Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1993, Síða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
23
íþróttir
Grasshopper efst
Grasshopper er í efsta sætl
svissnesku 1. deildarinnar í
knattspyrnu. Láðiö gerði um helg-
ina 3-3 jaíntefli viö Young Boys
og er með 27 stig en Sion er stigi
á eftir 1-1 jafntefli viö Servette.
Benfica aftur á toppSnn
Benfica endurheimti toppsætið
í Portúgal eftir 3-0 sigur á Belen-
enses en á sama tíma tapaði aðal-
keppinauturinn í Boavista fyrir
Gil Vicente, 2-1. Benfica er með
17 stig en Boavista, Porto og
Sporting eru með 15 stig.
Hannes Tómasson
DV sagði frá því að Hannes
Haraldsson hefði sigrað í loft-
skammbyssu og í staölaðri
skammbyssu á flokkamóti í skot-
fimi en það rétta er að hann sigr-
aöi aðeins í skammbyssuflokkn-
um en nafiii hans Tómasson i
loftskammbyssunni.
Coopererhættur
Terry Cooper tilkynnti í gær
afsögn sína sem framkvæmda-
stjóri enska 1. deildar liðsins
Birmingham í kjölfar slakrar
íraramistööu liðsins á sparkver-
tíðinni en liðið hefur tapaö 5 af
síðustu 6 leikjum og ekki skorað
mark í 411 mínútur.
Savicevicóánægður
Dejan Savicevic, fyrrum lands-
liðsmaöur Júgóslava í knatt-
spymu, er mjög óánægöur með
veru sína hjá AC Milan og gæti
veriö á fórum frá félaginu. Kapp-
inn neitaði aö sitja á bekknum
þegar Milan lék gegn Anderlecht
í Evrópukeppninni i síðustu viku.
Á f und með BeHusconi
Savicevic mun sitja fund með
Silvio Berlusconi, forseta Milan, í
vikunni og þar á að reyna aö leysa
málin. Savicevic er einn af sjö út-
lendingum í liðinu en aðeins má
nota þrjá í hverjum leik og í síð-
ustu leikjum hefur hann ekkihlotiö
náð fyrir augum Capello þjátfara.
Rocastle humffúil
Það eru fleiri knattspymumenn
óánægðir. David Rocastle, fyrr-
um leikmaður Arsenal, sem nú
er í herbúðum Leeds United, er
mjög óhress þar sem hann hefur
enn ekki náö aö festa sig í hðinu
eftir 16 mánaða dvöl á Eiland Road.
Rocastle lend i orðaskaki við How-
ard Wilkinson, stjóra Leeds, eftir
aö vera tekinn út úr liðinu fyrir
Ieikinn gegn Swindon.
Enginneröruggur
Howard Wilkinson segir að ef
Rocastle telur sig ekki eiga fram-
tíö þjá Leeds eigi hann að biðja um
sölu. „Enginn er öruggur með sæti
í liði mínu. Ef hann teiur sig ekki
eiga framtíð hjá félaginu á hann
rétt á að fera. Hann þarf aðeins að
biðja um það,“ segir Wilkinson.
Júggitii Leifturs?
Talsverðar líkur em á því að
knattspymulið Leifturs fái Júgó-
slava í sínar raðir fyrir næsta
keppnistímabil. Umræddur Júgó-
slavi er margreyndur vamar-
maður sem er 27 ára og hefur
spilað mörg hundmö leiki i
heimaiaudi sinu. Hann kemur til
landsins um áramót og kemur þá
í ljós hvort hann leikur meö lið-
inu í sumar,
í kvöld
Visadeildin í körfuknattleik
Tveir leikir fara fram í Visadeild-
inni í körfuknattleik í kvöld. Val-
ur og ÍA leika að Hlíðarenda og
Tindastóll tekur á móti KR. Báðir
leikimir heijast klukkan 20.
Yfirbyggður knattspymuvöllur í Reykjavík:
„Ég ætla að beita
mér í þessu máli“
„Formaður KSÍ óskaði eftir fundi
með mér og borgarstjóra um þetta
mál í framhaldi af mannvirkjaráð-
stefnu Knattspymusambandsins
sem fram fór í október. Þar kom
meðal annars fram hvemig Norð-
menn hafa staðið að þessum mál-
um og hvað þetta myndi kosta okk-
ur. Borgarstjóri fól mér síðan að fá
forsvarsmenn KSÍ og íþrótta- og
tómstundaráðs á fund þar sem
málið var kynnt ágætlega og farið
yfir þaö. Frá mínum bæjardyrum
séð er þetta afar áhugavert mál og
lausn til framtíðar fyrir knatt-
spyrnuíþróttina,“ sagði Július Haf-
stein, formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs, í samtah við DV í gær.
