Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR12. FEBRÚAR1993 15 „Hér áður fyrr sögðu menn gjarnan að það væri um tvennt að ræða í okkar þjóðfélagi, atvinnuleysi eða verðbólgu. Af þessu tvennu töldu verkamenn sér betur borgið í verðbólgunni.“ Kom atvinnuleysið 10 árum of seint? „Að lokum tókst að telja verkalýðshreyfingunni trú um að verðbólgan væri verst af öllu vondu ..segir m.a. i grein Ragnars. auðveldara að flytja til fjármagn og fyrirtæki. Með ýmsurn aðgerðum er nú ver- ið að laga ísland að EES og EB. Búið er að losa um ýmsar hömlur sem hafa verið á fjármagnsútflutn- ingi. Fjármagnsflótti gæti leitt til hruns. Stjómvöld ráða ekki við það skrímsh sem þau hafa sjálf vakið upp. En þau reyna að hadda í fjár- magnið með háum vöxtum. Þessir háu vextir valda því svo að dregur úr öhum framkvæmdum og atvinnuleysið vex. Þannig hefur sú stefnumótun stjórnvalda að ganga í EES beinlínis leitt af sér atvinnuleysi hér á landi, nú þegar. Atvinnuleysi brot á mannréttindum Að banna mönnum að taka þátt í lífsbaráttunni er brot á öllu því sem við teljum helgast í mannlegu samfélagi. Vissulega er það mann- réttindabrot, sem menn geta kannski afsakað með því að for- kólfarnir hafi ekki vitað hvað þeir voru að gera. En að vera að koma hér í gegn ftjálshyggjustefnu í anda Thatcher, meira en 10 árum eftir að afleiðing hennar var komin í ljós í Bretlandi og víðar í Evrópu, er ekki afsakanlegt. Ragnar Stefánsson lögmál. En það er nú aldeihs ekki. Hér áður fyrr sögðu menn gjaman að það væri um tvennt að ræða í okkar þjóðfélagi, atvinnuleysi eða verðbólgu. Af þessu tvennu töldu verkamenn sér betur borgið í verð- bólgunni. Af langri og biturri reynslu vissu menn að afkoman var þó skárri þegar það var fýsilegt að fjárfesta í fasteignum og fram- kvæmdum heldur en á þeim tímum þegar það borgaði sig að leggja allt fé í banka. Að lokum tókst að telja verka- lýðshreyfingunni trú um að verð- bólgan væri verst af öhu vondu, og svo vond að það bæri að fórna kjarabaráttunni til að ná henni nið- ur. Niðurstöðuna sjáum við nú, lægstu raunlaun um langt skeið og atvinnuleysi. Atvinnuleysi Evrópu bersttil íslands Inngangan í EES leiðir th jöfnun- ar á aðstæðum fyrirtækjanna á svæðinu. Mikið atvinnuleysi í einu landi gerir það land girnilegt fyrir fjárfestingar, enda búist við því að þar séu verkamenn auðmjúkir og nægjusamir. Lítið atvinnuleysi leiðir hins vegar til íjármagns- flótta. Þannig smitast atvinnuleys- ið milli landa þegar það verður Jón Baldvin sagði á blaðamanna- fundi úti í Kaupmannahöfn nýlega að íslendingar væru 10 ánun á eft- ir tímanum í öllum hlutum, og ekki væri ólíklegt að eftir 10 ár mundi ísland sækja um aðild að EB. Mér datt í hug þegar hann sagði þetta að við værum líka 10 árum á eftir í að koma á atvinnuleysi. Hin- um víðsýnu „Evrópusinnum" á borð við Jón er nú að takast þetta með markvissum aðgerðum. Fyrir þessum mönnum er atvinhuleysið ekki neyð, nei, þaö er hagfræðileg tala sem gerir fsland að nýtísku Evrópulandi. Atvinnuleysi eða verðbólga Einhveijum flnnst þetta harður dómur, atvinnuleysið sé náttúru- Kjallariim Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur