Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1993, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1993, Side 8
8 MÁNUDAGUR 15. MARS 1993 Útlönd Fjögurraára fangelsifyrirað nauðga barni Sænskur karl á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur 1 i]ögurra ára fangelsi fyrir endurteknar nauðganir á ungri telpu. Stúlkan var átta ára þegar maðurinn nauðgaði henni fyrst. Nú er nú hún ellefu ára. Maðurinn var náinn vinur for- eldra stúlkunnar. Hann ógnaði henni með hníf en dómstóllinn dæmdi hann fyrir nauðgun en ekki hótanir um líflát. Ferðamaður myrtur í Flórída Þjóðverji á fimmtugsaldri var skotinn til bana fyrir utan hótel sitt á Flórída á fostudag. Tildrög- in voru þau að eiginkona Þjóð- verjans var að reyna að verjast tveimur þjófum sem ætluðu aö stela af henni veskinu. Eiginmaðurinn ætlaði að koma henni til hjálpar en þá drógu þjóf- arnir upp byssu. Þetta var fimmta morðið á ferðamanni á Flórída á tiltölulega skömmum tíma. Dóttirin kostaði 4000krónur Kazungu Nyule í bænum Ma- lindi í Kenýu hugðist selja níu ára gamla dóttur sína fertugum manni fyrir liðlega fjögur þúsund íslenskar krónur og tvo nautgripi að auki. Peningana ætlaði Nyule að nota til að greiða sekt sem sonur hans átti að greiða fyrir hórdóm. Blómlegur trúariðnaður sprettur upp 1 Texas: Eyðnisjúkhóraí Fólk kaupir allt með nýja Kristi . fá að vita um kostina Bill Powers, minjagripasali í Texas, hefur fest upp boli með myndum og slagorðum tengdum ofsatrúarhópnum í Waco. Powers segist hafa selt 500 boli á siðustu tveimur dögum. Húfur eins og hann ber sjálfur eru líka til sölu og raunar hvað eina sem tengist trúarhópnum á búgarðinum. Símamynd Reuter Kaupmenn og framleiðendur minjagripa í Texas hafa fundið upp mikinn gróðaveg í að selja almenn- ingi alit sem tengist ofsatrúarhópn- um á búgarðinum við Waco. Ungl- ingarnir vilja helst ganga í bolum með slagorðum hins nýja Krists. Líkön af búgarðinum eru einnig vinsæl og raunar allt sem nöfnum tjáir að nefna. Búið er að breyta nafn- inu Waco í skammstöfun fyrir „We aint coming out“ eða við komum ekki út. David Koresh, leiðtogi hópsins og sjálfskipaður Jesús Kristur, neitar enn að gefast upp en hefur lagt fram fyrirspum tii lögreglunnar um hvað bíði eftir upgjöf. Þetta þykir boða gott um lok umsátursins við búgarð- inn því til þessa hefur Koresh haldið sig við tilvitnanir í biblíuna. Lögreglan hefur látið ijúfa allt símasamband við búgarðinn enda voru símaviðtöl við fólkið þar orðið mjög vinsælt útvarpsefni og jók mjóg á áhuga manna á því sem var að gerast á búgarðinum. Umsátrið hefur staðið í 15 daga og er talið að 105 manns séu á búgarðin- um. Lögreglan er með mikið lið í umsátrinu og hefur öfluga skrið- drekatilsóknarefafverður. Reuter einangrun Eyðnisjúk vændiskona hefur verið úrskurðuð í einangrun í Málmey í Svíþjóð. Konan smitað- ist árið 1985 en hélt áfram að sinna starfi sínu, Fyrír háifum mánuði fóru læknar fram á að konan yrði sett í einangrun til að koma i veg fyr- ir að hún útbreiddi sjúkdóminn. Hún var svipt sjálfræði með dómi og verður vistuö á sjúkrahúsi. Karólína prinsessa með nýju hárgreiðsluna. Simamynd Reuier Karólínagefur skipinafn Karólína, prínsessa af Mónakó, tók að sér að gefa nýju skipi toll- gæslu föður síns, furstans af Mónakó, nafn. Fórst henni verkið vel úr hendi. Hitt þótti þó merkilegra að prinsessan er búin að fá sér nýja hárgreiðslu. Hún þykir fullorö- inslegri en áður en þó glæsileg eins og alltaf. @> TOYOTA Tákn um gœði B'n i fU V E R Ð f R A K R . 9 3 9 . ö ö 0 A G 0 T U II A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.