Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993. Ötlönd Bandaríski fótboltakappinn Dennis Byrd staðinn á fætur eftir mænuskaða: Kraftaverki líkast að maðurinn getur gengið - íslenski læknirinn Kristján Ragnarsson hefur stjómað endurhæfmgu Byrd „Ég vissi ailtaf að Dennis myndi ganga á ný. Við trúðum því bæði í hjarta okkar áð þetta myndi gerast," sagði Angela Byrd, eiginkona banda- ríska fótboltakappans Dennis Byrd þegar hann gekk í gærkvöldi inn á blaðamannafund í New York. Byrd skaddaðist á mænu í leik í haust og lamaðist frá hálsi og niður úr. Þá var talið ólíklegt að hann myndi nokkru sinni stíga í fætuma á ný en nú fær hann að ganga heim í bókstaflegri merkingu eftir vel heppnaða skurðaðgerð og endurhæf- ingu. Islenski læknirinn Kristján Ragn- arsson við Mount Sinai sjúkrahúsið stjórnaði meðferð Byrd og er honum þakkað hve vel hefur til tekist. Kristj- án sagði á blaðamannafundinum í gær að Byrd væri nú svo vel á sig kominn að hann gæti haldið áfram endurhæfingunni á göngudeild. „Það er margt óljóst enn um fullan bata,“ sagði Kristján. „Batinn hefur verið ótrúlegur til þessa en hve mik- iö honum fer fram eftir þetta vitum við ekki.“ Á blaðamannafundinum sagðist Byrd vera ólýsanlega ánægður með Kristján Ragnarsson, læknir við Mount Sinai sjúkrahúsið. að geta loks staðið á ný. Hann var hrærður og þakkaði öllum sem hjálp- uðu honum við að komast á fætur aftur. Byrd fer nú til heimabæjar síns, Tulsa í Oklahoma, og verður í endurhæfingu þar. Kristján sagði að Byrd gæti nú bjargað sér að öllu leyti sjálfur og enn væri ekki útséð um hvort hann léki fótbolta á ný. Byrd var með dýmstu atvinnumönnum í ameríska fótbolt- anum. Reutcr Ciaudia Schmid flugfreyja forðar sér frá fréttamönnum í New York. Flugræninginn neyddi hana til að hleypa sér inn í flugstjórnarklefann. Símamynd Reuter Flugræningi Lufthansaþotunnar gafst upp við komuna til New York: Ef þú snýrð f lugvélinni ekki vestur skýt ég þig Flugræningi, sem miðaði byssu á höfuð flugstjórans og hótaði aö skjóta hann ef hann flygi Lufthansaþotunni af Airbus gerð með 104 farþega inn- anborðs ekki til New York, gafst upp fyrir lögreglu þegar vélin lenti á Kennedyflugvelli í New York í gær- kvöldi. „Ef þú snýrð vélinni ekki við og ferö í vestur skýt ég þig,“ hafði Ger- hard Göbel flugstjóri eftir flugræn- ingjanum. Flugvélin hafði þá verið á lofti í 40 mínútur og var á leið frá Frankfurt til Kairó og Addis Ababa. „Ég hélt að þetta væri gabb en bara í smástund," sagði Göbel viö frétta- menn á Kennedyflugvelli. Yfirvöld höfðu ekki alveg á hreinu hvað maðurinn héti, hverrar þjóðar hann væri eða hvað honum hefði gengið til. Þýskir embættismenn sögðu í fyrstu að flugræninginn væri 32 ára gamall Sómali, Shuriye Farah Siyad, sem ætlaði að fara fram á hæli í Bandaríkjunum og vildi að banda- rísk stjórnvöld hefðu afskipti af stríðsátökunum í Bosníu. En bandaríska alríkislögreglan FBI í New York sagði að maðurinn héti Nebiu Zewolde Demeke, tvítugur Marokkóbúi merð egypskt vegabréf. Þá sagði saksóknari í New York á fundi með fréttamönnum að „allt benti til“ að flugræninginn væri Eþí- ópi með gilt vegabréf frá eigin landi en kynni að hafa búið áður í Mar- okkó og Þýskalandi. Flugmaðurinn sagði að flugræn- inginn hefði einungis rænt vélinni af persónulegum ástæðum og sama sagði saksóknari. Samningalið FBI náði sambandi við flugræningjann klukkustund áö- ur en vélin lenti í New York. Eftir samningaviðræður við sérfræðinga í gíslatöku afhenti ræninginn flug- manninum byssu sína sem rétti hana síðan út um gluggann svo allir gætu séð hana. Einn farþeganna, Fedor Gouverne- ur, lýsti flugræningjanum sem „lag- legum og svölum eins og agúrku“. Hann var um 167 sentímetrar á hæð. Þegar vélin lenti í New York af- henti flugmaðurinn ræningjanum sólgleraugun sín. „Hann skildi eftir svarta hattinn sinn og þakkarmiða.