Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1993, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
11
Fréttir
Ríkisendurskoðun gagnrýnir störf Framleiðnisjóðs landbúnaðarins:
Styrkir Framleiðnisjóðs
auka á vanda dreif býlis
Ríkisendurskoöun gagnrýnir harö-
lega þá þróun sem oröið hefur í starf-
semi Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins. í nýrri úttekt á sjóðnum er bent
á að hiutverk sjóðsins hafi orðið ann-
að en lög um hann og búvörulögin
gera ráð fyrir. í stað þess að styrkja
og lána tU framleiðsluaukningar og
hagræðingar í landbúnaði fari meg-
inhluti framlaga til aðlögunar bú-
greina að giidandi búvörusamningi.
Að mati Ríkisendurskoðunar er sjóð-
urinn kominn inn á grátt svæði með
úthlutunum sínum og gagnrýnir að
farið sé eftir starfsreglum sem ekki
eru til á prenti.
Á árunum 1985 til 1992 hafði Fram-
leiðnisjóöur 4,3 milljarða til ráðstöf-
unar og veitti á sama tíma 3,7 millj-
arða í framlög. Á tímabilinu fóru 456
milljónir til búháttabreytinga, eða
einungis um 12 prósent af heildar-
framlögimum.
í ljósi fækkandi atvinnutækifæra
til sveita leggur Ríkisendurskoðun
til aö sjóðurinn stefni að þvi að auka
framleiðni í íslenskum landbúnaði
og þar meö að lækka verð á landbún-
aðarvörum til hagsbóta fyrir allan
almenning í landinu í stað þess að
veita fjármuni til að halda einstökum
lögbýlum í byggð. Fyrirséð sé að
mörg þeirra geti aldrei framfleytt
einni, og því síður fleiri, fjölskyldum.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir sér-
staklega hvemig staðið hefur verið
að fyrirgreiðslu til loðdýraræktar af
hálfii sjóðsins. Lagt er til að sjóður-
inn hætti nú þegar að veita fé til
þeirra búa sem enn starfa án þess
að eiga sér framtíð. Að mati Ríkis-
endurskoðunar leikur ekki vafi á því
Bíræfmn þjófur:
Eins og and-
ieg nauðgun
- segir Pálmi Gestsson
„Það var bara farið inn í herbergin
okkar og allt fémætt hirt. Við hittum
þennan mann á göngunum og hann
var greinilega mjög rólegur, með
stáltaugar og bíræfinn eftir því,“ seg-
ir Pálmi Gestsson leikari en hann var
einn þeirra starfsmanna Þjóðleik-
hússins sem ókunnugur maður
rændi á laugardagskvöld.
„Við héldum að þetta væri einhver
starfsmaður eða einhver sem átti
erindi. Svo kom bara í ljós seinna að
horfin voru veski og peningar úr
þremur eða fjórum herbergjum. Við
Siggi Sigurjóns erum saman í her-
bergi og mitt veski var tekið með
öllu sem í því var. Það er eins og
andleg nauðgun að láta rífa af sér
svona persónulega muni. Það var
sem betur fer lítið af reiðufé í veskinu
mínu en ávísanahefti og öll mín skil-
ríki,“ segir Pálmi.
Fleiri starfsmenn söknuðu veskja
sinna en Pálmi segir að þjófminn
hafi ekki náð miklum peningum. Að
sögn Pálma er ströng öryggisgæsla
við leikhúsið og dyravörður. Meintur
þjófur sagðist þurfa að tala við
ákveðinn leikara og fyrir misskiln-
ing var honum hleypt inn.
Þjófnaðurinn uppgötvaðist í hléi
þegar sýningarstjórinn tók eftir því
að veskið hans vantaði.
„Það varð uppi fótur og fit og við
fórum að skoða í okkar hirslur. Þá
var bara allt horfið. Hann hafði
meira að segja gefið sér tíma til að
fara úr sýningarstjóraherberginu og
upp í búningsherbergin. Þar hafði
haim farið inn á kvennaklósett og
tekiö úr veski sýningarstjórans það
semhannvildi,“sagðiPálmi. -JJ
að auk þess fjárhagslega skaða sem
bæði ríkissjóður og loðdýrabændur
hafa orðið fyrir vegna loðdýrarækt-
unar þá hafi fyrirgreiðsla sjóðsins
aukið á þann vanda í atvinnumálum
sem menn standa nú frammi fyrir í
sveitum landsins. leiðnisjóðs til annarra hluta en bú-
Á það er bent í skýrslu Ríkisendur- reksturs séu til þess fallnir að auka
skoðunar að ýmsir styrkir Fram- áframtíðarvandadreifbýlisins. -kaa
Ný þjónusta!
Fyrirtæki í stærsta
verslunarkjarna borgarinnar
bjóða viðskiptavinum 50 kr. greiðslu
vegna bilastæðiskostnaðar
Þessi nýstárlega þjónusta er afrakstur samstarfs
milli Miðbæjarfélagsins, Laugavegssamtakanna og Bílastæðasjóðs.
í boði eru um 1800 bílastæði í bflageymslum og á miðamælastæðum.
Bflageymslur á svæðinu eru í Ráðhúskjallaranum, Kolaporti, Traðarkoti,
Vesturgötu 7, Bergsstöðum, Vitatorgi
og miðamælastæði eru á 17 stöðum.
Til að fá endurgreiðsluna
þarftu einungis að uppfylla eftirtalin skilyrði:
versla fyrir lágmark 1000 kr. hjá aðildarfyrirtæki
framvísa kvittun af tímamiða úr miðamæli
eða geymslukvittun úr bílageymslu
Viðkomandi fyrirtæki stimplar kvittunina og
endurgreiðir 50 kr. um leið og viðskipti fara fram.
Verslanir og fyrirtæki sem taka þátt í þessu samstarfi
eru auðkennd með sérstöku merki.
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Bílastœöi fyrir alla