Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993
3
Fréttir
Dómur yfir fyrrum leigutaka og starfsmarmi Tunglsins:
Sýknaðir af kröf-
um umsöluáinn-
anstokksmunum
- leigutakinn dæmdur fyrir skjalafals
I Héraðsdómi Reykjavíkur féO í
gær dómur yfir fyrrum leigutaka og
starfsmanni skemmtistaðarins
Tunglsins. Mennimir voru ákærðir
fyrir að hafa slegið eign sinni á ýmsa
innanstokksmuni í Tunglinu og selt
þá nokkrum aðilum í mars á síðasta
ári en héraðsdómur sýknaði þá af
kröfum ákæruvaldsins. Hins vegar
var leigutakinn dæmdur skilorðs-
bundiö í 3 mánaða fangelsi fyrir
skjalafals sem hann var einnig
ákærður fyrir.
Málavextir eru þeir að leigusalar
Tunglsins lögðu fram kæru á hendur
umræddum leigutaka í mars 1992
fyrir að hafa í skjóh kaupsamnings
fjarlægt ýmsan húsbúnað úr Timgl-
inu. í framhaldi af lögreglurannsókn
var síöan lögð fram ákæra á hendur
leigutakanum og einum starfsmanni
hans sem vitorðsmanns.
Ákærðu töldu sig hafa verið í fuU-
um rétti er þeir ráðstöfuðu innan-
stokksmununum sem þeim var gefið
að sök að hafa selt. Má þar nefna
nokkra leðursófa, 70 stóla, 80 ljósk-
astara, uppþvottavélar, borð, sjússa-
mæla og kokkteilhristara. Ákæröu
byggðu rök sín á ákvæði kaupsamn-
ings þar sem segir að seldur sé rekst-
ur veitingahússins ásamt öUu sem
rekstrinum fylgir og fylgja ber.
SamningsaðUar leigutakans mót-
mæltu þessum skilningi og töldu sig
hafa verið aö selja m.a. svokallaða
viðskiptavUd.
í niöurstöðu dóms Hjartar 0. Aðal-
steinssonar héraðsdómara segir að
ekki sé tiltekið í umræddum kaup-
samningi hvað fylgi rekstri Tungls-
ins og enginn Usti um shkt hafi verið
gerður. Því hafi mikiU vafi leikið á
því hvað fólst í kaupunum og ákærðu
hafi haft ástæðu tíl að ætla að ráð-
stöfun þeirra á húsmununum væri
þeim heimU. í ljósi þessa voru
ákærðu sýknaðir af kröfum ákæru-
valdsins úm refsingu.
Leigutakanum var einnig gefið að
sök að hafa notað falsað skuldabréf
upp á 70 þúsund krónur í mars 1987
með því að falsa nafn þáverandi sam-
býUskonu sinnar sem útgefanda þeg-
ar hann keypti hljómflutningstæki.
Leigutakinn játaði á sig þessar sakir
og var, eins og áður sagði, dæmdur
skUorðsbundið í 3 mánaða fangelsi
fyrir skjalafals.
-þjb
SU AR
FRÁ GÖNGUSKÓMTIL FELLIHÝSIS
tfN IIM IG
H UH At
ELGINl
§
1
PRVÍTEX
lVANCO,
Gönguskór frá 3.900,-
SÝNINGAfflLBOÐ: Vltnsh',dlrfrá 7JM"
4 sólstólar á 2.400.-
otR°//v
Póstsendum samdægurs!
opið laugardag kl. 10 - 6
sunnudag kl. 13-16
..þar sem ferðalagið byrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLÓÐ 7 101 REYKJAVÍK S. 91 -621 780
Vertu með
draumurinn gæti orðið að veruleika !