- Uppi em hugmyndir um að hefj-
ast handa við byggingu knatt-
spyrnuvallar í Reykjavík sem yrði
yfirbyggður. En hvemig mann-
virki er verið að ræða um, hvar
myndi það rísa og hver er áætlaður
kostnaður?
„Það er verið aö tala um 67-68
metra breiðan vöh og 105 metra
langan. Byggingin myndi rísa við
hhð Laugardalshahar og ég tel að
kostnaður myndi nema um 600-650
mUljónum. Kostnaðarhliðina þarf
þó að athuga mun betur. Þetta er
tfilaga sem ég tel aö borgaryfirvöld
eigi að athuga mjög vandlega og
Reykjavíkurborg á að hafa frum-
kvæði að því að leita th annarra
sveitarfélaga varðandi viðræður.
Eitt svona hús yrði sem sagt byggt
fyrir sveitarfélögin á Reykjavíkur-
svæðinu; í Kópavogi, Hafnarfirði,
Garðabæ og hugsanlega á Seltjarn-
arnesi og í MosfeUsbæ. Auk þess
sem þessi bygging kæmi knatt-
spyrnuhreyfingunni til góða kem-
ur til greina að hafa fijálsíþróttaað-
stöðu. Þetta hefur ekki enn verið
athugað."
- Hvar er þetta mál á vegi statt í
dag?
„Þaö er í raun og vem ekki kom-
ið langt. Það er í höndunum á okk-
ur. Ég hef beðið borgarstjóra að
taka máUð upp við kollega sína á
mánaðarlegum fundi með öðram
framkvæmdastjórum sveitarfélaga
og að máhð verði skoðað mjög
gaumgæfilega. Ég hef áhuga á að
geta haft frumkvæði að því að þetta
myndi gerast. Ég geri mér hins
vegar grein fyrir því að þetta tekur
töluverðan tíma og þetta er ekki á
dagskrá á næsta ári. Ég gæti hins
vegar séð þetta hús byggjast á
næsta keppnistímabili. Ég tel að
það sé hægt að slá nokkrar flugur
í einu höggi þama, til dæmis hvað
varðar aðstöðu fyrir stórar sýning-
ar og stærstu leiki í handknattieik
og körfuknattieik. Og ég ætia að
beita mér í þessu máh,“ sagði Júl-
íus Hafstein.
-SK
1. deild kvenna 1 körfuknattleik:
Óvæntur sigur ÍS
gegn Grindavík
„Vörnin skóp þennan sigur fyrst
og fremst. Við náðum að leika góðan
sóknarleik í byrjun en við unnum
þetta á vörninni. Þetta var sann-
gjamt þegar upp var staðið," sagði
Helga Guölaugsdóttir, leikmaður ÍS,
eftir að Stúdínur höfðu lagt Grinda-
vík að velh í gærkvöldi, 51-46.
Leikurinn var æsispennandi og
úrsht fengust ekki fyrr en eftir fram-
lengingu. Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 40-40. j
Óvæntur sigur ÍS var fyrst og
fremst sigur hðsheildarinnar, Stúd-
ínumar léku grimma vöm og átti
UMFG ekkert svar við henni.
Grindavíkurstúlkur léku ekki vel í
gær, þær byrjuöu iha og þrátt fyrir
að hafa náð forystunni í síðari hálf-
leik náðu þær ekki að fylgja því eft-
ir. Leikmenn hðsins léku alhr undir
getu pg réðu ekkert við góða vöm ÍS.
Stig ÍS: Ásta 21, Helga 13, Hafdís 10,
Kristín 3, Elínborg 2, Unnur 1 og Sól-
veig 1.
Stig UMFG: Stefanía 14, Svanhiidur
8, María 8, Anna Dís 6, Hafdis 3 og
Christine 2. -ih
í 10. sætið
West Ham sótti þijú dýrmæt
stig til The Deh þegar hðiö sigr-
aði Southampton, 0-2, í ensku
úrvalsdeildinni 1 knattspymu í
gærkvöidi. Trevor Morley skor-
aði fyrra raark West Ham á 31.
minútu og Lee Chapman síðara
markið á 38. mínútu.
