Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Síða 33
MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1993 41 •v_______________________Menriing Fagurt sungið í Gerðubergi Tónleikar voru í Gerðubergi á laugardag. Garðar Cortes tenór söng einsöng við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonar píanóleikara. Á efnisskránni voru verk eítir Francesco Durante, Antónip Caldara, Antóníó Lotti, Alessandro Scarlatti, Jón Ásgeirsson, Jórunni Viðar, Þórarinn Jónsson, Pál ísólfsson og Harold Fras- er-Simon. Efnisskránni var skipt í þrennt. Fyrst voru kunnar aríur frá barrokktímanum, því næst sönglög eftir ís- lenska höfunda. Á síðari hluta tónleikanna voru flutt Tónlist Finnur Torfi Stefánsson rúmlega tuttugu lög úr Songs of Pooh and Christopher Robin. íslendingar þekkja það efni betur undir nöfnum Bangsímons og Kristófers Orra. Þetta gaf tónleikunum mikla breidd og fjölbreytni og gaf flyljendunum tæki- færi til að sýna á sér margar hliðar. Að sama skapi gerir slíkt efnisval miklar kröfur um þekkingu og at- gervi. Barrokkverkin voru öll perlur sem staðist hafa tímans tönn vegna ágætis síns og er erfitt að gera upp á milli. Meðal þeirra laga sem hljómuðu sérlega vel í flutningi þeirra félaga var Pur dicesti eftir Lotti og 0 cessate eftir Scarlatti. íslensku lögin voru sum kunnar perlur en önnur heyrast sjaldnar. Meðal slikra sem oftar mættu flytjast er Hefnd eftir Jón Ásgeirsson sem kom vel út þama. Garðar Cortes sýndi í þessum lögum að hann er ekki aðeins frábær söngvari með fallega og vel þjálfaða rödd, heldur fullþroskaður alhliða tón- listarmaður. Þegar þekking og ævilöng þjálfun leggj- ast á eitt með góðum meðfæddum hæfileikum verður túlkunin altæk ef svo má að orði komast. Þarna var enga lausa enda að finna. Öfl smáatriði hvers verks jafnt sem efnisskráin í heild höfðu notið sömu alúðar í undirbúningi 'og nákvæmni í útfærslu. í söngvunum um Bangsímon sýndi einsöngvarinn á sér aðra hlið og ekki minna um verða. Þar var mættur hinn alhliða leikhúsmaður Garðar Cortes sem túlkaði þessi einfoldu en skemmtilegu lög með frábæru hug- myndaflugi og næmni. Það er ekki síst textinn sem gefur lögum þessum gildi sitt og Garðar lék sér að honum eins og sælgætismolum á meðan áheyrendur skríktu af hrifningu. Athyglin beindist mjög að söngvaranum á þessum tónleikum en píanóleikarinn Jónas Ingimundarson var einnig í essinu sínu og kryddaði verkin með fltfogr- um leik á þann hátt sem honum einum er lagið. Jónas sagði frá þeirri hugdettu sinni að fá íslenska þýðingu af söngvunum um Bangsímon sem voru þama fluttir á frummáflnu, ensku, og flytja fyrir böm í Gerðubergi og er þaö góð hugmynd sem ætti að hrinda í fram- kvæmd. Hamrahlíðarkór syngur endurreisnartónlist Tónleikar vom í Listasafni íslands á laugardags- kvöld. Harmahlíðarkórinn söng undir stjórn Þorgerð- ar Ingólfsdóttir. Amgeir Heiðar Hauksson lék einleik á gítar. Á efnisskránni vora verk frá 16. og 17. öld eft- ir Johann Jeep, Hans Leo Hassler, Pierre Passereau, Orlando di Lasso, Alonso Mudarra, Luca Marenzo, William Byrd, John Bennett, Thomas Weelkes, Giles Famaby, John Dowland, Thomas Morley, John Wilbye og Thomas Tomkins. Oftast er við þaö miðað að tímabil endurreisnarinn- ar hafi runnið sitt skeið og barrokktíminn tekið við Tónlist Finnur Torfi Stefánsson um aldamótin 1600. Um þessar mundir urðu mikilvæg- ar breytingar í tónflst Evrópu sem höfðu átt sér lang- an aðdraganda. Má þar m.a. nefna að dúr og moll kerfið raddi sér til rúms og réð síðan ríkjum í 300 ár. Tónlist okkar hefur mótast svo mjög af þessari sterku hefð aö það er ekki fyrr en á síðustu áratugum sem athygli manna fór að beinast aftur aö þeim dýrmæta arfl sem er að finna í tónlist fyrri alda. Sextánda öldin er meðal þeirra tímabila