Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993 Spumingin Hvað þolirðu verst í fari kvenna? Kári Tryggvason: Konur eru dásam- legustu verur í heimi. Davíð Már Danielsson: Óstöðvandi rifrildi. Guðmundur Pálmi Kristinsson: Ég þori nú eiginlega ekkert að segja um það. Einar B. Einarsson: Subbuskap. Gunnar Sveinsson: Frekju. Lesendur Er allt að f ara í kaldakol? Eggert E. Laxdal skrifar: Ef það er nokkuð sem er að tröll- ríða íslensku athafnalífi þá er þaö fijálshyggjan. Smá og stór fyrirtæki veita hvert öðru banahögg með misk- unnarlausri samkeppni og er þá skammt stórra högga á miUi. Eignir og sjóðir standa ekki undir lánum, afborgimum og öðrum kostnaði. Bankakerfið riðar til falls af þessum sökum og aörir sem lánað hafa vörur og þjónustu til gjaldþrota fyrirtækja. Starfsfólkið vinnur fyrir lítil laun og tekur þannig beinlínis þátt í því að lækka vöruverðið. Það má ekki hækka launin því þá er sagt að allt fari úr böndunum. Ef keppinautamir lækka vöruverð sitt ijúka hinir upp til handa og fóta og lækka sitt verð enn meira. Þannig gengur þetta koll af kolli uns að því kemur að allt kerf- ið hrynur, menn standa uppi með tvær hendur tómar og naga skinin handarbökin niður í kjúkur. Hefur nokkur hag af þessu? Ég held ekki. Fyrirtækin fara á hausinn, hundruð manna missa atvinnuna og eru sett á atvinnuleysibætur sem ómögulegt er að lifa af mannsæm- andi lífi. Þrátt fyrir þennan darr- aðardans ijúka menn í að byggja eitt- hvert hrófatildur á rústunum sem á að geta borið sig, samkvæmt útreikn- ingum sérfróðra manna, en í flestum tilfellum standa þeir ekki. * Það sem hér að framan er ritað er einkum stílað til kaupmanna en iðn- aður og hvers konar atvinnufyrir- tæki eru stödd á sama flæðiskerinu og bíða þess aðeins að það flæði í kaf. Hvað verður um fólkið sem þar vinnur? Þess bíður hörð og miskunn- arlaus gatan, með tóma vasa og von- leysi, því aðra vinnu er ekki að hafa í náinni framtíð. Séu menn komnir á efri ár er von um nýtt starf nánast útilokuð. Þetta er alvarlegt mál og þess vegna verða að vera einhver takmörk fyrir því hversu mikiö menn mega lækka vöruverðið eða vinnulaun sín því annars fer allt í kaldakol. ————-——— ÍlÍÍISlilBllSllllllllÉÍI ,Séu menn komnir á efri ár er von um nýtt starf nánast útilokuð," segir í bréfi ritara. Gosmagnið er rétt skammtað Ragnar Tómass., Jarlinum, skrifar: Svar Ragnars Tómassonar birtist í DV sl. mánudag en vegna mistaka féll hluti bréfs hans niður. Hér birtist bréfið óstytt. í bréfi til DV kvartar „óánægður hópur“ undan því að hafa keypt hálf- an lítra af Coca-Cola á Jarlinum, Sprengisandi og fengið „rúmlega hálft glas af klaka“. Skammtastærðin á gosdrykkjum er ákveðin með sjálfvirkri vél sem Vífilfell leggur okkur til og annast um alla þjónustu á, þar á meöal er aðgætt að skammtastærðin sé rétt. Glasið sem notað er tekur í raun um það bil 0,65 lítra. Hálfs lítra kvarðinn er hins vegar merktur mjög greini- lega utan á glasiö og því auðvelt aö sannreyna raunverulegt gosmagn með því að fjarlægja klakana. Að fá nógan klaka út í glas með fullum skammti af gosi er hins vegar þjónusta sem flestir viðskiptavinir kunna vel að meta. Til að auka kæliá- hrif klakanna eru þeir hafðir hohr og opnir þannig að yfirborðsflötur þeirra verði sem stærstur, en um leiö virka þeir fyrirferðarmeiri. Aðalatriöið er þetta; Það er ósvik- inn hálfur lítri af Coca-Cola í hálfs lítra glösunum hjá Jarlinum, klak- inn er bara bónus. Við vonum að þessii ágætu visðkiptavinir okkar taki þessar skýringar gildar og að við fáum að sjá þá sem fyrst aftur. Ríkið f ari að spara Bréfritari vill að kennslu 6 ára barna verði hætt í sparnaðarskyni. Hringið í síma milli kl. 14 og 16-eðaskrifið Nafn ogsimanr. vcrður aó fylgja bréfum Jón Sig. skrifar: Skattpíning hins almenna launa- manns er orðin þvílík að gjaldþrot blasir við þúsundum íjölskyldna á landinu. Af mörgu er að taka hjá því opinbera og má byrja á ráðuneytun- um sjálfum og fækka þar mannskap um þriðjung. Leggja mætti niður annað hvert sendiráð og hafa konsúl í staðinn. Einn og hálfur milljarður fer í ut- anlandsferðir