Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993 Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglysingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Fjölskyldugarður Ekki er hægt annað en hrósa Reykjavíkurborg fyrir það framtak að reisa íjölskyldugarð í Laugardalnum. Garðurinn var opnaður í gær og er mikið gósenland, jafnt fyrir böm sem fullorðna. Þar er margt á boðstólum. Bæði til augnayndis og afþreyingar. í garðinum hefur verið komið fyrir torfæmbrautum, smábílabrautum og litlum golfvelh, leiktækjum fyrir yngstu kynslóðina og er að öllu leyti smekklega og skemmtilega hannaður. í framtíðinni er stefnt að uppsetningu svokallaðs Sagna- brunns, þar sem fólk getur sótt fræðslu og upplýsingar, sögulegs eðhs. Sjón er sögu ríkari og ættu alhr að finna þar eitthvað við sitt hæfi þegar fram líða stundir. Laugardalurinn er mikh vin í miðju höfuðborgarinn- ar. Þar er miðstöð íþróttastarfseminnar í landinu, knatt- spymuveliir, íþróttahöh, sundlaug og fuhkomin fijáls- íþróttaaðstaða. Lagðir hafa verið gangstígar um svæðið fyrir bæði gangandi og skokkandi fólk og ekki má gleyma Húsdýragarðinum sem hefur mikið aðdráttarafl fyrir böm og foreldra. Grasagarðurinn er og th prýði og fróð- leiks með allri sinni margvíslegu og fjölbreyttu flóm. Yfirstjóm hinnar frjálsu íþróttahreyfingar í landinu hef- ur aðsetur í dalnum og þannig má segja að tengslin milh æskunnar, úthifsins og íþróttanna tvinnist saman í þess- um vinalega dal í miðri Reykjavík. Aht er þetta th mikhlar fyrirmyndar og smám saman er Laugardalurinn að taka á sig fahega og hehdstæða mynd útivistar og andhtslyftingar. Sannleikurinn er sá að ekki hefur verið margra kosta völ í Reykjavík th afþreyingar og samneytis fyrir for- eldra með böm sín. Skipulögð útivistarsvæði hafa verið af skomum skammti. Heiðmörkin var á sínum tíma virð- ingarverð thraun th að bjóða Reykvíkingum upp á th- breytingu í faðmi náttúrunnar en í Heiðmörkinni hefur því miður htið verið gert th að laða fólk að og einhvem veginn hefur það ágæta svæði aldrei haft mikið aðdráttar- afl. Vemdun Elhðaárdalsins hefur aftur á móti heppnast vel þótt ahtof fáir hafi uppgötvað þann unaðsreit. Hvorki Hljómskálagarðurinn né Öskjuhlíðin hafa fest rætur sem útivistarsvæði eða úölskyldureitar og helst hafa það verið endumar á Tjörninni sem foreldrar hafa mátt í margar kynslóðir heimsækja með böm sín á góð- viðrisdögum. Ráðhúsið afskræmdi þá vinalegu umgjörð sem Tjömin í Reykjavík hafði upp á að bjóða. Peningum Reykvíkinga er betur varið í fjölskyldu- garða heldur en ráðhús. Sagt er að kostnaður við Fjöl- skyldugarðinn í Reykjavík nemi um þrjú hundmð mhlj- ónum, sem er vel að verki staðið og upphæð sem á eftir að skha sér í betri borg fyrir íbúana. Það er að minnsta kosti ekki mikið fé miðað við mihjarðana sem fóru í Ráðhúsið við Tjömina og gagnast engum nema þeim sem þar starfa. Með útivistar- og Qölskyldusvæði, þar sem fjöldinn getur bmgðið á leik, notið leiktækja og búið við vemdað umhverfi hreinlætis, náttúm og skipulagningar, er stigið