Alþýðublaðið - 30.03.1967, Side 3

Alþýðublaðið - 30.03.1967, Side 3
CiA látin hætta leyni- greiðslunum WASHINGTON, 29. marz (NTB- Reutpr) — Johnson forseti skip- aði leyniþjónustunni CIA í daff að' hætta duldum grreiðslum sín- um til opinberra stofnana 'elía einkastofnana heima og erlendis. Jafnframt kvaðst liann mundu íkynna sér nákvæmlegra tillögur um, að ríltið héldi áfram að styðja merkar stofnanir með fjárfram- löffum án þess að nokkur leynd hvíli yfir þessum fjárframlöguin. Johnson tók ákvörðun sína í CIA-málinu á grundvelli tillagna er sérstök nefnd, sem hann skip- aði á sínum tíma til að rannsaka starfsemi CIA, hefur gert. John- son hefur skipað nýja nefnd undir forsæti Dean Rusks utahríkisráð- herra og á hún að athuga tillögur CIA-nefndarinnar um opinberar styrkveitingar. Formaður CIA-nefndarinnar, Nicholaji Katzenbach aðstoðarut- anríkisr'áðherra segir, að fjár- veitingum til CIA vegna þessarar sitarfsemi verði að mestu leyti hætt fyrir árslok svo að merkar stofnanir lendi ekki í erfiðleikum. Á FERÐ KRINGUM HNÖTTINN Kristinn Steingrrímsson, ungur íslendingur, lagði land undir fót fyrir 17 árum og hélt til Nýja Sjálands, þar sem hann ætlaði að freista gæfunnar. Og gæfan hefur reynzt honum hliðholl í nýja landinu, þar sem hann settist að. Hann er nú bóndi í Waikato, er kvæntur nýsjálenzkri konu og eiga þau fjórar dætur. Fjölskyldan er nú öll stödd á íslandi og kon- an og dæturnar að sjá ísland í fyrsta sinn. Við liittum Krist in að máli nú nýlega á heimili foreldra hans í Reykjavík. — Við ætlum að dveljast hérna í þrjá mánuði, segir Kristinn. Við komum í síðustu viku og,ég er ekki enn farinn að átta mig á því að ég sé í raun og veru kominn til ís- lands aftur. F.g hef ekki enn haft tækifæri til a'ð fara neitt um Reykjavík, síðan ég kom, en það sem ég hef séð, sýnir mér, að ótalmargt hefur breytzt á þessum 17 árum. Við erum víst ekki sérlega heppin með veðrið þessa fyrstu daga, en telpurnar eru ákaflega hrifn- ar, þær hafa aldrei komizt í snertingu við snjó fyrr og leika sér nú óspart í snjónum. — Við komum hingað til lands með Gullfossi frá Leith. En til Englands komum við á stóru fólksflutnfngaskip'i frá Nýja-Sjálandi. Ferðin til Eng- lands tók 6 vikur, við komum fyrst til Ástralíu, þá til Suð- ur-Afríku, síðan til Kanarí- eyja .og sigldum þaðan til Southampton. Þegar við förum aftur förum við sennilega með flugvél til London og tökum þar aftur sama skipið. Þá för- um við frá Englandi yfir At- lantshafið og í gegnum Panama skurðinn til Tahiti í Kyrra- hafinu, þaðan til Fiji-eyja og til Wellington. Þá höfum við farið umhverfis hnöttinn í ferðinni, sem mun öll taka sex mánuði. Rekur stórt kúabú á Nýja-Sjálandi. — Þegar ég kom fyrst til Nýja-Sjálands, segir Kristinn, stundaði ég sjómennsku á skipum, sem sigldu við strend- ur landsins. Sjómennskuna stundaði ég í þrjú ár. Svo þeg- ar ég kvæntist, vildi ég gjarn- an setjast að um kyrrt í landi og ég og konan mín fórum bæði að vinna við landbúnað- arstörf, á kúabúi. Og svo eign- uðumst við okkar eigin bú, fyrst smábýli og þar bjuggum við í fjögur ár, en fyrir fjór- um árum keypti ég jörðina, sem við eigum nú og þar rek ég stórt kúabú, þar eru 200 gripir, þar af 120 mjólkurkýr. Landbúnaðurinn er aðalat- vinnuvegur Ný-Sjálendinga og 92% af útflutningi landsins eru landbúnaðarafurðir. Flest- ir bændur sérhæfa sig í ein- hverri framleiðslugrein og ég sérhæfi mig í mjólkurfram- leiðslu. 