Með sigrinum hoppaöi West
Ham um sex sæti í deildinni, úr
því 16 í þaö tíunda með 23 stig.
Southampton er í fjórða neðsta
sætinu með 14 stig.
-JKS
Kvennaliðið
til Kýpur
Hlé verður gert á keppni í 1.
deild kvenna fram yfir áramót
vegna utanferðar kvennalandsl-
iðsins. Liðið tekur þátt í Promoti-
on Cup á Kýpur frá 14.-17. des-
ember. Nokkrir leikmenn munu
ekki gefe kost á sér í hðiö þar sem
prófstandasemhæst. -ih
KNATTSPYRNUÞJÁLFARI
óskast fyrir 4. deildar lið KBS. Nánari upplýsingar í síma
97-58900 (Jón) og 51301 (Unnsteinn).
pv fþróttir
Valdimar Grímsson leikur sinn 176. landsleik gegn Króatíu í Zagreb annað kvöld.
Það mun koma í Ijós þá hvort hann brýtur 500 marka múrinn en aðeins vantar þrjú
mörk upp á að það takist. DV-mynd GS
Skorar Valdimar
500. markið?
- þegar ísland mætir Króatíu í Evrópukeppninm á morgun
Víðir Slgurðssom, DV, Króaíiu:
Valdimar Grímsson getur annað
kvöld bæst í hóp fárra íslenskra
handknattleiksmanna sem hafa náð
því að skora 500 mörk fyrir íslands
hönd í A-landsleikjum. Valdimar hef-
ur gert 497 mörk, í 175 landsleikjum,
og þarf því þijú mörk í Zagreb til að
ná þessum áfanga.
Einn leikmanna íslenska hðsins
hefur náð 500 mörkum. Það er Júlíus
Jónasson, sem hefur skorað 562
mörk í 202 landsleikjum.
Gunnar Beinteinsson skoraði sitt
100. mark í fyrri leiknum við Búlgara
fyrr í þessum mánuði og er kominn
með 104.
Gústaf Bjamason skoraði sitt 50.
mark í sama leik.
Geir leikjahæstur
Geir Sveinsson, fyrirhði, er leik-
reyndasti leikmaður íslenska hðsins.
Geir á að baki 258 landsleiki, sem er
met.
Tveir aðrir í hópnum hafa náð 200
leikjum, Júlíus með 202 og Guð-
mundur Hrafnkelsson, sem lék sinn
200. landsleik í síðari viðureigninni
við Búlgari á dögunum.
Dagur Sigurðsson hefur hins vegar
minnsta reynslu, á aðeins 10 lands-
leiki að baki. Hann er jafnframt
yngstur í hópnum, 20 ára gamah.
Guðjón Árnason er aftur á móti
aldursforsetinn í íslenska hðinu,
þrítugur að aldri.
ísland hefur sjaldan í seinni tíð teflt
fram eins reynsluhtlu landshði og
um þessar mundir. Aðeins fimm af
þeim 12 sem leika í Króatíu hafa náð
100 landsleikjum. Fyrir fáum árum
var undantekning ef einhver í hðinu
var ekki með 100 landsleiki að baki!
Evrópukeppni landsliða í handknattleik:
Hart barist um sætin í
lokakeppninni í Portúgal
Víðir Sigurðsson, DV, Króatíu:
í Evrópukeppni landshða í hand-
knattleik er leikið í sjö riðlum og
keppni í þeim er komin vel á veg.
Sigurhðin í riðlunum komast í
lokakeppnina í Portúgal næsta sum-
ar en lið númer tvö leika sín á milh
um þrjú laus sæti. Eitt hð sem hafn-
ar í öðm sæti verður svo heppið að
komast beint til Portúgal, en um það
er dregið.
í 1. riðh beijast Rúmenar og Danir
um efsta sætið, Úkraína er nánast
úr leik og Slóvakía og Moldavía eiga
ekki möguleika.
í 2. riðh er tvisýn barátta Slóveníu,
Noregs, Ungveijalands og Litháen
um efstu sætin en Georgía er úr leik.
í 3. riðh em Svíar nær ömggir með
efsta sætið, Austurríkismenn og
Tyrkir beijast um annað sætið en
Eistlendingar og Belgar eiga ekki
möguleika.
í 4. riðh beijast Hvít-Rússar, ís-
lendingar og Króatar um efstu sætin
en Finnland og Búlgaria eiga ekki
möguleika.