“ Reuter Clintonskipar hörkukonuí embættidóms- málaráðherra Bill Clinton hefur skipað Janet Reno í embætti dómsmálaráð- herra. Forsetinn sagðist nú von- ast til að allar raunir viö að flnna konu i þetta ráöheraembætti væru á enda en áður hafa tvær konur orðiö að víkja eftir að hafa haft ólöglega innflytjendur í vinnu. Reno er saksóknari og hefur getið sér orð fyrir hörku í mál- sóknum á hendur eiturlyfjasöl- um. Húrt hefur starfað á Flórída í fimmtán ár. Clinton sagðist ekki hafa valið hana vegna þess að hún væri kona heldur vegna hæfileika hennar. Bankaræninginn vakti athygli f yr- irnefstærð Jón G. Guðmundsson, DV, Ástralíu: Ræningi, sem lét greipar sópa í banka einum nærri Brisbane í Ástralíu fyrir skömmu, hefur fengið viðurnefnið Gosi hjá lög- reglunni. Ástæðan er að sjálf- sögðu risastórt nef hans. Lögregl- an bindur miklar vonir við að það verði til þess að hann náist. Að sögn starfsmanna bankans varð þeim jafn starsýnt á nef ræningjans og byssuna sem hann beindi að þeim. Fimm aðrir bankar hafa verið rændir í Brisbane að undanfomu og hefur enginn ræningjanna náðst. Norsktfyrirtæki hrífurmeðlaxií ólífuolíu Norska fyrirtækið Alamar í Lofoten hefur framleiðslu á nýrri vöra í þessum mánuði, laxi í ólífuolíu, og hefur ársframleiðsl- an þegar verið seld til Ítalíu. Framleiðsla þessi skapar 25 manns atvinnu og andvirði henn- ar er um 450 milljónir íslenskra króna. ítalimir hafa lýst yfir mikilli hrifningu með hina nýja vöru sem kemur í þremur útgáfum. Um er að ræða lax í ólífuolíu, reyktan lax í ólífuolíu og lax í saltpækli. Um eitt þús. tonn af eldislaxi fara í ársframleiðsluna. Einiskóburstari Fmnlandslegg- urburstanaá hilluna Eini skóburstarinn í Finnlandi, 69 ára gamall rússneskur inn- flvtjandi að nafni lænotíj ivanov, ætlar að leggja burstana á hilluna um leið og hann hefur efni á að borga skattana sína. Ivanov hefur stundað iöju sína á aðalbrautarstöð Helsinki í rúm- an áratug. Hann sagði í viðtali víð blaðíð Helsingin Sanomat að hann væri ekki viss um hve lang- an tíma þaö tæki hann að borga eftirstöðvaraar þar sera kúnnar væru fáir í kreppunni. „Ég vil ekki skulda neinum neitt og hef aldrei gert,“ sagði hann. Köttur einn sem strauk fyrir nokkru af rússnesku skipi í bæn- um Karlshamn í Svíþjóð hefur heldur betur snert viðkvæmar taugar kattavina. Peningar ber- ast nú i striðum straumum til björgunarmanns kattarins. Karin Grundberg í Stokkhólmi átti frumkvæðið að því að bjarga kettinum. Hún hefur til þessa fengiö sjö þúsund sænskrar krón- ur frá kattavinum. Alls þarf um ftmmtán þúsund krónur til að borga fyrir sóttkví og annað nauðsynlegt. Danskastjórain krefstlokunar sænskskjam- orkuvers Birte Weiss, innanríkisráð- herra Danmerkur, hefur end- urnýjað þrýstinginn á sænsk stjóravöld um aö loka kjaraorku- verinu í Barsebáck sem er aðeins tuttugu kílómetra frá Kaup- mannahöfn. Weiss lét það verða eitt af fyrstu verkum sínum i ráðherrastóln- um að senda bréf til Olofs Johans- sons, umhverfisráðherra Sví- þjóðar, þess eMs. Síðasta ríkisstjóm Danmerkur reyndi líka að fá verinu lokað, síðast í janúar þegar það var gangsett aftur eftir margra mán- aða hlé vegna bilana i neyðar- kæhkerfi þess. Fynrumkommi sigurstranglegur íUtháen Algirdas Brazauskas, fyrrum leiötogi kommúnista í Litháen, er sígurstranglegur í forseta- kosningunum sem þar fara fram á sunnudag. Bilið milii hans og helsta keppinautarins, þjóðernis- sinnans Stasys Lozoraitis, fer þó minnkandi, ef marka má skoö- anakannanir. Brazauskas er spáð 64 prósentum atkvæða en Loz- oraitis 33 prósentum. Þótt biUð milU þeirra fari minnkandi segja blöð í Litháen aö timinn sé orðinn of naumur fyrir Lozoraitis. Gríkkjakóngur gerir upp við Konstantín, fyrnun konungur af Grikklandi, hefur gert upp við skattayfirvöld í heimalandi sínu og borgað þeim som svarar um 180 miUjónum króna. Kóngur skuidaði skatta frá því hann flýöi land árið 1967. Reuter, TT og Eitzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.