Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1993, Page 4
4
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993
Fréttir
Þríhliða kjarasairmingaviðræðiirnar komnar á ystu nöf:
Okkur er gert að benda
á fjármögnunarleiðir
- getur verið að slitna upp úr, segir Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ
„Þaö getur alveg verið að það sé
að slitna uppúr þríhliöasamninga-
viðræðunum. Það eina sem ég hef
fengið frá ríkisstjóminni í dag er að
hún kvaðst tilbúin að hlusta á nýjar
tillögur frá okkur ef við hefðum ein-
hverjar. Viö erum aö sjáifsögöu ekki
tilbúin með þær. Það er kannski ekki
beint hægt að segja að búið sé að
hafna tillögum um lækkun matar-
skatts og annað sem við höfum verið
að ræða undanfarið. Ráðherramir
tóku þó ekki nógu mikið tiliit til
þeirra á síðasta fundi okkar með
þeim. Nú segja þeir að við verðum
að benda á fjármögnunarleiðir fyrir
ríkisstjómina ef hún eigi að verða
við kröfum okkar. Við erum nú á
leið á fund með vinnuveitendum til
að sjá hvort einhver leið er fær,“
sagði Benedikt Davíðsson, forseti
ASÍ, síödegis í gær að loknum fundi
7 manna samninganefndar Alþýðu-
sambandsins.
í gær var fyrirhugaður fundur að-
ila vinnumarkaðarins með ríkis-
stjórninni en ekkert varð af honum
af fyrr greindum ástæðum.
Benedikt sagði að ríkisstjómin
hefði hafnað leiðum til fjármögnunar
sem þegar hefur verið bent á, svo sem
ákveðinni útfærslu á fjármagns-
tekjuskatti.
Rétt aö viö tökum þá við
„Það sem menn hafa verið að ræða
um í kjarasamningaviðræðunum aö
undanfómu er ekki grundvöllur fyr-
ir nýjum kjarasamningi. Mér dettiu-
ekki í hug að reyna að bera það upp
á félagsfundi í Dagsbrún sem nýjan
kjarasamning. Ef ríkisstjómin vill
að við stjórnum fjármögnun þessara
kjarasamninga, þá er alveg eins gott
að við tökum alveg við stjóminni.
Þeir geta að vísu haldið eftir sumar-
bústaðnum á Þingvöllum," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, form-
aður Dagsbrúnar, síðdegis í gær.
Samkvæmt heimildum DV, innan
úr herbúðum sfjómarflokkanna,
ætlar ríkisstjómin ekki að ganga að
kröfum aðila vinnumarkaðarins nú
um lækkun matarskatts, lækkun
lyfia- og lækniskostnaðar og að láta
aukið fé til atvinnusköpunar, eins og
atvinnumálatillögurnar gera ráð fyr-
ir. Því er haldiö fram að ríkisstjómin
meti stöðuna svo að ef uppúr slitnar
nú, hafi verkalýðshreyfingin enga
stöðu til aðgerða. Þá verði hægt að
taka upp þráðinn á ný eftir nokkrar
vikur og semja um það sem ríkis-
stjómin vill semja um.
-S.dór
í 3. bekk MK í Setbergsskóla i Hafnarfirði var að finna mestu lestrarhestana meðal 8 ára grunnskólanema í lestr-
arkeppninni miklu. Á myndinni benda nemendur hreyknir á stjörnur sem settar voru upp fyrir hverja lesna bok. Með
á myndinni eru María Kristjánsdóttir umsjónarkennari, Margrét Finnbogadóttir uppeldisfulltrui og Loftur Magnus-
son skólastjóri. DV-myndÞÖK
6,6 miUjónir blaðsíðna lesnar í lestrarkeppninni miklu:
Keppnin hefur haft
mjöggóðáhrif
- segir kennari 3. MK í Setbergsskóla
„Þessi lestrarkepni hefur haft mjög
góð áhrif á krakkana. Við erum
reyndar með átak í lestri á hveijum
vetri en þetta er öðravísi þegar skól-
ar af öllu landinu taka þátt. Það var
mjög gaman að sjá hvemig lestrar-
keppnin híföi þau upp sem em slak-
ari í lestri. Þau lögðu mjög hart að
sér og lásu mun meira en þau gera
ella,“ sagði María Kristjánsdóttir,
kennari 3. bekkjar MK í Setbergs-
skóla í Hafnarfirði, viö DV. 3. MK
sigraði í keppninni í sínum árgangi.
f bekknum em 20 krakkar sem lásu
alls 14.637 blaðsíður sem samsvarar
732 blaðsíðum á hvem nemanda.
Fjöldi bóka var 316 eða að meðaltali
15,6 á hvem nemanda.
Flestar bækur í 3. MK las Sólrún
Haraldsdóttir sem las 43 bækur.
Flestar blaðsíður las hins vegar Jó-
hannes Haraldur Proppé, 1708.
Krakkamir í 3. MK höfðu flest
heyrt fréttir af úrshtunum þegar þau
mættu í skólann eftir hádegiö í gær
og því var glatt á hjalla er DV kom
í heimsókn.
„Við áttum eiginlega ekki von á
þessu, úrslitin komu okkur öllum á
óvart. En þetta er keppnisfólk sem
hefur uppskorið eins og það sáði. Þaö
verður ekki lært mikið í dag,“ sagði
María.
