Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1993, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993
Fréttir Stuttarfréttir dv
Skoðanakönnun D V:
Níu af hverjum tíu
vilja hvalveiðar
- af þeim sem taka afstöðu
Níu af hverjum tíu þeirra sem taka
afstöðu eru fylgjandi því að íslend-
ingar hefji hvalveiðar aö nýju.
Stuöningur landsmanna við hval-
veiðar hefur vaxið. Þetta kom í ljós
í skoðanakönnun sem DV gerði síð-
asta mánudags- og þriðjudagskvöld.
Af öllu úrtakinu sögðust 83,8 pró-
sent vera fylgjandi hvalveiðum. Að-
eins 8,5 prósent voru andvíg, 6,5 pró-
sent óákveðin og 1,2 prósent vildu
ekki svara. í sambærilegri skoðana-
könnun fyrir tæpum tveimur árum
voru 69,7 prósent fylgjandi hvalveið-
um, 15 prósent andvíg, 14,7 prósent
óákveðin og 0,6 prósent svöruðu
ekki. Þetta þýöir að 90,8 prósent
þeirra, sem nú taka afstöðu, eru
fylgjandi hvalveiðum en 9,2 prósent
andvíg. Fyrir tveimur árum voru
82,3 prósent þeirra, sem tóku afstöðu,
fylgjandi hvalveiðum og 17,7 prósent
andvíg.
Skoöanakannanir hafa sýnt yfir-
gnæfandi stuðning við hvalveiðar,
jafnt meðal kvenna og karla, íbúa
höfuðborgarsvæðisins og lands-
byggðarinnar.
ísland hefur nú sagt sig úr Alþjóða
hvalveiðiráðinu. DV spurði í skoö-
Niðurstööur skoðanakönnunar
DV urðu þessar. Til samanburðar
eru niðurstöður sambærilegrar
DV-könnunar frá maí 1991.
Maí Nú
1991
Fylgjandi 69,7- 83,8-
hvalveiðum % %
Andvigir 15% 8,5%
Óákveðnir 14,7- 6,5%
%
Vilja ekki 0,6% 1,2%
svara
Ef aðeins eru teknir þeir sem
tóku afstöðu verða niðurstöðurn-
ar þessar:
Maí Nú
1991
Fylgjandi 82,3- 90,8-
% %
Andvígir 17,7- 9,2%
anakönnun í desember 1991 hvort
fólk væri fylgjandi eða andvígt úr-
sögn úr ráðinu. Þá reyndust 63,2 pró-
sent fylgjandi úrsögn, 13,5 prósent
voru andvig, 21 prósent óákveðið og
2,3 prósent vildu ekki svara.
í skoðanakönnuninni nú var úr-
takið 600 manns, og var jafnt skipt
milli kynja og jafnt milli höfuðborg-
arsvæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvíg-
ur því að íslendingar hefji hvalveiðar
að nýju?
Skekkjumörk í skoðanakönnun-
inni eru 3-4 prósentustig.
-HH
Ummæfi fólks f könnuitinni
„Auövitað á að veiöa hval í
kreppu,“ sagöi karl á höfuðborgar-
svæðinu. „Fylgjandi. Þaö er nauö-
syrúegt að halda stofninum í skefj-
um,“ sagði kona úti á landL „Það
er löngu tíraabært að fara aö veiöa
hval,“ sagði karl útí á landi. „Það
á að veiða. Nóger af hvalnum sjón-
um,“ sagði karl úti á landi. „Ég er
andvígur af ótta við hefndaraö-
geröir,“ sagði karl á landsbyggð-
inni. „Hvalveiðar eru okkur nauð-
sjm,“ sagöi kona á landsbyggðinni.
„Ég er fylgjandi hvalveiðum með
kvóta," sagði karl á landsbyggð-
ixmi. „Ég er enginn sérstakur
hvalavinur og raér finnst hvalur
góður og ómissandi á þorrabákk-
ann,“ sagöi kona á landsbyggðinni.
„Ég vil veiðar undir eftirliti," sagöi
kona á höfuöborgarsvæðinu. „Já,
af hvalnum fáum viö gott kjöt,“
sagði kona úti á landi. „Eg er hlut-
laus. Það er betra að hafa vaðiö
fyrir neðan sig,“ sagði karl á höfuö-
borgarsvæðinu. „Fylgjandi hval-
veiöum - með skynsemi,“ sagði
kona á höfuðborgarsvæðinu.
„Hvalveiðar hafa veriö stundaðar
síðan landiö var byggt og við eígum
afi halda þeim áfram,“ sagði kona
á höfuðborgars væðinu. „Ég er bara
fylgjandi hrefnuveiðum," sagði
karl á höfuðborgarsvæðinu.
-HH
Vaxandl fylgl hvalvelða
Niðurstöðurskoðanakönnunar
DV urðu þessar. Til
samanburðar eru niðurstöður
sambærilegrar DV-kðnnunar frá
maí 1991.
83,8%
■ Maí '91
□ Nú
15%
14,7%
| 8,5% ■■ 6,5%
Ef aðeins eru teknir
þeir sem tóku
afstöðu verða
niðurstöðurnar
þessar:
90,8%
82,3%
17,7%
9,2%
Fylgjandi Andvígir Óákveðnir Maí '91 Nú
□ Fylgjandi
□ Andvígir
Þoi’steinn Pálsson segir aö
fækka verði opinberum starfs-
mötmum takist ekki að lækka
vexö og hemja útgjöld ríkisins.
