Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993 11 Malavi-Bancla gef ur útlögum upp sakirnar Kamuzu Banda, lífstíö- arforseti Af'r- íkuríkisins Malaví, hefur veitt þúsund- um pólitiskra útlaga sakar- uppgjöf. Malaviska ríkisútvarpið skýrði frá því í gær að i yfirlýsingu for- setans hefði útlögum verið boðið að koma heim og taka þátt í stjórnmálabaráttunni fyrir fyrstu lýðræðislegu kosningam- ar sem búist er við að verði haldnar innan árs. Þúsundír manna flúðu land til aö sleppa undan jámkrumlum forsetans sem ekki hefur liðið neins konar stjórnarandstöðu frá því hann kom til valda árið 1964. Leyfilegtað taka gjald fyrir borðapantanirí Lillehammer Veltingahúsum í Lillehammer i Noregi er heimiit að innheimta gjald fyrir að taka frá borð á meðan ólympíuleikarnir fara þar fram á næsta ári. „Það er óheppilegt en ekki ólög- legt," segir Jan Erik Halvorsen, yfirmaður verðlagsskrifstofunn- ar í Hedmark og Oppland. Blaðið Aftenposten sagðí frá því á miðvíkudag að veitingastaður- inn Ömmuhús krefðist um tvö þúsund íslenskra króna fyrír að taka frá borö á meðan óiympíu- leikarair standa yfir. Gjaldið verður ekki endurgreitt og hefur í fór með sér auknar tekjur fyrir veitingahúsið. Ástralirbanna barnakynmaka- ferðirtilAsíu Ástralska ríkisstjórnin og fylk- isstjórnirnar komust að sam- komulagi í gær um að koma á nýjum lögum sem banni ferðalög tii Asiu þar sem tilgangurinn er að hafa kynmök við böm. Ákveðið var að gera kynmök við böm erlendis að refsíverðu athæfi, svo og að skipuleggja ferðir til slíks. Duncan Kerr dómsmálaráð- herra sagði að aukningin í slíkum ferðum væri Áströlum til vansa á alþjóðavettvangi. Talið er að þúsundir Ástrala fari til Asíu á ári hvetju, einkum Filippseyja og Taílands, til að hafa mök við böm sem eru neydd út í vændi. CocaColatil Indlandseftir16 árafjarveru Indland hefur til þessa veriö eitt fárra rikja í heiminum þar sem ekki hefur veriö hægt að fá Coca Cola. Þess verður þó ekki langt að bíða að breyt- ing verði þar á, eftir sextán ára fjarveru gos- drykkjarins. Nefnd á vegum ríkisstjómar- innar féllst í vikunni á að leyfa Coca Cola fýrirtækinu í Atlanta í Bandaríkjunum að setja upp útibú á Indlandi. Helsti keppinautur kóksins, Pepsi Cola, hefur verið á índ- verskum markaði frá árinu 1990 og keppt viö innlenda kóladrykki. Reuter og NTB Utlönd Evrópubandalagið: Áfram lágmarksverð á innf luttum f iski Sjávarútvegsráðherrar Evrópu- bandalagsins, EB, náðu í gærkvöldi samkomulagi um áframhaldandi lág- marksverð á fiski sem fluttur er inn til aðildarríkjanna frá löndum utan bandalagsins. Lágmarksverðið mun gilda til 30. október. Sjómenn í ýmsum Evrópubanda- lagslöndum efndu í gær til mótmæla gegn áætlunum um að gefa verðið frjálst. í Frakklandi eyðilögðu reiðir sjómenn lager með innfluttum, fryst- um fiski. Sjómenn efndu einnig til mótmæla við fjölda opinberra skrif- stofa í hafnarbæjum. í Þýskalandi hindruðu sjómenn umferð um Kiel- arskurð. Þrátt fyrir að sérfræðingar í fram- kvæmdastjóm Evrópubandalagsins telji ekki að lágmarksverð sé besta ráðið gegn verðfalh á fiski þá féliust flest aðildarríki bandalagsins á að láta það gilda áfram. Sjávarútvegsráðherrunum tókst ekki að ná samkomulagi um eftirlit með fiskimiðunum frá gervihnött- um. Með gervihnattaeftirliti er von- ast til að betur verði hægt að fylgjast með því að sjómenn virði kvótana. Samtök sjómanna fullyrða að tiltölu- lega auðvelt verði að blekkja gervi- hnettina og því sé verið að kasta pen- ingum á glæ. I fyrstu var ráðgert að það yrðu einungis stór skip lengri en 40 metrar sem verða aö vera útbúin sérstökum móttakara. NTB Húsavík Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Norðurlandi eystra leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli á Húsavík. Um er að ræða einbýlishús á einni hæð, 200-250 m2 að stærð að meðtalinni bíl- geymslu, helst í miðbænum. Tilboð er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og -efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, afhendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjár- málaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 8. júlí 1993. Fjármálaráðuneytið, 23. júní 1993. íeldiágeð- sjúkrahúsi Að minnsta kosti sautján fórust þegar eldur braust út í geðsjúkrahúsi nærri borginni Rennes í vesturhluta Frakklands í nótt. Talsmaður héraðsstjórnarinnar sagði að sextán sjúklingar og einn starfsmaður hefðu látið lífið. Hann sagði .að tveggja til viðbótar væri saknað. Fjörutíu og sex manns vora fluttir á sjúkrahús og að sögn talsmannsins voru ellefu þeirra illa haldnir. Slökkvihðsmenn sögðu að eldurinn hefði komið upp klukkan eitt eftir miðnætti að staðartíma þegar sjúkl- ingarnir vom í fastasvefni og hann hefði fljótlega breiðst út um bygging- una. Nokkrir sjúkhnganna stukku út um glugga hússins. Slökkviliðsmenn sögðu að aðrir hefðu líklega verið undir áhrifum deyfilyfja og dáið í svefni. Reuter Nýtl hjól fyrir notað + milligjöf JwT' Fjallahjól 26" 21 gírs Dömuhjól 26" 3 gíra Rétt verö Tilboðsverð -Notað hjól Mismunur Staðgreitt 33.900 31.500 -5.000 26.500 25.175 Rétt verð Tilboðsverð -Notað hjól Mismunur Staðgreitt 23.200 19.900 -3.980 15.920 15.124 VERSLIÐ í TRAUSTRI VERSLUN * FULLKOMIN VARAHLUTAÞJÓNUSTA * ÁRS ÁBYRGÐ Á NÝJUM HJÓLUM * UPPHERSLA EFTIR EINN MÁNUÐ * FULLKOMIÐ VERKSTÆÐI, VANIR MENN Barnahjól 4-5 ára Réttverð kr. 9.500 -Notaðhjól kr. -1.900 Mismunur kr. 7.600 Staðgreitt kr. 7.220 Barnahjól f. 6 ára, Réttverð kr. 17.350 -Notaðhjól kr. -3.470 Mismunur kr. 13.880 Staðgreitt ~kr. 13.186 Fjallahjól 26" 18 gíra, Rétt verð kr. 24.800 -Notaðhjól kr. -5.000 Mismunur kr. 19.800 Staðgreitt kr. 18.810 Símar: 35320 688860 Ármúla 40

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.