í 5. riðh beijast Þjóðveijar og
Frakkar um tvö efstu sætin en Hol-
land, Grikkland og ísrael eiga ekki
möguleika.
16. riðh hafa Spánveijar sigrað og
tryggt sér sæti í lokakeppninni. Pól-
veijar em nær öraggir með annað
sætið, Sviss á veika von en Lettland
og Kýpur eru úr leik.
í 7. riðh beijast Rússar og Tékkar
um tvö efstu sætin en Ítalía og Lúx-
emborg em úr leik.
Það er því enn aðeins öruggt aö
Spánn og Portúgal verða meðal
þeirra 12 þjóða sem leika um fyrsta
Evrópumeistaratitilinn næsta sum-
ar.
NBA-körfuboltinn í nótt:
Robinson með 35 stig
í sigurleik SA Spurs
Þrír leikir fóm fram í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. SA Spurs sigraði Mhw-
aukee, 102-95, og heldur þar með öðru sætinu í miðriðlinum á eftir spútnikliði Houston
Rockets. David Robinson fór á kostum í hði San Antonio Spurs og skoraði 35 stig og
Dale Elhs var með 22 stig.
LA Chppers vann ömggan sigur á New Jersey, 118-94, og vann þar með sinn sjötta
sigur í 12 leikjum.
Þá tapaði Sacramento, sem er í neðsta sæti Kyrrahafsriðilsins, á heimavelh fyrir
Indiana, 103-105. -GH/SV
Létu vel af dvöUnni
- tveir ungir knattspymumenn æföu með hollenska Hðinu Twente
Eyþór Eðvarðsson, DV, Hollandi:
Páll Pálsspn, knattspymumaður
úr Fram, og ívar Bjarkhnd, KA, sem
hafa æft með hohenska 1. deildar hö-
inu Twente, em nú á leið heim en
æfingar leggjast niður á þessum tíma
árs vegna kulda og frosta á knatt-
spymuvöllunum í Hohandi.
Páll æfði í 3 mánuði með Twente
og átti nokkra stórleiki með varáhð-
inu. Hann ætlar í nám í Fjölbrauta-
skólanum í Garöabæ.
ívar Bjarkhnd, sem var í 2 vikur
hjá félaginu, heldur hins vegar til
Þýskalands í janúar en hann hefur
gert samning við þýska áhuga-
mannahðið Bomssia Emstadten sem
leikur í 4. deildinni þar í landi. í sam-
tah við DV létu strákamir vel af dvöl-
inni hjá Twente og sögðu hohenska
boltann vera erfiðan, meðal annars
vegna þess að erlendir knattspyrnu-
menn þyrftu að standa sig mun betur
en innlendir til að vera með.
Aðspurður um samninginn í
Þýskalandi sagðist ívar vera nokkuð
ánægður, þokkalegir peningar væm
í spilinu, frítt húsnæði og bifreið til
umráða. ívar reiknar með að leika í
Þýskalandi til vors og koma þá vænt-
anlega heim.
stof nað í
„Við byijuöum að æfa ghmu
hér í Kaupmannahöfn um miðjan
október og annað kvöld (í kvöld)
er meiningin að stofna formlega
glímuféiag. Félagar verða um
tuttugu talsins, helmingurinn
Danir og helmingurinn Islend-
ingar,“ sagði Óttar Ottóson í sam-
tali viö DV í gærkvöldi en hann
starfer í Kaupmannahöfn og hef-
ur lengi verið mikhl áhugamaður
um íslenska glímu.
„Hugmyndín að stofnun ghmu-
félags hér kviknaði þegar við vor-
um að fikta við ghmu hér 17. júní.
Mér var síðan att út í þetta og
þegar ég sá hve áhuginn var mik-
ill taldi ég rétt að stofna félag og
þaö verður nú að veruleika,“
sagði Óttar.
Gíímufélag í Malmö
Kröftugt ghmufélag er starfendi
í Malmö í Svíþjóð og tjórða
sænska meistaramótið í glímu fór
fram um síðustu helgi. Keppend-
ur voru tíu.
-SK
vildu gefa
feldskeri, einn og sér, væri reiöu-
búinn til að gefa íslensku ólymp-
íuíorunum, sém fera á vetrarleik-
ana í Lillehammer í Noregi, sel-
skinnsjakka fyrir um tvær milij-
ónir króna.
Hið rétta í málinu er að Samtök
selabænda ásarot Eggerti feld-
skera em reiöubúin th að gefe
umrædda jakka ejjda hafi sam-
tökin og Eggert séö góða sameig-
inlega auglýsingu samfara gjöf-
inni.