skref sem vert er að þakka fyrir. Ahtof rík tilhneiging er th þess að stjómmálamenn vhji reisa sér minnismerki í formi steinsteypu. Ahtof mikið hefur verið lagt upp úr malbiki og ahtof mörgum auðum svæðum hefur verið úthlutað th byggingarlóða. Segja má að Reykjavík hafi verið að loka sig af sem borgarvirki úr snertingu við líf- ríkið og náttúruna. Fjölskyldugarðurinn í Reykjavík er lofsvert framtak. Borgarstjóm og borgarbúum öhum er óskað th hamingju með þennan fahega garð. EhertB. Scliram „Það er smám saman að koma betur í Ijós hversu djúp þáttaskil hafa orðið með valdatöku Bills Clinton í Hvita húsinu,“ segir i texta greinarhöfundar. Hagsmunir og hugsjónir Þaö er smám saman að koma betur í ljós hversu djúp þáttaskil hafa orðiö með valdatöku Bills Clinton í Hvíta húsinu. Bandarísk utanríkisstefna er að breytast í grundvallaratriðum og það er í rauninni rökrétt afleiðing af því sem á undan er gengið. Frá stríðs- lokum 1945 hafa Bandaríkin ekki aöeins verið sverð og skjöldur lýð- ræðisríkja í baráttunni gegn kommúnismanum, þau hafa verið siðferðilega í forsvari fyrir öll þau ríki sem hafa í heiðri hin sömu gildi og Bandaríkin sjálf grundvallast á. í krafti auðs síns, hemaöaryfir- burða og fordæmis hafa Bandarík- in verið óumdeilt forysturíki hins vestræna heims og utanríkisstefna þeirra hefur ekki mótast af þröng- um eiginhagsmunum eingöngu, eins og öðrum ríkjum er eðlilegt og sjálfsagt, heldur ekki síöur af hinum almennu og víðtæku hags- munum allra vestrænna ríkja. Meðan kommúnisminn var raun- verleg ógnun við hinn vestræna heim var litið á þetta sem sjálfsagð- an og eðlilega hlut. Þau ríki sem búið hafa í skjóli Bandaríkjanna öll þessi ár em nú að vakna við þannvonda draum að allt er breytt, það er ekki lengur sjálfgefiö að Bandaríkin hugsi um heildarhags- muni 1 fyrsta lagi og sína eigin hagsmuni í ööru lagi. Siðferðileg gildi í utanríkisstefnu Bandaríkjanna hefur alltaf verið sterkur siðferði- legur undirtónn. Bandaríkjamönn- um finnst að þeirra eigin gildi og hugsjónir, sem gert hafa Bandarík- in að voldugasta ríki veraldar, séu algild og eigi alls staðar að ríkja. Kalda stríðið snerist um þetta en nú er það búið og allt hagsmuna- jafnvægi hefur raskast. Engin hernaðarógnun steðjar lengur að Bandaríkjunum, kommúnisminn er nær útdauður. Alls staðar er lýðræðisvakning. Ný ríki koma fram á sjónarsviðið, sem enginn KjaLarinn Gunnar Eyþórsson blaðamaður mundi eftir að væru til, upp blossa stríð þar sem Bandaríkin eiga ekki hagsmuna að gæta. Stríðið á Balk- anskaga mun breyta landamærum, sem hefði kallað á íhlutun fyrir örfáum ámm, en ekki nú. Það er að sönnu hörmulegt að horfa upp á grimmdina í Bosníu en hitt er annað mál að fóma lífi þúsunda Bandaríkjamanna til að gera til- raun til að stöðva blóðbaðið sem óvíst er að tækist. Ríkin á Balkan- skaga eru ekki kommúnistaríki lengur, að formi til að minnsta kosti. Bandaríkin eiga ekki beinna hagsmuna að gæta. Þetta er fyrir- boði þess sem koma skal. Banda- ríkjamenn munu styðja friðarvið- leitni en bein