Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1993, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1993
Útlönd
Norskirher-
finennaldreieins
■_w
Agabrotum fækkar ár frá ári í
norska hernum. í fyrra þurftu
aðeins um sex þúsund dátar að
taka út refsingu og hafa þeir aldr-
ei verið færri.
I norska hernum eru 26 þúsund
menn undir vopnum og lætur því
nærri að 23% þeirra hafi orðið
að gjalda fyrir misgerðir sínar.
Árið 1991 var 27% hermanna
refsað fyrir agabrot.
Viljarannsaka
bamanauðganir
aðnýju
Aíbrotafræð-
ingar í Noregi
taka undir
kröfu Carls I.
Hagen, for-
manns Fram-
farafiokksins,
um að mál
manna, sem
sakaðir eru um nauðganir á
barnaheimili nærri Þrándheimi,
veröi tekin upp aö nýju.
Hagen segir að lögreglan hafi
klúörað rannsókninni vegna
þrýstings frá almenningi um að
einhveriurn verði refssð fyrir
misgjörðir gegn börnunum.
Sannanir skorti hins vegar gegn
þeim sem Iiggja undir grun. Enn
er óráðið hvað gert verður. Mál
þetta vakti mikinn óhug í Noregi
á síðasta ári.
Hreingerninga-
mafíanarðrænir
innflyfjendur
Lögreglan i Kaupmannahöfn
rannsakar nú ásakanur á hendur
mönnum, sem þar í borg eru
kenndir við svokallaða hrein-
gerningamafíu, um að þeir ráði
innflytjendur til starfa á mun
lægri launum en samningar
kveöa á um.
Mafían hefur á undanfórnum
árum annast drjúgan hluta af
hreingerningum í Höfn og hafa
allar tilraunir til að uppræta
hana mistekist. Mafíósarnir ráða
innflytjendur til ræstinga hjá
hinu opinbera og taka drjúgan
hluta af launum þeirra fyrir að
útvega vinnuna.
Clinton leggur
sig alltaf eftir
hádegið
Blundfræð-
ingar í Banda-
ríkjunum hafa
ákveðið að
skera upp hcr-
ör gcgn for-
dómum í garö
þeirra sem
þykir gott að fá
sér lúr i vinnunni. Þeir gera sér
vonir um góðan árangur því eng-
inn annar en Bill Clinton forseti
er blundari og leggur sig alltaf í
hálftíma eftir hádegið.
„Fólkí er eðlílegt að sofa. Við
eigum að taka þá til fyrirmyndar
sem hika ekki við að halla sér
þegar sá syfjar,“ segir David F.
Dinges, blundfræðingur viö há-
skólann í Pennsylvaníu.
BjartíÁlaborg
Borgarstjórnin í Álaborg í Dan-
mörku hafnaði tilmælum
stjörnuskoðara um að slökkva á
götulýsingu meöan stjömuregnið
væri á himni aöfaranótt fimmtu-
dagsins.
i Álaborg var því allt uppljómað
þegar stundin rann upp og kom
ekki að sök því ekkert sást hvort
eð var.
Utanríkisráðherra Noregs hótar íslendingum illu vegna veiða í Barentshafi:
Varðskip send gegn
íslensku togurunum
Johan Jörgen Holst ætlar að ræða málið við Þorstein Pálsson 1 Reykjavík
„Viö teljum að strandgæslan eigi
að gæta þessa svæðis en það er
spuming um hvaða ráðum verður
beitt til að stöðva veiðar íslensku
togaranna í Barentshafi," sagði tals-
maður Johans Jörgens Holst, utan-
ríkisráðherra Noregs, í gærkveldi
eftir að ljóst varð að íslenskir útgerð-
armenn ætluðu að senda skip sín til
veiða í smugunni svokölluðu í Bar-
entshafi.
Ósamið er um hver fer með lögsögu
á þessu svæði, sem er á milli lög-
sagna Noregs og Rússlands, en Norð-
menn hafá lagst eindregið gegn veið-
um erlendra skipa þar og sett lönd-
unarbann á þau í Noregi.
„Við hljótum að mótmæla því
kröftuglega ef íslenskir togarar hefía
veiðar í smugunni. Við lítum þetta
alvarlegum augum,“ sagði talsmaður
ráðherrans. Hann sagði einnig að
málið yrði tekið upp á fundum Host
með Þorsteini Pálssyni í Reykjavík á
mánudaginn.
Að sögn norsku fréttastofunnar
NTB gætir mikils pirrings meðal
norskra stjórnvalda eftir að fréttist
að íslenskir togarar væru á leiðinni
til veiða í Barentshafi. Norðmenn
kalla slíkar veiðar „sjóræningjaveið-
ar“ og hafa barist hart síðustu vikur
gegn veiðum færeyskra togara,
skráðra í Mið-Ameríku, á hinu um-
deilda svæði.
