Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Side 28
36
Steingrímur Sigfússon
Palli var
einní
heiminum
„Ég veit bara um einn mann
sem hefur áhuga á því að Stein-
grímur J. Sigfússon verði for-
maður Alþýðuhandalagsins. Sá
maður heitir Steingrímur J. Sig-
fússon," sagði Guðrún Helgadótt-
ir alþingismaður.
Metnaðargirni
„Þessir ungu eru svo metnaðar-
gjarnir að þeir hreinlega ráða
ekki við sig,“ sagði Guðrún enn-
fremur.
Frjálsir merkimiðar
„Það má svo setja hvaða merki-
miða sem er á svona uppákomu.
Ég sá ekkert fijálst út úr þessu,
heldur nær eingöngu agalaust
Ummæli dagsins
bu]I,“ sagði Súsanna Svavars-
dóttir í leikdómi um ARA-leik-
húsið.
Árinni kennir...
„Ég er mjög svekktur. Við höf-
um fengið mjög góða dómara í
leikjum okkar hingað til, en þessi
dómgæsla var hroðaleg. Á við-
kvæmum augnablikum í leiknum
tók dómarinn til sinna ráða og
náði þannig að brjóta okkur nið-
ur. Við áttum alls ekkert minna
í leiknum lengst af og ef við hefð-
um fengið sama stuðning frá
dómaranum hefðum við unnið,“
sagði Lárus Guðmundsson, þjálf-
ari Víkings, eftir tap gegn Fram.
Sjálfsvíg
„Ráðandi meirihluti bæjar-
stjórnar Seltjamarness er hald-
inn alvarlegri sjálfseyðingarhvöt
þar sem meirihluti íbúanna hafn-
aði alfarið allri byggð á þessu
svæði... Ég tel þetta því vera
pólítískt sjálfsmorð meirihluta
Sjálfstæðisflokksins á Selljarnar-
nesi,“ sagði Magnús Erlendsson,
fyrrv. forseti bæjarstjómar þar í
bæ, um samþykki skipulags-
nefndar að byggja á svokölluðu
vestursvæði.
Starf óskast
...ég yrði ekki hissa ef bæjar-
stjóri færi í atvinnuleit að lokn-
um kosningum,“ sagði Magnús.
Smáauglýsingar
Vaxandi suðaustanátt
Á höfuðborgarsvæðinu verður aust-
an kaldi og síðar stinningskaldi.
Veðrið í dag
Skýjað og dálítil rigning þegar líður
á daginn. Hægari sunnanátt og skúr-
ir í kvöld og nótt. Hiti 9-12 stig.
Á landinu verður vaxandi suðaust-
an- og austanátt. Víða stinningskaldi
þegar kemur fram á daginn og all-
hvasst verður með suðurströndinni.
Fljótlega fer að rigna sunnanlands
og á Austfjörðum, og suðaustanlands
nærri hádegi. Víðast rignir einnig
dálítið um tíma á Vestur- og Norð-
vesturlandi, en á Norðausturlandi
verður þurrt og nokkuð bjart, þó
gæti vætt þar sums staðar. tímabund-
ið í kvöld. í kvöld og nótt lægir um
landið sunnanvert og þá má reikna
með skúmm. Veður fer heldur hlýn-
andi, einkum um landið norðanvert.
Kl. 6 í morgun var austan- og suð-
austankaldi á landinu en stinnings-
kaldi eða allhvasst með suðurströnd-
inni. Farið var að rigna allra syðst,
en annars var þurrt og léttskýjað
sums staðar fyrir norðan. Hiti var á
bihnu 5-8 stig.
Fyrir norðaustan land er 1020 mb.
hæðarhryggur á austurleið, en um
600 km suðvestur af Reykjanesi er
997 mb. lægð sem hreyfist norðaust-
ur.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyrí skýjað 6
Egilsstaðir skýjað 5
Galtarviti skýjað 7
Keflavíkurílugvöllur skýjað 7
Kirkjubæjarklaustur alskýjað 6
Raufarhöfn hálfskýjað 5
Reykjavík skýjað 7
Vestmannaeyjar rigning 6
Bergen skýjað 9
Helsinki rigning 11
Kaupmannahöfn léttskýjað 12
Ósló skýjað 11
Stokkhólmur skýjað 11
Þórshöfn skýjað • 8
Amsterdam alskýjaö 12
Barcelona þokumóða 19
Berlín skýjað 10
Chicago alskýjað 23
Feneyjar skýjað 18
Frankfurt léttskýjað 12
Glasgow skýjað 9
Hamborg skúr 10
London skýjað 12
„Það sem ég er að segja er að ef
flskiskipin eru of mörg og fisk-
vinnsluhúsin eru of mörg, þá eru
sjávarþorpin líka of mörg. Pólitík-
usarnir hafa bara ekki kjark til að
segja þetta. Það vita allir að það
stefnir í fækkun sjávarþorpa. Mín
rök eru þau að í staðinn fyrir að
láta jietta dembast yfir fóikið sem
Maðux dagsins
algjört skipbrot, þá sé skynsam-
legra - eins og verið er að gera með
að hjálpa bændum og fyrírtækjum
að hætta rekstri - að hjálpa jafnvel
þessum minnstu þorpum ef íbúarn-
ir sjáMr meta það þannig," segir
Trausti Valsson, skipulagsfræðíng-
ur og arkitekt, sem umdeildur er
orðinn fyrir skoðanir sínar í skipu-
Trausti Valsson skipulagsfræðing-
ur.
iagsmáium.
