Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1993 13 Fréttir Talstöðvarskírteini flugmanna: 678% hækkun yf ir nótt „Ég fékk talstöðvarskírteini 31. mars og borgaði 354 krónur fyrir. Daginn eftir fór annar og þurfti þá að borga 2988 krónur," segir Guð- mundur Pétur Bauer flugnemi. „Það er ekkert próf og ekki þarf að sýna fram á eitt né neitt. Maður fyllir út eyðublað þar sem óskaö er eftir að fá skírteinið. Starfsmaðurinn vélritar það upp og afhendir þér. Það tekur innan við þrjár mínútur að gera þetta og okkur finnst þetta mik- ill peningur fyrir svona ómerkilegt plagg,“ segir Guðmundur Pétur. Hann segir að talstöðvarskírteini flugmanna sé staðfesting á að þeir hafl vottað þagnareið um þau sam- skipti sem fram fara í gegnum tal- stöðvar en allir fiugmenn verða að hafa þetta skírteini. Þann 1. maí tók Fjarskiptaeftirlit ríkisins lögformlega við þeirri starf- semi Pósts og síma sem sneri að fjar- skiptum og að sögn Guðmundar Ól- afssonar, yfirmanns Fjarskiptaeftir- litsins, tók þá ný gjaldskrá gildi. „Þessi starfsemi var í raun rekin með tapi hjá Pósti og síma og á end- anum voru það símnotendur sem greiddu fyrir þetta. Þegar Fjarskipta- eftirlitið tók við þessu var farið að athuga raunverulegan kostnað á bak við þetta því stofnuninni er gert aö standa undir sér,“ segir Guðmundur. Hann segir að vegna mistaka hafi fjórir aðilar verið rukkaðir um virð- isaukaskatt af skírteinunum sínum. Gjaldið fyrir skírteinið sé 2400 krón- ur en ekki 2988 krónur og verður mismunurinn endurgreiddur. „Það felst meira í þessu en að vél- rita eitt blað. Handhafar skírtein- anna hafa rétt til að tala á alþjóðarás- um. Við höldum skrá yfir þá og erum bundin skuldbindingum um að gefa upplýsingar til alþjóðafjarskipta- stofnana. Að auki fylgjumst við með að flugskólinn sé með alþjóðlegt námsefni um þetta efni. Gamla gjald- ið var einfaldlega ekki raunhæft," segirGuðmundur. -ból Starfsmenn vinnuverndar á Keflavikurflugvelli. Frá vinstri Hafsteinn Hafsteinsson, Þórður Karlsson, Charles T. Butler kafteinn, Magnús Guðmundsson, forstöðumaður vinnueftirlitsins á Keflavíkurflugvelli, Antony A. Less flota- foringi, Þorgrimur S. Árnason og Haukur Örn Jóhannesson. DV-mynd Ægir Már íslenskir starfsmenn vamarliðsins: DHLEIBSLH Dáleiðsla getur hjálpað þér á fjölmörgum sviðum eins og t.d.: hætta að reykja, losna við aukakílóin, streitu, flughræðslu, lofthræðslu, kynlífsvandamál, bætaminni - einbeitingu o.m.fl. Friðrik Páll er viðurkenndur í alþjóðlegum fagfélögum dáleiðara eins ogt.d. Intemational Medical and Dental Hypnotlierapy Association, American Guild Of Hypnotherapists og National Society Of Hypnotherapists. Fridrih Pall Rgösrsson R.P.H. C.HL Heiðraðir fyrir vinnuvernd Ægir Már Karason, DV, Suðumesjuiru Flotastöðin á Keflavíkurflugvelli hlaut á dögunum viðurkenningu fyr- ir besta vinnueftirlitið í bandaríska flotanum. Starfsmenn vinnueftirhts varnarliðsins eru íslenskir og er þetta eina flotastöð Bandaríkja- manna þar sem slík starfsemi er í höndum annarra en bandarískra rík- isborgara. Þetta er mikil viðurkenning fyrir starfsmenn vinnueftirlitsins á Kefla- víkurflugvelh sem hafa á undanföm- um árum sópað að sér viðurkenning- um fyrir mjög gott starf. Viðurkenn- ing þessi er veitt árlega eftir ná- kvæma skoðun á vinnuverndarstarfi á öllum stöðvum bandaríska flotans. Það var yfirmaður flugdeildar Atl- antshafsflota Bandaríkjamanna, Anthony A. Less flotaforingi, sem afhenti viðurkenningu bandaríska flotamálaráðuneytisins Charles T. Butler kafteini, yfirmanni flotastöðv- ar varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli. Varðskip til Liverpool Landhelgisgæslan mun senda varðskip til Liverpool í maí í tilefni af því að þar á að minnast 50 ára afmælis orrastunnar um Atlantshaf. Það er breski sjóherinn sem stendur að minningarathöfninni en íjölmarg- ar þjóðir munu taka þátt í henni. Landhelgisgæslunni barst formlegt boð um að taka þátt í athöfninni fyrir íslands hönd og hefur verið ákveöiö aö senda eitt varðskip til Liverpool. Athöfnin fer fram í lok maí og er áætlað að skipið verði úti í 2-3 daga ensiglinginmuntakaumviku. -ból NYKOMN brjóstahöld A og B skálar Útsölustaðir: Akureyri: - Ynja, Sunnuhlíð, s. 25977 Keflavík: - Rósalind, Hafnargötu 24, s. 13255 Neskaupstaður: - Hjá Klöru, Egilsbr. 5, s. 71795 Borgarnes: - Skóversl. Borg, Brákarbr. 3, s. 71240 Ó()ins<’ötu 2, s. 91-13577 smátækin eru þekkt um allan heim fyrir gæði og endingu. Hjá Bræðrunum Ormsson bjóðast þér nú heimilistæki á sérstöku vortilboði. Í' vj taj&SL Mínútugrill 1304 Verð áður kr. 8.790. Tilboð kr. 7.490 stgr. Gufustraujárn 1418 m/spray Verð áður kr. 4.270. iilboð kr. 3.690 stgr. Badvog 3301 electronic m/minni Verð áður kr. 8.351. Tilboð kr. 6.490 stgr. Upplýsingar um umboðsmenn 6,u fást hjá Kaffivél 8921 8 bolla, 1200 W Verð áður kr. 2.730. Tilboð kr. 2.290,- stgr. Umboðsmenn um land allt. B R Æ Ð U R N I R H /c t3 U H IN I H \®i (®J ORMSSON HF 62*62*62 Lágmúla 8, sími 38820.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.