Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1993, Qupperneq 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
Meiming DV
Samtíð og saga
Það er laukrétt sem stendur aftan á káp-
unni á bók Iðunnar Steinsdóttur, Er allt að
verða vitlaust?: „Fyndin og raunsæ saga úr
umhverfi sem allir unglingar þekkja." Fátt
gerist í sögunni sem ekki getur gerst hvenær
sem er í daglegu lífi krakka í Reykjavík -
því miður, hggur mér við að segja, því þarna
eru framin ýmis óhæfuverk. En lesendur
mega ekki gera sér vonir um að sagan sé um
krakkana á myndinni framan á kápunni því
það er hún ekki.
Söguhetjurnar eru Flóki, Hilda, Amar og
Olga sem öll eru í 7. bekk hjá Hansínu. Þó
að þrjú þeirra hafi verið saman í bekk í nokk-
ur ár þekkjast þau lítið þegar þau eru sett
saman í hóp í sögu til að skoða líf bama á
19. öld. Sagan fléttar svo saman rannsóknar-
verkefni þeirra, sem þau vinna af sívaxandi
áhuga, og átök við glæpagengi úr níunda
bekk sem vill einkum hefna harma sinna á
Flóka. Þræðirnir tveir era vel spunnir, eink-
um er snjallt að láta krakkana finna bréf frá
ekta nítjándu aldar dreng sem var skilinn frá
móður sinni og bera aðstæður hans saman
við aðstæður sínar nú á tímum. Áhuginn sem
þau fá á þessum hátíðlegu og alvarlegu bréf-
um verður fullkomlega sannfærandi - ekkert
er eins heillandi lesning og gömul bréf.
Smátt og stórt í lífi bamanna þessa daga
kemur fram í frásögn eða lifandi samtölum.
Heimilisaðstæður þeirra verða skýrar og
bregða ljósi á persónuleika hvers um sig.
Bókmenntir
Silja Aðalsteinsdóttir
Hilda á þrjú lítil systkini og mamma hennar
er þar að auki dagmamma þannig að her-
bergi Hildu er alltaf á floti og mamma er
alltaf að baka bollur sem Hilda nýtur óhóf-
lega góðs af og er feitari en þykir smart. Þó
að mikið líf sé í kringum hana heima á hún
enga vinkonu og er einmana. Arnar er sonur
tannlæknis og tölvufræðings, hann er ríki
krakkinn í hópnum, á engin yngri systkini
og er líka mikið einn. Höfundur leggur einna
minnsta rækt við hann og hans heimili. Olga
býr hjá pabba sínum og sambýlismanni hans.
Sá rekur fornbókaverslun og það er þar sem
Olga finnur bréfin. Olga er ein á báti eins
og þau hin, hún er nýkomin í bekkinn og
Iðunn Steinsdóttir. Saga úr umhverfi sem
allir krakkar þekkja.
lítil fyrir mann að sjá en leynir á sér. Hún
reynist hafa stærsta hjartað og mesta um-
burðarlyndið í hópstarfinu.
Aðalpersóna bókarinnar er Flóki, flókinn
karakter og athyglisverður. Þegar á bókina
liður verður hann lifandi staðfesting þess að
það eigi ekki að raða í bekki eftir getu því
báðir hagnist á samvistunum, þeir duglegu
og þeir dugminni. Flóki reiknar af ástríðu
en hann er stirðlæs, orðinn tólf ára. Það er
þó aldrei að vita nema drengurinn frá 19.
öldinni lokki hann yfir þann þröskuld. Flóki
er foðurlaus og býr með einstæðri móður
sinni og lítilli systur. Lífi hans heima og
heiman er afar vel lýst í snöggum og skýram
impressjónískum myndum þar sem aðeins
það fær að vera með sem nauðsynlega þarf
að vera með. Líf Flóka hefur verið einmana-
legt, fyrir utan samskiptin við litlu systur,
en það springur út í allar áttir þennan stutta
tíma sem bókin nær yfir. Hann kynnist ekki
aðeins vinnuhópnum sínum í söguverkefn-
inu heldur leitar hann líka til gamla fólksins
í þjónustuíbúðunum í grænu blokkinni sem
hann ber blaðið til og veiðir upp sögur af líf-
inu í gamla daga sem kveikja áhuga hans
sjálfs og félaganna. Það er svo í grænu blokk-
inni innan um gamla fólkið sem aðalátökin
verða milli níundabekkjar-gengisins og ungu
sagnfræðinganna, þau spretta eðlilega upp
úr sögunni, vel undirbyggð og undirbúin.
