Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1993, Síða 13
FÖSTUDAGUR 13. ÁGUST 1993
13
Grænmetisverð í lágmarki:
Baka úr
nyjum rófum
Nú er um að gera að notfæra sér
lágt verð á grænmetismarkaðinum
og nota grænmeti meira í matseldina.
Heildsöluverð á rófum fór nýlega
úr 195 krónum ktióið í 139 krónur
og þar sem þær hafa alltaf verið vin-
sælar, hvort heldur er hráar eða
matreiddar, fylgir hér uppskrift að
gulrófuböku frá Náttúrulækningafé-
laginu.
Gulrófubaka
Bökudeig:
2 bollar hveiti
1 tsk. salt
% bolh oha
5 msk. kalt vatn
Rófudeig:
2 meðalstórar rófur
2 msk. sólblómafræ
tamarisósa/sojasósa
2 egg
1 tsk. allrahanda
salt
Aðferð:
Bökudeigið er allt hrært saman og
Bónus gefur
smjörlíkið
„Við ætlum að gefa hverjum við-
skiptavini eitt smjörlíkisstykki í dag
í stað þess að henda því,“ sagði Jó-
hannes Jónsson, eigandi Bónusversl-
ananna, sem nýlega flutti inn 2 tonn
af smjörlíki, eða 4 þúsund stykki, og
ætlaði að selja á 44 kr. stk.
„Tveimur dögum eftir að smjörlík-
ið fór frá Danmörku setti fjármála-
ráðherra 120 króna vörugjald á hvert
ktió svo verðið er komið í 149 kr. kg
með virðisaukaskatti. Þetta er þvi
vonlaust og ég er orðinn þreyttur á
þessu blessaða kerfi,“ sagði Jóhann-
es sem reyndi slíkan innflutning líka
í fyrra en varð þá að fara með 2 tonn
á haugana.
-ingo
Pnhcilnml
■4/
látið bíða. Tvær meðalstórar rófur
skornar í sneiðar, hýðið látið halda
sér á nýjum rófum.
Látið í eldfast form ásamt sól-
blómafræjunum og tamarisósunni
og bakið í'/: klst. eða þar til rófumar
eru orðnar mjúkar. Takið þá og
hrærið í hrærivél ásamt eggjunum,
allrahanda og örhtlu af salti.
Fletjið bökudeigið út í bökuform
og látið rófnadeigið yfir. Bakið í 45
mínútur.
-ingo
Það kostar minna
en þig grunar að
hringja til útlanda
PÓSTUR OG SÍMI
*58 kr.: Verð á 1 mínútu símtali
(sjálfvirkt val) til Þýskalands
á dagtaxta m.vsk.
Rófur eru ódýrar þessa dagana og
þvi upplagt að matreiða eitthvað úr
þeim.
Lifðu lífinu litandi...
í tilefni af 0 ára afmæli t\rmg!unnar
bjóða K.ri'nglan, Penninn og
Krakka-klúbbur DV öllum krökkum að
koma í Kringluna til að teikna og litaj
sérstöku litahorni, dagana 13. ágúst
til 19. ágúst.
í litahorninu eru blöð og Crayola litir,
bar sem krakkar geta litað allt milli
himins og jarðar. Hasgt er að merkja
teikningar og setja basr í sérstakan
Crayola kassa, en á hverjum degi,
dagana 13.-19. ágústverða 5 myndir
dregnar út og fá höfundarnir Crayola
litakassa í verðlaun.
Nöfn vinningshafa verða dregin út í
basttinum í takt við tímann á FM
95,7 og birt f Barna-DV.
Myndirnar verða sýndar í glugga
Pennans til skreytingar og einnig
birtar í Barna-DV.