Röskva 5 ára Föstudaginn 12. febrúar 1988 var boðað th stofnfundar nýs félags stúdenta í Háskólanum. A þessum fjölmenna fundi varð Röskva th, samtök félagshyggjufólks í Háskóla íslands. Með stofnun félagsins var brotið blað í hagsmunabaráttu stúdenta þegar félagshyggjuöfl inn- an Háskólans sameinuðust í einni sterkri breiðfylkingu. Nafn félagsins er fengið að láni úr goðafræðinni. Sagan segir að Þór hafi tekið systkinin Þjálfa og Röskvu í þjónustu sína og Röskva htla var eins og nafnið ber með sér úrræðagóð og atorkusöm. Þaö var líka atorkusamur hópur sem bauð vonglaður fram hsta til kosninga voriö 1988. í þessum fyrstu kosn- ingum Röskvu th stúdenta- og há- skólaráðs vann Vaka nauman sig- ur. Nýirtímar Það var síðan vorið 1991 sem Röskvusólin skein björt og fögur þegar félagið vann glæshegan kosningasigur og hefur, þegar þetta er ritað, hlotið meirihlutafylgi í síð- ustu tvennum kosningum. Merki félagsins hefur frá upphafi verið sólarupprás og er það e.tv. tákn- rænt fyrir þær breytingar sem átt hafa sér stað undir stjóm Röskvu 1 þau tvö ár sem hún hefur stjómað stúdentaráði. Þegar Röskva tók við stjórnartaumum vorið 1991 voru strax boðaðar miklar breytingar. KjaUaiinn Steinunn V. Óskarsdóttir sagnfræðingur Eftir að forystumenn stúdenta höföu um þriggja ára skeið einbhnt á þröngt skhgreinda hagsmuni stúdenta í starfl sínu og baráttu var blásið th sóknar á öllum vígstöðv- um. Menningarátaki var hrint af stað og kjörorð félagsins varð „Lif- andi Háskóli". Síðasthðinn vetur einkenndist af harðri lánamálabar- áttu sem ahar námsmannahreyf- ingamar stóðu sameinaðar að. Segja má að barátta námsmanna í lánamálum sé sífehd leit að hinum guhna meðalvegi, thraun th að tryggja öhum jafnan rétt án þess að ala upp óábyrga þiggjendur. Röskva hefur aha tíð mótað iána- málastefnu sína í samræmi við þetta. í vetur hefur mikh vinna verið lögð í lánamál auk baráttu fyrir eflingu Háskólans á öhum sviðum í stað hins gagnstæða. Þeim fækkar nú óðfluga sem skeha skollaeyrum við röksemdum stúdenta í umræðu um Lánasjóð . íslenskra náms- manna. Atvinnumál hafa og verið mikið i deiglunni og síðasthðið sumar var stofnaður svokallaður nýsköpunarsjóður námsmanna sem gaf um 70 námsmönnum kost á námstengdri atvinnu. Aldrei hafa fleiri notið þjónustu stúdentaráðs, hvort heldur th að fá lausn hús- næðisvanda síns, sumarvinnu, hlutastarf með námi, ráögjöf í lána- málum eða aðstoð við skipulagn- ingu félags- og menningarlífs í sinni dehd. Uppbygging stúdenta- hverfis er í fuhum gangi og nýtt dagheimih á háskólasvæðinu verð- ur tekið í notkun í vor og svo mætti lengi telja. Félagshyggja Röskva er breiðfylking fólks í H.Í., hvar í flokki sem það stendur, af þeirri einfoldu ástæðu að hags- munamál stúdenta standa og falla með félagshyggju. Nægir þar að nefna félagslegan jöfmmarsjóð th að tryggja jafnrétti th náms, sjálf- stæðan skólagjaldalausan Háskóla og öflugt félags- og menningarlíf. Um leið og ég óska Röskvu th hamingju með afmæhð veit ég að sól hennar mun skína skært th þeirra stúdenta sem ganga að kjör- borði þann 25. febrúar. Eg vona að þeir beri gæfu th að velja stefnu félagshyggjuaflanna í H.