Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Blaðsíða 34
42 MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1993 Fólk í fréttum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir alþing- iskona, Tómasarhaga35, Reykjavík, varö oftast fyrir valinu sem næsti borgarstjóri er þátttakendur í nýj- ustu skoðanakönnun DV voru beðn- ir að velja á milli þriggja einstakl- inga, Ingibjargar Sólrúnar, Markús- ar Amar borgarstjóra og Jóns Magnússonar lögmanns. Starfsferill Ingibjörg Sólrún fæddist í Reykja- vík 31.12.1954ogólstþarupp.Hún lauk stúdentsprófi frá MT1974, BA-prófi í sagnfræði og bókmennt- um frá HÍ1979, var gestanemi í sagnfræði við Kaupmannahafnar- háskóla 1979-81 og stundaöi cand.mag.-nám í sagnfræði við HÍ 1981-83. Ingibjörg Sólrún var borgarfull- trúi og húsmóðir 1982-88, ritstjóri tímaritsins Veru 1988-90, stundaði ritstörfogblaðamennsku 1990-91 og hefur verið alþingiskona fyrir Kvennalistann í Reykjavík frá 1991. Ingibjörg Sólrún var formaður Stúdentaráðs HI1977-78, borgarfull- trúi Kvennaframboðs í Reykjavík 1982-86 og Kvennahstans í Reykja- vík 1986-88, sat í skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar 1982-86, sat í fé- lagsmálaráði Reykjavíkurborgar 1986-89 og í borgarráði 1987-88. Hún skrifaði bókina, Þegar sálin fer á kreik, minningar Sigurveigar Guðmundsdóttur kennara, útg. 1991. Þá hefur hún skrifaö fjölda greina í blöð og tímarit um almenn stjórnmál og kvenréttindamálefni. Fjölskylda Maður Ingibjargar Sólrúnar er Hjörleifur Sveinbjömsson, f. 11.12. 1949, blaðamaður. Hann er sonur Sveinbjöms Einarssonar barna- kennara og Huldu Hjörleifsdóttur húsmóður. Synir Ingibjargar Sólrúnar og Hjörleifs eru Sveinbjöm, f. 26.1. 1983, og Hrafnkell, f. 10.11.1985. Sy stkini Ingibj ar gar Sólrúnar em KristinnHilmar, f. 25.11.1945, vél- stjóri í Reykjavík; Halldóra Jenný, f. 14.11.1947, kennari í Reykjavík; Kjartan, f. 9.7.1950, rekstrarstjóri hjá Reykjavíkurborg; Óskar Sveinn, f. 26.9.1951, stýrimaður og verk- stjóriíReykjavík. Foreldrar Ingibjargar Sólrúnar em Gísli Gíslason, f. 30.11.1916, fyrrv. verslunarmaður í Reykjavík, og kona hans, Ingibjörg Níelsdóttir, f. 23.2.1918, húsmóður. Ætt Gísli var sonur Gísla þjóðhaga- smiðs á Haugi, Brynjólfssonar, hreppsfjóra og dbrm. á Sóieyjar- bakka, Einarssonar, bróður Matthí- asar, langafa Haralds Matthíasson- ar menntaskólakennara og langa- langafa Alfreðs Flóka. Einar var sonur Gísla, b. á Sóleyjarbakka, Jónssonar, b. á Spóastöðum, Guð- mundssonar, ættfóður Kópsvatns- ættarinnar, Þorsteinssonar. Móðir Gísla á Haugi var Valgerður, systir Bjarna, afa Guðmundar blinda í Víði. Móöir Valgerðar var Gróa Gísladóttir, systir Gests á Hæli, langafa Steinþórs, fyrrv. alþingis- manns, föður Gests skattstjóra. Móðir Gísla verslunarmanns var Kristín Jónsdóttir, b. í Austur- Meðalholtum í Flóa, Magnússonar, b. á Baugsstöðum, Hannessonar, af Bergs-ætt. Móðir Kristínar var Kristín, systir Guðnýjar, ömmu Sig- urjóns Olafssonar myndhöggvara og langömmu Erlings Gíslasonar leikara. Kristín var dóttir Hannesar, hreppstjóra í Kaldaðamesi, bróður Þorkels í Mundakoti, langafa Guðna Jónssonar prófessors og Ragnars í Smára. Hannes var sonur Einars, spítalahaldara í Kaldaðarnesi, Hannessonar, ættföður Kaldaðar- nesættarinnar, Jónssonar. Ingibjörg er dóttir Níelsar, b. á Kóngsbakka, Sveinssonar, sjó- manns á Skagaströnd, Guðmunds- sonar. Móðir Níelsar var María Ól- afsdóttir, b. á Barkastöðum og Ei- ríksstöðum, Pálssonar. Móðir Ingi- bjargar var Halldóra, systir Rósu, móður Hallgríms Guðjónssonar, fyrrv. hreppstjóra í Hvammi í Ingibjörg Sólrún Gisladóttir. Vatnsdal. Halldóra var dóttir