Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1993, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993
Bridge
íslandsbankamótið í sveitakeppni 1993:
Úrslitin á Hótel Loft-
leiðum 7.-10. apríl
íslandsmeistararnir 1992, sveit Landsbréfa. Endurnýjuð sveit mun reyna að verja titilinn i dymbilvikunni.
Úrslitakeppni íslandsmótsins í
sveitakeppni verður spiluð á Hótel
Loftleiðum um bænadagana og er
fyrsta umferðin á miðvikudag kl. 11
árdegis. Átta sveitir spila um hinn
eftirsótta titii en þær voru í efstu
sætum undankeppninnar sem spiluð
var um síðustu helgi.
Búið er að draga um töfluröð og
hugsanlega verður úrslitaleikur
mótsins spilaöur i fyrstu umferðinni
á miðvikudag. Þá eigast við sveitir
Glitnis og Landsbréfa en í þeim spila
margir af bestu spilurum landsins.
Aðrir leikir fyrstu umferðar eru milli
sveita VÍB og Roche, Hjólbarðahall-
arinnar og Tryggingamiðstöövarinn-
ar og Sparisjóðs Siglufjarðar og DV.
2. umferð miðvikudagskvöld:
Landsbréf-DV, Tryggingamiðstöðin-
Sparisj. Siglufjaröar
Roche-Hjólbarðahöllin, Glitnir-VÍB
3. umferð skírdag kl. 11:
VÍB-Landsbréf, Hjólbarðahöllin-
Glitnir,
Sparisj. SigluQarðar-Roche, DV-
Tryggingarmiðstöðin
4. umferð skírdagskvöld:
Landsbréf-Tryggingamiðstöðin, Roc-
he-DV,
Glitnir-Sparisj. Sigluíjarðar, VÍB-
Hjólbarðahöllin
5. umferð kl. 11 fóstudaginn langa:
Hjólbarðahöllin-Landsbréf, Sparisj.
Sigluíjarðar-VÍB,
DV-Glitnir, Tryggingamiðstöðin-
Roche
6. umferð fostudagskvöld:
Landsbréf-Roche, Glitnir-Trygginga-
miðstöðin,
VÍB-D V, Hj ólbarðahöllin-Sparisj.
Sigluíjarðar
7. umferð kl. 11 laugardag:
Sparisj. Siglufjarðar-Landsbréf, DV-
Hjólbarðahöllin,
Tryggingamiðstöðin-VÍB, Roche-
Glitnir
Það vekur athygli að sveit Reykja-
víkurmeistaranna, S. Ármann
Magnússon, komst ekki í úrslitin að
þessu sinni, en hún varð að lúta í
lægra haldi fyrir sveit Roche og
missti þar með af sætinu.
Sveit Roche komst því í úrslitin
ásamt sveit Glitnis. Við skulum
skoða eitt spil frá leik þessara sveita
í undanúrshtakeppninni.
A/Allir
* D1092
V ÁG762
♦ -
+ KD63
* 5
V K2
* 1076
* G1097542
♦ ÁG873
V 9853
♦ KD85
Þar sem ísak Sigurðsson og Sigurð-
ur B. Þorsteinsson sátu n-s fyrir
Roche, en Bjöm Eysteinsson og Aðal-
steinn Jörgensen a-v fyrir Glitni,
gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass 1 tígull dobl
21auf 31auf pass 4hjörtu
pass 5hjörtu! pass pass
pass
Norður náði að stoppa í fimm hjört-
um en líklega missa þeir ekki margar
slemmur í úrslitakeppninni. Eins og
spilið lá var erfitt að tapa spilinu, en
norður varð samt að passa sig að
spila ekki öryggisspúamensku í
trompinu.
Austur spilaöi út laufi, trompað í
blindum, þá tígulkóngur, ás og
trompað. Lítið lauf, trompað og ásinn
frá vestri. Þá kom tromp, tían frá
vestri og ísak passaði sig að drepa á
ás og spila meira trompi. Eftir opn-
unina gat vestur hæglega átt tromp-
hjón og tíu, en væri sú raunin, þá
var líklegt aö austur ætti spaðakóng.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
í síðasta þætti gerði ég árangri okk-
ar manna á Evrópumótinu í tví-
menningskeppni nokkur skil en mér
láðist að minnast á árangur Eiríks
Hjaltasonar og Ragnars Hermanns-
sonar. Þeir urðu í þriðja sæti í und-
ankeppninni, efstir íslendinganna,
og náðu síðan 36. sæti í úrslitakeppn-
inni. Ágætisárangur það, hjá þessum
ungu spilurum sem spila í úrslitum
íslandsmótsins í sveit Hjólbarðahall-
arinnar.