sem hvað glæstust er. Þá náði hámarki fullkomnunar sá fágaði fjölröddunar- stíll sem þróast haföi um nokkurra alda skeið í Evr- ópu. Sá stíll stendur jafnfætis eða framar öðrum stíl- tegundum um smekkvísi, fágun og andagift. Manns- röddin var sá hljóögjafi sem mest var í hávegum hafð- ur og er því mjög vel til fallið hjá Hamrahlíðarkómum að takast á herðar það verkefni að bera þessa tónlist á borð fyrir íslendinga. Efnisval á þessum tónleikum var svo fram sett að fyrst voru verk af ýmsu þjóðemi. Síðar komu enskir madrigalar. Inn á milli var skotið verkum fyrir lútu, sem Arngeir Heiðar Hauksson lék einkar fallega á gítar. Madrigalamir ensku era meðal þess fegursta sem Englendingar hafa lagt til tónlistarinnar. Viö- fangsefnið er oftast ástin og oft kemur Elísabet drottn- ing við sögu með hugljúfum hætti. Flutningur þessara verka er ekki auðveldur. Mikið er um fjölraddaða kafla þar sem raddir era iðulega fleiri en þær fjórar sem á okkar tímum era algengast. Jafnvel þar sem vefnaðurinn er hljómrænn og raddir fylgjast að í hljómfalli er hrynjandinn fjölbreyttari því sem við eigum að venjast og þarf mikla þjálfun til að ná þar fullu valdi á. Hamrahlíðarkórinn stóð sig með mikilfl prýði í átökum við þessi erfiðu viðfangsefni. Allt komst vel tfl skila þótt hljómfegurð kórsins léti stundum á sjá í flóknustu köflunum. Ný verslun á Höfn Ritföng og gjafir, ný verslun á Höfn í húsi Prentsmiðju Hornafjaröar við Vest- urbraut, var opnuð nýlega. Þar eru ein- göngu á boðstólum vörur frá Pennanum í Reykjavík og á sama verði. Eigendur eru Guðríður Gunnsteinsdóttir og Jó- hannes Ólafsson prentari og eru þau á myndinni ásamt syninum Ingvari og Jón- ínu Grímsdóttur afgreiðslukonu til vinstri. DV-mynd Júlía Imsland Nýtt Kjarvalskort Prentsmiðjan Litbrá hefur gefið út nýtt kort með málverki eftir Jóhannes Kjar- val. Málverkið er 75x95 sm að stærð og heitir Ljóðamynd-Ævispor. Kortin fást í flestum bóka- og gjafavöruverslunum. Hausthappdrætti Dregið hefúr verið í hausthappdrætti HandknattleiksdeUdar ÍR. Vinningar komu á eftirtalin númer: 1.18, 2.-3. 1150 og 708. 4.-6. 504, 2379, 1064. 7.-16. 1205, 303,1105,57,862,1166,2169,1259,802,1554. 17.-22.304,1080,583,1712,1958,252.23.-28. 229,1219,1776,2153,1803,1539. Vinningar verða aflientir á skrifstofu Handknatt- leiksdeUdar ÍR „Greninu" Amarbakka 2. Nýjasta verslunin á Höfn heitir Króm og hvitt og var opnuð 20. nóvemb- er. Eigandi er Bragi Karlsson pipu- lagningameistari og er verslunin með allt sem tilheyrir baðherbergj- um, einnig vinnufatnað og fleira. Þetta er fjórða verslunin sem opnuð hefur verið á Höfn á þessu ári. Vald- ís Kjartansdóttir, eiginkona Braga, annast afgreiðslustörf og er hún á myndinni með manni sínum. DV-mynd Júiía Imsland Hans Petersen styrkir krabbanrteinssjúk börn Eins og undanfarm ár selja verslanir Hans Petersen hf. jólakort sem ætluð eru tU þess aö setja ljósmyndir í. Mjög er vandaö til jólakortanna og eru margar gerðir í boði. í ár verða öU jólakortin tU styrktar krabbameinssjúkum bömum. Af hveiju seldu jólakorti í verslunum Hans Petersen um þessi jól renna 5 kr. tU krabbameinssj úkra bama. Tilkyimingar Ný gjafavöruverslun Nýlega opnuðu hjónin Einar Bridde og Alda Sigurbrandsdóttir gjafavömversl- unina EBAS á Snorrabraut 29 þar sem boðið er upp á fjölbreyttar gjafavörur fyrir flest tílefni. í versluninni em yfir 1200 vöruUðir og em vörumar fluttar inn beint tíl að halda vömverði í lágmarki. Bjartur og frú Emilía Út er komið timaritíð Bjartur og frú Emilia - tímarit um bókmenntír og leik- list 3. tbl. 1993. Að þessu sinni er tímarit- ið margbrotíð. Lesendum er boðið í gleði- ríka ferð tíl undirheima undirtímarit- anna. Tímaritíð kemur út flórum sinnum á ári. Hægt er að panta áskrift í síma rit- stjómar 621826. