Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Qupperneq 12
32
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL1993
Ferðir
Ferðaskrifstofan Ratvís:
Vínaróperan,
Austurlanda-
hraðlestin og
framandi slóðir
jgÍifVÍ! .'>1mnvii ■ ■ _ I
:
Rétt utan viö Kaíró í Egyptalandi eru pýramídarnir sem taldir eru með-
al merkustu mannvirkja veraldar.
Ratvís býður upp á ferðir til Máritíus allt árið.
Ferðaskrifstofan Ratvís sérhæfir
sig í ferðum sem sniðnar eru að
þörfum viðskiptavinanna hverju
siirni.
Útvegaðar eru ferðir til fjarlægra
staða og á einstakan ferðamáta.
Sem dæmi má nefna heimsreisur,
flug með Concord, Austurlanda-
hraðlestina heimsfrægu, siglingu
með glæsilegum lystisnekkjum
eins og Queen EUsabeth n, safari
í Afríku, menningarferðir til Ind-
lands, Suður-Ameríku, Japans eða
Kína svo eitthvað sé nefht. Fyrir
þá sem þyrstir í ævintýri má nefna
bjamarveiðar eða laxveiðar í Al-
aska.
Seinni hluta júnímánaðar býður
Ratvís upp á ferð til Vínarborgar
og tækifæri gefst til að hlýða á
Kristján Jóhannsson syngja í
óperuhúsinu þar.
Austiurísku Alpamir lokka ekki
síður ferðamenn til sín á sumrin
en á vetuma og Ratvís býður nú
upp á sumarhús í Austurríki auk
gistingar í sumarhúsum, íbúðum
og hótelum í flestum öðrum Evr-
ópulöndum.
Kampavínshelgi
í kastala
Ratvís hefur einnig mikið úrval
einstakra gististaða, meðal annars
kastala og hallir, í Þýskalandi og
vfðar, sem breytt heftn- verið í hót-
el. Boðið er upp á ýmsa hagstæða
pakka þar sem dvahð er á slíkum
stöðum. Sem dæmi má nefna
„kampavínshelgar“ þar sem um er
að ræða gistingu í tvær nætur með
morgunverði, eina þríréttaða mált-
íð og eina sex rétta kampavínsmált-
íð.
Mexíkódvöl er hægt að blanda
saman við dvöl í Orlando, New
York eða Baltimore. Einnig eru
ferðir frá London til Mexíkó hvort
heldur sem er á eigin vegum eða í
fylgd með reyndum fararstjórum.
Máritíus í
Indlandshafi
Máritíus í Indlandshafi er einn
af fjarlægari áfangastöðum Rat-
viss. Umboðsmenn ferðaskrifstof-
unnar á eyjunni, Mauri Tours, sjá
um daglegar ferðir til allra athygl-
isverðustu staðanna. Ratvís býður
upp á ferðir til Máritíus allt árið.
Aðrir valkostir eru Egyptaland,
Tæland, Brasilía og Bandaríkin.
Hawaiieyjar og Jómfrúreyjar í
Karíbahafinu eru vinsælir áfanga-
staðir Ratvíss auk Portúgals og
Madeira.
Boðið er upp á fjölda Grænlands-
ferða í sumar, silunga- og laxveiði-
ferðir og vikuferðir um Suður-
Grænland.
Ratvís býðin- ferð með hvaða
ferðaskrifstofu sem er í Bretlandi
og er því bæði um marga mögu-
leika og hagstætt verð að ræða.
Einnig er Ratvís með umboð fyrir
Profil Rejser frá Kaupmannahöfn.
í stað þess að leggja áherslu á hefð-
bundnar sólarlandaferðir til Spán-
ar og annarra Evrópulanda bjóða
Profil Rejser mikið úrval af ferðum
til athyglisverðra áfangastaða fjær
og nær.
átffyát
Tenerifa á Kanarieyjum er einn Ijölmargra staða sem RCI-klúbburinn býður gistingu í lúxusibuoum
Framtíðarferðir:
Nýr valkost-
ur á ferða-
markaðnum
Nýr valkostur á íslenskum ferða-
markaði er að fjárfesta í dvöl á eft-
irsóttum orlofsstöðum um allan
heim. Framtíðarierðir bjóða nú ís-
lendingum aðild að stærsta sumar-
og vetrarleyfaklúbb í heimi, RCI-
klúbbnum. Klúbbfélagar geta vahð
um frí á um 2300 dvalarstöðum í
70 löndum. Um er að ræða dvöl á
sólarströndum Evrópu, á skíðahót-
elum í Ölpunum, í Suður-Ameríku,
Austurlöndum fjær og Grænlandi
svo eitthvað sé nefnt.
Allir gististaðir á vegum RCI
þurfa að standast ákveðnar og
mjög strangar gæðakröfur. í boði
eru lúxusíbúðir með öllum þægind-
um og þjónusta svo sem bama-
gæsla, heilbrigðisþjónusta, bíla-
leiga, flugþjónusta o.s.frv.
RCI virkar að mörgu leyti eins
og banki. Viöskiptavinurinn gerist
aðili með þvi að leggja ákveðna
upphæð inn í byrjun og tryggir sér
með því rétt til orlofsdvalar vítt og
breitt um heiminn, í eina eða fleiri
vikur á ári til 99 ára.
Framtíðarferðir eru umboðsaðili
á íslandi fyrir Domino do Sol, 5
stjömu lúxusíbúðahótel í Algarve
í Portúgal sem er aðili aö RCI-
ferðafélaginu. Sá sem á til að
mynda rétt til tveggja vikna dvalar
í íbúð í Portúgal sækir einfaldlega
um til RCI að fá að taka sinn gisti-
rétt út á einhverjum öðram stað í
heiminum þar sem félagið hefur
orlofsstaði tíl umráöa. Og þar sem
meðlimir RCI era sex milljónir eru
möguleikamir eðlilega margir.
RCI-meðlimir fá vexti á innstæð-
ur sínar í formi bónusvikna sem
koma til vegna þess að mikill fjöldi
þáttakenda nýtir ekki rétt sinn
hveiju sinni.
Eignarréttur hvers og eins er
ekki fastbundinn við viðkomandi
aðila. Hann getur lánað öðrum or-
lofsrétt sinn, leigt hann og arfleitt
afkomendur sína að honum.
RCI-ferðafélagiö er í beinu tölvu-
sambandi við 40 flugfélög um allan
heim og í samvinnu við tíu af
stærstu ferðaskrifstofum heims. í
boði er bæði áætlunarflug og leigu-
flug til ákvörðunarstaöa. Samning-
ar hafa verið gerðir um afslátt á
flugfargjaldi fyrir klúbbfélaga.