Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1993, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 15. MARS 1993
784.000
HRAÐNÁMSTÆKNI
í TUNGUMÁLANÁMI
Fréttir
Einstakt verðtilboð!
ENSKA - ÞÝSKA - FRANSKA
DANSKA - ÍTALSKA - JAPANSKA
TÆLENSKA - SPÆNSKA OG
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
Skráning stendur yfir
Sími
10004
MALASKOLINN MIMIR
Námskeiðin hefjast
17. mars.
Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir leiðbeinendum
til starfa við Vinnuskólann sumarið 1993. Starfs-
tíminn er frá 1. júní til 31. júlí. Æskilegt er að umsækj-
endur hafi reynslu í verkstjórn, við ýmis verkleg störf
og/eða vinnu með unglingum. Vinnuflokkar skólans
starfa að þrifum, gróðurumhirðu og léttu viðhaldi,
t.d. á skólalóðum eða leikvöllum. Einnig er óskað
eftir leiðbeinendum fyrir hóp fatlaðra ungmenna sem
þurfa mikinn stuðning í starfi. Umsóknareyðublöð
fást á eftirtöldum stöðum: Ráðningarstofu Reykjavík-
urborgar, Borgartúni 3, sími 632580, og Vinnuskóla
Reykjavíkur, Borgartúni 1, sími 632590. Þar eru einn-
ig veittar upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur
er til 2. apríl nk.
Vinnuskóli Reykjavíkur
Isaflörður:
Silungar í
neysluvatninu
Haialdur Jónsson, DV, ísafirði:
Þær hafa margar sögur gengið um
það sem finna má í neysluvatni ís-
firðinga. Ein er sú að í vatnssíuhús-
inu í Stórurð séu silungar á sundi
og hafi það bara fínt. Nú er komið í
ljós að það er rétt. Þar hafast við sil-
ungar og virðast þrífast ágætlega.
Silungurinn kemur að öllum lík-
indum úr Tungudal en fisk hefur
verið að fmna í vatnssíuhúsinu í
mörg ár. En hvað er gert við aflann?
Greinilega má sjá silungana í
vatnssiuhúsinu á ísafirði.
DV-mynd Halldór Sveínbjörnsson
„Aflanum er hent. Þessi fiskur er
ekki ætur,“ svarar Eyjólfur Bjarna-
son bæjartæknifræðingur. Ekki tek-
ur hann þó undir það að hægt sé að
vinna úr silungnum paté í útlendinga
eins og nú er að verða svo vinsælt.
í síðustu viku var verið að vinna í
því að tengja framhjá Vatnssíuhús-
inu en í dag, mánudag, verða opnuð
tilboð í uppsetningu síuncirbúnaðar
í Stórurð. Því verki á að vera lokið
23. apríl og þá strax ættu vatnsmál
ísfirðinga að lagast stórlega.
Vinnuskóli Reykjavíkur
Orlofshús
rísa við
Kjarnaskóg
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akuxeyri:
Nær fullvíst er að 1 sumar heíjist
verklegar ffamkvæmdir við bygg-
ingu orlofshúsa við Kjamaskóg á
Akureyri og er verið að ræða um að
byggja þar orlofsíbúðahverfi þar sem
verða 30-40 hús.
Það er félagið Úrbót hf. á Akureyri
sem stendur að þessum framkvæmd-
um og sagði Sveinn Heiðar Jónsson,
einn þeirra sem standa að félaginu,
aö skipulagsnefnd Akureyrarbæjar
hefði fjallað um málið og það fengið
jákvæða afgreiðslu. Sveinn Heiðar
segir að hönnunarvinna sé þegar
komin í gang og sem fyrr sagði er
áætlað að hefja verklegar fram-
kvæmdir í sumar.
Hugmynd er uppi um að vinna í
samstarfi við þá aðfia sem eru að
leggja lokahönd á byggingu heilsu-
hælis í Kjarnaskógi.
A myndinni eru: Margrét Katrín Guðnadóttir, Birna Málfríður Guðmundsdóttir, Guðrún Filippa Kristjánsdóttir,
Bylgja Bára Bragadóttir, Elísabet Finnbogadóttir, Hildur Kristín Einarsdóttir, Aníta Ólafsdóttir og Anna Steinunn
Gunnlaugsdóttir. DV-mynd Sigurjón J. Sigurðsson
Vestf irskar fegurðardísir
Haraldur Jónsson, DV, ísafirði:
Fegurðardrottning Vestfjarða
verður krýnd í veitingastaðnum
Krúsinni á ísafirði laugardagskvöld-
ið 27. mars. Átta stúlkur hafa verið
valdar til þátttöku í keppninni og
koma fimm þeirra frá ísafirði, tvær
frá Bolungarvík og ein frá Flateyri.
Framkvæmdasfjóri keppninnar er
Dagný Björk Pétursdóttir danskenn-
ari.
Einn best útbúni bfllinn
í sfnum flokki.
Framhjóladrifinn og öflugur.
pnny
Leitið nánari upplýsinga
og fáið að reynsluaka
þessum skemmtilega bíl.
BIFRHÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ÁRMÚLA 13.* SfML 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
/ 1 /
u
r
ÞórhaHur: fim-wimd«onn DV, SmiAÁrlrrFUn- :
Bæjarstjóm Sauðárkróks sam-
þykkti nýlega að bæjarfulltrúum
yrði fækkað úr níu í sjö. Þriggja
marma nefnd, sem undanfarin
misseri hefur unnið að endurskoð-
un og gerð nýrra tfilagna um sljóm
bæjarins og fundasköp, lagði þetta
Bæjarbúar munu því veþa sjö
bæjarfulltrúa við bæjarstjómar-
kosningar eftir rúmt ár. Ef þessi
regla hefði giit við síöustu kosning-
ar, heföu Bimimir, Sigurbjömsson
á lista Alþýðuflokks og Bjömsson
í 3. sæti lista Sjálfstæðisflokks, ekki
náð kjöri. Litlu munaði því Alþýðu-
bandalag hlaut aðeins atkvæði
meira en Alþýöuilokkur í kosning-
unum.
Sex bæjarfulltrúar voru fylgjandi
þessu breytta fyrirkomulagi m.a.
fúlltrúar Framsóknar- og Sjálf-
stæðisflokks. Knútur Aadnegard,
fóreeti bæjarstjómar, og aðrir
fylgjendur fækkunnar bæjarfull-
trúa, telja að þetta muni Íeiða til
skilvirkari vinnubragða innan
viö stjómun bæjarins.
VERÐ RÐEINS
FRÁ KR.