Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1993, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR15. MARS1993 Fréttir Tölvunefnd veitti Reiknistofunni hf. leyfi fyrir „svörtu skránum «. Fangelsisdómur eigandans leiðir til endurskoðunar - liggur beint við nú að skoða málið, segir Jón Thors Tölvunefnd mun endurskoöa starfsleyfi sem það veitti Reiknistof- unni hf. í Hafnarfirði til að skrá nið- ur upplysingar um fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga hér á landi og selja þær - svokallaðar svartar skrár. Ástæðan er að viðskiptafræð- ingur, sem veitir fyrirtækinu for- stöðu sem stjómarformaður og framkvæmdastjóri, var á fimmtudag dæmdur til að sæta fangelsi. Eins og fram kom í DV á fóstudag var maðurinn dæmdur fyrir að hafa búið til málamyndaafsal og sölunótu fyrir prentvél og tækjum upp á 2,3 milljónir króna í þeim tilgangi að svíkja út úr ríkinu tæplega háifa milljón króna í innskatt. Viðskiptin fóru í raun aidrei fram en skjölin voru úthúin til málamynda og var skilaö til skattyfirvalda. Fram kom í dómsmálinu aö þetta var gert í þeim tilgangi að koma und- an eignum frá gjaldþroti prent- smiðjueiganda sem var í vitorði með eiganda Reiknistofunnar hf. Við- skiptafræðingurinn fékk 6 mánaða fangelsi, þar af 4 skilorðsbundið en eigandi prentvélarinnar fékk 4 mán- uði skilorösbundið. Að sögn talsmanns Tölvunefndar, Jóns Thors hjá dómsmálaráðuneyt- inu, er ljóst að nefndin mun taka mál Reiknistofunnar hf. fyrir: „Þetta er hlutur sem nefndin hefur ekki fengiö tækifæri til aö skoða enn- þá. En við verðum að gera það,“ sagði Jón. Aðspurður hvemig nefndin mundi kynna sér málið sagði Jón: „Ég býst við að við notum frétt DV til að byija með. Meira hef ég ekki séð í augnablikinu. Við skoðum mál- ið að sjálfsögðu, ég held að það liggi beint við því þarna er ákveðið vanda- mál. En til hvers það leiðir er of snemmt að spá í núna,“ sagði Jón. Samkvæmt starfsleyfi frá Tölvu- nefnd var Reiknistofunni hf. veitt starfsleyfi frá og með 4. september 1990 og gildir það til ársloka 1994. Meginverkefni fyrirtækisins hefur verið að veita upplýsingar um van- skil, nauðungaruppboð og gjaldþrot. Upplýsingamar eru sóttar til dóm- stóla. Þar sem fyrirtækiö annast það kerfisbundið að safna og selja per- sónulegar upplýsingar um einkahagi einstaklinga komu á sínum tíma mjög sterk mótmæh og gagnrýni á starfsemiþess. -ÓTT Jón Magnússon, lögfræðingur VSÍ: Erum í viðræðum við f imm kónga - undirmenn koma í veg fyrir samkomulag, segir Grímur Gíslason Nefnd um nýja vinnutilhögun í viðræöum við öll stéttarfélög áhafnarinnar var komið samkomu- lag um aö skipa nefnd fulltrúa stétt- arfélaga áhafnarinnar og stjórnar. Átti nefndin að komast að niðurstöðu um nýja vinnutilhögun um borð og nýtt launakerfi. „Þetta voru allir sammála um. Til að tryggja að niður- staða fengist vildum við að skipuð yrði nefnd þriggja héraðsdómara til að úrskurða í málinu ef við kom- umst ekki að samkomulagi. Þetta samþykktu allir nema fulltrúar und- irmanna. Ég held að ef þeir hefðu samþykkt þetta fyrirkomulag hefði það nægt til að koma skipinu af stað,“ sagði Grímur. Meðal hugmynda sem ræddar hafa veriö, samkvæmt heim- ildum DV, er breytt vinnutilhögun með því að fækka þemum um eina og Sölga hásetum um einn. Hásetar Jónas Ragnarsson, formaður stýrimannafélagsins, Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemjari og Magnús Jónasson, framkvæmdastjóri Herjólfs hf. ' DV-myndÓmar hafa fengið greidd laun eins háseta með yfirtíð, sem félli þá niður. Þar með væru stýrimenn komnir með þann launamun sem þeir telja eðli- legan, en þar stendur hnífurinn í kúnni. Bæjarstjóm Vestmannaeyja hefur fylgst grannt með Heijólfsdeil- unni og m.a. skoraö á deiluaðila að finna lausn. Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri sagði við DV að hann ætti von á að bæjarráð ályktaði í málinu í dag. „Þá verður hugsanlega ákveðið aö halda aukafund í bæjar- stjóm þar sem deilan yrði tekin fyr- ir. Við hörmum þetta ástand sem er orðið það alvarlegt að allir verða aö leggjast á eitt til að það leysist sem fyrst. Ómar Garðaisson, DV, Vestmarmafiyjum: „Við erum í viðræðum við fimm kónga. Sumir vilja að ef farið verði út í viðræður um nýja vinnutilhögun yrði tryggt að niðurstaða fengist. En sum stéttarfélögin treysta engum en virðast ekki geta leyst deiluna sjálf," segjr Jón Magnússon, lögfræðingur VSÍ, en hann segir að fjöldi