hemaðaríhlutun er ekki lengur inni í myndinni þar eða annars staðar. Beinir hagsmunir Beinir utanríkishagsmunir Bandaríkjanna nú em viðskipta- legs eðhs, svo sem fríverslunarsátt- málinn við Mexíkó og Kanada, við- skiptahallinn við Japan og GATT- sáttmáhnn sem snertir efnahagslíf- iö heima fyrir beint. Þjóðemisstríð hér og þar um heiminn eru ekki ofarlega á forgangshstanum. Ætl- unin er að knýja Vestur-Evrópu og Japan til að axla meiri ábyrgð á öryggismálum og jafnframt að efla Sameinuðu þjóöimar þar sem íhlutun kann aö vera nauösynleg, eins og í Sómalíu. Clinton stefnir greinhega að þvi að firra Bandarík- in ábyrgð á annarra vandamálum og skilgreina hagsmuni Bandaríkj- anna upp á nýtt. Það er líka orðið tímabært. Það tímabil sögunnar sem hófst 1945 endaöi með hruni kommúnismans og Sovétríkjanna. Chnton er fyrsti forseti hins nýja tíma. Utanríkisstefna hans mun óhjákvæmilega mótast af því að ný heimsmynd blasir við. Forsendur bandarískrar utanríkisstefnu eru aht aðrar en þær hafa veriö síðustu 48 ár og kaha því á annan hugsun- arhátt. Clinton hefur verið sakaður um að hafa enga utanríkisstefnu. Það er ekki rétt, hann hefur tekið upp þá nýju stefnu að láta hags- muni Bandaríkjanna ganga fyrir öðru. Gunnar Eyþórsson „Bandaríkjamönnum finnst að þeirra eigin gildi og hugsjónir, sem gert hafa Bandaríkin að voldugasta ríki verald- ar, séu algild og eigi alls staðar að ríkja.“ Skoðanir aimarra Framboð gegn Ólaf i „Ég veit bara um einn mann sem hefur áhuga á því að Steingrímur J. Sigfússon verði formaður AI- þýðubandalagsins. Sá maður heitir Steingrímur J. Sigfússon... Þessir ungu menn eru svo metnaöar- gjamir að þeir hreinlega ráða ekki við sig... Ég veit ekki um nokkum mann sem bannar Kristni eða Steingrími að bjóða sig fram. En mér finnst að við höfum annað þarfara að gera en bítast um for- mennsku. Ég veit ekki um neina óánægju. Þetta er eitthvert einkamál Steingríms og Kristins." Guðrún Helgadóttir í Alþbl. 24. júní Gróðurlendi og kindur „Vitanlega var gróðurlendiö hart leikið af kind- um og mönnum, svo og af náttúruöflunum sjálfum. En hver dirfist aö álasa mönnum á reki úti á regin- hafi, sem rífa viöi innan úr skipi sínu th að hita upp undir gufukathnum th að ná landi? íslenska þjóðin náði loks th hafnar með hhðstæðu örþrifaráði. Val hennar var löngum mhli bjarkarinnar og lífsvonar fjölskyldunnar. Fjárfellir og mannfellir vom jafnan fórunautar." Jóhannes Bjömsson í Mbl. 24. júni Lögverndun aðalsins „Sagt er að íslenskur aðall sé ekki th og aö hér séu allir jafnir og meö fylgja einhverjar útjaskaðar sögur um ráðherrann og bhstjórann. Sjónvarpsfólk er th hvatt að taka myndir af ráðherra að keyra bh- stjóra þegar svo ber undir. En jafnréttið og alþýðleg- heitin enda þama. Á íslandi er mikih og öflugur eignaaðah sem nýtur slíkra forréttinda að leita þarf til annarra heimshluta th að finna samjöfnuð. Þar er jöfnuður og mannréttindi htin öðmm augum en meðal svokahaðra siðmenntaðra þjóða.“ OÓ í Tímanum 24. júní

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.