Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1993, Qupperneq 24
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1993
Sviðsljós
Stjórn DSÍ ásamt Sigríði Ármann. Frá vinstri Henny Hermannsdóttir, Ingi-
björg Róbertsdóttir, Ásta Björnsdóttir, Sigríður Ármann, Guðrún Pálsdóttir
og Erla Haraldsdóttir.
Smáauglýsingar - Sími 632700 Þver
■ Sendibílar
Til sölu Renault Trafic, háþekja, 4x4,
árg. ’87, sæti fyrir 9 manns, ekinn 171
þús. Uppl. í sfma 96-24119 og 96-25864.
■ Bílar til sölu
•Toyota Corolla Sedan GLi, árg. '93,
sjálfsk., ekinn 15 þús., verð 1280 þús.
•Toyota Touring GLi, árg. ’92, ekinn
21 þús., verð 1430 þús.
•Toyota Carina E 2,0 GLi, árg. ’93,
sjálfsk., ekinn 9 þús., verð 1700 þús.
•Toyota Touring GL, árg. ’90, ekinn
47 þús., verð 1280 þús.
•Toyota Corolla DX, árg. ’87, 5 dyra,
ekinn 84 þús., toppbíll, verð 430 þús.
• Chevy Van, árg. ’79, húsbíll, mjög
gott eintak, verð 450 þús.
Vs. 92-15488 og hs. 92-15131.
Cadillac Eldorado Convertíble, árgerð
1974, vél 501 cub, framdrifinn, topp-
eintak, ekinn 68 þús. mílur, upphaflegt
lakk. Upplýsingar í síma 98-22224 eða
98-22024.
Benz 190E, árg. ’88, ekinn 83 þús.,
sjálfsk., topplúga, grámetalik, litað
gler. Uppl. í síma 91-610430.
Stórglæsilegur BMW 520i, árg. ’89, ek-
inn 48 þús. km, vel búinn aukahlutum.
Upplýsingar í síma 92-12064.
■ Sumarbústaöir
Til sölu sumarhús i skipulögðu hverti
við Gufuá í Borgarfirði. Húsið er 45
m2 og 30 m2 svefnloft, rafmagn komið
í hverfið, ath. að taka bíl upp í hluta
gr. Allar nánari uppl. veittar í símum
91-50413 og 91-683010.
Glæsilegir arinofnar (kamínur).
Þrjár gerðir, kynningarverð, 20% afsl.
Verð 97.650, 98.900, 99.800.
Íslensk-slóvakíska, Borgartúni la,
húsi Bílakaupa. Sími 91-626500.
■ Ymislegt
m
yTDEILE
RALLY
mCROSS
DEILDRiKR.
Rallíkross-keppni verður haldin
laugardaginn 12. júní 1993, kl. 13, á
akstursíþróttasvæðinu við Krýsu-
víkurveg. Lokaskráning er mánudag-
inn 7. júní 1993 að Bíldshöfða 14, sími
91-674630 frá kl. 20-22. Stjórnin.
Heiðursfélagi í DSÍ:
Sigríður Armann
Nýlega var frú Sigríður Ármann dóttur sinni, Ástu Björnsdóttur ball- Þetta er í annað sinn sem valinn
ballettkennari gerð að heiðursfélaga
í Danskennarasambandi íslands í til-
efni af 30 ára afmæli þess.
Sigríður hefur starfrækt bállett-
skóla í 41 ár, nú síðustu árin ásamt
ettkennara.
Sigríður var einn af stofnendum
Danskennarasambands íslands og
hefur frá upphafi unnið ötullega að
dansmennt í landinu.
er heiðursfélagi i DSÍ. Áður var Her-
mann Ragnar Stefánsson gerður að
heiðursfélaga árið 1988.
Meiming
Regnboginn - Ólíkir heimar: ★★★★
Nálgun Eden
Emily Eden er Bandaríkjamaður, leynilögregla,
kona, New York búi af engilsaxneskum uppruna. í
þessari röð. í hópi félaga í lögreglunm er hún eitil-
hörð, óhefðbundin, ávallt á varðbergi. Ávallt reiðubú-
in, stundum knúin til að sanna að hún sé jafngóð eða
betri en þeir. Hún hefur lagt löggufélaganum, eina
vini sínum, lífsreglurnar til að halda honum í hæfi-
legri fjarlægð en það hefur ekki alltaf verið svo. Klæðn-
aður hennar og útht er eggjandi, hún hefur eitthvað
til að sýna og það er svo sannarlega til sýnis. Fas henn-
ar og rödd gerir hana skotmark fyrir fordóma bæði
karla og kvenna. Hún er ógift og barnlaus, komin á
fertugsaldurinn. Hún er í karlmannspásu en hefur
augun opin fyrir einhveriu nýju. Það líður ekki á löngu
þar til hún festir augun á sætum strák. Ósjálfrátt fer
hún að daðra við hann en viðbrögðin sem hún fær frá
honum eru ólík nokkru öðru sem hún hefur kynnst.
Ariel er maður, guðrækinn hasídi, fræðimaöur og
kennari af pólskum uppruna og New York-búi. í þess-
ari röð. Innan hóps trúarfélags síns er hann álitinn
snillingur og verðandi leiðtogi. Hann þarf ekki að
sanna eitt eða neitt fyrir einum eða neinum, einangrað
Kvikmyndir
Eric Thal og Melanie Griffith
Ólíkir heimar.
hlutverkum sínum
Gísli Einarsson
trúarsamfélag hans hefur lagt honum til nokkur
hundruð lifsreglur sem hann verður að lifa eftir ef
hann á að vera meðlimur. Það hefur alltaf verið svo.