stéttarfé- laganna geri Heijólfsdeiluna erfiða. Grimur Gíslason, stjómarformað- ur Heijólfs hf., sagði að því miður hefði ekki tekist aö leysa deiluna í þessari lotu. Stjórnin hélt fund í gær þar sem samþykkt var að óska eftir heimild framkvæmdastjómar VSÍ til verkbanns á alla áhöfn Heijólfs. Er það boðað með viku fyrirvara. Grímur segir að í þessari töm hafi í raun strandað á undirmönnum. Hundmð emstaklinga a höfuð- Samkvæmt Heimilislækninum borgarsvæðinu, mest böm, hafa koma sjúkdómseinkennin fram sýkst af skarlatssótt á undanfóm- nokkrum dögum eftir smit. Hár um vikum. Á læknavaktinm í hiti, rauðar og sárar kverkar og Reykjavík fengust þær upplýsingar skán á tunguna. Á öðmm degi að fyrstutilfeffin heföu gert vart myndast blárauð útbrot á andliti við sig skömmu fynr jol. Nú sé svo og á þriðja degi breiðast þau út um komiö að um farsott sé að ræða. allan líkamann. Hitinn lækkar þá okarlatssott hefur um langt skeiö og tungan verður eldrauö. Næstu verið mjög sjaldgæfur sjúkdómur daga og vikur flagnar himna af hér á landi. Fynr tilkomu sýklalyfa tungu og húð. Helstu fylgikviUar varsjúkdómurinntalinnhættuleg- skarlatssóttar eru gigtsótt og ur og sjúklingar einangraðir f nýmabólga og koma þeir fram nokkrar vikur meðan smithætta tveim til þrem vikum eftir aö út- var fyrir hendi. brotinkomafram. -kaa Samkomulag náðist ekki í Herjólfsdeilunni: Of mikið bar á milli - segir ríkissáttasemjari - óskaö eftir verkbanni á áhööiina Ómar Garðarsson, DV, Vestmaimaeyjum: „Ég harma aö menn náðu ekki saman. Mikill tími fór í að ræða vinnutilhögun um borð en í lokin strandaði á kröfum stýrimanna. Um miðnætti skiptust þeir og stjórn Herj- ólfs á tillögum en of mikið bar á milli," sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari. En hann sagði ennfremur í samtali við DV að full- reynt væri í bili að ekki næðist sam- komulag en hann sleit fundi um kl. hálfeitt í fyrrinótt. Lauk þar með samningalotu sem staðið hafði frá því á miðvikudag. Málið strandaði á tveimur þáttum, annars vegar launa- kröfum stýrimanna og hins vegar að undirmenn neita að sett verði yfir- nefnd á viðræður um nýja vinnutil- högun og launakerfi um borð. Deilan tók nýja stefnu í gær þegar stjórn Herjólfs hf. ákvað að óska eft- ir heimild til verkbanns á alla áhöfn- ina. Herjólfur hefur legið bundinn við bryggju í Eyjum í bráðum sex vikur og ekki sér enn fyrir endann á verkfallinu. Guðlaugur ætlar ekki að boða til fundar næsta hálfa mánuð- inn nema deiluaðilar óski þess. Stuttar fréttir Muðbyggirofdýrt Opinberar byggingar eru mun dýrari en efni standa til vegna þess að rítöð byggir á þrisvar sinnum lengri tíma en þörf er á. Fjármálaráðherra telur að ríkis- sjóöur tapi allt að 4 milljörðum króna á hverjum ártug vegna þessa. Þetta kom fram á nýafstað- inni ráðstefnu um útveggi. Forsetaheimsókn Algirdas Mykolas Brazaukas, forseti Litháens, kemur í vinnu- heimsókn í boði Davíðs Oddsson- ar um næstu helgi. Hádegisverð: ur með forsetanum og viðræður við íslenska ráðaraenn og aðila úr atvinnulifi er á dagskránni. Tjaldur kominn til Eyja Tjaldurinn kom til Vestmanna- eyja um helgina. Samkvæmt fréttastofu RÚV lét fuglinn heyra duglega í sér við komuna af hafi. Margeir Pétursson stórmeistari varð í gær íslandsmeistari í hrað- skák. Hann náði 17 vinningum af 18 mögulegum. HöggmyndtilLondon Listakonurmi Guðrúnu Nielsen hefur veriö boöið að stilla upp höggmynd við Design center í London. Samkvæmt Bylgjunni er vertöð Lundúnabúum ekki ókunnugt því það var sýnt á norr- ænni sýningu í haust. Læknar á móti tilvísiin Læknafélag Reykjavíkur hefur lýst yfir andstöðu við það tilvís- anakerfi sem heilbrigðisráðherra hyggst innleiða. Bylgjan hafði eft- ir formanni félagsins aö hið nýja kerfi væri skerðing á valfrelsi. Sparnaðarleið Talið er að spara megi 5 til 6 milljarða á 12 árum með því aö reka 100 vagna almenningsvagna kerfi í Reykjavik. Þetta er niður- staða Hagfræðistofnunar H.i. sem gert hefur úttekt á arðsemi þess aö sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu taki sig saman um almenningssamgöngur. Þvottahústilsölu Stjórnvöld ætla sér aö selja Þvottahús Ríkisspítalanna fyrir allt að 200 milljónir króna. Alls starfa 55 maims í þvottahúsinu, Á Landspítalanum óttast menn að þjónustan muni hækka í veröi við einkavæðingu en þvi vísar heilbrigðisráðherra á bug. Stöð tvö skýrði frá þessu í gær. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.