Alls vom lesnar 6.647.145 blaðsíður
í lestrarkepninni miklu en fjöldi les-
inna bóka var 71.505. Alls tóku 1106
bekkjardeildir í 166 skólum þátt í
keppninni.
Bestu bekkir í hverjum árgangi em
dreifðir um landið en athygli vekur
þó aö bekkir frá Selfossi vom dugleg-
astir að lesa í þremur árgöngum.
Eins og fram hefur komið tóku
grunnskólamir í Reykjavík ekki þátt
ílestrarkeppninni. -hlh
Fjöldatakmörkunarf rumvarp ekki lagt fram
Þingflokkur Alþýðuflokksins hef- nema við Háskóla íslands. andstöðu krata hafi hann ákveðið að
ur ákveðið aö hafna frumvarpi Ólafs Menntamálaráðherra hugðist gera ekkert frekar í málinu.
G. Einarssonar menntamálaráð- flytja frumvarpið að ósk ráðamanna -S.dór
herra um að takmörka fjölda ný- Háskólans. Ólafur segir að vegna
18 ára menntskælingur hannar fyrir Lego:
FyrsG erlendi
hönnuðurinn hjá
fyrirtækinu
Jóhann Breiðfjörð, 18 ára nemandi
við Menntaskólann í Reykjavík, hef-
ur gert samning við danska leik-
fangarisann Lego um hönnun leik-
fanga í tækniseríu Lego, svokölluðu
Tækni-Lego. Jóhann mun þá hanna
leikföng fyrir Lego í samstarfi við
fyrirtækið en annars hafa tiltölulega
fijálsar hendur. Er Jóhann fyrsti
erlendi hönnuðurinn sem ráðinn er
til Lego.
„Ég kom mér sjálfur á framfæri en
það var mjög erfitt að komast í sam-
band við forráðamenn fyrirtækisins.
Þeir em mjög vandfýsnir þegar ráðn-
ingar em annars vegar, ekki síst þar
sem ég er fyrsti erlendi hönnuðurinn
sem viimur fyrir þá.“
Jóhann segist hafa fengist mikið við
að byggja úr og gera tilraunir með
Lego sem strákur. Hann var farinn
að hanna og byggja sér sína eigin
hluti úr Lego og vakti töluverða at-
hygli fyrir vélmenni sem hann sýndi
á tölvusýningunni í Bókhlöðunni á
dögunum. „Eg sýndi forráðamönn-
um hjá Lego myndir af vélmenninu
og fleiru og þeim leist vel á það sem
ég var aö gera.“
Þegr við forvitnuðumst um vél-
mennið sagði Jóhann það rifið í
hluta; hann væri að vinna að bygg-
ingu nýs. Jóhann gat ekki sagt til um
fjölda verkefna fyrir Lego en það
skýröist fljótlega.
-hlh
Hæstiréttur þyngir dóm fyrir árás og rán;
Héraðsdómur gleymdi
reynslulausninni
Hæstiréttur hefur þyngt dóm
Héraösdóms Reykjavíkur yfir
tveimur mönnum sem ákærðir
vora fyrir líkamsárás og rán í sept-
ember í fyrra.
Hæstiréttur dæmdi mennina í 18
mánaða fangelsi hvorn og eigin-
konu annars þeirra í 6 mánaöa
fangelsi. Fólkið var allt á reynslu-
lausn þegar afbrotið var framið og
gleymdist að taka tillit til þess þeg-
ar dómur var kveðinn upp yflr öðr-
um manninum og konunni í Hér-
aðsdómi.
Málsatvik em þau að fólkiö var
gestkomandi á heimili kærandans
í september í fyrra og sat þar við
drykkju. Til átaka kom við húsráð-
andann og þótti sannað að menn-
imir tveir hefðu slegið hann í höf-
uðið og sparkað í hann. í framhaldi
af átökunum söfnuðu mennimir
og konan saman verðmætum í
íbúðinni og höfðu á brott með sér.
Fólkið bar að upphaf átakanna
hefði mátt rekja til þess að húsráð-
andinn hefði áreitt konuna. Máls-
atvik em öll mjög óljós og ósam-
ræmis gætti í frásögn hlutaðeig-
anda.
Pétur Kr. Hafstein hæstaréttar-
dómari skilaði sératkvæði og taldi
ekki sannaö aö um ásetning um rán
hrföi verið aö ræða.
Auk fangelsisdómanna vom þre-
menningamir dæmdir til að greiöa
sakarkostnað.
-ból
Skothríð á Eyjafirði:
Dauðir f uglar um allan sjó
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þrír ungir menn vom hendteknir á
Akureyri í fyrrakvöld eftir ólöglegar
skotveiðar á firðinum við bæinn. Þeir
vom ekki að skjóta sér til matar held-
ur skutu þeir aðallega fyl og ritu og
létu fuglana liggja dauða um allan sjó.
Varðstjóri hjá lögreglunni á Akur-
eyri sagði að um sóðalegar aðferðir
hefði verið að ræða og kvartað hefði
verið undan mönnunum. Tekið var
af þeim eitt skotvopn er þeir komu í
land en þeir munu hafa komið ein-
hveijum skotvopnum undan. Þá er
óvíst með byssuleyfi þessara manna.