Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1993 11 Fréttir Laugavegssamtökin fá ekki auglýsingu á Kringluskilti: Furðuleg vinnubrögð segir Hanna Magnúsdóttir, stjómarmaður 1 samtökunum Upp er komin deila milli Kringl- unnar og Laugavegssamtakanna um skiltaauglýsingar. Laugavegssamtökin geröu samn- ing við auglýsingafyrirtækið Kvik- sýn um auglýsingar á ljósaskiltinu við Lækjargötu og skiltinu á bfla- geymslu Kringlunnar fram að jól- um. En Kringlumenn hafa neitað Laugavegssamtökunum um að birta þessar auglýsingar á skilti Kringlunnar. Á auglýsingunni stóð: „Það fer enginn í jólaköttinn á Laugavegin- um.“ Kringlan á skiltið ofan á bfla- geymslunni en Kviksýn er með skiltið í Lækjargötunni á Nýjabíós- húsinu. Síðastliðið vor fékk Kviksýn um- boð Kringlunnar til aö selja auglýs- ingar á Kringluskfltið. Skrifuðu undir samning Hanna Magnúsdóttir, sem á sæti í stjóm Laugavegssamtakanna, sagði í samtali við DV að samtök- unum þættu þetta furðuleg vinnu- brögð. „Okkur var boðið þarna inn á skiltin og skrifuðum undir samn- ing. Síðan kom það í ljós á mánu- daginn að Kringlumenn ætluðu ekki að efna sinn hluta samnings- ins. Við höfum lagt inn fyrirspurnir hjá Samkeppnisráði en hyggjumst ekki kæra neinn eins og er. Aðal- atriðið er að jafna samkeppnis- stöðu allra hópa,“ sagði Hanna. Guðmundur Sigurðsson hjá Sam- keppnisstofnun sagði að engin formleg kvörtun hefði borist stofn- uninni frá Laugavegssamtökun- um. „En almennt séð er ekkert í sam- keppnislögum sem bannar þetta, a.m.k. ekki fyrirfram. En það gæti verið ef litið er á máhð í ljósi þess hvort þarna sé um einhveijar skað- legar samkeppnishindranir að ræða,“ sagði Guðmundur. Óeðlilegt Einar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, sagði við DV að auglýsingar sem Kvik- sýn útvegaði væru háðar samþykki forráðamanna Kringlunnar. „Hlutverk Kringluskfltisins er fyrst og síðast að birta upplýsingar um það sem er að gerast í Kringl- unni. Þaö yrði misvísandi og óeðh- legt að birta þar auglýsingar frá öðrum verslunarsvæðum í borg- inni. Menn verða að horfa á tilgang miðilsins. Við virðum samkeppnis- aðila okkar og erum ekki í neinu stríði," sagði Einar. Bjami Friðriksson hjá Kviksýn sagði að fyrirtækið hefði umboð til að selja auglýsingar á ákveðinn hluta Kringluskiltisins, svo fram- arlega sem ekki væri allt fuht fyrir. „í þessu tilfelh var skiltið upp- pantað í desember með auglýsing- um frá fyrirtækjum í Kringlunni. Samningurinn við Laugavegssam- tökin var undirritaður og sýndur Kringlumönnum en þeir sögðust ekki geta birt auglýsinguna. Það má segja að það hafi verið klaufalegt að vita ekki fyrirfram að skiltið væri upppantað," sagði Bjami. -bjb Kötturmn Pedro í langferð: Kom heim eftir sex mán- aða f lakk „Fjölskyldan flutti úr bænum til Hvammstanga í vor og Pedro, köttur- inn okkar, var tekinn með í teppi eins og ungbarn. Við vorum ekki búin að vera sólarhring á staðnum þegar hann stakk af og við sáum hvorki tangur né tetur af honum í sex mánuði. Síðan, þegar fyrsti snjór- inn féll héma á Hvammstanga, kom hann aht í einu inn um gluggann hjá okkur og hefur verið mjög heimakær síðan,“ sagði Edda Hrönn Gunnars- dóttir í samtah við DV. „Dóttir mín, Hildur Nanna Eiríks- dóttir, sem á köttinn, fagnaði eðhlega mjög endurkomu hans enda hafði hún saknað hans mikið. Hún var sí- feht að spurja fólk hvort það hefði séð til kattarins og við vorum jafnvel farin að gera okkur í hugarlund að hann hefði lagt í ferðalag aha leið á heimastöðvanna í Reykjavík. Við vorum búin að heyra sögur af því að sést hefði til kattar sem svip- aði til Pedro á ruslahaugunum á Hvammstanga og gerðum okkur vonir um að það væri hann. Pedro var nokkuð bústinn þegar hann hvarf en var heldur horaðri þegar hann lét sjá sig aftur og mjög þrifalegur að sjá. Hann er ekki nema tveggja og hálfs árs gamall, er geldur og því kemur þessi hegðun hans nokkuð á óvart. Við fengum Pedro sem kettling en höfum grun um að faðir hans sé vflliköttur. Það er því Hildur Nanna Eiríksdóttir var alsæl að fá köttinn aftur eftir 6 mánaða útivist. DV-mynd Júlíus Guðni Antonsson sennilega eitthvert villikattaeðh í honum. Hver veit nema hann strjúki aftur þegar vorar en vonandi lætur hann þá sjá sig aftur að hausti," sagði Edda. -ÍS FINLJUX INVAR SUPER BLACK FST MYNDLAMPI INVAR gefur meiri skerpu en áður hefur þekkst 28" NICAM hi-fi STEREO 2x25 vatta magnari, 2 tvöfaldir hátalarar ásamt bassa woofer INVAR SUPER BLACK FST myndlampa. með SVM (Speed Velocity Modulation) texta- varpi með ísienskum stöfum, SUPER-VHS inngangi, 2 Euro scart-tengjum,.forritanlegri, einfaldri en fullkominni fjarstýringu. Aukahlutir: a) Myndimynd (2stöðvaráskjánumieinu) kr. 19.500 stgr. b) Innbyggðurgervihnattamóttakari kr. 19.500stgr. hijómj :o FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 BS Afborgunarskilmálar (H} Rétt verð 144.500 kr. Jólatilboð kr. 119.950 stgr. Nú fengum við 40 feta gám af Nordmende 29" sjónvarpstækjunum og þau eru öll seld* Næsti gámur kemur eftir viku og við eigum örfá tæki eftir óseld úr honum* • 29" flatur glampalaus Black Matrix • Pal-Secam-NTSC-video Super Planar-skjár • Fullkomin fjarstýring • S-VHS-tengi • Aögeröastýring á skjá • 40W Nicam stereo-magnari • Innsetning stöövanafna á skjá • 4 hátalarar, Stereo Wide • Timarofi • INNBYGGÐ Surround-umhverfishljóm- «16:9 breiötjaldsmóttöka mögnun (tengi fyrir Surround-hátalara) • Barnalœsing • Tengi fyrir; jieyrnartól • íslenskt textavarp • 60 stööva minni • 2 scart-tengi • Sjálfvirk stöðvaleit • Tengi fyrir 2 auka hátalara o.m.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.