Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Side 5
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993
5
Fréttir
Fyrirhuguð byggð
frá Nesstofu
— samkvæmt tillögu 3 —
Þj óöminj avörður:
Ö231=-
Viljum að svæðið
njóti verndar
„Við erum með Nesstofu og Nes-
stofusafn og höfum áformað upp-
byggingu þar. Viö höfum átt í viö-
ræöum viö bæjaryfirvöld á Seltjam-
amesi um þau mál. Við höfum hug
á að þetta svæði njóti sérstakrar
vemdar með tilliti til þeirra fornleifa
sem þama em. Við vitum ekki hvort
hringimir á Seltjamamesi eru
mannvistarleifar eða náttúmmynd-
anir en við höfum hug á að skoða
þá,“ segir Guðmundur Magnússon
þjóðminjavörður um möguiega bygg-
ingu húsa í nágrenni Nesstofu á Sel-
tjarnarnesi.
MikiII golfáhugi á Patreksfiröi:
Níu holu völlur
gerður í sumar
Framkvæmdir eru hafnar við nýj-
an golfvöll Patreksfirðinga. Honum
hefur verið valinn staður í Vestur-
botnum sem er eyðijörð innst í Pat-
reksfirði.
MikiU golfáhugi spratt upp á Pat-
reksfirði í vetur og hafa 65 manns
þegar skráð sig í Golfklúbb Patreks-
fjarðar sem samsvarar þvi að um
6500 manns skráðu sig í Reykjavík.
Fljótlega var farið að huga að gerð
golfvallar og var Ragnar Hannes
Þorsteinsson, golfvallasérfræðingur
á Akranesi, fenginn til ráðgjafar.
Urðu Vesturbotnar þá fyrir vahnu.
Um þessar mundir er verið að hefja
framkvæmdir við brautir, flatir
(green), brýr og fleira. Sunnudaginn
13. júní fjölmenntu golfáhugamenn í
fyrsta sinn í Vesturbotna til að kynna
sér svæðið og taka nokkur æfinga-
högg. Var mál manna að staðsetning
golfvallarinsværiákjósanleg. -hlh
Þessir verðandi golfarar voru að
æfa púttið þegar blaðamaður átti
leið hjá. Þeir eru Rúnar Þorsteins-
son, með kylfuna, Árni Freyr Óttars-
son, með húfuna, Árni Halldór Jóns-
son kylfusveinn og Þorsteinn Jóns-
son. DV-mynd hlh
Magnús er í
persónulegum
hnýtingum
við bæjarstjórann á Seltjamamesi, segir forseti bæjarstjómar
„Blessaður vinurinn getur ekki
farið með hundinn sinn inn á þetta
svæði þegar það verður búið að
byggja þarna. Þetta er hans hunda-
svæði,“ segir Erna Nielsen, forseti
bæjarstjómar Seltjamamess, en
Magnús Erlendsson, fyrrverandi for-
seti bæjarsljómar, hefur gagnrýnt
þá ákvörðun skipulagsnefndar Sel-
tjarnamess að fá arkitekt til að gera
tillögu að aðalskipulagi vestursvæð-
isins svokallaða í samræmi við til-
lögu þijú.
„Deilan hefur aðallega snúist um
suður- og suðvestursvæðið. Við sögð-
umst taka tillit til skoðanakönnunar-
innar frá í vor og ég held að við séum
að gera það. Ég held bara að Magnús
sé í einhverjum persónulegum hnýt-
ingum við bæjarstjórann. Magnús
Erlendsson hefur aldrei sagt orð um
skipulagsmál á Seltjamamesi við
mig. Hann hefur aðallega rætt þetta
í DV,“ segir Ema.
„Það verður hver Seltimingur að
gera upp hug sinn að vori. Ef skipu-
lagsmálin verða kosningamál eins
og ég reikna fastlega með þá kemur
það í ljós hvort meirihlutinn helst
eftir kosningar. Við stöndum og fóll-
um meö okkar vinnubrögðum og því
sem við innum af hendi fyrir bæj-
arbúa. Ég lít svo á að við séum að
gera þetta til hagsbóta fyrir bæjarfé-
lagið. Við erum ekki að skemma neitt
þó að við fáum skipulagshönnuð til
að útfæra tillögu þrjú skerta. Það er
ekki búið að samþykkja neitt og við
munum leggja tÚlögu fyrir bæjar-
stjórn þegar hún kemur frá skipu-
lagshönnuði,“segirErna. -GHS
Erum fluttir
að Dalsbraut 1
„Eg hef rætt þetta við forstöðu-
mann Nesstofusafns og þetta verður
sennilega tekið upp í fornleifanefnd.
Kjarni málsins er sá að ef ástæða er
til að ætla að fomminjar séu í hættu
vegna framkvæmda á vestursvæð-
inu eru framkvæmdirnar óheimilar
án samþykkis fomleifanefndar," seg-
ir Guðmundur.
„Ég hef beðið um upplýsingar um
þessa tUlögu sjálfstæðismanna með
hugsanlegt rask á friðlýstum minj-
um í huga. Þangað til hef ég ekkert
um þetta mál að segja,“ segir hann.
-GHS
* Eldhúsinnréttingar
* Fataskápar
* Baðinnréttingar
m.
TRÉSMIÐJA
» Dalsbraut 1 - 600 Akureyri
Simi (96) 11188- Póstfax (96) 11189
15-20% AFSLATTUR
AF DYNUM I SYNINGARSAL
Amerísk
rúm
Mest seldu rúmin
í Bandaríkjunum.
Hágæða dýnur
í mörgum
verðflokkum.
Marco
Húsgagnaverslun, Langholtsvegi 111, sími 680690.
Opið virka daga frá kl. 10-18.