Alþýðublaðið - 30.03.1967, Side 6
(Ul.
UMMMUMUMtMMtMMHMHtMMMHMMMUMMUMHMUMVMUMMMMUUMMMHHMMMMMMMMMMVMMHMMMMm1
EFLIST Á NÝIUSA
MÚ fyrir skemmstu átti Tru-
*" mankenningin svokallaða 20
ára afmæli, en þótt áhrifa
hennar gæti enn þann dag í
dag, vakti afmælið enga sér-
staka athygli í Bandaríkjunum.
Það var 12. marz 1947 sem
Truman forseti lýsti því yfir á
sérstökum aukafundi banda-
ríska þjóðþingsins, að frá þeim
degi va:ri það stefna Banda-
ríkjanna að ,,styðja frjálsa
menn b.igt með að skilja hana,
raunum vopnaðra minnihluta-
hópa til að brjótast til valda og
gegn þvingunum erlendra
ríkja.“
Þessi stefna, sem mörkuð var
á þeim tíma þegar baráttan
Igegn kommúnismanum var nán
ast talin banájtta hins gótfi
gegn hinu illa, er stefna banda
rísku stjórnarinnar .enn þann
dag í dag. í raun og veru er
bún meginröksemd fyrir dvöl
bandarí;ka herliðsins í Viet-
nam. í opinberum yfirlýsing-
um er sífellt lögð áherzla á
þessa stefnu. einkum í yfirlýs-
ingum Dean Rusks utanríkis-
ráðherra.
En eins og málum er háttað
nú í dag, nýtur þessi stefna
ekki lengur þess takmarkalausa
Robert Kennedy
stuðnings er hún eitt sinn naut.
í rauninni eiga margir ungir
menn búgt með að skilja hana,
af ástæðum sem Robert Kenne-
dy öldungadeildarmaður benti
á í ræðu sem hann hélt fyrir
skömmu:
— „Það sem þeir muna um
kommúnismann, eru ekki
hreinsanir Stalíns og dauða-
búðirnar, ekki einu sinni hinar
hroðalegu afhjúpanir á 20.
flokksþinginu, eða uppreisnin
í Ungverjalandi. Þeir sjá heim,
:þar sem kommúnistalöndin
geta verið erkióvinir, eða jafn-
vel vinsamleg í garð vestrænna
landa, þar sem kommúnisminn
er vissulega ekkert betri, en
heldur ekki verri, en margar
aðrar tegundir einræðisstjórn-
ar víðs vegar í heiminum, ein-
ræðisstjórnir, sem við gerum
bandalög við, þegar við teljum
að það þjóni hagsmunum okk-
ar.“
En einnig eru margir roskn-
ir Bandaríkjamenn, sem lifað
hafa og muna atburðina á 'ár-
unum eftir heimsstyrjöldina,
farnir að draga gildi Truman-
kenningarinnar í efa.
^UMIR — en ekki margir —
lita svo á að Truman-kenning-
in hafi verið glappaskot frá
upphafi, að hún hafi einungis
ögrað kommúnistum til að
grípa til gagnráðstafana, til að
herða tökin á stjórnmálalífinu
í Austur-Evrópu með því að
flæma ráðherra, sem aðhyllt-
ust ekki kommúnisma, úr sam-
steypustjórnum þeim er mynd-\
aðar voru i þessum löndum á
árunum eftir heimsstyrjöldina.
Eftir heimsstyrjöldina fyrri
komu fram ýmsir sagnfræðing-
ar sem héldu því fram að
Þýzkalandskeisari bæri enga á-
byrgð á heimsstyrjöldinni. Á
sama hátt má nú finna „endur-
skoðunarsinna" meðal nútíma-
sagnfræðinga, sem telja að
Sovétríkin eigi enga sök á því
■að „kalda striðið" hófst.
En þeir eru fleiri sem telja,
að Trumankenningin hafi verið
rétt og nauðsynleg þegar hún
var innleidd á sínum tíma, en
að nú hafi hún þjónað sínu
hlutverki og tími sé kominn til
að taka hana til endurskoðun-
ar eða jafnvel leggja hana nið-
ur.