í. Stefnu sem byggist á hehbrigöri skynsemi og sterkri réttlætiskennd - stefnu stúdenta. Steinunn V. Óskarsdóttir „Aldrei hafa fleiri notið þjónustu stúd- entaráðs, hvort heldur til að fá lausn húsnæðisvanda síns, sumarvinnu, hlutastarf með námi, ráðgjöf í lánamál- um eða aðstoð við skipulagningu fé- lags- og menningarlífs... “ „Þegar ver- ið er aö tala um nýsköpun verða íslensk stjórnvöld að taka mjög jó- kvætt i sh'k mál. Það ber enginn á móti þvi að það Sverrir Leósson, sem þjóöina tormaður stjómar vantar fyrst ÚA. og fremst i dag eru auknar tekj- ur. Það þarf aö opna dyr og skapa möguleika th þess að við þurfum ekki að lenda utan í girðingum þegar svona raál koma upp. Það hefur engin áhrif á veiöar þessara skipa hvort þau fá að at- hafna sig í íslenskum höfnum eða ekki. Þessi erlendu skip eru stað- reynd. Þau hafa verið á þessum veiðisvæðum og verða það ófram hver sem gerir þau út. Það er búið að gera samkomu- lag við Efnahagsbandalag Evr- ópu um karfaveiðar erlendra skipa gegn auknimi loðnukvóta okkar. Án þess að ég geti fullyrt þaö þá hggur beinast \ið að þýska ríkið fái hluta af þeim 3 þúSund tonnum af karfa sem Efnahags- bandalagið fær hjá okkur sem þýðir að þýska fy rirtækið sem viö viftum kaupa meirihluta í fær hluta af þessum karfakvóta, hvort sem þaö verður í eigu Þjóð- vetja eða í meirihlutaeigu Út- gerðarfélags Akureyringa. Þaö hefur trúlega verið skiln- ingur og stefiia þeirra sem stóðu að þessari lagasetningu að gæta hagsrauna íslendinga, að gera þessum skipum erfiðara fyrir með því að banna þeim að at- htifna sig i erlendum höfnum. Memi hatá bara ekki reiknað með þvi að sú staða gæti komið upp að crlcndir logarar yrðu í meiri- lhutaeigu íslendinga og því horflr þetta allt öðruvísi við en annars.“ Ekki að breyta „Það þótti úrelt eftir að við fengum 200 mhna landhelgi að banna erlend- um skipum notkun ís- lenskra hafna ogþessvegna Krislján Ragnars- var lagt fyrir son> tormaður UU. Alþingi frum- varp í fyrra sem gerði ráð fyrir aö þaö yrði almennt heimht. Þá virtust mér menn liafa gleymt þvi að við eigum enn ósamiö um skiptingu á sameiginlegum stofti- um eíns og rækju og karfa viö Grænland. Svo kom upp sú spurning hvort við vildum leyfa erlendum skip- um, sera stimda t.d. veiðar á karfa viö Grænland, að sækja þjónustu í íslenskar hafnir. En málinu var snúið viö í þinginu og það baimað að skip sern veiða úr óskiptum óumsömdum stofnum fái aðgang að höfhum hér til að hindra að veiði gæti átt sér stað. Sjónarmið Grænlendinga hafa verið að fá peninga fyrir þennan veiðirétt án tillits th þess hvað stofninn getur gefið af sér, selja aðgang aö auðlindinni. Ef stunduö er rányrkja í þessiun sameighhega stofni Grænlandsmegin frá verðum við að draga úr okkar sókrn Niðurstaðan er því sú að við eigum ekki að breýta afstöðu okkar og eigum ekki að láta stundarhagsmuni um þjónustu við skip ráða því að við æöum að hafa stjóm á nýtingu á auð- lindinni sem við öll lifum á. Þetta er fljótt aö gleymast þegar stund- arhagsmunir eru annars vegar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.