-SK
Martha Ernstdóttir úr ÍR tók
þátt í fýrsta stigamóti Alþjóða-
fijáisíþróttasambandsins í viða-
vangshlaupi sem haldið var í
Bolbec í Frakklandi á sunnudag-
inn. Martha hafnaði 112. sæti af
90 keppendum, hljóp vegalengd-
ina á 16,55 mínútum og vann sér
inn 9 stig í stigakeppninni en 20
fyrstu vinna sér rétt til stiga.
Næsta stigamót fer fram í Brússel
í Belgíu þann 19. desember.
Árið sem er að líða komið mjög vel út
- segir Hannes Þ. Sigurðsson, formaður LyfiaeftirHtsnefhdar ÍSÍ. Rúmlega 40 lyfjapróf á árinu öU verið neikvæð. Danir fangelsa neytendur ólöglegra lyfja
Nýlega vom samþykkt lög á danska
þjóðþinginu þar sem viðurlög við
neyslu ólöglegra lyfja, svokahaðra
stera, era hert til muna. Geta íþrótta-
menn og þeir aörir sem bijóta lögin
átt á hættu að verða stungið í svart-
hol í allt að tvö ár. Lög þessi taka
gildi í Danmörku í janúar 1994.
Áþekk lög vom samþykkt í Svíþjóð
í júh í sumar og vitað er að Norð-
menn em að hugsa máhð.
Umrædd lög em ekki til staðar hér á
landi. Lyfjaeftirlitsnefhd íþróttasam-
bandsins er sá aðili hér á landi sem
látið hefur sig lyfjanotkun íþrótta-
manna mestu skipta. Nefiidin hefur
nýlega komið því til leiðar að reglur
hér á landi varðandi flutning ferða-
manna á ólöglegum lyíjum til landsins
hafa verið hertar mjög mikið. Mál ís-
lendings, sem á dögunum var tekinn
með á níunda þúsund töflur af sterum,
er nú til meðferðar hjá héraðsdómi.
En kemur til greina að hér á landi
verði sett lög svipuö þeim sem nýlega
vom samþykkt í Danmörku? Hannes
Þ. Sigurðsson er formaður Lyfiaeftir-
htsnefndar ÍSÍ:
„Spumingin er hvað við eigum að
gera. Því minna sem til er af löggjöf
á meðal þjóða því betra segi ég.
Spumingin er Uka á hvaða leið þetta
er hjá okkur. Við verðum í fyrsta
lagi að greina alveg skýrt á milh
neyslu á flkniefnum og lyflaneyslu
íþróttamanna. Ábyrgir menn meðal
ýmissa þjóða er famir að hugleiða
mjög sterkt að bregðast harðar við
misnotkun íþróttamanna á lyfium.
Þeir hika þá ekki við að grípa til
boða og banna eins og verið hefur
að gerast á Norðurlöndunum. Við
höfum rætt þessi mál í Lyfiaeftirhts-
nefndinni og auðvitað ýtir það við
okkur þegar nágrannaþjóðirnar fara
þessa leiðina. Einhvem veginn hef
ég svo mikla trú á því að íslandsmað-
urinn sé kannski dálítið öðravísi en
aðrir. Okkar samfélag er ekki stórt
og ég segi fyrir mig að ég hef ekki
viljað leggja til við yfirvöld fyrr en í
síðustu lög að fara að lögbinda bann
við þessu. Það er fylgst mjög vel með
þessum málum í dag.“
„Árið sem er að líða
hefur komið mjög vel út“
Rúmlega 40 íslenskir íþróttamenn
hafa verið teknir í lyfiapróf á þessu
ári og kostnaðurinn nemur um 800
þúsundum króna. Ef marka má nið-
urstöðumar koma mjög jákvæðir
hlutir í ljós. Hannes útskýrir það
betur:
„Þetta ár hefur komið afskaplega
vel út hjá okkur. Við emm ekki
komnir með eitt einasta jákvætt próf.
Ekki eitt próf af þeim rúmlega fiöm-
tíu lyfiaprófum sem framkvæmd
hafa verið. Að auki hafa íþróttamenn
okkar á afrekssviöinu verið teknir í
próf erlendis ahtaf af og til á árinu
og enn sem komið hefur ekkert
slæmt komiö út úr þeim prófum og
vonandi verður þaö aldrei."
