Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Qupperneq 32
F R E T T A S KOTI
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1993.
Dauðaslys á
Fáskrúðsfirði
Skömmu fyrir miðnætti aðfaranótt
laugardagsins rákust saman bifhjól
og bifreið á Skólavegi á Fáskrúðs-
firði. Ökumaður biíhjólsins lést sam-
stundis. Hann var tæplega 18 ára og
hét Guðjón Gunnarsson, til heimilis
aö Skólavegi 4 á Fáskrúðsfirði. -em
Vestmannaeyjar:
Mikil skemmd-
dansleik
Ómar Garöarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Að sögn lögreglu var mikil og al-
menn ölvun hér í bænum alla pásk-
ana og bar mikið á drukknum ungl-
ingum. Erill var hjá lögreglu og bar
talsvert á skemmdarverkum, sér-
staklega eftir dansleik aðfaranótt 2.
í páskum.
Tryggvi Kr. Ólafsson rannsóknar-
lögreglumaður sagði að mesta tjónið
hefði orðið við Hásteinsvöll þar sem
4 flaggstengur voru brotnar - um-
talsvert tjón því hver stöng kostar
um 25 þúsund krónur. Þetta gerðist
snemma morguns annan í páskum.
Á svipuðum tíma var rifið niður
grindverk við Hásteinsblokkina og
því kastað í númerslausa bifreið sem
þar stóð. Einnig var brotið loftnet á
öðrum bíl og brotin rúða í langferða-
bifreiö við Faxastíg.
Ekki hafðist uppi á sökudólgunum
en grunur leikur á aö þarna hafi sami
hópurinn veriö að verki.
Ekið á stuttan
Frakka í röð
Bifreið var ekið inn í biðröð fyrir
utan skemmtistaðinn 22 við Lauga-
veg aðfaranótt síðastliðins fimmtu-
dags. Fyrir bifreiðinni urðu nokkrir
gestir staðarins, þar á meðal leikar-
inn Jean Philippe Labadie, sem fer
með aðalhlutverkið í grínmyndinni
Stuttur Frakki. Frakkinn lenti undir
bílnum og brotnaði á bæði fótlegg og
handlegg. Aðrir slösuðust minna.
Jean Philippe var staddur hér á
landi í tilefni af frumsýningu mynd-
arinnar síðastliðinn þriðjudag. Hann
hélt af landi brott um helgina. Til
stóð að hann færi á næstunni í leik-
för til Bandaríkjanna en óvíst er
hvort af því getur orðið vegna
meiðslanna sem hann hlaut hér á
landi. -kaa
Samútgáfan stef nir
Betel fyrir meiðyrði
Samútgáfan Korpus, sem m.a.
gefur út Bleíkt og blátt og Hulinn
heím, hefur ákveðið að stefna
Snorra Óskarssyni, forstöðumanni
Betel-safnaöarins í Vestmannaeyj-
um, fyrir meiðyrði og atvinnuróg
sem fram kom í ræðu hans í út-
varpsmessu á skírdag. Að mess-
unni stóðu auk Betel-safnaðarins
fulltrúar katólskra, aðventista,
Hjálpræðishersins og þjóðkirkj-
unnar.
„Ég talaði um Samútgáfuna og
sagði að hún gefi út Bleikt og blátt,
sem er klámrit, og Hulinn heim,
sem fjallar um svartar messur og
djöfladýrkun. Ég talaði um að þetta
væri næringin sem börnin fengju.
Ef foreldrarnir sýna þeim ekki
neina bibliufræðslu eða kristilegan
áhuga þá tekur þetta náttúrlega
við. Þá segi ég; það er bölvun sem
hvílir yfir Sam-útgáfunni,“ sagði
Snorri Óskarsson hjá Betel-söfnuð-
inum i Eyjum í samtali við DV í
morgun.
„í biblíunni er talað um þessa
þætti; klám, djöfladýrkun, andatrú
og allt þetta kukl - þetta er bölvað
af Guði. Þeir sem fara inn í þetta
fá þá bölvunina yfir sig. Ég sagði
svo að ég lokaði Sam-útgáfunni í
Jesúnafnij Svona fyrirtæki mega
ekki vera eins og oprnn brunnur
spillingarinnar,“ sagði Snorri.
Sættum okkur ekki
við þetta
Þórarinn Jón Magnússon, rit-
stjóri og stjórnarformaður Sam-
útgáfunnar, sagöi í morgun að lög-
maður heföi verið fenginn í málið
þegar á skírdag þegar spurnir bár-
ust af ræðu Snorra í útvarpinu um
útgáfuna.
„Við ætlum ekki að sitja undir
svona atvinnurógi og svívirðing-
um, eins og voru látin dynja á fyrir-
tækinu, og því að vera kallaðir öll-
um illum nöfnum. Viö sættum okk-
ur ekki við þetta," sagði Þórarinn
Jón.
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.,
lögmaður Sam-útgáfunnar, mun
leggja fram stefnu á hendur Snorra
Óskarssyni þegar viðeigandi gögn
liggja fyrir í málinu, m.a. segul-
bandsupptaka af framangreindri
útvarpsmessu.
-ÓTT
Stórbruni í Ananaustum
iii
Umferð gekk vel í gær:
Langjökull
eins og
Laugaveg-
Stærri skemman brann alveg og allt sem í henni var en sú minni slapp að mestu í eldsvoðanum sem varð í
Ánanaustum 3 á skírdag. Þarna fóru forgörðum ýmsir sögulegir munir tengdir málmsteypu i Reykjavík. Þar á
meðal brunnu gömul trémót sem boðin höfðu verið Þjóðminjasafninu til varðveislu. DV-mynd Sveinn
Að sögn lögreglunnar gekk umferð
mjög vel og nánast óhappalaust allan
daginn í gær. Að sögn lögreglu-
manna í Reykjavík var umferð „mjög
þétt“ undir kvöld. Bílar streymdu til
höfuðborgarsvæðisins bæði á Vest-
urlands- og Suðurlandsvegi.
Mjög margir notuðu góða veðrið
um páskahelgina til að fara út úr
þéttbýlinu til að dvelja í sumarbú-
stöðum, fara í jeppaferðir, á skíði eða
í bíltúra. Flugmaður tilkynnti í gær
að Langjökull væri eins og Lauga-
vegurinn. Úr véhnni heföi sést mjög
mikil bíla- og vélsleðaumferö og fólk
að spóka sig á jöklinum.
Á Blönduósi bárust þær upplýs-
ingar að mikil umferð hefði verið á
þjóðveginum við bæinn og greinilegt
að margir heföu komið að sunnan til
að njóta frídaganna fyrir norðan eða
Norðlendingar heföu skroppið suð-
ur. Færð var víðast hvar mjög góð á
landinu. -ÓTT
LOKI
Nú duga engar venjulegar
fyrirbænir!
Veðrið á morgun:
víðast hvar
Á morgun verður norðaustan-
kaldi og skúrir eða slydduél á
Vestfjörðum. Rigning verður á
Austfjörðum en skúrir verða í
öðrum landshlutum. Hiti verður
2-6 stig yfir hádaginn en nálægt
frostmarki að nóttunni.
Veðrið í dag er á bls. 36
Veðríð kl. 12 á hádegi
ÖRYGGl - KAGMENNSKA