og risnu hins opinbera, þar má spara einn milljarð. Sýslu- mannsembættum mætti fækka um helming og má þar nefna að sýslu- mannsembættið í Kópavogi og Hafn- arfirði má leggja niður og færa til Reykjavíkur og koma upp útibúum ffá sýslumanninum í Reykjavík 1 staðinn. Hætta á skólaskyldu 6 ára bama, því sú kennsla skilar sér engan veg- inn. Taka á upp samfelldan skóladag fyrir önnur böm í grunnskóla. Ann- ars staðar í skólakerfinu má spara mikla peninga. Það má leggja niður fmmgreinadeild Tækniskólans þvi þá menntun er hægt að nema við aðrar menntastofnanir, fjölbrauta- skóla og öldungadeildir um land allt. Hætta á að ausa milljörðum króna í landbúnaðarhítina því mannkindin er æðri sauðkindinni. Tvær björgun- ardeildir em nú starfræktar, björg- unarsveit vamarliðsins og Land- helgisgæslan. Þar ætti að eiga sér stað sameining undir sfjóm Islend- inga. Hætta ætti mestöllum vega- framkvæmdum hins opinbera í nokkur ár og leggja Vegagerð ríkis- ins að mestu niður. Umferðarráð og Landgræðslu rík- isins á að leggja aö mestu niður til nokkurra ára, eða þar til fjárhagur hins opinbera fer að skána að nýju. Hrossarækt ríkisins í Gunnarsholti á að hætta. Ég gæti nefnt margt ann- að til spamaðar. Ósmekklegur brandari Skarphéðixm E. skrifar: Ég átti leið frá vinnustað min- um aðfaranótt síðasta sunnudags og varð það á að stilla útvarp bíls- ins á Aðalstööina. Þar var þulur í þann mund að segja brandara sem hann sagði vera þýöingu úr blaði frá Látháen. Brandarinn hjjóðaöí eitthvað á þessa leið: „Færasti fimléikamaður í heimi var svo liðugur að hann skreið upp í rassgatið á sjálfum sér og hefur ekki sést síðan.“ Þetta þykir mér vera ákaflega ósmekklegur brandari, sérstak- lega þegar verið er aö útvarpa honum yfir landslýð. Einnig finnst mér skýring útvarps- mannsins á dlurð brandarans ákaflega ótrúleg. Látið leiðin í friði A.K. skrifar: Ég bý fyrir austan fjall, í htlu sjávarþorpi. í kirkjugarðinum er leiði foður míns sem ég hef hugs- að um. Ég set sumarblóm og blómvendi í blómavasa á leiði hans. Laugardaginn 4. júní ætlaði ég með rósavönd í garðinn en þá blasti við mér tóm hola og ljót glerdolla á leiðinu. Einhver hafi lagst svo lágt aö stela vasanum. Eg verð að kaupa annan vasa, merkja hann og vonast til að hann verði látinn í friði- Þetta er tilfinningamál fyrir mig og fólk mætti. hugsa sig um áður en það gerir óhæfu sem þessa. Slæmt þykir mér að böm úr sumarbú- staðabyggð í náp-enninu virðast hafa kirkjugarðinn sem leikvöU. Vonandi sjá foreldrar þeirra til þess að þau hætti að leika sér þar því þeir dánu eiga að fá að vera í friði. Góðþjónusta Hannes Tómasson skrifar: Ég má til með að koma á fram- færi þakklæti til handa starfs- mönnum Hjólbarðaverkstæðis Vesturbæjar, að Ægisíöu. Starfs- menn þar sýndu af sér óvenjuleg liðlegheit, langt fram yfir þess sem viðskiptavinurinn getur ætl- ast til. Slæmáhrif sólarinnar Sverrir hringdi: Flestir landsmenn fagna því þegar þeir fá að njóta sólargeisla og blíðviðris. Þvf miður er þaö svo að sólargeislarair og góða veðrið virðist einhvern veginn fara öfugt í margan bfistjórann. í biíðviðrinu undanfama daga hafa verið tíðar slysafréttir úr umferðinni, einmitt þegar aö- stæöur til aksturs ættu aö vera hvað bestar. Það er illt tU þess að vita að ungir ökumenn skufi fyllast ein- hverri þörf tii þess að spæna upp malbikiö og þurfa endUega að þenja bUvélarnar í botn þegar sólin skin. Það er vanþroska- merki á háu stigi. Bresturland- flóttiá? Lilja hringdi: Landsmenn hafa nú í nokkur ár þurft að herða sultarólina í þeirri kreppu sem hér ríður yfir. Ekkert lát virðist á og nú berast fréttir um það aö miklar skatta- hækkanir séu í vændum og nið- urskurður hvar sem því verður við komið. Enn á jafnvel að skera niður í heUbrigðiskerfinu og erf- itt er aö sjá hvernig þaö er hægt. Mér kæmi ekki á óvart þó að landflótti brysti á. Margar fjöl- skyldur eru komnar að mörkum þess aö eiga til hnífs og skeiöar og þaö er hugsanlega eina leiðin til bjargar að flýja land og leita betri kosta annars staðar,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.