7000ánatvinnu
7000 raanns eru skráðir án at-
vípjiu, þar at' hafa 2000 verið at-
vinnulausir í þrjá til sex mánuði.
Zuroffgefstekkiupp
Forstöðumaður Wiesenthal-
stofunarinnar ætlar að berjast
áfram fyrir að fá Eðvald Hinriks-
son fyrii- dóm. Eistneskir sagn-
fræðingar segja engar sannanir
fyrir að Eövald hafi framið stríös-
glæpi.
Arsenal-Tottenham
Sjónvarpið sýnir leik Arsenal
og Tottenham í undanúrslitum
bikarkeppninnar á morgun,
sunnudag, kl. 11.15. Afþeim sök-
um fellur útsending í dag niður.
Akurnesingar fá að reka skoö-
unarstöð Biíreiðaskoðunar ís-
lands í bænum ákveði Bifreiða-
skoöun að loka stöðinni.
Þyrla Landhelgisgæslimnar
sótti slasaðan sjómann um borð
í Viðey RE um hádegiö í gær.
Maðurtnn lærbrotnaöi.
Rannsókn sýnir að flöldi bama
með greinda hjartagalla hefur
farið vaxandi undanfarin ár.
Búast má við fleiri skyndilok-
unum í kjölfar rarmsókna Hafró.
Tugir lenda í alvarlegum
vinnuslysum hjá Pósti og sima á
ári hverju. Bréfberar eru helsti
áhættuhópuriim þvi oft er erfítt
að fóta sig í hálkunni.
Verjandi Stefáns Einarssonar,
sem dæmdur var í 4 ára fangelsi
fyrir hasssmygl, ætlar með máliö
fyrir mannréttindadómstólinn.
AUantafær2júmbó
Atlanta hefur samið við Saúdí-
Araba um rekstur 2 júmbóþotna.
Þetta mun skapa um 100 íslend-
ingum vinnu. Stöð 2 greindi frá.
AuríBláalónið
íslenskir aðalverktakar hafa
ákveðið að leggjasex miJijónahlut-
afé í Heilsufélagið við Bláa lónið.
Sparisjóðirgræða
Allir sparisjóðir landsins nema
tveir skiluðu hagnaði á síöasta
ári -Ari
AP-fréttastofan um Kristján Jóhannsson:
Bifvélavirkinn sem nú
tryllir óperuunnendur
næsti stórtenór á eftir Domingo, Pavarotti og Carrera
„Nú þegar óperuhúsin þurfa sár-
lega á tenórum að halda fyrir ítölsku
óperumar er söngvarmn með vík-
ingablóð forfeðraima í æðum sann-
kallað raddorkuver," segir í nýlegri
grein frá bandarísku fréttastofunni
Associated Press um Kristján Jó-
hannsson.
í greininni sem ber fyrirsögnina,
Kristján Jóhannsson: Söngrödd frá
landi víkinganna, er fariö afar lof-
samlegum orðum um Kristján og
framistöðu hans í Metropolitan
óperuhúsinu í New York.
Þar segir að Kristján sé komin vel
á veg með að verða næsti stórtenór-
inn þar sem Pavarotti og Domingo
séu komnir á sextugsaldur og Carr-
era sé að draga sig í hlé í Kjölfar veik-
inda. Kristján eigi einungis eftir að
leggja eitt stórsviðið að fótum sér,
sem sé Covent Garden í London, en
þar mun hann syngja árið 1994.
í greininni segir að Kristján hafi í
upphafi unnið fyrir sér sem bifvéla-
virki í Utium bæ á íslandi. Eftir aö
sönghæfileikar hans uppgötvuðust
þurfi hann hins vegar ekki lengur
að vinna fyrir sér með því aö stilla
dísilvéiar; hann sé orðinn tenór í
heimsklassa sem trylli alla fjögur
þúsund áhorfendur Metropolitan
með sínum háu tónum.
Fjallað er um sýninguna á Cavall-
eria Rusticana og Pagliacci í Metro-
politan þar sem Kristján og Placido
Kristján Jóhannsson með konu sinni, Sigurjónu Sverrisdóttur, og tengda-
móóur, Rannveigu Guðmundsdóttur. Myndin var tekin eftir frumraun Krist-
jáns í Metropolitanóperunni. DV-mynd Anna
Domingo sungu í sömu sýningu. Seg-
ir að Domingo hafi fengið hávært
lófatak en allt hcifi ætlaö vitiaust að
verða þegar Kristján var hylltur.
Höfundur greinarinnar segir að ís-
land sé græn eldfjallaeyja í Norður-
Atlantshafi þar sem 250 þúsund
manns búi ásamt 2 milljónum rolla.
Minnst er á sagnahefðina, yfirráð
Dana og sjálfstæðið sem fékkst 1944.
Sagt er að þrátt fyrir ítalskar aríur
sé Kristján í engu búinn að gleyma
tónlist fóðurlandsins því nýjasta
platan hans sé með íslenskum lögum.'
„Platan sló í gegn heima og komin
inn á fjóröa hvert íslenskt heimili,"
segir Kristján, stoltur í lok viötalsins.
-ból