Þetta er spennandi og þroskandi saga.
Iðunn Steinsdóttir:
Er allt að verða vitlaust? 129 bls.
Iðunn 1993
Frönsk kvikmyndavlka - Vetrarævintýri: ★★
Ævintýrin enn gerast
Vetrarævintýri, sem sýnd er á
frönsku kvikmyndavikunni í Há-
skólabíói þessa dagana, mun vera
önnur í röð mynda sem franski leik-
stjórinn Eric Rohmer kennir við árs-
tíðimar fjórar. Og ævintýrisnafnið
ber hún sannarlega með rentu.
Félicie er ung og ráðvillt stúlka sem
á erfitt með að gera upp á milli
tveggja karlmanna í lífi sínu, hár-
greiðslumeistarans og yfirmanns
síns Max og menntamannsins Loics.
Hún elskar báða á sinn hátt, samt
varla nógu mikið til að vilja búa með
þeim, þótt hún reyni nú sambúð með
Max í einn eða tvo daga (maðurinn
yfirgaf jú konuna sína hennar vegna
og fluttist út á land).
Mest elskar hún þó Charles sem
hún hitti í sumarleyfi fyrir fimm
Tajaðu við okkur um
BILARÉTTINGAR
BILASPRAUTUN
^wfíEElns-x
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
árum og átti með ástarfundi. Ávöxt-
ur þeirrar ástar varð lítil dóttir en
því miður fór Félicie borgavillt þegar
hún lét Charles fá heimilisfang sitt
og heyrði því aldrei frá honum meir.
En hún lifir alltaf í voninni um að
hitta þennan draumaprins sinn aft-
ur. Og þar sem þetta er nú einu sinni
ævintýri þá...
Rohmer lætur myndina gerast á
örfáum dögum um jólaleytið og á
Kvikmyndir
Guðlaugur
Bergmundsson
köflum er hún allt að því í heimildar-
myndastíl þar sem myndavélin eltir
Félicie á ferðum hennar um París og
út á land. En um leið og öll ytri
umgjörðin er skorin við nögl er ekki
hægt að segja hið sama um orða-
flauminn. Málæði er hér meira og
„háfleygara" en maður á að venjast
í bíó og það eru þessar samræður
persónanna, samræður sem gætu
hvergi verið annars staðar en í
franskri mynd, sem gera Vetraræv-
intýri jafn skemmtilega og raun ber
vitni.
Vetrarævintýri (Conte d’hiver).
Leikstjóm: Eric Rohmer.
Leikendur: Charlotte Véry, Frédéric
v.d. Driessche.
Fjórðahæðin
Þetta er önnur skáldsaga höfundar sem áður sendi
frá sér þrjár ljóðabækur, muni ég rétt. Þetta er upp-
vaxtarsaga í formi spennusögu. Hún hefst nálægt nú-
tímanum (í maí 1990) og IV. hluti gerist einnig þá.
