Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 21. APRlL 1993 36 Ferðir Beint nug til fjölda borga Flugleiðir: Ítalía er einn þeirra staða sem Flugleiðir bjóða ferðir til i samvinnu við erlendar ferðaskrifstofur. Auk þess býður flugfélagið upp á beint flug til Milanó. Meðal nýjunga, sem Flugleiðir bjóða feröamönnum í ár, er beint flug tU Barcelona á Spáni og Mílanó á ít- alíu og ferðir til Malasíu í samvinnu við erlenda aðila. Flug og bíll er ferðamáti sem nýtur stöðugt meiri vinsælda og sem fyrr er boðin hótelgisting vítt og breitt um Evrópu og Bandaríkin og dvöl í orlofshúsum og íbúðum í mörgum Evrópulöndum. Malasía og Kenía í samvinnu við ferðaskrifstofuna Reliance SMAS bjóða Flugleiðir ferð- ir fyrir einstakhnga og hópa til Mal- asíu í Asíu. Höfuðborgin í Malasíu er Kuala Lumpur sem er miðstöð verslunar og fjármálalífs. Hún ber jafnframt skemmtilegan svip frá ný- lenduánun Breta. Frábær aðstaða er fyrir sóldýrkendur í Penang og Pan- kor. í fjaíllendi Malasíu þykja stað- imir Cameron og Genting upplagðir til hressingar og hvíldar. Flugleiðir bjóða einnig ferðir til Keníu í samvinnu við Kenya Airwa- ys og Path Ltd. Náttúrufegurðin og dýralífið í Keníu hafa heillað marga og eru safarííerðir um háslétturnar ógleymanlegar vegna fjölbreytts dýralífs. Grikkland ogTyrkland Sólar- og ævintýraferðir til Mið- jarðarhafslanda eru í boði hjá Flug- leiðum. Flogið er til Kaupmanna- hafnar og þaðan með dönsku ferða- skrifstofunni Fritidsrejser til áfanga- staðar. í Grikklandi er um að ræða 17 áfangastaði. Þeir helstu eru Aþena og ströndin suður frá borginni, Krít, Rhodos, Santorini, Paros, Naxos, Kos, Patmos, Samos, Mytilini og Korfu. í Tyrklandi er m.a. boðið upp á dvöl í Alanya, Kemer, Antalya, Marmaris og Icmeler sem eru vin- sælir staðir á tyrknesku rivierunni. Einnig eru í boði skoðunarferðir um Tyrkland. Egyptaland og Ítalía Til Egyptalands bjóða Flugleiðir ferðir í samvinnu við dönsku ferða- skrifstofuna Stjemegaard & Steinbeck. Um er að ræða bæði ein- staklingsferðir og skipulagðar hóp- ferðir. Ítalía er einn af áfangastöðunum sem Flugleiðir bjóða ferðir til í sam- vinnu við Fritidsrejser. Á Sikiley er dvalið í Naxos og Taormina, farið er til Alghero á Sardiníu, til Terracina, sem er 100 kílómetra sunnan við Róm, til Garda við Gardavatn og Arma di Taggia á ítölsku rivierunni. Róm er að sjálfsögðu einn áfanga- staðanna á Ítalíu og í boði em einnig hringferðir um Róm, Flórens, Fen- eyjar, Ravenna og Assis. Frá Lúxemborg halda margir í ökuferð um Evrópu. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar: Rútuferðir um Evr- ópu og Möltuferðir Þýskaland er eitt þeirra landa sem ekiö er um í rútuferöunum. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jón- assonar skipuleggur rútuferðir um Evrópu í sumar þar sem sameinað er akstur, sigling og flug. Lengsta ferðin stendur í 24 daga og er haldið frá Reykjavík 2.júní norður til Mývatns þar sem gist er eina nótt. Þann 3. júní er siglt með Norrænu áleiðis til Færeyja og Danmerkur. Síðan er ekið suður Þýskaland, til Sviss, Ítalíu og Austurríkis þar sem skoðaðir em merkisstaðir. Á heimleiðinni er ekið gegnum Þýskaland og Danmörku þaðan sem siglt er til Noregs. Frá Noregi er svo haldið með Norrænu til íslands. Þeir sem kjósa að halda utan með Norrænu en vera ekki nema 10 daga í ferðinni geta flogið heim frá Sviss. Einnig er í boði 14 daga ferð sem haldið er í þann 12. júní. Þá er flogið til Sviss, ekið þaðan til Ítalíu, Austur- ríkis og Þýskalands. Frá Þýskalandi er haldið til Danmerkur og þaðan er siglt til Noregs. Á leiðinni með Nor- rænu frá Noregi til íslands er komið við í Færeyjum. I ágúst er áætluð önnur rútuferð. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jón- assonar býður einnig upp dvöl á íbúðarhóteli í Dannenfels í Þýska- landi í sumar. Frá Lúxemborg er um tveggja klukkustunda akstur til Dannenfels og hentar staðurinn því ágætlega til lengri eða skemmri dval- ar þeim sem kjósa flug og bíl til Lúx- emborgar. íbúðarhóteliö er vel í sveit sett fyrir skemmri skoðunarferðir um Rínarlönd. Á hótelinu erú í boði þijár gerðir af íbúðum sem henta allt frá tveimur til sjö gestum. Eyjan Malta í Miðjarðarhafi er einn af áfangastöðum ferðaskrifstofunnar í sumar. Þó eyjan sé ekki stór er þar ýmislegt að skoða, meöal annars bronsaldarhof, virkisborgir frá mið- öldum, glæsihallir frá valdatíma Jó- hannesarriddaranna og svo sjálf höf- uðborgin Valletta sem þeir byggðu frá grunni. Gististaðir eru af öllum gerðum og verðflokkum. Verðlag er lágt á mat og drykk. Til Möltu er flog- ið í gegnum London. Landið helga og Egyptaland 31. maí-17. júníl993-átján daga ferð Verð kr. 136.600,- HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Jcrúsalem, Betlehem, Jeríkó, Dauða hafið, Jórdandalurinn, Galíleuvatn, Nasaret, Tel Aviv, baðstrendur við Miðjarðarhaf. Ekið er yfir Sinaieyðimörkina og Súesskurð til Kaíró. Pýramídarnir, gamla og nýja Kaíró, skemmtisigling á Níl. INNIFALIÐ: Flugferðir, gisting í tveggja manna herbergjum á fyrsta flokks hótelum með morgun- og kvöldverði, íjöldi skoðunarferða og íslenskur fararstjóri. SKOSKU HÁLÖSDIS, VATSAHÉRUÐIS OG ORKSEYJAR Brottfbr 20. júní, heimkoma 4. júlí 1993. I þessari 15 daga ferð gefst fólki kostur á að kynnast töfrum og þjóðlífi skosku hálandanna, aka um fögur vatnahéruð og gista sögu- frægar fjarðabyggðir Vestur- og Austur-Skotlands. Þá er dvalið í stórborgunum Glasgow og Edinborg og gist á Orkneyjum þar sem kostur gefst á að kynnast eyjunum, íbúunum og fjölda sögustaða, sem ennþá bera norræn nöfn og er getið í Orkneyingasögu. Leitast er við að kynnast fjölbreyttum störfum í landbúnaði. Verð á mann í tvíbýli kr. 88.900. Aukakostn. vegna einbýlis kr. 16.800. Innifalið: Flug, rútuakstur, feija, gisting, morgunverður og ísl. farar- stjóri. Ekki innifalið: Flugvallarskattur. kr. 1.310. faékr æ Aðalstræti 2 (Geysishús) \/ Sími 62 30 20

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.