ívars, sjómanns frá Skeggjastöðum, Jó- hannessonar og Ingibjargar Krist- mundsdóttur, systur Þorleifs, föður Þórarins, skálds á Skúfi, afa Þorleifs Kristmundssonar, prófasts á Kol- freyjustað, og langafa Þórðar Skúla- sonar, framkvæmdastjóra Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Afmæli Til hamingju með afmælið 29. nóvember 85 ára 50 ára Agnes Stefánsdóttir, Ásmundur Karlsson, Dvalarheimilinu Höföa, Akranesi. Brekkubyggð 40, Garðabæ. . GísliSteinarSighvatsson. Breiöabiiki ll.Neskaupstaö. —--------------------------- Björn Halldórsson, OA AKetu,Skefilsstaöahreppi. **' ”__________________ Inge Chr. Jónsson, Gunnar Friðriksson, Vallarási4,Reykjavík. Hjarðarhaga 31, Reykjavik. Ásgrimur Þorsteinsson, “~~7 1 _______ Hríseyjargötu21, Akureyri 40 3t3 70 ára Sigurbergur Guðmundsson, BÖkabraut 5, Keflavík. Kristin Þorleifsdóttir, , Þverá, Eyjarhreppi. ólafur ólafsson, : Deildartúni 8, Akranesi. Hanneraðheiman. Magnús Anton Jónsson, Aðalbraut 41b, Raufarhöfn. Ásta Guðvarðardóttir, Neðstabergi 6, Reykjavik. 60ára_________________ ÁstaKarlsdóttir, Ósabakka 9, Reykjavik. Björk Kristjánsdóttir, Gunnarsbraut 32, Reykjavík. Sigurjón Gunnarsson, Karlagötu 16, Reykjavik. ólafur Már Sigurðsson, Látraströnd46, Seltjamarnesi. Guðbergur Pétursson, Norðurtúni 28, Bessastaðahreppi, Herdís Kristmannsdóttir, Hrauntúni 71, Vestmannaeyjum. Pálina G. Sigurjónsdóttir, Heiðmörk 23, Hveragerði. Jens Elíasson, Kleppsvegi 144, Reykjavík. Michael George Whalley, Þverási 9a, Reykjavík. Sveinn Geirmundsson, Skarðshlið 34f, Akureyri. Ása Vaigerður Einarsdóttir, Baughoiti 8, Keflavik. Kristján Grétar Sigurðsson, Flyörugranda 10, Reykjavik. Flóki Pálsson, Kambaseli 31, Reykjavík. SMÁAUGLÝSINGASÍMINr FYRIR LANDSBYGGÐINA j 99-6272 ssa sImÍnn «35 -talandi dæmi um þjónusti i j! Ingólfur Bjömsson Ingólfur Björnsson, fyrrverandi bóndi, Sundabúð, Vopnafirði, varð áttatíu og fimm ára á laugardaginn. Starfsferill Ingólfur er fæddur að Hamri í Laxárdal í Norður-Þingeyjarsýslu og ólst upp þar og á Hólsfjöllum og áVopnafirði. Ingólfur byijaði að stunda búskap á Þorvaldsstöðum í Selárdal en 1952 flutti hann að Vatnsdalsgerði í Hofs- árdal og bjó þar til 1988 er hann brá búi og keypti hús á Tanga. Þar bjó Ingólfur til 1992 en frá þeim tíma hefur hann verið á elliheimilinu Sundabúð. Fjölskylda Ingólfur kvæntist 10.12.1943 Sess- elju Benediktsdóttur, f. 6.1.1911, fyrrverandi húsfreyju, en hún er nú á Sundabúð. Foreldrar hennar: Benedikt Stefánsson og Sólveig Stef- ánsdóttir, bændur á Þorvaldsstöð- um í Vopnafirði í Norður-Múla- sýslu. Dóttir Ingólfs og Sesselju er Krist- ín Ingólfsdóttir, f. 5.10.1941, verka- kona, gift Ara Hallgrímssyni, frétta- ritara DV á Vopnafirði, þau eiga fjögur böm. Sonur Sesselju er Sig- urður Ólafsson, f. 18.4.1938. Systkini Ingólfs: Ingólfur, dó í æsku; Eiður, látinn; Guðmundur, látinn, hann var kvæntur Ólöfu Stefánsdóttur, þau eignuðust sex börn, Sigurbjörgu, látin, Sólveigu, Bjöm, Valborgu, Sigurð og Stefaníu. Foreldrar Ingólfs: Björn Eyjólfs- son, d. 30.11.1942, bóndi, og Asta Jónasdóttir, f. 1869, d. 17.4.1950, Ingólfur Björnsson. húsfreyja, þau bjuggu aö Fagradal áHólsflöllum. Sviðsljós Stærsti hamborgari á íslandi Það var fullt út úr dyrum KÞ Matbæjar á Húsavik nýlega en þá lauk 3ja vikna kynningu á framleiðslu kaupfé- lagsins. Margir komu til að lita á stærsta hamborgara sem gerður hefur verið á íslandi. Bakarar og kjötiðnað- armenn KÞ höfðu veg og vanda af honum og notuðu til þess 90 kg af kjöti, 15 kg af osti, 5 kg af grænmeti og mikið af hveiti og eggjum. DV-mynd Jóhannes Sigurjónsson, Húsavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.