1—2var á dag koma Framhald á 14. síðu. Kristinn Steingrímsson og fjölskylda hans. Yztar á myndinni standa tvíburasysturnar, Linda Kristjana og Karen Lilja, níu ára. Bak við' Kristinn og Joyce konu lians, stendur Sandra Inga, 11 ára og fremst stendur Kristín, 5 ára. Sig.v. Hjaltested Guðm. Guðjónsson Skúli Ilalldórsson Sigfús Halldórsson Omar Ragnarsson Árshátíðin annað kvöld Árshátíð' Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu annað' kvöld — 31. marz 1907 og hefst með' borðhaldi kl. 7.30. — Björgvin Guðmundsson form. Alþýðu flokksfélagsins setur árshátíðina og veizlustjóri verður Benedikt Gröndal alþingismaður. ýðu- 11 SKEMMTIATRIÐI: Frú Sigurveig Hjaltested óperusöngkona og Guðmundur Guðjónsson óperusöngvari syngja við undirleik tónskáldanna Skúla Halldórssonar og Sigfúsar Halldórssonar. Helgi Sæmundsson formaður Menntamálaráðs flytur minni kvenna. — Ómar Ragnarsson kem- ur með splunkunýjan þátt. — Dansað til kl. 2. — Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dánsinum. Einsöngvari með hljómsveitinni er Rignar Bjarnason. Aðgöngumiðar afhentir á flokksskrifstofunni kl. 9—-7 í dag símar 16724 — 15020. Borðpantanir í Hótel Sögu eða í síma 20221 á fimmtudag kl. 4—7 og eftir kl. 4 á föstudag. Félagar mætið' vel og takið með ykkur gesti og munið að panta miða tímanlega. í fyrra seld- ust allir miðar upp á tveimur dögum. Napalm varpað á olíuskipið PENZANCE, 29. marz (NTB-Reu- ter) — Brezkar flugvélar gerðu í dag margar árááir á flak olíu- skipsins ,,Torrey Canyon“, skutu af eldflaugum og vörpuðu napalm sprengjum og mörgum öðrum sprengjum. Eldslogarnir stigu 150 metra í loft upp, og er nú talið' að skipinu hafi verið endanlega útrýmt. Svo erfiðlega hefur geng- ið að eyða skipinu að brezk blöð kalla það ,,skipið sem neitar að deyja“. Alls voru gerðar fjórar árásir á skipið. Eftir fjórðu árásina urðu þrjár sprengingar og skutur skips ins tættist í sundur. Eftir árásirn- ar var skipið hulið reykjarmekki, sem steig langt upp í loftið. Nauðsynlegt reyndist að gera nýjar loftárásir á olíuskipið því að í ljós kom að eldurinn sem brauzt út eftir loftárásirnar í gær slokknaði þegar féll að og fór flakið næstum því í kaf. Þegar féll út var yfirbygging skipsins sýni- leg svo og skuturinn, og var þá ákveðið að gera nýjar/ sprengju- árásir. Olíubrákin frá flakinu heldur á- fram að breiðast út og ógnar enn beztu baðströndunum á suður- strönd Englands, alls 240 km flæmi. Víða um lönd fara nú fram um- ræður um þetta mál og leiðir til að koma í veg fyrir olíuleka við svipaðar kringumstæður. Yfirvöld í ýmsum löndum hafa látið í ljós áhyggjur, en hvergi eru menn eins uggandi og í Frakklandi enda er óttazt að olíubrákin frá ,,Torrey Canyon“ berist að ströndum Frakklands ef vindáttin breytist. Fiskimið við Frakkland og bað- strendur í Normandí og á Bret- agneska'ga kæmust þá í hættu. í Japan, þar sem flest stærstu olíuflutningaskip heims eru smíð- uð, er reynt að leita álits sér- fræðinga, en greinilegt er að yf- irvöld þar leggjast eindregið gegn því að undirritaður verði alþjóð- Framhald á bls. 14. 30. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 1

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.