Sumpart vegna þróunar inn-
anlandsmála í Sovétríkjunum,
sumpart vegna festu Banda-
ríkjamanna, hefur eðli hins
sovézka kommúnisma breytzt.
Því telja margir, að Banda-
rikjamenn ættu að viðurkenna
þessa staðreynd og fagna henni
en raunar hefur það þegar ver-
ið gert að þó nokkru leyti.
|^ENGRA til hægri í bandarísk-
um stjórnmálum eru hinir
herskáu íhaldsmenn, sem mjög
lítið hafa breytt skoðunum sín
um um kommúnismann. En
Framhald á 10. síðu.
Þetta hefur veri krautgjarn maður. Hann hefur að vísu verið uppi fyrir mörgum þúsundum ára og vafalaust lifað í afskaplega ólíkum
heimi miðaV vi s þann sem við þekkjum. Þetta er Cromagnon maður og er allur skreyttur skartgripum úr Mamútbeinum. Ilann fannst
nálægt Vladimir fyrir skemmstu.
Nýbreytni
Veitingahúsið Lídó er um þess
ar mundir að taka upp nýbreytní
í skemmtanalifi borgarinnar. Und
anfarna mánuði hafa komið fram
erlendir skemmtikraftar, — hvert
kvöld, sem opið hefur verið. Nú
er hugmyndin, að hinir erlendu
aðilar komi fram, eftir sem áð-
ur og verði vandað enn meira
val á þeim, en hingað til, en auk
þeirra liafa verið fengnir íslenzk
ir listamenn til þess að leggja
fram mikilsverðan skerf til a?
koma upp heilli kvöldsýningu.
með svipuðu sniði og gerist á hin
um beztu veitingahúsum erlend
is og nefnist „Floor show“.
Þann 22. marz sl. var hleypt
af stokkunum þessari kvöldsýn-
ingu. Meðal listamanna, sem þá
komu fram má nefna óperusöng\
arana Svölu Nielsen og Jón Sig
urbjörnsson, sem munu í þetts
sinn hafa sungið eitthvað af létt
ara taginu.
Sýndur var stórsnjall leikþátl
ur, sem leikinn er af tveim okk
ar þekktustu leikurum, síðan sá
eftirhermumeistarinn Karl Ein-
arsson um nokkurn hluta sýning
arinnar. Þá skemmtu og dönsku
fiölleikastúlkumar DORELLOS-
svstur, en þær hafa vakið hér
mikla athygli fyrir sírstæða sýn-
ingu.
.Einnig lék sextett Ólafs Gauks á
kabarettssýningunni.
Menningar- og
verzlunarsýn-
ing
Dagana 4.—14. maí n.k. verður
efnt til ítalskra menningar- og
vei'zlunarsýninga hér í Reykja-
vík, aðallega í Háskólabíói og Hó
tel Sögu. Koma þar m. a.
fram -sýningarstúlkur, frá tízku
húsum Ítalíu, heimskunnur lista-
maður heldur tónleika, ítalskur
matsveinn kynnir ítalska rétti,
kvikmyndir verða sýndar til kynn
ingar á Ítalíu, ítalskri menningu
og ítölskum vöi'um, endurprentan
ir verða sýndar af itölskum lista-
j verkum, og hérlendir kaupmenn
kynna umboðsvörur sínar frá í-
talíu.
Að sýningum þessum standa
viðskiptaráðuneyti Ítalíu, við-
skipta- og menningardeildir
italska sendiráðsins i Osló, og
•’ðalræðismaður Ítalíu á íslandi.
Hefur viðskiptafulltrúi ítalska
’endiráðsins í Osló, dr. Luigi
Moi’rone, aðstoðað mjög við und-
''rbúning sýninganna, og er ný
Mrinn héðan að loknum viðræð-
um við sýningarnefnd, sem skip
uð hefur verið. Hefur sýningun-
um verið gefið heildarnafnið „La
Linea Italiana“, eða ítalska línan.
I sambandi við sýningarnar
verður efnt til samkeppni um
gluggaskreytingar í verzlunum
horgarinnar. Er öllurn verzlunum,
sem hafa ítalskar vörur á boð-
stólum boðin þátttaka í þeirri
Framhald á bls. 10
£ 30. marz 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