Aldrei vitað hver mis-
notkunin hefur verið
- Gefa niðurstöður lyfiaprófa hér-
lendis í ár þér thefni til að halda að
neysla íþróttamanna á ólöglegum
lyfium fari minnkandi?
„Maður veit aldrei hver misnotk-
unin hefur verið. Þetta er auðvitað
aht í felum. Þjóöfélag okkar er htið
og það kvisast fljótt út ef einhver er
að bauka við þetta."
- Læknar hafa verið gagnrýndir
fyrir hömlulausa útgáfu lyfseðla til
íþróttamanna. Liggur eitthvað fyrir
varðandi þetta atriði?
„Embætti landlæknis hefur mjög
náið eftirht í dag með öllum lyfseðl-
um sem gefnir em út fyrir stera,
þannig að úr þeirri áttinni hggur það
alveg klárt fyrir að læknar era alls
ekki með í þessu. Auk þess hefur
notkun steralyfia til lækninga farið
mjög minnkandi. Það myndi þvi
strax koma í Ijós við eftirlit land-
læknis á útgefnum lyfseölum ef þetta
væri eitthvað misnotað af læknum.
Við erum hins vegar alveg klárir á
því að ólöglegu lyfiunum er smyglað
th landsins. Þannig gerist þetta."
„Vilja útrýma þessu“
Ákveðnir hópar íþróttamanna hafa
legið undir sérstakri gagnrýni þegar
lyfiamál hefur borið á góma hér á
landi. Þar má nefna vaxtarræktar-
fólk, kraftlyftingamenn og aflrauna-
menn svo eitthvað sé nefnt. Þessir
hópar standa enn utan við ÍSÍ og á
meðan svo er getur Lyfiaeftirhts-
nefnd ekki kahað á íþróttamenn úr
þessum hópum í lyfiapróf. Hannes
segist ekki vita til þess aðþessir hóp-
ar hyggi á inngöngu í ÍSI.
„Þrátt fyrir þessa stöðu hefur verið
reynt að nálgast þessa hópa. Þar hef-
ur samstarfsnefnd sem við erum með
í gangi með landlækni riöið á vaöið.
Fyrir hálfum mánuði efndum við til
fundar. Th hans vom sérstaklega
boðaðir þeir sem áhuga hafa á vaxt-
arrækt og kraftlyftingum. Auk þess
voru aðilar frá sérsamböndum ÍSÍ
boðaðir th fundarins. Það mætti eng-
inn frá sérsamböndunum. Áhuginn
er nú ekki meiri en svo. Hins vegar
mættu á fundinn um 30 aðilar frá
vaxtarræktinni og kraftlyftingunum
og þetta var ljómandi góður fundur.
Á fundinum kom fram, hjá vaxtar-
ræktarfólkinu sérstaklega og því
unga fólki sem þar er í forsvari, aö
það vhl hjálpa th við aö útrýma
þessu. Mjög mikhvægt er, varðandi
ólöglegu lyfin, að útbreiða þann eina
rétta skilning, að það að nota ólögleg
lyf er að hafa rangt við í íþróttum.
Þeir sem em að taka þessi ólöglegu
lyf em að svíkja og svindla."
„Munum halda vöku okkar“
Hvemig metur þú stöðuna í dag hér
á landi varðandi lyfiamálin?
„Ég met stöðuna innan okkar
hreyfmgar þannig að við getum verið
nokkuð ánægðir. Hins vegar þurfum
við ahtaf að halda vöku okkar. Ég
held, að öh sú mikla starfsemi sem
Lyfiaeftirhtsnefndin hefur haft uppi,
bæði varðandi fræðslu og eins með
því að stinga sér niður hingað og
þangað hafi skilað árangri. Við höf-
um síðasta eina og hálfa árið verið
að einbeita okkur meira að æfingun-
um heldur en keppnunum, en látum
þær þó engan veginn lönd og leið.
Menn vita af okkur. Við stingum
okkur niður þar sem okkur dettur i
hug. Við fáum ýmsar ábendingar og
athugum málin í rólegheitum og kyrr-
þey án þess að það veki sérstaka at-
hygh. Við höldum vöku okkar áfram
og gefum þetta ekki upp á bátinn,"
sagði Hannes Þ. Sigurðsson. -SK
Hannes Þ. Sigurðsson er ánægður
meö niðurstöður fjölmargra lyfja-
prófa á árinu. Hann segir einnig að
mikilvægt sé að menn haldi stöðugt
vöku sinni.