Norsku strandgæslunni hefur ver-
ið fahð að vísa togurum frá veiðum
í smugunni og er ekki annað að heyra
á norskum ráðamönnum en að eitt
og það sama verði látið ganga yfir
alla erlenda togara. Talsmaður utan-
ríkisráðherra sagði að Norðmenn
vildu þó helst fara samningaleiðina
og leysa deiluna þannig áður en til
aðgerða yrði gripið. ntb
Leikkonan Elísabet Taylor þarf ekki að óttast ellimörk lengur því hún verður varðveitt á vaxmyndasafni Madam
Tussaud í Lundúnum eins og hún er nú, ungleg og frísk þrátt fyrir árin sextíu. Hér er verið að Ijúka við farðann
á vaxmyndinni áður en hún verður sýnd almenningi. Símamynd Reuter
Tuttugu látnir og á annað hundrað sárir í hótelhruni í Taílandi:
Fullbókað hótel hrundi
yf ir gesti á ráðstef nu
„Við sjáum fíölda líka í rústunum
en fyrst um sinn reynum við að ein-
beita okkur að því að bjarga þeim
sem enn eru á Ufi,“ sagði lögreglu-
stjórinn í Nakhon Ratchasima í Taí-
landi í morgun eftir að hótel fullbók-
að kennurum á ráðstefnu hrundi til
grunna.
Þegar er vitað að tuttugu menn létu
lifið og á annað hundrað eru slasað-
ir. Búist er við að tölur um fíölda
látinna og slasaðra eigi eftir að
hækka þegar líður á daginn.
Nakhon Ratchasima er um 250 kíló-
metra fyrir norðaustan höfuðborg-
ina Bangkok. Um er að ræða Royal
Plaza hótelið á staðnum.Það var átta
hæðir. Ekki er vitað hvað olli því að
hótehð hrundi en verið var að gera
við þaö. Björgunarmenn segja að
Fjöldi kennara á ráðstefnu var á
hótelinu þegar það hrundi.
megna gaslykt hafi lagt úr rústunum
eftir að þeir komu á staðinn og er
getum að því leitt að gassprenging
hafi orðið þegar verið var að ganga
frá hádegismatnum í eldhúsinu.
Lögreglan segir að í það minnsta
fimm hundruð gestir hafi verið á
hótehnu þegar það hrundi. Meðal
gesta eru útlendingar en ekki hefur
verið gefið upp hverra þjóða þeir
eru. Ekki var um fiölsóttan ferða-
mannastað að ræða.
Hótelið hrundi skömmu fyrir há-
degi að staðartíma og voru gestir að
búa sig undir að snæða. Fjölmennt
var því innandyra þegar hótehð
hrundi.
Þegar er búið að koma upp tjöldum
við slysstaöinn og þar er gert að sár-
um fólks til bráðabirgða. Kranar
hafa verið fluttir að rústunum til að
fiarlægja brak svo að komast megi
að þeim sem lokast hafa inni.
Reuter
Stuttar fréttir
Staða Serba metin
Yfirmaður gæsluliðs Samein-
uðu þjóðanna í Sarajevo fer í dag
upp í Qöhin umhverfis borgina
og leggur mat á hvort Serbar hafa
staðið við fyrirheit um að draga
lið sitt þaðan.
Ekkiárásiríbráð
í Washington er fuhyrt að ekki
verði gerðar loftárásir á stöðvar
Serba í bráð þótt enn sé unnið
að undirbúningi málsins.
SkotiðáSómali
Bandarískir hermenn skutu af
vélbyssum á mótmælendur í
Mogadishu eftir að fólkið hafði
varpað aö þeim grjóti.
ítalir f lylja lið sitt
ítalska friðargæsluliöið í Sóm-
alíu er farið norður í land vegna
óánægju með samstarfið við lið
annarra þjóða i Mogadishu.
Nígeríumenn sitja heima
Þjóðlíf lamaðist í suðurhluta
Nigeriu í gær þegar fólk þar sat
almennt heima og sinnti ekki
vinnu vegna óánægju með her-
stjórnina i landinu.
Jeltsín hótar þinginu
Borís Jeltsin Rússlandsforsetí
hótaði í gær að leysa upp þing
landins og boða til kosninga létu
þingmenn ekki af andstöðu við
stjóm forsetans.
Leiðtogi Palestinumannanna
útlægu í Suöur-Líbanon segist fús
til aö fallast á tillögur ísraels-
manna um heimfór þeirra.
BoðiðtiiWashington
Rússar og Bandaríkjamenn
ætla sameiginlega að bjóða ísra-
elsmönnum og nágrönnum
þeirra til að halda áfram friðar-
viðræðum í Washington í lok ág-
úst.
Páfifasturfyrir
Jóhannes Páll páfi ítrekaði and-
stöðu sína við fóstureyðingar í
ferð sinni um Bandaríkin í gær.
Lögreglanrannsökuð
í Þýskalandi er hafin opinber
rannsókn á gerðum tveggja lög-
reglumanna þegar grunaður
hryðjuverkamaður var skotinn í
sumar.
Reuter