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágr. Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Fijáls spUamennska, kaffi og spjaU. Sigurgeir Jónsson lögfræðingur er tíl viðtals fyrir hádegi á þriðjudag. Panta þarf tíma í s. 28812. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra svið kl. 20.00. SPANSKFLUGAN eftir Arnold og Bach Fim. 2/12, lau. 4/12, uppselt, sfðustu sýning- arfyrlrjól. Litla svið kl. 20.00. ELÍN HELENA eftirÁrna Ibsen Fös. 3/12, uppselt, 4/12, uppselt. Ath.l Ekki er hægt aó hleypta gestum inn I salinn eftir að sýning er hafin. Sfórasvlðiðkl. 14.00. RONJA RÆNINGJADÓTTIR eftir Astrid Lindgren. Sunnud. 5/12. Síðustu sýningar fyrlr jól. Stórasvlðlðkl. 20.00. ENGLAR í AMERÍKU eftirTony Kushner Fös. 3/12, siðasta sýning. ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR. ATH. aö atriði og talsmáti i sýnlngunnl er ekkl við hæfl ungra og/eða viökvæmra áhorfenda. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-20. Tekið á móti miðapöntunum i síma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. Greiðslukortaþjónusta. Munið gjafakortin okkar, tilvalin tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur- Borgarleikhús. FRÆÐSLULEIKHÚSIÐ: GUMMÍENDUR SYNDA VÍST, 25 mín. leik- þáttur um áfengismál. Pöntunarsími 688000. Ragnheiöur. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 11200 SKILABOÐASKJÓÐAN Ævintýri með söngvum Sun. 5/12 kl. 14.00. Siðasta sýnlng tyrir jól. Stóra sviðið kl. 20.00 ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller 7. sýn. fim. 2/12,8. sýn. fös. 3/12 örfá sæti laus. Siðustu sýnlngar tyrir jól. KJAFTAGANGUR eftir Neil Simon Lau.4/12. Sióustu sýningar fyrlr jól. Smíðaverkstæöið Kl. 20.30 FERÐALOK eftir Steinunni Jóhannesdóttur Fim. 2/12, (ös. 3/12. Ath. sióustu sýningar. Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn ettir að sýning hefst. LISTDANSHÁTÍÐ í ÞJÓÐLEIKHÚSINU Styrktarsýning Listdansskóia íslands Miðvikud.l.des.kl. 20.00. Miðasala Þjóðleikhússins er opln alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekiö á móti pöntunum i síma 11200frá kl. 10 virka daga. Græna linan 996160 leikLi'starskóli ÍSLANÐS Nemenda leikhúsiö .LINDARBÆ sirrti 21971 DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT Eftir William Shakespeare Aukasýningar Þrl. 30. nóv. Fim. 2. des. kl. 20. Uppselt. Fös. 3. des. kl. 20. Uppselt. Laug. 4. des. kl. 20. Uppselt. Tjarnarbíói, Tjarnargötu 12. BÝR ÍSLENDINGUR HÉR? Leikgerð Þórarins Eyflörð eftír sam- nefndri bók Garðars Sverrissonar Takmarkaóur sýningafjöldl. 19. sýn.(lm.2.deskl.20. 20. sýn. lau. 4. des. kl. 20. 21. sýn. sun. 5. des. kl. 20. Síóustu sýningar ATH.I Sýningum fer fækkandl. Mióasala opin frá kl. 17-19 alla daga. Slmi 610280, simsvari allan sólarhringinn. Stuðbandið og Garðar 7. starfsár Stuðbandsins og Garðars er hafið. Hljóðfæral. eru Lárus Ólafsson, bassi, Garðar Karlsson, gítar, Ólafur Már Ásgeirsson, orgel, Guðmar Marelsson, trommur, og Garöar Guðmundsson, söngur. Hljómsveitín tekur að sér að leika á árshátíðum og þorrablótum. Upp- lýsingar gefur Garðar Guömundsson s. 674526. Dagmæður í Reykjavík Hin árlega jólaskemmtun fyrir böm dag- mæðra verður haldin sunnudaginn 5. desember kl. 15-17 í Ártúni. Allar dag- mæður velkomnar ásamt foreldrum og gestum þeirra. Upplýsingar gefa Guð- björg s. 814535 og Signý s. 814842. Til leigu nálægt Hlemmtorgi Til leigu u.þ.b. 440 ferm. hæð í Brautarholti, nálægt Hlemmtorgi. Hæðin er óinnréttuð að mestu en getur hentað vel undir ýmsa starfsemi t.d. skrifstofur o.fl. Einnig er til leigu nú þegar á sama stað 390 m2 skrif- stofuhúsnæði, að öllu leyti tilbúið fyrir starfsemi. Nánari uppl.: Heigi Jóhannesson hdi. s. 812622 fax. 686269

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.