirði), HSÞ-b (Mývatns-
sveit), Hvöt (Blönduósi), Þrymur
(Sauðárki-óki), Dagsbrún (Eyja-
D-riðill:
Valur (Reyðarfirði), Austri (Eski-
firði), Huginn (Fellum), Höttur
(Egilsstöðum), Neísti (Djúpa-
vogi), Sindri (Homafirði), Huginn
(Seyöisfirði), Einheiji (Vopna-
firði), KBS (Fáskrúðsfirði/Stöðv-
arfirði/Breiðdalsvík).
íþróttir
NB A-deildin í körfuknattleik í nótt:
Knicks í ham
- harður slagur nýliðanna í Charlotte
New York Knicks tók Houston
heldur betur í bakaríið í NBA-
deildinni í körfuknattleik í nótt
þegar liðin mættust í Madison
Square Garden. Með Patrick Ew-
ing í fararbroddi vann New York
sinn sjötta leik í röð, með 30 stiga
mun, og liðið gerir nú harða hríð
að Chicago á toppnum í Austur-
deildinni. Ewing skoraði 24 stig
og John Starks 23 fyrir New York
en Hakeem Olajuwon skoraði 21
stig fyrir Houston og tók 11 frá-
köst.
Úrslitin í nótt urðu þessi:
Charlotte - Orlando.....116-107
New York - Houston......125-95
SA Spurs - Washington...105-95
Seattle-Utah............96-101
Golden State - Phoenix..100-122
Sacramento - Atlanta....116-105
Nýliðamir sterku, Shaquille
O’Neal og Alonzo Mouming,
háðu gríðarlega baráttu þegar
Charlotte fékk Orlando í heim-
sókn. O’Neal var sterkari, skor-
aöi 29 stig og tók 15 fráköst en
Mouming skoraði 27 og tók 14
fráköst. Mourning hrósaði hins
vegar sigri því Charlotte náði að
tryggja sér sigur með góðum
lokaspretti.
Sacramento vann sinn fyrsta
sigur í sjo leikjum þegar Atlanta
kom í heimsókn. Mitch Rich-
mond skoraði 24 stig fyrir Sacra-
mento en Kevin Willis 25 og Dom-
inique Wiikins 24 fyrir Atlanta.
Avery Johnson setti persónu-
legt met þegar hann skoraði 23
stig í sigri SA Spurs á Washing-
ton, og átti auk þess 10 stoðsend-
ingar. David Robinson skoraði 18
stig, tók 15 fráköst og blokkaði 5
skot fyrir Spurs sem vann sinn
sjötta leik í röð, 13. í röð á heima-
velli. Pervis Ellison skoraði 26
stig og tók 10 fráköst fyrir Was-
hington.
Seattle gefur enn eftir og tapaði
nú heima fyrir Utah, sem þar með
komst upp fyrir Seattle í þriðja
sæti Vesturdeildarinnar. John
Stockton skoraði 23 stig fyrir
Utah og átti 11 stoðsendingar,
Jerry Humphries gerði 20 og Karl
Malone var með 15 og 12 fráköst.
Shawn Kemp skoraði 12 stig fyrir
Seattle og tók 16 fráköst.
Charles Barkley skoraöi 26 stig
og tók 19 fráköst þegar Phoenix
vann sinn sjötta leik í röð, gegn
Golden State sem tapaði sínum
áttunda í röð. Danny Ainge var
þó hæstur hjá Phoenix með 33
stig og gerði 7 þriggja stiga körf-
ur. Sarunas Marciulionis skoraði
24 stig fyrir Golden State.
-VS
Stjömulelkur í körfubolta í Valsheimilinu á morgun:
Körfuboltaveisla
lesendur DV og Morgunblaðsins völdu byrjunarliðin
John Taft og Báröur Eyþórsson eru báðir ! byrjunarliði í Stjörnuleiknum.
Stjörnuleikur KKÍ og Samtaka
íþróttafréttamanna verður haldinn í
Valsheimilinu á morgun, laugardag.
Þar mætast úrvalslið leikmanna úr
og A-riðli og B-riðli úrvalsdeildarinn-
ar. Lesendur DV og Morgunblaðsins
völdu byijunarliðin en þjálfarar
þeirra liða, sem eru í efstu sætunum
í riðlunum, Jón Kr. Gíslason, ÍBK,
og ívar Ásgrímsson úr Snæfelli völdu
þá 7 leikmenn sem koma til viðbótar
í liðin.
Byijunarliöin, sem lesendur DV og
Morgunblaðsins völdu, eru þannig
skipuð auk atkæðamagns:
A-riðill:
Joe Wright, UBK..................162
John Rhodes, Haukum..............160
Teitur Örlygsson, UMFN...........152
Guðjón Skúlason, ÍBK.............134
Jonathan Bow, ÍBK.............130
•Auk þeirra eru: Valur Ingi-
mundarson, UMFT, Jón Kr. Gísla-
son, ÍBK, Rondey Robinson, UMFN,
Reymond Foster, UMFT, Páll Kol-
beinsson, UMFT, Pétur Ingvarsson,
Haukum og Jón A. Ingvarsson,
Haukum.
B-riðill
JohnTaft, Val.................164
Guðmundur Bragason, UMFG......154
Keith Nelson, KR..............138
Bárður Eyþórsson, Snæfelli....138
Birgir Mikalesson, UMFS.......130
• Auk þeirra: Jonathan Roberts,
UMFG, Shawn Jamison, Snæfelli,
Alaxander Ermolinskij, UMFS,
Kristinn Einarsson, Snæfelli, Friðrik
Ragnarsson, KR, Pálmar Sigurðsson,
UMFG og Magnús Matthíasson, Val.
Dagskráin hefst klukkan 16 með
undankeppni í troðslum og í 3ja stiga
skotkeppni en klukkan 16.20 hefst
leikurinn sjálfur. í háifleik verður
keppt til úrslita í troöslum og 3ja
stigaskotum. -GH
Svíar náðu að hef na
Svíar náðu aö hefna ófaranna gegn Dönum í öðrum landsleik þjóðanna
á jafnmörgum dögum í handknattleik í Lundi gærkvöldi. Svíar sigruöu,
29-21, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 15-11. Magnus Wislander skoraði
8 mörk fyrir Svía, Robert Anderson 5, Magnus Anderson 5/4 og Jerry
Hallbáck 4. Erik Veje Rasmussen skoraði 6/2 fyrir Dani, Jesper Holmris
Larsen 5 og Jan Jörgensen 4.
-GH
I gærmorgun var skrifstofa Hand-
knattleikssambands íslands innsigl-
uð og lokað að kröfu Gjaldheimtunn-
ar. Skattayfirvöld ákváöu að fara
þessa leið þar sem HSÍ hafði ekki
staðið skil á staðgreiðslu skatta
starfsmannanna upp á 300 þúsund
krónur. Skuldin var greidd eftir há-
degi og voru peningar sóttir til ÍSÍ
en þar átti HSÍ inni peninga.
DV-mynd Brynjar Gauti/GH