Þessir ámóta löngu hlutar mynda þannig rammasögu
sem er fjórðungur textans. Sagan hefst þannig að sögu-
maður er kominn einn aftur á fornar bernskuslóðir
og greinilega miður sín. Hann er að kanna aðstæður
áður en hann e.t.v. tekur starfstilboði á staðnum og
sest þar að með konu og bami. Þetta virðist vera miðl-
ungsstór bær úti á landi, aðstæður allar ættu vel við
Sigluíjörð, heimabæ höfundar. Og lýsingin er hrífandi
dramatísk, myndræn og nákvæm, með áherslu á
breytileikann. Á bak við nútímamyndina vakir svip-
mót liðins tíma. Þannig er vel undirbúinn miðhluti
bókarinnar, vakin spenna lesenda eftir að skilja for-
söguna. Hún reynist þá vera uppvaxtarsaga sögu-
manns og bróður hans. Hún fellur í tvo hluta, fyrir
og eftir „syndafallið". II. hluti sýnir upphaf bræðra-
lagsins, aldaríjórðungi áður en frásagan hefst, síðan
lok þess, tólf áram seinna. En III. hluti er bréfaskipti
bræðranna eftir aðskilnað þeirra. Lokahlutinn sýnir
svo endanleg viðbrögð sögumanns við allri sögunni.
einkennist af góðum tökum á formi spennusagna,
sem áður segir. Og málin skýrast ekki fyrr en í lok
sögunnar. Ekki má ég rekja málalok, en hitt verð ég
að segja, aö þetta form vekur væntingar, sem ekki
rætast. Bræðurnir ganga hvor sína leið, en báðar al-
gengar. Þau leyndarmál sem afhjúpast seint og um
síðir, virðast jafnvel sögumanni ekki afgerandi. Á
dramatískasta atburði bókarinnar fást hins vegar ekki
skýringar. Það er ósköp eðlilegt, og mætti taka það sem
eins konar stefnuyfirlýsingu, að hafa þennan hvers-
dagslega kjarna inni í ramma spennusögu, væri þá
nokkurs konar svar við því að lesendur leita frá tíð-
indalausu hversdagslifi sínu inn í æsileika spennu-
sagna. En til að sagan gangi upp þarf kjaminn að vera
á einhvern hátt sterkari en ramminn. Ekki í formi
æsilegra atburða eða óvenjulegra aðstæðna, bara
meira lifandi. Vissulega nær þó sagan vel mismunandi
talsmáta sjómanns og menntaskólapilts. Sá fyrrnefndi
notar hálfgerðan símskeytastíl, stuttar málsgreinar
Bókmeimtir
Örn Ólafsson
með hálfkæringslegu slangri, bara taldir upp atburðir,
ekkert talað um tilfinningar, og sleppt óþörfum orðum,
svo sem (bls. 114):
„Túrinn búinn. Við komum inn til að landa í morgun
og ég í frí næsta túr. Við Gústi erum ákveðnir í að
leigja okkur íbúð, hann var í landi þennan túr og fann
kjallaraholu við Bergstaðastrætið sem okkur líst vel
á. Fór með honum áðan að skoða. Eigandinn er búinn
að samþykkja og við ætluðum að flytja inn í dag. Hann
býr á miðhæðinni og svo er einhver kona með
krakkagrísling í risinu."
Tónninn og stíllinn 1 bréfum bræðranna er auðvitað
breytilegur eftir því hvemig samband þeirra er. En
hinn bróðirinn tjáir sig eðlilega í lengri, margbrotnari
málsgreinum og talar mikið um tilfinningar, t.d. (bls.
103);
„Eg er hálfutanveltu í skólanum, það er eins og ég
eigi ekki heima héma, hef á tilfinningunni að ég eigi
að vera að gera eitthvað annað. Ég næ alla vega litlu
sambandi við krakkana, finnst þau stundum óttalega
bamaleg. Mér sýnist þau fæst ætla sér eitthvað með
þessu námi, eins og flestir séu bara að drepa tímann."
Oft er um það rætt í bréfunum að hittast, en stílmun-
ur þeirra gerir skiljanlegt að ekki verði úr því, og
skýrir þá jafnframt einangran sögumanns og þaraf-
leiðandi þroska.
Kristján Kristjánsson:
Fjórða hæðin.
Iðunn 1993, 157 bls.
GJAFAHANDBÓK
///////////////////////////////
JÓLAGJAFA-
HANDBÓK
1993
- 44 síður - fylgir DV á morgun.
Jólagjafahandbók DV hefur orðið æ ríkari
þáttur í jólaundirbúningi landsmanna
enda er þar að finna hundruð hugmynda
að gjöfum fyrir jólin.