Páskabridge hjá BSÍ
Bridgesamband íslands hefur
ákveðið að gefa spilaþyrstum. tæki-
færi til spilamennsku yfir páskahá-
tíðina. Spilaður verður Mitchell -
með sama fyrirkomulagi og í sumar-
bridge - á skírdag, 8. apríl, fostudag-
inn langa, 9. apríl, og annan í pásk-
um, 12. apríl. Spilamennska hefst
stundvislega klukkan 19 þessa daga.
¥ DIO
♦ ÁG9432
-t. Á O
Skák
Landskeppni íslendinga og Frakka:
Sigur lidsheildarinnar
Frakkar sigruðu naumlega í lands-
keppninni í skák sem lauk í Digra-
nesskóla í Kópavogi sl. laugardag.
Úrslit réðust ekki fyrr en í síðustu
skák keppninnar, milli Héðins Stein-
grímssonar og Jean-René Koch. Með
sigri hefði Héðinn náð að jafna en
Frakkinn hafði betur og lokatölur
urðu 51 vinningur þeirra gegn 49
vinningum íslendinga.
Gunnar Birgisson, formaður bæj-
arráðs í Kópavogi, hafði á orði í loka-
hófi mótsins - sem haldið var í boði
bæjarstjómar Hafnarfjarðar - að lita
mætti á úrslit keppninnar sem sigur
fyrir Elo-stigakerfið. Á pappírunum
höfðu þjóðimar nákvæmlega jafn-
sterkum mönnum á að skipa, með
2480 Elo-stig að meðaltali og taflið var
enda hnífjafnt. Þessi naumi sigur
Frakka lýsir aðeins eðlilegum frávik-
um.
Að mínu mati réð úrslitum góð
samstaða Frakkanna, sem reyndust
sterkari sem heild en kunnátta ein-
staklinganna gaf tilefni til að ætla.
Þeir stóðu sig allir vel en hræddur
er ég um að á venjulegu alþjóðlegu
móti hefðu einhveijir þeirra verið
skotnir á bólakaf. Þótt skákin sé fyrst
og fremst einstaklingskeppni má
ekki vanmeta gildi liðsheildarinnar.
Þetta var einkum áberandi í fyrri
hluta mótsins. Undirbúningur
keppninnar miðaðist fyrst og ffemst
við frönsku gestina og vissulega var
vel tekið á móti þeim og öllum til
sóma. En íslenska liðið hreinlega
gleymdist. Ræðuhöld við setningu
mótsins fóru meira að segja fram á
frönsku. íslenska liðið hittist aldrei
fyrir keppnina. Fyrsti liðsfundurinn
var haldinn aö loknum fimm umferð-
um.
Jóhann Hjartarson og Bachar Kou-
atly náðu bestum árangri einstakl-
inga, fengu 7 v. af 10 mögulegum.
Jóhann var einkar ófarsæll í næst-
síöustu skákinni við Renet en ekki
þótti einleikið að Kouatly skyldi
sleppa taplaus. Karl Þorsteins og
Manuel Apicella komu næstir með
6,5 v. Karl fór hægt af stað en er
hann vann Dorfman í fimmtu umferð
komst hann á bragðið. Endasprettur-
inn var frábær, fimm vinningar úr
sex síðustu skákunum og aðeins
hálfur vinningur frá stórmeistara-
áfanga.
Margeir, Helgi og Hannes Hlífar
áttu allir góða spretti en voru mis-
tækir og undirritaður tefldi í hálf-
gerðu tómarúmi.
Þröstur tefldi frísklega en Róbert
var heillum horfinn. Ljósi punktur-
inn var jafntefli hans við Dorfman í
erfiðu endatafli. Björgvin og Héðinn
þurftu að vinna síðustu skák sína til
að ná lokaáfanga að alþjóðameistar-
atitli en hvorugum heppnaðist það.
Héðinn átti nokkur eftirminnileg-
ustu augnablik mótsins, frá sjónar-
hóli áhorfenda, auk úrslitaskákar-
innar sem áður er nefnd:
- Þeir Dorfman þráléku snemma
tafls en er sama staðan var komin
upp þrisvar sinnum vildi hvorugur
bjóða jafntefli. Eftir fiórtán leikja þóf
missti Dorfman loks þolinmæðina,
undirritaði skorblaðið, fleygöi því
yfir borðið til Héðins og rotaði hvíta
kónginn í leiðinni.
