Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993 25 Ferðir Ferðabær: Skemmtisiglingar og sumarhús Ferðabær býður upp á fjölda skemmtisiglinga um Miðjarðarhaf og Karíbahaf. í haust hyggst ferðaskrifstofan efna til móts Vestur-íslend- inga og fólks frá gamla landinu á viku skemmtisiglingu um Karíbahaf. Ferðaskrifstofan Ferðabær hefur í samvinnu við bandaríska ferða- skrifstofu stofnað kynningar- og ferðaskrifstofuna Florice sem hef- ur aðsetur sitt í Ft. Lauderdale í Flórída. Markmiðið er að komast að sem bestum samningum fyrir íslendinga sem kjósa að lengja sumarið í Flórída og auka straum Bandaríkjamanna til íslands. Ferðabær er með fjölda skipafé- laga á skrá hjá sér sem fengist hafa mjög góð tilboð hjá og er um mikið úrval ferða að ræða. í haust hyggst ferðaskrifstofan ásamt öðrum aðilum í ferðaþjón- ustu efna til móts Vestur-íslend- inga og fólks frá gamla landinu á viku siglingu um Karíbahaf. Siglt verður á glæsiíleyinu Holiday sem er í eigu skipafélagsins Camival Cruise Line. Ferðabær býður einnig upp á skemmtisiglingar um Miöjarðar- haf. Sem dæmi um marga mögu- leika má nefna sæluferö á lúxus- skipum umhverfis Ítalíu frá Nissa til Feneyja eða öfugt í sjö daga. Eixuiig bjóðast ferðir til Grikk- lands, Tyrklands og eyjanna í Aust- ur-Miðjarðarhafi, aiik ísraels og Egyptalands. í upphafi sumars býður Ferðabær upp á 17 til 24 daga ferðir um tvö síðastnefndu löndin. Sumarhúsin í Hostenberg, sem Ferðabær hefur umboð fyrir, eru vel í sveit sett fyrir íslendinga. Hostenberg hggur miðja vegu milh Lúxemborgar og Trier uppi á hæð fyrir ofan bæinn Saarborg í Saar- dalnum. Þriggja tíma akstur er frá sumarhúsunum í Hostenberg til Euro Disney skemmtigarðsins í Frakklandi. Skosku hálöndin, Orkneyjar, Ed- inborg og Glasgöw eru áfangastaðir í ferð sem Ferðabær skipuleggur í júní. Safaríferð til Keníu er á dagskrá ferðaskrifstofunnar í haust. TÖFRAR ROMARBORGAR Borgin eilífa > ► ► ► > ► ► ► ► ► ; Stórkostlegur möguleiki á ævintýraferð til Rómaborgar. Flogið er til Kaupmannahafnar á miðvikudögum og gist eina nótt á Komfort- hótelinu rétt við Ráðhústorgið. Næsta dagj/erð- flogið með ítalska flugfélaginu Alitalia til ur Rómaborgar þar sem dvalið verður í 6 daga og gist á hótel Genova sem er 4ra stjörnu hótel í hjarta borgarinnar. | I Róm gefst kostur á að fara í margs konar skoðunarferðir, svo sem: dagsferðir til Napólí og Caprí með viðkomu í Bláa hellinum. Verð á mann 7.500 kr. ■ Stórkostlegar skoðunarferðir með enskumæl- andi fararstjórum. í boði eru bæði hálfs og heils dagsferðir: Colosseum, Vatikanið, Péturskirkjan. Fornminjarnar og meistaraverk endurreisnar- tímans eru alls staðar og magnþrungin listin heillar. Verð frá 1.500 kr. Verð: 71.500 kr. Innifalið er flug Keflavík, Kaupmannahöfn, Róm, Kaupmannahöfn, Kefla- vík, gisting 1 nótt í Kaupmannahöfn, 5 nætur í Róm (miðað við mann í tveggja manna her- bergi), morgunverður, flugvallaskattur á íslandi, Danmörku og á Italíu. Einstakt tilboð. D^Munið ódýru Billund ferðirnar. Verð 23.900 kr. með öllum flugvallagjöldum ef bókað er fyrir 1. maí. Ferðatímabil 26. maí-25. ágúst. Ferðaveisla sumarsins. i Ferðaskrifstofan Alís - s. 652266 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 NEW YORK BALTIMORE/WASHINGTON MIDAVERÐ B1.900 KR. FLUGVALLARSKATTAR 2.645 KR. VERÐ SAMTALS 34.545 KR.* FR4 \E1V YORK U>\ R4LTEHORE Við bjóðum vesturförum framhaldsflugmiða með USAir á mjög hagstæðu verði. USAir-flugkortið gildir frá milli tveggja og allt að tíu áfangastaða í Bandaríkjunum og Kanada. Verð á USAir-flugkorti fer eftir fjölda áfangastaða og eftir því hvar þeir eru í Bandaríkjunum (þrír verðflokkar). Fyrir 18.400 kr. * má t.d. fljúga til Atlanta, Chicago, Dallas, Fort Laudetdale, Miami, Houston, New Orleans, Montreal, Toronto eða Minneapolis. Fyrir22.200 kr. * (2 áfangast.) má t.d. fljúga til San Francisco, Denver, Los Angeles, Las Vegas, Albuquerque eða Seattle. 3E d) OATXAS-* Pantiö strax. Takmarkaö sœtaframboö Verð fyrir börn yngri en 2ja ára: samtals5./S0 kr. Verð fyrir börn 2ja - 11 ára: samtals 17.940 kr. Brottför ekki síðar en 1. júní 1993. Síðasta heimflug 10. júní. Lágmarksdvöl 7 dagar. Hámarksdvöl 1 mán. Farseðil skal bóka og greiða samtímis minnst viku fyrir brottför. Hagstœtt verö á úrvalsgistingu og li&LL btlaleigubílum. Haföu samband viö söluskrifstof ur okkar, umboösmenn um attt land, feröaskrifstofumar eöa í síma 690300 (svaraö atta 7 daga vikunnarfrá kL 8 -18) FLUGLEIÐIR Traustur íslenskur ferSafélagi ‘

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.