Klæðnaður hans og útlit er teprulegt, fjarlægt og fram-
andi. Fas hans er yfirvegað, sjálfsöruggt. Sannfæring
og sérviska hasída gerir þá og hann að skotmarki for-
dóma hjá öllum öðrum. Hann er ógiftur og barnlaus,
kominn á fertugsaldurinn. Hann veit ekki hvað kven-
mannspása er og það er ekki ætlast til að hann kom-
ist nokkurn tíma að því. Eitthvað nýtt bókstaflega
ryður sér leið inn í einangraö sjónsvið hans. Það líður
ekki sekúndubrot þar til hann festir augun á þessari
leynilögreglu. Nánast samstundis raskar hún ró hans
og það koma brestir í sannfæringuna. Viðbrögð hans
koma jafnvel honum sjálfum óvart.
Ástarsaga milh þeirra er skiijanleg og óumflýjanleg
fyrir báða aðila. En þetta er ekki venjuleg ástarsaga,
þetta er mögulega besta ástarsaga sem hefur verið
fest á filmu frá upphafi.
Þessi einstaka mynd tekur það besta úr báðum heim-
um, hst og afþreyingu, Ameríku og Evrópu, Hohywood
glamúr, evrópskri næmi. Það er eins og tvær mann-
eskjur hafi verið yfirfærðar á filmu og lifi bara sínu
lífi í myndinni og aht sem komi fyrir sé afleiðing þess.
Handritið kemur frá nýlegum, sjaldséðum höfundi,
Robert J. Avrech, sem síðast kvaddi sér hljóðs hér í
bíó með Body Double. Leikstjórinn Sidney Lumet á
að baki afbragðskvikmyndaferil allt frá sinni fyrstu •
kvikmynd árið 1956 þar til í dag. Afrakstur sköpunar-
gleði hans sannar svo ekki verður um vihst að hann
gerir helst ekki mynd nema hann ætli sér að segja
eitthvað, hvort sem það kemur beint frá honum sjálf-
um eða öðrum.
Á hinni og löngu og torsóttu leið frá hugmynd til
handrits, frá framleiðslu til dreifingar og loks til áhorf-
andans þarf svo mikið að aðlaga, staðfæra, samnefna
og málamiðla út af svo mörgum mismunandi ástæðum
að það er minni háttar afrek að það skuli vera gerðar
stórar kvikmyndir sem reyna að segja eitthvað. Það
er síðan meiriháttar afrek þegar það tekst eins vel og
hér.
Close to Eden (A Stranger Among Us) (band. 1992)
Handrit: Robert J. Avrech.
Leikstjórn: Sidney Lumet (12 Angry Men, The Pawnbroker,
The Verdict, Q&A).
Leikarar: Melanie Griffith (Paradise, Working Girl), Eric Thal
(Gun in Betty Lou’s Handbag), John Pankow (Year of the
Gun), Tracey Pollan (Promised Land), Mia Sara (Legend),
Jamey Sheridan (Whispers in the Dark).
Petri kvaddur hálfri kveðju
Tónleikar voru í Háskólabíói í gærkvöldi. Þar lék
Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjóm Petri Sakari.
Einleikari á fiðlu var Vasko Vassilev frá Búlgaríu. Á
efnisskránni vora verk eftir Áskel Másson, Jean Sibel-
ius og Johannes Brahms.
Þessir tónleikar voru þeir síðustu sem Petri Sakari
stjómar sem aðalstjórnandi sinfóníuhljómsveitarinn-
ar. Hann hefur hins vegar verið ráðinn sem aðalgesta-
stjómandi hljómsveitarinnar næsta ár og mun því enn
láta til sín taka í tónlistarlífi hér. Tónleikarnir hófust
á verki Áskels Mássonar „Hvörf* fyrir strengjasveit.
Gagnrýnandi kom því miður of seint á tónleikana og
missti því af upphafi verksins en heyrði þó að þetta
var vel gert og áheyrilegt verk þar sem kontrapúntísk
vinnubrögð vom í fyrirrúmi. Það virtist mega greina
í verkinu áhrif frá Bartok, nánar tiltekið því fræga
verki Music for strings, percussion and celesta og er
það ekki leiðum að líkjast.
Nú til dags er í tísku að leika foma tónhst á uppruna-
leg hljóðfæri. Það gerir sinfóníuhljómsveitum að sumu
leyti erfitt fyrir þar sem það þrengir kosti um verk-
efnaval. Þeir fiðlukonsertar t.d. sem almennt era flutt-
ir nú orðið era orðnir sorglega fáir og famir aö vera
leiðigjamir vega ofspilunar. Konsert Sibehusar er þar
ekki undantekning, þótt hann í sjálfu sér teljist fágætt
listaverk. Það bjargaði að þessu sinni að einleikarinn
var frábærlega fær og hreinn virtúós í orðsins fyllstu
merkingu. Það hefði verið gaman að heyra hann leika
ferskara verk eins og t.d. konsert Bergs, Bartoks eða
Stravinskys svo nefnd séu nokkur tuttugustu aldar
verk sem eru óumdeilanlega klassík.
Fyrsta sinfónía Brahms endist með besta móti. Það
er alltaf einkennilegt að hugsa til þess að þetta allt að
því fullkomna verk var það fyrsta sinnar tegundar úr
penna höfundarins. En Brahms var vel undirbúinn
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
og vissi nákvæmlega hvað hann vildi. Flutningur
hljómsveitarinnar var yfirleitt góður á þessum tónleik-
um og bestur í Brahms. Það var svolitið eins og menn
vildu gera það Petri Sakari til heiðurs að spila reglu-
lega vel. Sakari hverfur nú til annarra starfa. Er til-
efni til að þakka honum frábært starf í þágu Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, en hún hefur tekið miklum frarn-
fórum undir stjóm hans.