_ Trausti er kennari við Háskóia
íslands og hefur doktorspróf i um-
hverfisskipulagsfræði frá Berkeley
í Kaliforniu. Hann hefur m.a. gert
úttekt á auðlindum íslands og kort-
lagt þær, þ.e. jarðhita- og kalda-
vatnssvæði, malarnám o.s.frv.
„í samantektinni komu mjög
sterkt ut Mývatnssveitin og upp-
sveitir Árnessýslu. Þar er t.d. veð-
ursæld og gott undirlendi," sagði
Trausti. „Við erum að sjá dálítiö
nýja þróun. í fyrsta lagi er Ölfusið
og þetta svæðí það nálægt höfuð-
borgarsvæðinu að það er nánast
hluti af almennu þjónustsvæði þess
sem gerir það að verkum að meðan
mörg önnur landsbyggðarsvæöi
eru í vöm þá er þarna vöxtur.
Annað er þaö að borgarbúarnir
stefna dálitið inn til landsins aftur.
Þegar menn byggja sér sumarbú-
staði þá fara þeir ekki út að strönd,
þá fara þeir til fjalla, gjaman í
kjarrivaxið land.“
Trausti er viss um að með Hval-
fjarðargöngunum muni byggð og
öll starfsemi í Borgarnesi taka
geysilegan kipp.
Dregur taum manns síns Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði.
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993
i 2. deild karla í knattspymu
eru fjórir leikir í kvöld og heflast
þeir allir á slaginu kl. 20, eða á
fþróttiríkvöld
sama tíma og fréttir Sjónvarpsins
byija. Leikirnir í kvöld eru:
Grindavík - ÍR
UBK - Tindastóli
Stjarnan - BÍ
KA - Þróttur N.
Getraunadeildin
í Getraunadeildinni er aðeins
einn leikur í kvöld. Þar mætast
Fylkir og ÍA.
Skák
Sænski stórmeistarinn Ferdinand Hell-
ers sigraði af öryggi á alþjóðamótinu í
Málmey í Svíþjóð sem lauk á miðviku-
dag. Hann hlaut 6,5 v., Lars Bo Hansen,
Danmörku fékk 6 v. og Margeir Péturs-
son deildi þriðja sæti með Rogers, Ástral-
íu, Rosentalis, Lithaugalandi, og Roman-
ishin, Úkraínu, með 5,5 v.
Auk Margeirs tók Íslendingurinn
Reynir Helgason þátt í mótinu en hann
hefur búiö í Svíþjóð ffá frumbernsku.
Reynir deildi neðsta sætinu en átti ekki
láni að fagna. T.d. í þessari stöðu hér þar
sem hann hafði svart og átti leik gegn
Romanishin:
8
7
6
5
4
3
2
1
Skákin tefldist: 35. - Hh3+ 36. Kg2
Dg4 + ? 37. Kf2 Hh2+ 38. Kel Dg3+ 39.
Kdl Dxc3 40. Dxb7 mát.
í stað 36. - Dg4 + ? missti Reynir af ein-
földum vinningsleik, 36. - Hg6 + !, því að
37. Kxh3 Dg4+ er mát í næsta leik og 37.
Kf2 Hh2+ lyktar einnig með máti.
Jón L. Árnason
Bridge
Bandaríski spilarinn og bókahöfundur-
inn Mike Lawrence spilaði eitt sinn þetta
spil í sveitakeppni. Það lætur lítið yfir sér
en með smánákvæmni í úrspihnu tókst
honum að græða 12 impa. Lawrence
ákvað að opna á einu hjarta en ekki
tveimur gröndum, þar sem svona spil
ganga oft betur í litasamningi, auk þess
sem hann þolir oftast nær að fá pass á
móti. Útspil vesturs var spaðatía sem
austur drap á ás og austur spilaði tigul-
gosa til baka. Sagnir gengu þannig, norð-
ur gjafari og NS á hættu:
* ÁD62
V 9
♦ G10942
+ D102
Norður Austur Suður Vestur
Pass Pass IV Pass
Pass 4f p/h
Samningurinn lítur út fyrir að vera léttur
en þyngist nokkuð þegar í ljós kemur að
vestur á slag á tromp. Lawrence drap á
tígulás í öðrum slag, tók ÁK í hjarta og
sneri sér síðan að laufmu. Hvort á að
svína eða toppa? í huga Lawrence, var
það einfalt mál, svíningin var ekki ffeist-
ing. Hjartadrottning varð að vera inn-
koma og hann tók einfaldlega kóng og ás
í laufi. Ef austur fylgir ekki Ut er einfalt
að fara heim á spaðakóng og spila laufi
að gosanum. En austur fylgir með f
seinna laufið og fær síðan næsta slag á
laufdrottningu. Lawrence fékk næsta
slag á tígulkóng, spilaði sig inn á hjarta-
drottningu og henti tígh í laufið og fékk
10 slagi. Sagnhafi fór niður á þessu spiU
á hinu borðinu. ísak Örn Sigurðsson
* 109873
V G1084
♦ D8
+ 64
♦ G4
V D53
♦ 765
+ ÁG8
* K5
V ÁK7I
♦ ÁK5
+ K93