Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1993 25 x>v Mývatnssveit; Órökstuddar dylgjur Gylfi KristjtaQan, DV, Akureyn: Bændur í Mývatnssveit segja að dylgjur Friðriks Sigurðssonar, forstjóra Kísiliðjunnar, um öfund bændanna í garö þeirra sem stunda rányrkju á botni Mývatns séu órökstuddar og honum til vansa en Friðrik sagði í viðtali við DV að öfund og peningag- ræðgi réöi ferðinni hjá bændun- um en ekki náttúruvemd. Bændumir hafa hótað lögbanni á verksmiðjuna og miUjóna króna skaðabótakröfumfái verk- smiðjan rýmkað vinnsluleyfi í vatnínu. Ljóst sé að áhrif dæl- Inga, er varðar setfiutninga, séu allt aö þrefalt meiri en áður var talið og starfsemi Kísiliðjunnar hafi eyðilagt Ytriflóa sem silungs- stöð. Bændumir segja aö veröi þeim dæmdar skaðabætur vegna þessa tjóns muni þeim verða var- ið til að endurheimta þá náttúru- auðlind sem Mývatn og Laxá voru áður en starfsemi Kísiliðj- unnar hófst. Grásleppan: Þadséstvaria kvikindi ennþá Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Viö erum byrjaðir, nokkrir laráðlingar, en það sést ekki kvikindi ennþá. Við verðum bara að treysta á að guð og lukkan sjái til þess að úr þessu rætist,“ segir Halldór Karel Jakobsson, trillu- karl á Þórshöfn, en hann er einn fiölmargra Norðlendinga sem hafa hafið grásleppuveiðar. Eins og Halldór segir er sáralit- il veiöi enn sem komið er enda á, ef allt er „eðlilegt“, ekki að fara að veiðast neitt að ráði af grá- sleppunni fyrr en kemur fram undir miðjan apríl. „Hingað á okkar miö á hún að ganga íyrst upp að landinu og fyrst hún hefúr ekki gert þaö enn þá er ekki aö undrast þótt menn hafi ekki feng- iö neitt annars staðar,“ segir Halldór. Að sögn HaUdórs er verð á grá- sleppuhrognum nokkuö mis- munandi. Dæmi em um að menn fái 300 krónur fyrir kg af hrogn- um upp úr sjó en um 350 krónur ef hrognin hafa staðiö í 12 tíma og eru „ofanafhellt". Niðursuöu- verksmiðjan Strýta hf. á Akur- eyri hefur boðið sjómönnum 48 þúsund krónur fyrir tunnuna af hrognum og borgar að auki flutn- ingskostnað. Ms. Esja seld til Noregs Samgönguráðuneytið hefur selt ms. Esju, eitt af skipum Rikis- skipa, tii norska fyrirtækisins Leca as. fjTÍr rúmlega 80 milljón- ir íslenskra króna. Kaupsamn- inguriim var undirritaður nýlega en skipið verður afhent um miðj- anapril. -GHS Reagan og Gorbatsjov til íslands? „Við ætlum að bjóða Reagan og Gorbatsjov hingaö öl lands til að taka upp tvo til þrjá viðtalsþætti um leiðtogafúndinn í Reykiavík 1986 og vonumst til að þaö geti orðið í samvinnu við ríkisstjóm og borgaryfirvöld," segir Ingvi Hraíh Jónsson, fréttastjóri Stöðv- ar 2. Menningarsjóður útvarps- stöðva úthlutaöi íslenska út- varpsfélaginu fjórum miHjónum krónatilþessaverkefnis, -GHS Fréttir Siðferði stjómmálamanna: Spillingin úr grasrótinni Kratar efndu til fundar fyrir skömmu þar sem umræðuefnið var siðferði stjómmálamanna og hvort siðbótar væri þar þörf. Frum- mælendur voru þeir Bjami Vest- mann, upplýsingafuUtrúi utanríkis- ráðuneytisins, Guðjón Friðriksson sagnfraeðingur, Jónas Kristjánsson ritstjóri og Karl Steinar Guðnason alþingismaður. Siðferðinu ábótavant Allir voru þeir sammála um að sið- ferðinu væri ábótavant í íslenskum stjórnmálum, en dæmdu mishart. Jónas Kristjánsson sagði að í raun kæmi spilhngin ekki frá stjómmála- mönnunum, heldur frá almenningi, grasrótinni sjáifri. Og einmitt vegna þess kæmust stjómmálamenn upp með ótrúlega spiúingu. Almenningur liti spilhngu sfjórnmálamanna ekki alvarlegri augum en framhjáhald. Hann nefndi dæmi af því þegar stúd- entsárgangur, sem Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra tUheyrði, hélt upp á 30 ára stúdentsafmæU um borð í báti úti á Breiðafirði. Þar veitti Jón sem ráðherra skólasystkinum sínum áfengi á kostnað skattborgaranna. ÖUum skólasystkinum Jóns þótti þetta sjálfsagt. Hann Jón okkar er nefnUega orðinn ráðherra, sagði fólkið. Jónas nefndi líka ferðahvetj- andi dagpeningakerfi ráðherra, spiU- ingu í sambandi við fjármögnun landbúnaðarins og fleira. AUt þetta léti almenningur á íslandi sig Utlu skipta. Hafskip/Utvegsbankamál Bjarni Vestmann benti á Haf- skips/ÚtvegsbankamáUð sem dæmi um spiUingu í íslenskum stjómmál- um. Inn í þaö mál tengdust stjóm- málamenn, svo sem Albert Guð- mundsson. Enginn stjómmálamaður sagði af sér vegna þess máls. Nefndi Bjami ýmis dæmi frá útlöndum þar sem ráðherrar hafa sagt af sér fýrir minna. Guðjón Friðriksson sagði póUtíska spillingu ekki nýja af nálinni hér á landi. Rakti hann hvemig Hannes Hafstein ráðherra notfærði sér að- stöðu sína til að koma sínum mönn- um hvarvetna að. Sömuleiðis hvem- ig Bjöm Jónsson ráðherra, sem tók við af honum, fór eins að. Hann nefndi hvemig þeir Ólafur Thors og Jónas frá Hriflu skiptu með sér völd- um í Landsbankanum til að tryggja veldi SÍS og Kveldúlfs á sínum tíma. I.andsbankinn og ábyrgðin Karl Steinar tók í ýmsu undir með Jónasi Kristjánssyni um að spilling- in kæmi úr grasrótinni. Nefndi hann sem dæmi að hér á landi væri það þjóðaríþrótt að svíkja undan skatti. TaUð væri aö skattsvik næmu á bU- inu 5 til 15 miUjörðum á ári. Hann varði aftur á móti fyrirgreiðslupóUt- ík alþingismanna, sagði ekki hægt að komast hjá henni. Hann sagði nauðsynlegt að gera stjómmála- menn ábyrgari gerða sinna en nú væri. Hann nefndi LandsbankamáUð þar sem enginn væri dreginn tU ábyrgðar. -S.dór BUNAÐARBANKINN - Traustur banki VAXTALINAN FJÁRMÁLAÞJÓNUSTA UNGLINGA Fjármálaþjónusta fyrir ungt fólk sem vilL... • vera sjálfstœtt ífjármálum • létta sér skólastarfið • frœðast um fjármálaheiminn • gera tílveruna skemmtilegri Vaxtalínan er ætluð fólki á aldrinum 13 -18 ára. Þessi þjónusta býður upp á veglega skóladagbók, fjármálanámskeið, bílprófsstyrki, hraðkort, afsláttarkort, vaxtalínuvörur og ýmislegt fleira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.