- Heiftarlegt tímahrak var í skák
Héðins við Chabanon í áttundu um-
ferð. Á síðustu sekúndunum kom
Héðinn auga á sterkan drottningar-
leik en fátið var svo mikið að drottn-
ingin flaug út á gólf í stað þess að
lenda á g4 með skák. „Héðinn tók
risastökk á eftir henni og tókst að
koma henni á réttan reit innan tíma-
marka,"' eins og segir í vönduðu
mótsblaði tímaritsins Skákar. Þessi
óverfiulangi drottningarleikur var
vinningsleikur og raunar var þetta
eini sigur íslendinga þann daginn.
Áhorfendur hefðu gjarnan mátt
vera fleiri en þeir sem komu voru á
einu máli um að sjaldan hefðu þeir
fylgst með svo skemmtilegri keppni.
Landskeppnin var sannarlega
ánægjuleg nýbreytni. Keppnin var
haldin af Skáksambandi Islands, í
samvinnu við bæjarfélögin í Hafnar-
firði og Kópavogi, með dyggum
stuðningi Búnaðarbankans, Flug-
leiöa og fleiri aðila. Mótsstjóm skip-
uðu Haraldur Baldursson, Ágúst
Sindri Karlsson, Ríkharður Sveins-
son, Sæbjöm Guðfinnsson og Ásdís
Bragadóttir. Aöaldómari var Jóhann
Þórir Jónsson og blaðafulltrúi Eyj-
ólfur Ármannsson.
Þessi fiöruga skák var tefld í síð-
ustu umferð:
Hvítt: Eric Prie
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
Sikileyarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
a6 5. Bd3 Bc5 6. Rb3 Ba7 7. De2 Rc6
8. Rc3 d6 9. Be3 Rf6!?
Bandaríski stórmeistarinn Larry
Christiansen hefur dálæti á þessari
leikaðferð. Hér í eina tíð var skipt
upp á e3 í stöðunni, þá sjaldan þetta
var teflt.
10. 0-0-0 b5 11. f4 b4 12. Ra4 e5 13.
Bxa7 Hxa7 14. f5 0-0 15. g4 Bd7!
Riddarinn á a4 er undir smásjánni.
Hann stendur völtum fótum.
16. g5 Re8 17. Hhgl!?
Þessa sömu stöðu hafði Hannes á
borðinu með hvítu gegn Schlosser á
skákmóti í Altensteig í Þýskalandi í
fyrra og raunar tefldu Speelman og
Lobron svona einnig í Munchen í
fyrra. Þar var leikið 17. De3 Hb7! 18.
Bxa6 Hb8 og hvítur má gæta sín
vegna riddarans rangstæða. Frakk-
inn hafði nú notað mikinn tíma en
með síðasta leik hyggst hann leggja
allt í sölumar: Sækja fram á kóngs-
væng en láta riddarann lönd og leið.
17. - Rb8! 18. Dh5 Bxa4 19. Hg3 Bb5
Annars nær hvíti biskupinn að
hreiðra um sig á c4.
20. Hh3 h6
1 * w* I á i
i A i
A i & s A A A A *
s
A A A B A c s D E F G A H
Eftir þennan leik rennur hvíta
sóknin út í sandinn og svartur snýr
taflinu sér í vil. Eftir skákina komst
Hannes að þeirri niðurstöðu að í
þessari athyglisverðu stöðu þyrfti
hvítur að þræða einstigi til þess að
halda jafntefli. Lítum á tvo mögu-
leika:
1) 21. gxh6 RÍ6! 22. Dg5 g6 23. fxg6
fxg6 24. Dxg6+ Kh8 25. Hgl (hótar
Umsjón
Jón L. Árnason
26. Dg7+!) He8!! og ekki er að sjá
hvemig hvitur fær haldiö áfram
sókninni.
2) 21. Hgl! Db6 22. Hg2 f6 23. gxh6
Bxd3 24. cxd3 Hc7+ 25. Kbl Rc6 26.
hxg7 Hxg7 27. Dh7+ Kf7 28. Hxg7+
Rxg7 29. Dg6+ Kg8 30. Dh7+ með
þráskák og jafntefli.
21. - Rxf6! 22. gxf6 Dxf6
Með því að gefa manninn til baka
er allt púður úr hvítu sókinni og
svartur á tvö peð til góða.
23. Hf3 De6 24. Hgl Kh7 25. Rd2 Hc7
26. Kbl Rc6 27. Hfg3 g6 28. Dh4 De7
29. Dg4 Rd4 30. h4 h5 31. Ddl Dxh4 32.
H3g2 Bxd3 33. cxd3 Hfc8 34. Rc4 Hxc4!
35. dxc4 Dxe4+ 36. Kal Hxc4 37. b3
Rc2+ 38. Kb2 Re3 39. Dxd6 Hc2+ 40.
Hxc2 Dxc2+ 41. Kal Dc3+ 42. Kbl
Rc2!
- Og hvítur gafst upp.