Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1993, Blaðsíða 4
4: FÖSTUÐAGUR 13.ÁGÚST1993 Fréttir Hverjir hirða úr sjóðum kirkjunnar? Sömu sóknirnar fá úthlutað háum fjárhæðum ár eftir ár - löglegt að veita fé til kirkjubygginga, viðhalds og menningarstarfsemi Sóknimar í Hjaltadal, Hallgríms- kirkju, Stykkishólmi og Skálholti hafa verið aUra sókna duglegastar að fá úthlutað fé úr kirkjunnar sjóð- um síðustu sex árin. Sóknarbörn í Hallgrímskirkju hafa fengið mest eða rúmlega 47 milljónir króna meðan sóknarbörn í Skálholti hafa fengið um 44 milijónir. Sóknarböm í Stykk- ishólmi koma í þriðja sæti með 41 miUjón en Hólasókn er í fjórða sæti. Sóknarbörn á Akureyri fá sinn hlut og vel það en Glerárkirkja og Akur- eyrarkirkja hafa samtals fengiö rúm- lega 45 mUljónir króna. Um er að ræða úthlutanir úr Kirkjubygginga- sjóði, Jöfnunarsjóði sókna og Kirkju- garðasjóði en úthlutanir úr þessum sjóðum em ýmist lán eða styrkir. AthygU vekur að nokkrar sóknir hafa fengið úthlutað háum fjárhæð- um úr sjóðunum ár eftir ár en það em einkum Hallgrímskirkja í Reykjavík, Hólakirkja, Skálholt, Breiðholtskirkja, Víðistaðakirkja, Stykkishólmskirkja, Glerárkirkja og Akureyrarkirkja, svo nokkur dæmi séu nefnd. Eins og fram hefur komið í fréttum DV í sumar skulda sóknirn- ar í landinu stórfé vegna kirkjubygg- inga og annarra framkvæmda á ný- Uðnum ámm og er greinilegt að kirkjumar hafa orðið að leita aðstoð- ar tU að létta skuldabaggann. RagnhUdur Benediktsdóttir, fjár- málastjóri hjá biskupsembættinu, segir að fjárveitingar úr sjóðunum þremur fari einkum í endurbætur, viðhald og rekstur á kirkjum í land- inu. Þá sé heimilt samkvæmt lögum að veita nýbyggðum kirkjum fjár- stuðning og veita fé í ýmsa menning- arstarfsemi. „Þetta fé hefur einkum farið í fram- kvæmdir í Skálholti en þaö hafa stað- iö yfir talsverðar framkvæmdir und- anfarin ár, bæði endurbygging, ný- bygging og viðhald. Von okkar er sú að geta lokið þessari endurbyggingu í Skálholti fyrir árið 2000 í tílefni af kristnitökunni og við emm bjartsýn- ir á að það takist þó að margt sé eft- ir ógert enn,“ segir séra Jónas Gísla- sonvígslubiskup. -GHS , Ráðhús Reykjavíkur og Morning Park Chikarmachi, íbúðarhúsnæði aidraðra, eru fljótt á litið ekki ósvipuð hús. Japanskt íbúöarhúsnæði minnir á ráðhúsið: Arkitektar ráðhúss vita ekk- ert um japönsku bygginguna Lesandi rakst á meðfylgjandi mynd í tímaritinu Digest af glænýju íbúðarhúsnæði aldraðra í Nagoya í Japan. Byggingin minnir í fljótu bragði á Ráðhús Reykjavík- ur. Byggingin reyndist vera tekin í notkun í Japan árið 1991. DV hafði samband við arkitekta ráðhússins, Margréti Harðardóttur og Steve Crister: „í rauninni getum við ekkert sagt um þetta mál því við vitum ekkert um bygginguna og getum ekki dæmt um þaö af einni UtiUi mynd hvort húsin séu Uk,“ segir Margrét Harðardóttir, arkitekt ráðhússins, 1 samtali við DV. „Ráðhúsið er bara teiknað fyrir þennan ákveðna staö og miðað við það umhverfi sem er hérna. Það sem maður tekur fyrst eftir við jap- anska húsið er ef til vUl bogaþakið. Hins vegar er aragrúi af hefö- bundnum þríhyrndum þökum í kringum þetta hús sem eru eins og íslensk þök.“ „Við könnumst ekki viö arkitekt- ana sem byggðu húsiö í Japan og mér þykir ólíklegt að þeir þekki okkur," segir Steve. Margrét og Steve segja að japanska húsið virð- ist frábrugðið ráðhúsinu þar sem báðar byggingamar Uti út fyrir að vera eins en byggingamar tvær í ráðhúsinu séu ólíkar. -em Tíu gömul hús merkt í sumar Ákveðið hefur verið að merkja gömul hús í Reykjavík sem eiga sér merka sögu. í fyrsta áfanga verða merkt tíu hús og fer sú athöfn fram á afmælisdegi Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst n.k. Starfsmenn Árbæjarsafns hafa val- ið húsin og er þar um að ræða Geysis- húsið, Stöðlakot við Bókhlöðustíg, Bjarnaborg, Lækjargötu 2, Bryggju- húsið á Vesturgötu, Bankastræti 3, Norska bakaríið í Fischersundi, Franska spitalann við Lindargötu, Hótel Borg og Iðnó. Árbæjarsafn hefur umsjón með verkinu og hefur safnið látið vinna útUt skiltanna. Þau verða í A-5 stærð og úr koparblöndu og mun Árbæjar- safn hafa umsjón með staðsetningu þeirra á húsunum. Umhverfismála- ráð Reykjavíkur greiðir kostnaðinn afmerkinguhúsanna. -GHS Mannlaus dráttarvél með tengivagni rann niður í fjöru við golfvöll Keilis i Hafnarfirði i fyrradag. Ekki hafði verið gengið tryggilega frá dráttarvélinni og fór hún því af stað, fram af barði, og endaöi i fjörugrjótinu. pp/DV-mynd Sveinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.